Morgunblaðið - 14.01.1989, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 1989
Vandi loðdýrabænda:
Ríkisvaldið ber um-
talsverða ábyrgð
- segir Steingrímur J. Sigfusson
landbúnaðarráðherra
TILLÖGUR um aðstoð við loðdýrabændur verða væntanlega af-
greiddar á ríkisstjórnarfundi næstkomandi þriðjudag. Að sögn
Steingríms J. Sigfússonar landbúnaðarráðherra er ekki gert ráð
fyrir að hægt verði að tryggja öllum loðdýrabændum möguleika
á áframhaldandi búrekstri. Hann telur stjórnvöld bera umtais-
verða ábyrgð gagnvart þeim sem verða að hætta loðdýrarækt,
og þau geti ekki hlaupið £rá vandanum þar sem þau hafí hvatt
menn til að heQa þennan búskap.
Landbúnaðarráðherra lagði
ákveðnar tillögur fyrir ríkisstjóm-
arfund á fímmtudag, en hann
hafði áður kynnt þær í ríkisstjóm-
inni. Hann sagði, í samtali við
Morgunblaðið, mjög brýnt að ríkis-
stjómin taki fljótt ákvörðun um
hvað hún vilji leggja af mörkum
til að styðja við bakið á þeim loð-
dýrabændum sem vilja halda
^•am búrekstri, og forða fyrirsjá-
anlegu hruni búgreinarinnar.
„Eg á von á því að ákvörðun í
þessu máli verði tekin á ríkis-
stjómarfundi á þriðjudaginn, en
ég geri ekki ráð fyrir að þær
ákvarðanir sem teknar verða
tryggi öllum loðdýrabændum
möguleika á að halda áfram
rekstri. Vonandi getum við þó
gert þær ráðstafanir sem tryggja
sem flestum möguleika á að halda
áfram. Þegar hafa margir bændur
hætt þessum búskap, og skuldir
þeirra sem annarra loðdýrabænda
eru mjög mismunandi. Sumir eru
með margvíslegar lausaskuldir
með persónulegum ábyrgðum, og
það eru vissulega erfíð mál, en
aðrir em heppnir að því leyti að
skuldir þeirra em að mestu leyti
við opinbera sjóði, sem em skárri
viðureignar. A þessu stigi get ég
ekkert sagt um það hvemig á
málum þeirra sem hættir em eða
neyðast til að hætta verður tekið,
né hve mörg og alvarleg tilvik þau
kunna að verða. Eg er þó persónu-
lega þeirrar skoðunar að stjóm-
völd beri umtalsverða ábyrgð í
þessu máli, því menn vom mjög
hvattir til að hefja þennan búskap,
og mér fínnst ekki að stjómvöld
geti hlaupið frá þessu þar sem þau
eiga sinn þátt í því að menn fóm
út í þessa búgrein," sagði
Steingrímur J. Sigfússon.
Samband íslenskra loðdýra-
ræktenda sendi ríkisstjóm og öll-
um alþingismönnum greinargerð
um stöðu og framtíð loðdýrarækt-
ar í byijun desember. í greinar-
gerðinni kemur fram að erfíðleikar
búgreinarinnar em tilkomnir
vegna fastgengis, þungrar fjár-
magnsbyrði af lausaskuldum og
verðfalls á skinnum vegna verð-
falls á dollar og offramboðs á refa-
skinnum.
Þær aðgerðir sem SÍL telur að
geti orðið til þess að rétta stöðu
loðdýraræktarinnar við em endur-
greiðsla söluskatts 1986-1988 á
núvirði, leiðrétting vegna fast-
gengis hliðstætt og sjávarútvegur
hefur fengið, endurgreiðssla á
söluskatti af ijárfestingum fóður-
stöðva, skuldbreytingar á lausa-
skuldum í föst lán til 20 ára með
breytilegum ársgreiðslum í sam-
ræmi við afkomu greinarinnar og
framleiðslumagn fóðurstöðva, bú-
háttabreyting úr ref í mink og
hugsanlega afskriftir skulda.
I greinargerð SÍL segir að það
þurfí að taka skjótar ákvarðanir í
þessu máli því margir bændur
íhugi alvarlega að hætta loðdýra-
búskap ef aðstæður lagast ekki
fljótt. Erfítt muni reynast að fá
fleiri bændur en nú þegar em
komnir í loðdýrarækt til að hefja
hana og hverfa frá hefðbundnum
búskap. Eins og nú horfí í fram-
leiðslu og neyslu kindakjöts hér á
landi verði framleiðsla að minnka
og bændur að fá aðstoð til að taka
upp aðra framleiðslu.
Morgunblaðið/Emilía
Kristín Aðalsteins- Gvða Sveinsdóttir Andri Már Ingólfsson
dóttir
Nýir starfsmenn
hjá Ferðamiðstöðinni
í fréttatilkynningu, sem Morg-
unblaðinu hefur borist frá Ferða-
miðstöðinni, segir að nokkrir
nýir starfsmenn hafí tekið til
starfa hjá fyrirtækinu, þar á
meðal þau Andri Már Ingólfsson,
Kristín Aðalsteinsdóttir og Gyða
Sveinsdóttir, sem öll eiga að baki
starf hjá ferðaskrifstofunni Út-
sýn.
I fréttatilkynningunni segir með-
al. annars: „Andri er nú tekinn við
Ferðamiðstöðinni sem forstjóri.
Fimm aðrir fyrrverandi starfsmenn
Útsýnar em þegar komnir til starfa
hjá Ferðamiðstöðinni og fleiri bíða
eftir að losna og em ráðnir til starfa
í þjónustu- og söludeild. Meðal
þeirra, sem em komnir til starfa,
em fyrrverandi deildarstjórar sölu-
deilda Útsýnar, þær Kristín Aðal-
steinsdóttir úr hópferðadeild og
Gyða Sveinsdóttir úr einstaklings-
deild. Báðar hafa þær yfír 20 ára
starfsreynslu í ferðaþjónustu að
baki.
Ný uppbygging tekur nú við hjá
Ferðamiðstöðinni, sem er þekkt fyr-
ir skipulagningu ferða á alþjóðlegar
vömsýningar og hópferðir til Beni-
dorm. Starfsfólk fyrirtækisins verð-
ur um 20 manns frá áramótum.
/
AF INNLENDUM
VETTVANGI
eftir AGNESIBRAGADÓTTUR
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Við upphaf fundarins i Ráðherrabústaðnum við Tjarnagötu í gær. Frá vinstri: Jón Baldvin Hannib-
alsson, utanrikisráðherra, Ingi Björn Albertsson, þingmaður Borgaraflokksins og Steingrimur
Hermannsson, forsætisráðherra. Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra var þriðji ráðherrann
í viðræðunum og aðrir fúlltrúar Borgaraflokks voru þeir Július Sólnes, formaður Borgaraflokks-
ins, Óli Þ. Guðbjartsson, þingmaður flokksins og Benedikt Bogason, sem tekur sæti á þingi þegar
Albert Guðmundsson tekur við starfi sendiherra íslands í Frakklandi.
Heimilisvandi Borgaraflokks
- áhugaleysi stjórnarliða
MÖRG er búmannsraunin kunna þeir borgaraflokksmenn að hugsa
sem í gær hófu viðræður við ráðherra ríkisstjórnar Steingrims
Hermannssonar um hugsanlega stjórnaraðild, eða nýja stjómar-
myndun, eins og þeir sjálfír vilja orða það. Það liggur fyrir að það
er stjóminni lífenauðsynlegt að fá til liðs við sig fleiri þingmenn
til þess að meirihluti hennar verði tryggður i neðri deild Alþingis.
Hún getur ekki aftur treyst á stuðning úr stjómarandstöðunni, að
öflu óbreyttu, þegar mikilvæg frumvörp stjóraarinnar koma til at-
kvæðagreiðslu á vorþingi. Það kom þvi nokkuð á óvart hversu mik-
ið áhugaleysi um að hraða samkomulagi við Borgaraflokk, virtist
ríkja meðal formanna stjómarflokkanna, að afloknum fyrsta við-
ræðufundinum við fuUtrúa Borgaraflokksins í gærmorgun.
Stjómarliðar tala um heimilisvanda Borgaraflokksins og að
flokksmenn verði að fínna lausn á honum áður en að formlegri
stjómaraðUd flokksins eða hluta flokksins geti orðið.
Svo er að sjá sem nú ríði meir á
fyrir flokksformenn stjómarflokk-
anna þriggja að hefja fundaher-
ferðir um landið, til þess að koma
boðskap sínum á framfæri.
Að vísu verður ekki um neitt
þríeyki að ræða, því þeir A-flokka-
formenn Jón Baldvin Hannibalsson
og Ólafur Ragnar Grímsson ferðast
saman, á rauðu ljósi, en Steingrím-
ur ferðast einn á báti, á grænu
ljósi. Aðrir ráðherrar ríkisstjómar-
innar munu einnig þeysa út um
víðan völl á næstunni, þannig að
ekkert svigrúm gefst til þess að
sinna lítilræði eins og nýrri stjóm-
armyndun og þvf verður næsti
fundur með Borgaraflokknum ekki
haldinn fyrr en á laugardaginn að
viku. Þessu áttu borgaraflokks-
menn ekki von á um hátíðamar,
þegar stjómarliðar klifuðu á því
að þegar á nýju ári yrði gengið til
stjómarmyndunarviðræðna við
Borgaraflokk.
Fundurinn í gærmorgun stóð í
um tvo tíma og fór hann fram í
Ráðherrabústaðnum við Tjamar-
götu. Júlíus Sólnes, formaður
Borgaraflokksins sagði að aflokn-
um fundinum: „Þetta voru afskap-
lega gagnlegar viðræður og það
var farið ítarlega yfír stöðuna. Það
er að minnsta kosti ekki búið að
loka neinum dyrum."
Það má segja að þetta hafí einn-
ig verið hljóðið í fulltrúum ríkis-
stjómarinnar, þeim Steingrími
Hermannssyni, Jóni Baldvin
Hannibalssyni og Ólafi Ragnari
Grímssyni, þegar þeir svöruðu
fréttamönnum að afloknum fundin-
um. í stuttu máli sagt, að ekkert
hafi gerst, að ekkert hafi þokað í
áttina og að ekkert lægi á að ná
niðurstöðu um hvort af aðild Borg-
araflokksins að ríkisstjóminni geti
orðið. „Það er ekki að vænta ein-
hverrar niðurstöðu f þessum um-
ræðum í næstu viku. Þetta mun
taka sinn tírna," sagði Jón Baldvin
og Steingrímur sagðist gera sér
vonir um að niðurstaða lægi fyrir
um mánaðamót.
Mínar heimildir úr röðum ríkis-
stjómarinnar herma að það sé
ríkisstjóminni ekkert kappsmál að
fá Borgaraflokkinn inn í stjómina
óskiptan, enda sé það afskaplega
ólíklegt að um slíkt samstarf náist
fullt samkomulag. Að minnsta
kosti verði flokkurinn að taka því
að koma inn án þess að málefna-
grundvelli stjómarinnar verði
breytt svo nokkru nemi. Það sé
allt eins fysilegur kostur, jafnvel
öllu fysilegri að tryggja áfram-
haldandi stuðning þeirra borgara-
flokksþingmanna sem standi ríkis-
stjóminni næst málefnalega og er
þá átt við þau Aðalheiði Bjamfreðs-
dóttur og Óla Þ. Guðbjartsson.
Þetta er skoðun ákveðinna ráð-
herra ríkisstjómarinnar. Alþýðu-
bandalagið er enn þeirrar skoðunar
að Borgaraflokkurinn sé óæskileg-
ur samstarfsflokkur, þótt Albert
Guðmundsson hverfi brátt af Al-
þingi. Ingi Bjöm Albertsson mun
hafa spurt á fundinum í gærmorg-
un, hvað hafi breyst, frá því síðast-
liðið haust, þegar Alþýðubandalag-
ið útilokaði stjómarsamstarf við
Borgaraflokkinn. Ólafur Ragnar
mun ekki hafa gefíð aðra skýringu
á afstöðubreytingu síns flokks en
þá að Aðalheiður Bjamfreðsdóttir
gegndi þar lykilhlutverki. Hann
sagði þó einungis við fréttamenn
að afloknum fundinum að Alþýðu-
bandalagið gengi með opnum huga
til þessara viðræðna við Borgara-
flokkinn, en ekki orð um það hvort
alþýðubandalagsmenn hefðu hug-
ann jafn opinn gagnvart hugsan-
legu stjómarsamstarfi.
Innanhúsvandamál Borgara-
flokksins vefjast ekki bara fyrir
flokksmönnum sjálfum, heldur og
stjómarliðum. Ingi Bjöm sagði á
opnum fundi Borgaraflokksins sl.
þriðjudag að ef af stjómaraðild
Borgaraflokksins yrði, þá væru all-
ir þingmenn flokksins í kjöri sem
ráðherraefni. Eru þessi ummæli
Inga Bjöms túlkuð á þann veg að
hann hafi verið að áminna Óla Þ.
Guðbjartsson um að hann væri á
engan hátt jafn sjálfgefið ráðherra-
efni og hann virðist sjálfur telja.
Innri átök í Borgaraflokknum eru
ráðherrum ríkisstjómarinnar ljós
og því hefur þeirri skoðun vaxið
fiskur um hiygg að betra sé að fá
stuðning eða samstarf við flokks-
brot Borgaraflokksins, heldur en
sjö mann þingflokk, sem sé svo
tvístraður í skoðunum og afstöðu,
að engu tauti verði við hann kom-
ið. Nægt álag sé á þriggja flokka
samstarfí þessara flokka, þannig
að margtvístraður fjórði flokkur
komi ekki til með að styrkja stöðu
stjómarinnar, þó að öruggur þing-
meirihluti yrði þannig tryggður.
Samkvæmt mínúm heimildum úr
þingflokki Borgaraflokksins ríkir
einnig vantrú í þeim herbúðum á
að af stjómarsamstarfí geti orðið,
með stuðningi alls þingflokksins.
Yfirlýsing Steingríms Her-
mannssonar, forsætisráðherra á
opnum fundi í fyrrakvöld er enn
ein vísbendingin um þann ásetning
hans að kaupa aðild Borgaraflokks-
ins ekki dýru verði. Þar sagði
Steingrímur að næðist ekki meiri-
hluta samstaða um það á Alþingi
að grípa til róttækra efnahagsað-
gerða, væri ekki um annað að ræða
en rjúfa þing og boða til kosninga.
Með þessu var forsætisráðherra
sjálfsagt að áminna borgaraflokks-
menn um það að annað hvort komi
þeir inn í stjómina á hans forsend-
um, eða þeir lendi í kosningabar-
áttu innan tíðar, sem væri að sjálf-
sögðu ekkert annað en dauðadómur
yfir Borgaraflokknum nú.
Sömuleiðis ætlaðist Steingrímur
sjálfsagt til þess að samráðherrar
hans, þeir Jón Baldvin og Ólafur
Ragnar meðtælqu boðskap sinn,
því hann telur sig og sinn flokk,
líklega með réttu, mun betur í
stakk búinn að fara út í kosninga-
baráttu, en samstarfsflokka sína.
Boðskapur Steingríms til A-flokka
formannanna gæti því verið þessi:
Ef þið samþykkið ekki frekari
gengisfellingu í lok mánaðarins,
þá er þetta bara búið spil, strákar
mínir!