Morgunblaðið - 14.01.1989, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 14.01.1989, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 1989 Ást er... ... vopn gegn íreist- ingum. TM Rea. U.S. Pat Ofí.—all rights rcserved • 1989 Los Angetes Times Syndrcate Engum öðrum en þér hefði dottíð í hug að kasta log- andi vindli án þess að ganga úr skugga um jarð- gas. Með morgunkaffrnu Ef þú ekki getur borðað kótilettuna fer ég með hana heim til konunnar ... EB&SWMð BThlfí,ríÍ ■;r.s 0 'í N ^ II \ 'i ? ‘ íi i ! n Islendingar, hvert stefiium við? Frá mótí Þridrangs á Snœfells- nesi Til Velvakanda. Mér varð á að opna fyrir ríkisút- varpið kl. 13.05 mánudaginn 9. jan- úar sL, sem er kannski ekki í frásög- ur færandi. Þar var á dagskrá þátt- urinn „í dagsins önn“ með Berg- ljótu Baldursdóttur sem umsjónar- mann. í þættinum var tekið fyrr efnið „Þrídrangur". Rætt var við þá Hartmann Bragason og Leif Leópoldsson. Sá fyrmefndi hældi mjög yogahugleiðslu og dásamaði mótshaldið á Snæfellsnesi sl. sum- ar. Á því móti var fenginn töfra- læknir frá Bandaríkjunum og olli sá því andrúmslofti að margir gengu á eldsgóðum, eins og ekkert væri. Hinn síðamefndi sagðist vera miðill og hafa sérstaka hæfileika til að skjmja fyrra líf fólks, taldi sig þar með trúa á endurholdgun! Hvað er að ske? Þegar hinn almenni íslenski ríkis- borgari er spurður hvort hann sé kristinn, kemur undmnarsvipur á andlitið og svarað er: „Já auðvitað, veistu ekki að ísland er kristið land?“ Ef ísland er kristið land, þá hlýt- ur það að byggja á kristnum grund- velli, en sá grundvöllur er Biblían. Hvað segir Biblían um það sem kom fram í þættinum? í 5. Mósebók 18. kafla og 10. versi stendur: „Eigi skal nokkur finnast hjá þér, sá er láti son sinn eða dóttur ganga gegnum eldinn, eða sá er fari með galdur eða spár eða fjölkynngi eða töframaður eða gjömingamaður eða særingarmaður eða spásagna- maður, eða sá er leití frétta af framliðnum. Því að hver sá, er slíkt gjörir, er Drottni andstyggi- legur og fyrir slfka svívirðingu rek- ur Drottinn Guð þinn þá burt undan þér.“ Að ganga gegnum eld, leita frétta af framliðnum o.s.frv. er andstyggilegt í augum Guðs og leið- ir eingöngu bölvun yfír þjóð vora. í þættingum var bent á að fyrir hjálp þeirra væri hægt að hljóta lækningu, bætt samskipti við aðra, meiri lífsfyllingu o.fl. En hvers vegna að leita langt yfír skammt? Allt þetta og miklu fleira eigum við í Jesú Kristi og þurfum því ekki að leita í trúar- brögð heiðinna þjóða til að fá hjálp! Þar að auki er Jesús sá eini sem hefur getað sagt: „Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífíð. Enginn kem- ur til föðurins, nema fyrir mig.“ Hjálpræðið er aðeins í Jesú Kristi. Til himna kemst þú aðeins ef þú hefur tekið á móti Jesú í hjarta þitt. Guð er góður Guð og vill okk- ur öllum allt það besta. Leitum augtlitis hans og land okkar og þjóð mun blessun hþ’óta. Jódis Konráðsdóttír AÐ „KNALLA“ — athugasemd við tónlistargagnrýni Til Velvakanda. Jón Ásgeirsson, tónlistargagn- rýnandi Morgunblaðsins, talar um að „knalla" í grein sinni um tón- leika Gunnars Guðbjömssonar, ten- órs, í Gerðubergi. Ekki útskýrir gagnrýnandinn fyrir hinum aimenna lesanda, hvaða fyrirbrigði hér sé um að ræða, ef til vill spuming, hvort hann veit það sjálfur. Mig langar til þess að upplýsa það, sem ég hygg að felist í sagn- orðinu að „knalla". Þetta er gömul brella, sem tenór- söngvarar notuðu hér áður fyrr, þegar söngtækni var skemmra á veg komin en nú er og heita mátti, að líkamleg tækni væri óþekkt; söngvarar studdust í staðinn ein- vörðungu við hljóðin, sem radd- böndin ein gátu framleitt. „Knall" var í því fólgið, að reg- istri raddarinnar var skjmdilega breytt, þegar skipta þurfti um tón, td. þegar farið var upp á háan tón í lok lags. Þá var raddböndunum gefíð „stuð“ með barkakýlinu og vöðvunum í námunda við það. Þetta getur verið stórhættulegt uppátæki. Enginn kennari, sem veit hvað hann er að gera, lejrfír .nemanda sínum að aðhafast þetta, hvað þá að hann kenni það. Svipað er að segja um svokallaða bijóst- registur kvenraddarinnar. Ekki þykir lengur æskilegt og alls ekki nauðsjmlegt að nota þetta bijóst- registur, þótt syngja þurfí djúpt niður. Sú tækni, sem allir bestu söngkennarar búa yfír í dag, gerir þetta hvort tveggja óþarft. Ég vil óska þessum framúrskar- andi söngvara, Gunnari Guðbjöms- syni, til hamingju með það að vera nú kominn í söngnám hjá þeim frá- bæra kennara, prófessor Hanne- Lore Kuhse, Wagner-söngkonu í Berlín. Hún kennir honum að nýta orku góðs skrokks, líka til þess að „framleiða voldugan endatón". Ef mér skjátlast ekki því meir, mun bróðir Gunnars, Guðbjöm Guð- bjömsson, eiga sér glæsta framtíð sem Wagner-tenór í Þýskalandi (við hlið „popp-söngvarans“ Peters Hoffmanns). Guðbjöm er einnig við nám hjá frú Kuhse. Ég er þess fullviss, að hvað sem íslenskir spekingar hjala á kennara- stofum og í blaðagreinum, muni samvinna þessara góðu listamanna skila afburða-árangri, — en ekki skraf þeirra. Ágústa Ágústsdóttír HÖGNI HREKKVISI , £6 HEi-T AV ÉQ VÆRI MÆ5T.' Víkveiji skrifar Nýlega birtist frétt hér í blaðinu um fjárlög Bandaríkjanna. í henni birtust tölur, sem við emm óvön að nota hér á landi og þá urðu nokkrar umræður um það meðal blaðamanna Morgunblaðsins, hver væri merking orða eins og billjón og trilljón. Þessi orð eru notuð með mismunandi hætti í Bandaríkjunum og Evrópu, þótt bandaríska notkunin sé farin að lyðja sér víða rúms. I stuttu máli em reglumar þann- ig á íslensku: Bandarísk billjón er milljarður eða þúsund milljónir. Bandarísk trilljón er á íslensku bil- ljón, þ.e. milljón milljónir. Trilljón á íslensku þýðir milljón milljón millj- ónir. Munurinn á milli bandarískrar notkunar á þessum orðum og ensk- rar er alltaf að vera óljósari. Þann- ig hefur enska vikuritið Economist tekið upp bandarísku notkunina á orðinu bilijón og skömmu eftir að fréttimar bámst um bandarísku Qárlögin sendi Reuters fréttastofan frá sér orðsendingu þess efnis, að hér eftir myndi hún nota orðið tril- ljón í bandarísku merkingunni, það er um milljón milljónir, sem við ís- lendingar köllum billjón. XXX Við jrfirlestur á handritum af þýðingum verður Víkveiji æ oftar var við það, hve margir nota orðið billjón á íslensku yfir það sem með réttu er milljarður á blessuðu móðurmálinu. Þá kemur það einnig í ljós, ef grannt er skoðað, að marg- ir eiga í hinum mestu erfiðleikum með að beygja orðið milljarður og hallast kannski þess vegna frekar en ella að því að nota orðið billjón í þýðingum. Áð því kemur ef ekki er mark- visst staðið gegn því að orðið billjón útrýmir orðinu milljarður úr fslensku máli; að við tökum upp bandarísku merkingu orðsins billjón eins og svo margir aðrir virðast vera að gera. Víkveiji kann ekki skýringu á því, hver er orsök þess að merking orða þróast með jafn misjöfnum hætti og hér hefur verið lýst, þvi að orðið miUiard er til í enskri tungu og merkir hið sama og milljarður í okkar máli. Fyrir skömmu vakti Víkveiji at- hygli á umsögn í Almanaki Þjóð- vinafélagsins um upphaf viðskipta- viku og alþjóðlega staðla í því efni, sem við verðum að sætta okkur við. Á eitthvað svipað eftir að ger- ast með orðin: milljón, billjón og trilljón? XXX Svo er það sagan um útlending- inn, sem var að velta því fyrir sér, eftir að hafa horft á sjónvarps- fréttir hér í nokkur skipti, hvort Steingrímur Hermannsson væri þulur á báðum stöðvunum. Hvað skyldi maðurinn hafa sagt, ef hann hefði einnig hlustað á fréttir hljóð- varps ríkisins? .it-ZtXL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.