Morgunblaðið - 14.01.1989, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 1989
a§
37
Pokakaupmadur m
í- pokaskattur SsSSSjS ssspjmtíTÆ
Sí.'írw hSt**.——
^rcrakUvaUal
- -««« ---—
Þessir hringdu ..
Auglýsingar á plastpokum
Hjördís hringingar;
„Ég vil taka undir það sem
Guðmundur Guðbjartsson segir í
grein sinni er „Pokakaupmaður -
pokaskattur" er birtist í Morgun-
blaðinu 12. janúar. Hvemig væri
að kaupmenn borguðu viðskipta-
vinum sem em gangandi auglýs-
endur fyrir fyrirtæki þeirra, bæði
hérlendis og erlendis, einhveijar
smá prðsentur. Það em þúsundir
plastpoka í umferð hér á landi
með auglýsingum og nöfnum fyr-
irtækja og ég hef einnig séð þá í
flugstöðvum erlendis. Mér finnst
ekki nema rétt að kuapmenn borgi
eitthvað fyrir þessar auglýsingar
eða veiti að minnsta kosti ein-
hvem afslátt af því sem keypt er.“
Happdrætti
Haraldur hringdi:
„Ég er gamall og gróinn við-
skiptavinur Happdrættis Háskóla
íslands en undanfarin ár hefur
mér blöskrað hvemig staðið er
að augiýsinum hjá þeim og reynd-
ar öðmm happdrættum. Ég tel
að happdrættinu hafi farið mikið
aftur eftir að bytjað var að draga
með tölvu. í auglýsningum er
gefið í skyn að vinningslíkur séu
miklu meiri en þær em. Til mót-
vægis finnst mér að upplýsinga-
skylda happdrætta um eigin fjár-
hag ætti að vera miklu meiri. Það
mætti t.d. skylda þau til að birta
tæmandi uppgjör í Lögbirtinga-
blaðinu f lok hvers árs.“
Góð þjónusta
Hanna Jónsdóttir hringdi:
Ég vil koma á framfæri þakk-
læti til Ingólfs Guðbrandssonar
fyrir alla þá ánægju sem við hjón-
in höfum notið í ferðum hjá Útsýn
undanfamin ár. Við emm búin
að fara í sextán skipti með Útsýn
og allt hefur staðið eins og stafur
á bók í þeim ferðum. Eg óska
Útsýn alls góð í framtíðinni en
við munum ekki ferðast aftur með
þeirri ferðaskrifstofu."
Lopapeysa
'Sex ára bam tapaði bleikri
peysu með vínrauðu útprjóni fyrir
löngu í Hafnarfirði. Vinsamlegast
hringið í síma 651074 ef hún
hefur komið í leitimar.
Köttur
Svartbröndóttur högni með
hvíta bringu og loppur hefur verið
á flækingi í Sólheimunum. Eig-
andi hans er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 38290.
Páfagaukur
Hvítur páfagaukur með bláan
blett á bringu tapaðist frá
Bramahlíð 45 sl. sunnudag.
Finnandinn, sem hafði samband
við Bylgjuna f vikunni, er vinsam-
legast beðinn að hringja í síma
16079. Fundarlaun.
Gleraugu
Gleraugu fundust við Maríu-
bakka sl. miðvikudag. Upplýsing-
ar í síma 74532.
Voðalegt væl
TU Velvakanda. sænsku og norsku. flest aðeins kunna dálítið hrafl f
O-hó, beibí, beibi hóldmí tætnál
— Oh, baby, baby — Love in the
backyard — You can do better than
this, darlingi I love you America!
Dag eftir dag, nótt eftir nótt, ár
út, ár inn er þessu seigfljótandi
þruglings-spangóli með tilheyrandi
trumbuslætti hellt ótæpilega í hlust-
ir landsmanna gegnum rás eitt, rás
tvö, Bylgju, Rót, Stjömu, Stöð tvö
og ríkissjónvarp: Tóbakið er allt
eins.
Enda þótt tugir þúsunda íslend-
inga haldi árlega í sumarleyfi til
Spánar, Portúgals, ítalfu, Þýska-
lands, Hollands o.fl. Evrópulanda
og kynnist þar léttum dægurlögum,
söngvum, poppi og diskódönsum,
þá heyrast þess samt sáralitil merki
í útvarps- og sjónvarpssendingum
hérlendis. Þar situr sama ömurlega
ameríska síbyljan ein við völd. Þeir
skipta þúsundum hér á landi sem
kunna þó nokkuð í franskri tungu
og spænskri — þýska og danska
em kenndar hér ámm saman í
framhaldsskólum, og margir kunna
Það er því illskiljaniegt, að
íslenskar útvarpsstöðvar skuli eyða
nær ótakmörkuðum tíma og Qár-
munum í að rífa vísvitandi niður
móðurmálsvitund íslenskra bama
og unglinga með einhæfu engil-
saxnesku frygðargelti í svo til öllum
dægurlagaflutningi. Þá er það hulin
ráðgáta núna á tfmum hagræðingar
og aðhalds í rekstri, hvers vegna
íslenskar útvarpsstöðvar leita sér
ekki liðsinnis og komast að samn-
ingum við útvarpsstöð bandaríska
herliðsins á Keflavíkurflugvelli og
fái skemmtimúsíkinni útvarpað
þaðan svo til beint frá framleiðslu-
landinu — heiti laganna fengjust
þá um leið kynnt á lýtalausri
amerísku.
Væri það ekki eðlilegasta skrefíð
og rökrétt framhald á því ameríska
algleymi, sem íslenskir dagskrár-
gerðarmenn stefna auðheyrilega
að? Þetta dapurlega lið, sem sífellt
er að misþyrma amerískum dægur-
lagaheitum í svokölluðum íslensk-
um útvarpsþáttum og virðist vel-
þessari einu erlendu tungu — það
gæti þá endanlega fengið „frí frá
störfum" — for gúdd. Það væri létt-
ir!
Dægurlagaflutningur þykir
kannski almennt heldur lítilflörleg-
ur þáttur f hversdagslffinu og vart
orðum í það eyðandi, hvemig staðið
er að málum f þeim efnum. Þó má
ekki gleymast, að dægurmúsfk er
líka viss menningarþáttur, og hann
alls ekki jafn léttvægur og ætla
mætti: Böm og unglingar gleypa
við þessu skemmtiefni og verða
stundum fyrir töluverðum áhrifum
af tónum og orðatutli, vælum, fett-
um og brettum. Einstrengingsleg
einokunarstefna íslenskra útvarps-
stöðva á dægurlagasviðinu upp á
amerísku er þvf töluvert þýðingar-
mikið atriði, sem við eigum að gefa
meiri gaum og láta það ékki við-
gangast, að hálfmenntað popplið
útvarpsstöðva í landinu fái átölu-
laust að einoka þannig smekk al-
mennings á erlendum dægurlögum.
H.
MH) ÍSI tJMSKt) TAIJ
iKatUwHwr
iAsm
HÆ KRAKKAR!
Við erum komnir aftur.
3 nýjar spólur 18 -19 - 20
HM
á öllum úrvals myndbandaleigum
JOO
i 32. Simi: 680624.
ujj
Eftir opnunartíma 667556.
HEIM,
OG
UM í
Á
INNRÉTTINGUM
• Þriggja vikna afgreiðslu-
frestur.
• Ókeypis hugmynda-
vinna.
ELDHÚSINNRÉTTINGAR,
FATASKÁPAR OG BAÐ-
INNRÉTTINGAR, I hvltu,
hvítu og beyki, gráu,
gráu og hvitu, eik, beyki,
furu og aski.
ViA erum viö hliöina 6 Álnabæ i
SiAumúla.
Opið 9-19 alla daga.
Laugardaga 10-16.
Sunnudaga 10-16.
SKRIFSTOFUTÆKNI
NÁMSKEIÐIÐ ER AÐ
BYRJA!
Upplýsingar og innritun
í dag milli 12 -16.
í símum 687590 og 686790.
TÖLVUFRÆÐSLAN
Borgartúni 28
BREYTT
SÍMANÚMER
Frá og með mánudeginum 16. janúar
1989 verður símanúmer aðalskrifstofu
Landsvirkjunar á Háaleitisbraut 68,
Reykjavík,
91-600700
SJ
LANDSVIRKJUN
GOLFSKOLI
JOIIÍMS l»ltl
í rúmgóðu húsnæði á
Bíldshöfða 16.
Skólinn er
ætlaður byrjendum og
lengra komnum golfurum.
Einnig aðstaða til æfinga.
PUTTKEPPNI
í dag verður haldin opin
púttkeppni í Golfskólan-
um, Bíldshöfða 16.
Keppnin hefst kl. 11 og
stendur til kl. 16.
Veitt verða þrenn
verðlaun.
(.OM M ItSI I \
Golfverslun okkar er nú
flutt á Bíldshöfða 16. Þar
veita fagmenn fólki ráð-
leggingar um val á golf-
settum og golfvörum.
Opið á virkum dögum kl. 16-22
og um helgar kl. 11-16.
Pontið tímn sem fyrst.
Golfskóli
Johns Drummond
Sími 674199