Morgunblaðið - 14.01.1989, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 14.01.1989, Blaðsíða 39
oo- HAfrvW. >[ JWO*<MAOUM HWTtOSWI CJMAJSVPJOHOM MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 1989 39 íHttimR FOLX ■ ZAVAROV, Sovétmaðurinn hjá Juventus hefur sýnt mikil þreytumerki í nokkrum leikjum undanfarið. Ástæðan er að öllum líkindum sú - að Brynja hann hefur leikið Tomer nánast sleitulaust í skrifarfrá tólf mánuði án þess að fá nokkurt frí. Dino Zoff þjálfari hefur í hyggju að láta hann verma „bekkinn" í næsta leik og láta hann ekki leika allan leiktímann í þeim leikjum sem eftir eru keppnistímabilsins. ■ INTER Mílanó hefur nú 22 stig eftir tólf umferðir í 1. deild og þar með hefur liðið jafnað met sem Juventus sló árið 1950, þegar Boniperti núverandi forseti félags- ins, lék með Juve. Inter Mílanó hefur unnið tíu leiki og jafnað tvisvar, alveg eins og Juve fyrir 39 árum. ■ ZENGA, markvörður Inter MUanó hefur einnig slegið met. Eftir tólf umferðir hafur hann að- eins fengið á sig fjögur mörk. Ifyrra metið átti Abertosi markvörður Cagliari, sem á keppnistímabilinu 1966-1967 hafði fengið á sig fimm mörk eftir jafn marga leiki. H ENN eitt metið hefur hinn brasilíski Careca, leikmaður Nap- ólí, jafnað. Hann hefur skorað tíu mörk í 12 leikjum, eða jafn mörg og Paolo Rossi á keppnistímabilinu 1979-1980. Eftir það höfðu marka- hæstu mennimir, Rummenigge, Platini, AltobeUi og Polster allir skorað sjö mörk eftir 12 leiki. ■ SÍÐASTA metið í bili: Tórínó, sem ólánið virðist elta, hefur aðeins átta stig eftir tólf leiki og er það lakasta staða liðsins frá því 1981- 1982. Þá var staðan sú sama, en liðinu tókst þá að hala inn nokkur stig á seinni hluta leikársins. Nú hefur reglum um 1. deildar lið ver- ið breytt og er Tórínó á góðri leið með að leika í 2. deild á næsta ári. Þess má geta að á árum áður var Tórínó eitt alsterkasta félags- lið á Ítalíu, en flugvél með leik- mönnum og þjálfara hrapaði á Sup- erga-hæð árið 1949 og létu allir lífið. ■ FJÓRTÁN sovéskir reið- hjólakappar komu til Ítalíu fyrir skömmu. Al£a Lum gerði samning við þá og eru þetta fyrstu sovésku reiðhjólakappamir sem gerast at- vinnumenn. Þeir fara til Sikileyjar 27. janúar þar sem þeir munu æfa sig undir leiðsögn Primo Franch- inis. ■ TON Harmsen, formaður hol- lenska félagsins Ajax, hefur greini- lega ekki þolað álagið vegna fjár- svikamálsins sem kom upp í sam- bandi við rannsókn á bókhaldi fé- lagsins. Hann var fluttur á sjúkra- hús í Amsterdam, eftir að hafa fengið hjartaáfall. ■ LUIS Muller, brasilíski knattspymumaðurinn, sem leikur með Tórínó, var sektaður um 700 þús. ísl. kr. Forráðamenn félagsins ákváðu að sekta hann eftir að hann kom of seint úr jólafríi í Brasilíu. Muller kom kom ekki f tæka tfð til að leika með Tórinó gegn Ju- ventus 31. desember. I ALAN Smith, miðheiji Arse- nal, hefur skorað flest mörk í ensku 1. deildarkeppninni, eða 14. Alan Mclnally, West Ham og Mark Hughes, Man. Utd., hafa skorað tólf mörk í deildinni. ■ FIRMAKEPPNI Víkings verður haldin í Réttarhoitsskóla um helgina. Upplýsingar fást í Víkingsheimilinu í síma 83245. FELAGSMAL Ársþing Kraft mr Arsþing Kraftlyftingasambands íslands verður haldið laugar- daginn 21. janúar í Eiríksbúð, Hót- el Loftleiðum, og hefst klukkan 16. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. KORFUKNATTLEIKUR / BIKARKEPPNI KKI Njarðvíkingar höfðu betur í nágranna- slagnum NJARÐVÍKINGAR sigruðu Keflvíkinga með 5 stiga mun, 95:90 í fyrri leik liðanna í bikarkeppni KKI í Njarðvík í gœrkvöldi. Leikurinn var œsi- spennandi allt frá upphafi til enda, Keflvíkingar voru betri í fyrri hálfleik og skoruðu þá 60 stig gegn 49 stigum heimamanna, en í síðari hálfieik snéru Njarðvikingar dœminu við. Leikurinn fór fram fyrir fullu húsi áhorfenda sem urðu vitni að stórgóðum leik, sérstaklega var fyrri hálfleikur vel leikinn og var hittni Keflvíkinga oft með ólíkindum. Þeir náðu fljótlega forystunni í leiknum og um tíma höfðu þeir 16 stiga forskot, en Bjöm í hálfleik var munurinn 11 stig, 60:49. Blöndal Keflvíkingar náðu ekki að nýta sér skrifar þetta forskot í síðari hálfleik, þeir misstu fljótlega móðinn og Njarðvíkingar gengu á lagið og þegar rúmar 8 mínútur voru til leiksloka höfðu þeir jafnað leikinn 77:77. Þetta er þekkt staða í leikjum þessara liða og nú sem fyrr brugðust taugar Keflvíkinga á lokamínútunum. Þeir komust að vísu aftur yfir 79:77, en þá skoruðu Njarðvíkingar 10 stig í röð og þann mun tókst ÍBK aldrei að vinna upp. Teitur Örlygsson var bestur Njarðvíkinga í leiknum og það var hann sem öðrum fremur hélt þeim á floti í fyrri hálfleik ásamt Friðriki Ragnarssyni. Helgi Rafns- son, ísak Tómasson og Hreiðar Hreiðarsson áttu einn- ig góðan leik. Jón Kr. Gíslason var áberandi bestur í liði ÍBK, sér- staklega í fyrri hálfeik þegar hann hreint fór á kostum og skorði 5, 3ja stiga körfur. Auk Jóns áttu þeir Guð- jón Skúlason, Sigurður Ingimundarson og Nökkvi M. Jónsson góðan leik. Stigahæstir Njarðvikinga voru: Teitur Örlygsson 26, Helgi Rafnsson 17, Hreiðar Hreiðarsson 16 og Friðrik Ragnarsson 15. J6n Kr. Gíslason var stigahæstur Keflvíkinga með 24, Guðjón Skúlason 23 og Sigurður Ingimundarson 13. Valsmann unnu KR-lnga Valsmenn sigruðu KR-inga, 63:50, í fyrri bikarleik liðanna að Hlíðarenda í gærkvöldi. Framan af leit út fyrir spennandi leik - því liðin skiptust á um að hafa forystuna - en síðustu sex mínútumar stóð ekki steinn yfir steini í vöm KR-inga og Valsmenn skoraðu þá 18 stig gegn fjór- um stigum Vesturbæinga. Það vora þó KR-ingar hófu leikinn af miklum krafti og riáðu fljótlega 10 stiga forystu. Valsmenn komust þá loks af stað og um miðjan fyrri hálfleik tókst þeim að jafna leikinn. í hálf- leik höfðu KR-ingar þriggja stiga forystu, 26:29. Kristinn Sigþórsson skrifar Morgunblaðift/Bjarni Teltur Öriygsson var bestur Njarðvíkinga í leiknum og skoraði 26 stig. í síðari hálfleik var greinilegt að Torfa Magnús- syni, þjálfara Vals, hafði tekist að stappa stálinu í sína menn. Þegar í upphafi tókst þeim að sigla 10 stigum framúr KR-ingum og virtust hafa leikinn í hendi sér. Vöknuðu KR-ingar þá af dvalanum og tókst að komast yfir, 45:46. Þá tóku Valsmenn við sér á nýjan leik og með góðri samvinnu tókst þeim að skora hveija körfuna á fætur annarri og sigra með 13 stiga mun. Það var fyrst og fremst liðsheild Valsmanna sem skóp þennan ágæta sigur. allir leikmenn liðsins vora virkir jafnt í vöm og sókn og skiptu með sér stigunum bróðurlega. Um frammistöðu KR-liðsins er lítið að segja. Þeir misstu gjörsamlega öll tök á leiknum og vilja öragglega gleyma honum sem allra fyrst. Stigahæstir Valsmanna voru Amór Guðmundsson með 12 stig og Tómas Holton með 10 stig. Hjá KR var Jóhann Kristbjömsson atkvæðamestur með 15 stig. Birgir Mikaelsson og Ivar Webster gerðu 11. HANDKNATTLEIKUR / LANDSLEIKIR Rildlger Borchardt jafnaði úr vita- kasti, 23:23, eftir að venjulegur leiktími var útrunninn í leik íslands og Austur-Þýskalands á Ólympíuleik- unum ( Seoul, en Einar Þorvaiðarson varði frá honum f vítakeppninni, sem var samt skammgóður vermir. ísland — A-Þýskaland um helgina: Síðast þurfti víta- keppni til að fá fram úrsliteftir tvíframlengdan leik fSLENSKA landsliðið í hand- knattleik leikurtvo leiki gegn því austur-þýska í Laugardals- höll um heigina. Fyrri leikurinn verður í dag klukkan 17.15, en á morgun hefst viðureignin klukkan 20. Liðin leika ámóta handknattleik og hafa innbyrðis leikir þeirra á undanförnum áram verið jafnir og spennandi. Síðasti leikur liðanna er sjálfsagt mörgum í fersku minni enda flestir á því að það hafí verið mesti spennu- leikur, sem fslenskt landslið í hand- knattleik hefur leikið. Þá var leikið um sjöunda sætið á Ólympíuleikun- um í Seoul, er tryggði farseðilinn i lokakeppni heimsmeistaramótsins, sem verður í Tékkoslóvakíu á næsta ári. Leikurinn var í jámum allan tímann, tvisvar var framlengt og vítakeppni þurfti til að skera úr hvort liðið færi beint á HM. Lánið lék við Austur-Þjóðveija í vítakeppninni, en einnig f leiknum, þvi þeir jöfnuðu úr vítakasti að venjulegum leiktima loknum og aft- ur er skammt var til leiksloka í seinni framlengingunni. Liðin Bogdan landsliðsþjálfari hefur bætt sjö mönnum við hópinn, sem tók þátt í Eyrarsundsmótinu. Þeir era Álfreð Gíslason, Geir Sveinsson, Jakob Sigurðsson, Guðjón Árnason, Guðmundur Hrafnkelsson, Konráð Olavson og Ámi Friðleifsson. Lið Austur-Þjóðveija heldur héð- an á Eystrasaltsmótið, en hópinn skipa eftirtaldir leikmenn: Gmmbach, Borchardt, Fiedler, Fu- hrig, Fiedler, Winselmann, Metzke, Kem, Langhoff, Funk, Luck, Gesc- hewski, Grosser, Hanh, Handschke, Holger Langhoff, Querengaesser, Schimrock, Sonnefeld og Tam. SKIÐI / GANGA Svan sigraði íslendingamir aftarlega Gunde Svan frá Svíþjóð sigraði í 15 km skíðagöngu, með frjálsri aðferð, í heimsbikamum sem ffam fór í Nove Mesto í Tékkó- slóvakíu í gær. Hann gekk vega- lengdina á 37.15 mínútum. Paal Gunnar Mikkelsplass frá Noregi varð annar á 37.16 mín. og landi hans Vergard Ulvang þriðji á 37.27 mínútum. Fjórir íslenskir göngumenn vora á meðal keppenda og riðu ekki feit- um hesti frá sínu fyrsta heims- bikarmóti. Haukur Eiríksson varð í 102. sæti á 43.46 mín., Rögn- valdur Ingþórsson hafnaði í 109. sæti á 44.43 mín., Sigurgeir Sva- varsson í 110. sæti á 45.19 mín og Baldur Hermannsson varð í 112. sæti á 48.32 mínútur. Alls vora 116 keppendur sem tóku þátt í mótinu. Fjórmenningamir keppa í 30 km göngu á sama stað á sunnudag. GETRAUNIR Fjórar milljónlr ífyrsta vinning? Sigurðurog Guðni. í beinni útsendingu Fyrsti vinningur hjá Getraun- um hefur ekki gengið út siðustu tvær vikur og er pottur- inn því þrefaldur í dag. „Salan hefúr tekið mikinn kipp eins og ávailt, er þessi staða kemur upp og ég á von á að fyrsti vinning- ur verði nálægt ijórum milljón- um,“ sagði Hákon Gunnarsson, framkvæmdastjóri Getrauna, S samtali við Morgunblaðið í gær. Hann sagði ennfremur að get- raunimar hefðu gengið framar öllum vonum í vetur og í næstu viku ættu söluaðilar von á gófb , um sölulaunum. íslensku leikmennimir í Eng- landi, Sigurður Jónsson hjá Sheffield Wednesday og Guðni Bergsson hjá Tottenham, verða í sviðsljósinu um helgina. í dag verður leikur Sheffield Wednes- day og Liverpool í beinni útsend- ingu í Ríkissjónvarpinu og á morgun verður leikur Totten- ham og Nottingham Forest sýndur beint í Englandi. HANDBOLTI Kristján missir af fjórum leikjum Kristján Arason hélt beint til Spánar eftir Eyrarsundsmótið, en spænska deildarkeppnin hefst að nýju á morgun. Kristján mun leika með liði sínu út mánuðinn, en þá verður aftur gert hlé á Spáni vegna B-keppninnar í Frakklandi. Kristján missir því af næstu ijórum landsleikjum íslands, gegn Austur- Þjóðveijum um helgina og gegn Tékkum eftir hálfan mánuð, en verður með gegn Noregi í byijun febrúar, sem verða síðustu ieikimir fyrir B-keppnina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.