Morgunblaðið - 21.01.1989, Side 18

Morgunblaðið - 21.01.1989, Side 18
18 4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGÚR 21. JANÚAR 1989 Embættistaka George Bush Reyndir menn í lykilembættum Reuter George Bush, Barbara kona hans, Nancy og Ronald Reagan og Marilyn og Dan Quayle í anddyri Hvíta hússins áður en Bush sór embættiseiðinn. MARGLR þekktir menn, sem gegnt hafa lykilembættum í fyrrí ríkis- stjórnum repúblíkana í Banda- Pravda um Reagan: Sagði skil- ið við gaml- ar klisiur Moskvu. Reuter. RONALD Reagan sagði skilið við staðnaðan hugsunarhátt og gaml- ar klisjur, léði almenningsálitinu eyra og bætti samskiptin við Sov- étmenn. Svo sagði í sovéska blað- inu Prövdu um embættisár Reag- ans. í blaðinu sagði, að þegar Reagan hefði tekið við embætti í janúar 1981 hefði síst af öllu verið mikils af hon- um vænst í utanríkismálum. „Þegar allt kemur til alls hefði Bandaríkja- stjóm ósköp vel getað skellt skolla- eyrum við almenningsálitinu og hald- ið sig við gamla troðninginn," segir fréttaskýrandi Prövdu, Gennadíj Vasíljev. „En nú ber okkur að votta þeim virðingu, þeim Reagan forseta og ráðherrum eins og George Shultz." ríkjunum munu takast á við ný störf er George Bush tekur við embætti forseta Bandaríkjanna. Þessir menn munu í samvinnu við þá Bush og James Baker, sem tek- ur við embætti utanríkisráðherra, hafa með höndum framkvæmd utanrikisstefiiunnar næstu Qögur árin. Flestir hafii þeir mikla reynslu á þessu sviði og eru al- mennt taldir til miðjumanna í bandarískum stjórnmálum. Lawrence S. Eagleburger, sem var aðstoðarmaður Hemy Kissingers er hann gegndi embætti utanríkisráð- herra verður aðstoðarutanríkisráð- herra. Eagleburger, sem er 58 ára að aldri, var í utanríkisþjónustunni áður en hann gerðist aðstöðarmaður Kissingers, sem mótaði utanríkis- stefnuna í forsetatíð Richards Nix- ons. Vemon Walters, sem verið hefur formaður sendinefndar Banda- ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, tekur við embætti sendiherra í Vest- ur-Þýskalandi. Walters hefur lengi verið í miklu uppáhaldi hjá repúblík- önum og hefur hann gegnt fjölmörg- um ábyrgðarstöðum m.a. verið að- stoðarforstjóri bandarísku leyniþjón- ustunnar, CIA. Henry E. Catto verður sendiherra Bandaríkjanna í Bretlandi. Catto er moldríkur Texas-búi og góður vinur James Bakers. Hann hefur verið sendiherra í E1 Salvador, siðameist- ari vamarmálaráðuneytisins og tals- maður þess. Donald P. Gregg sem í eina tíð starfaði fyrir CIA verður sendiherra í Seoul í Suður-Kóreu. Gregg hefur undanfarin sex verið öryggisráðgjafi George Bush. Hann var bendlaður við íran-kontra hneykslið. Joseph V. Reed Jr. verður siða- meistari forsetaembættisins. Reed var í apríl áa síðasta ári skipaður aðstoðarframkvæmdastjóri Samein- uðu þjóðanna og hefur enginn banda- rískur embættismaður áður gegnt svo háu embætti innan samtakanna. Reed greiddi götu írans-keisara er hann hélt til Bandaríkjanna árið 1979 skömmu áður en öfgafullir fylgismenn Khomeini erkiklerks tók völdin. Þá hefur hann einnig verið sendiherra í Marokkó. Heimild-.IntematíonaJ Herald Tri- bune. Forseti Suður-Afríku fær hjartaáfall: Vangaveltur um eftirmann Botha Höfðaborg. Reuter. P. W. Botha, forseti Suður- Afríku, var í gær á batavegi eftir vægt hjartaáfall sem hann fékk á miðvikudag, að sögn lækna í Höfðaborg. Botha lam- aðist að hluta á útlimum vinstra megin líkamans. Chris Heunis, farið hefúr með stjórnarskrár- mál í Suður-Afríkustjóm, hefúr gegnt embætti forseta síðan á fimmtudag. Þótt engin ákvörð- un hafi verið tekin um hvort Botha gegni áfram embættinu hafa fjölmiðlar stjómarand- Svíþjóð: Verður Holmer ákærður? Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins. MARGT bendir til, að Hans Holmer, fyrrum lögreglustjóri, verði ákærður fyrir brot á þagn- arskyldu opinberra embættis- manna vegna þeirra upplýsinga, sem hann gefur í nýlegri bók sinni um morðið á Olof Palme. Hans Stark, lagakanslari, sem er eftirlitsmaður með embættis- mönnum ríkisins, hefur fyrirskipað rannsókn í málinu og gefið Holmer og lögfræðingi hans kost á að koma með sínar útskýringar eins og hon- um ber skyida til áður en ákæra er birt. í bókinni um morðið á Palme segir Holmer frá símahlerunum, sem áttu að fara leynt, og með því er hann talinn hafa brotið þagnar- skylduna. stæðinga verið með talsverðar vangaveltur um eftirmann hans. Botha varð 73 ára fyrir viku og hefur verið við völd í áratug. Talsmaður forsetans, Jack Viviers sagðist ekki vita hversu lengi Bot- ha yrði á sjúkrahúsi og kvað of snemmt að spá um hvort Botha gegndi embættinu áfram, það væri ákvörðun sem hann tæki sjálfur í samráði við lækna. Dagblaðið Die Burger, sem hlynnt er Suður-Afríkustjóm, skýrði frá því að búast mætti við að Botha yrði frá störfum vikum saman. Málgögn stjómarinnar forðuðust þó vangaveltur um framtíð Botha en dagblöð stjómar- andstæðinga veltu því nokkuð fyr- ir sér hver tæki við embætti for- seta. Fijálslynda blaðið Cape Times skýrði frá því að veikindi Botha gætu valdið klofningi innan Þjóð- arflokksins. Heunis, starfandi for- seti, Pik Botha utanríkisráðherra, F.W. de Klerk menntamálaráð- herra og Magnus Malan eru taldir líklegastir til að taka við embætti forseta. Talið er að de Klerk sé helsta forsetaefni hægriarms flokksins, sem er mótfallinn al- gjöru aftiámi aðskilnaðar kynþátta í landinu. Pik Botha, er frjálslynd- ur á mælikvarða Þjóðarflokksins og telja fréttaskýrendur að hann eigi mesta möguleika á að komast að samkomulagi við hófsamq, leið- toga blökkumanna. Chris Heunis, sem einnig er talinn koma sterklega til greina, er náinn vinur forsetans og hefur annast störf hans meðan Botha hefur verið á ferðalögum erlendis. Hann er einn valdamesti ráðherra stjómarinnar, hefur meðal annars annast áætlanir hennar um breyt- ingar á stjómarskrá landsins. Niðurskurður í norska hernum Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara MorgTinblaðsins. VIGLEIK Eide, yfirmaður norska heraflans, hefiir lagt fram nokkr- ar tillögur um niðurskurð í spamaðarskyni. Fela þær í sér, að feekk- að verður um 1.350 stöður hjá hernum auk þess sem nokkur varnar- svæðanna innanlands verða sameinuð öðrum með tíð og tíma. Ástæð- an er erfitt efiiahagsástand í Noregi og er vonast til, að hernum takist með þessu móti að Iáta endana ná saman fram til ársins 1993. Reuter P.W. Botha Eide segist hafa reynt að hrófla sem minnst við vamarmætti norska hersins og alls ekkert dregið úr við- búnaðinum í Norður-Noregi. Þessi niðurskurður var kynntur sama dag og fram fóm umræður um utanrík- ismál í Stórþinginu. Urðu margir til að benda á, að full ástæða væri fyrir Norðmenn og nágranna þeirra að óttast hemaðaruppbyggingu Sovétmanna á Kolaskaga. „Svo er nefnilega að sjá sem minni umsvif Sovétmanna í Mið- Evrópu fari saman við sívaxandi hemaðamppbyggingu við norður- landamæri Noregs," sagði Kári Willoch, fyrmrn forsætisráðherra og formaður utanríkismálanefndar. Færeyjar: Sex menn úr íjórum flokk- um í nýju landsstjórninni Kaupmannahö&i. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgnnblaðsins. f NÝRRI landsstjóm Færeyja sem Lögþingið samþykkti á miðvikudag eru sex menn úr fjórum stjórnmálaflokkum, þrir þeirra Fólkaflokkur- inn, Sjálfstýriflokkurinn og Krístilegi fólkaflokkurínn hallast til hægrí en Þjóðveldisflokkurinn er lengst til vinstrí af flokkum á Lögþinginu. Flokkamir eiga það allir sameiginlegt að vilja auka sjálfstjóm Fær- eyja og ætla til að mynda að færa yfirstjóra kirkjunnar þangað frá Danmörku. Stjómin hyggst einnig spara í ríkisrekstrinum og draga stór- lega úr framkvæmdum. Hún hefur hins vegar lofað að hækka ekki skatta og gjöld á kjörtímabili sínu. Hinn nýi lögmaður Færeyinga, Jógvan Sundstein, hefur verið lög- þingsmaður frá 1970 og formaður Fólkaflokksins frá 1980. Hann var formaður lögþingsins 1980-84 og sáttasemjari ríkisins um árabil. Sundstein er 55 ára löggiltur endur- skoðandi og rekur eigin endurskoð- unarskrifstofu. Sem lögmaður fer hann með yfirstjóm opinberra mála eins og forsætisráðherra og sér m.a. um fískveiðisamninga við önnur ríki. Anfinn Kallsberg verður sjávarút- vegsráðherra, en hann gegndi þvi starfí einnig á árunum 1982-84. Hann hefur setið á lögþinginu frá 1980. Hann er 41 árs og var um tíma útgerðarstjóri fjölda fiskiskipa. Signar Hansen, formaður Þjóð- veldisflokksins, verður menntamála- ráðherra. Hann sat á lögþinginu frá 1970-80 og hefur átt sæti þar síðan 1984. Hann er 43 ára og kennari að mennt. Finnbogi ísakson mun m.a. fara með efnahagsmál en hann er 45 ára blaðamaður og rithöfundur. Hann sat á lögþinginu 1966-76 og í landstjóm- inni 1974-78. Karl Henri Joensen verður sam- göngu-, menningar- og kirkjumála- ráðherra, en hann er 33 ára og hef- ur m.a. setið í bæjarstjóm Klakksvfk- ur. Tordur Niclasen, formaður Kristi- Jógvan Sundstein K<?uter lega fólkaflokksins, verður heilbrigð- is- og félagsmálaráðherra. Hann hef- ur setið á lögþinginu frá 1984. Hann er 38 ára hjúkrunarfræðingur og hefur verið forstöðumaður hjúk- runarheimilis.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.