Morgunblaðið - 21.01.1989, Síða 19
MOJRGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1989
19
England:
Mikils vænst af
Bush í Messing
Messing, Englandi. Reuter.
í þorpinu Messing á Englandi,
þar sem forfeður George Bush
bjuggu áður en þeir héldu tii Nýja
heimsins, stendur mikið til. í gær
skáluðu íbúamir fyrir embættistö-
kunni og nú biða þeir í ofvæni
eftir fyrstu rútubílsförmunum af
bandariskum ferðamönnum.
Messing er í miðju Essex í Aust-
ur-Englandi, ákaflega friðsæll staður
þar sem menn og skepnur lifa saman
í sátt og samlyndi svo vitnað sé í
einn af rithöfundum Viktoríutímans.
„Hér gerist bara aldrei neitt," sagði
Chris Winstone, tæplega þrítugur
Messingbúi, um leið og hann sötraði
bjórinn á Gömlu krúnunni, eikar-
reftri krá, sem slökkt hefur þorstann
í gestum og gangandi allt síðan á
15. öld. Kráreigandinn, frú Diana
Harris, segist hins vegar viss um,
að nú verði breyting á til batnaðar
og vonar, að Bush minnist forfeð-
ranna, bóndans Johns Bush og sonar
hans, Reynolds, sem fluttust til
Massachusetts í Bandaríkjunum árið
1631.
íbúamir í Messing, 350 talsins,
komust að því á síðasta sumri, að
Bush átti ættir sínar að rekja til
Bandaríkin:
Einkavölva Nancyar spáir fyrir Bush
Washington. Reuter.
JOAlN Quigley, stjörnuspekingur frá San Francisco, sem frú Reagan
leitaði til er hún var húsfreyja í Hvíta húsinu, útskýrði stjörnukort
hins nýja Bandaríkjaforseta, George Bush, í dagblaðinu Washington
Post í gær. Hún sagði að af stjörnunum mætti ráða að Bush yrði
hugsanlega sýnt banatilræði.
„Bush er annar forseti í sögu
Bandaríkjanna sem hefur rísandi
sól í tvíburamerkinu. Hinn var John
F. Kennedy. . . Lífverðir hans
verða því að vera á varðbergi og
sjálfur verður hann að sýna fyllstu
aðgætni," sagði völvan.
Quigley spáði því að Bush yrði
minnst fyrir utanríkisstefnu hans
sem yrði af jarðbundnari og íhalds-
samari toga en stefna Reagans
var. Þá sagði hún að hans mesti
vandi á þessu ári yrði efnahagsmál-
in og samskiptin við þingið. Völvan
ráðlagði Barböru, eiginkona forset-
ans, að fara að öllu með gát í febrú-
armánuði og aukinheldur gætu
vandamál sem tengjast veru hennar
í Hvíta húsinu, skotið upp kollinum
í apríl.
þorpsins, sem er ekki einu sinni
merkt á landakorti, og biðu þá ekki
boðanna með að senda honum kveðju
guðs og sína.
„Ég veit að vísu fátt um forfeður
mína frá Messing en það er aug-
ljóst, að þeir kunnu að velja sér fag-
urt umhverfi,“ sagði Bush í svarbréf-
inu. „Ef guð lofar fæ ég að koma
þar einhvem tíma.“
Reuter
Að embættistökunni lokinni varð Reagan fyrstur til að samfagna
Bush og áma honum heilla í erfiðu starfi.
John Kenneth
Galbraith:
Hvetur Bush
tíl að snúa af
leið Reagans
London. Reuter.
Hagfræðingurinn John Ken-
neth Galbraith sagði í gær að
George Bush Bandaríkjaforseta
væri ráðlegast að hækka skatta
og lækka útgjöld til varnarmála
í því skyni að minnka Qárlaga-
hallann.
Þetta sagði hann á blaðamanna-
fundi sem hann og sovéski hag-
fræðingurinn Stanislav Mens-
hikov, fyrrum ráðgjafi iniðstjórnar
sovéska kommúnistaflokksins,
héldu í tilefni af útkomu bókar
þeirra „Kapítalismi, kommúnismi
og sambúðin."
Galbraith spáði því síðar í við-
tali við breska sjónvarpsstöð að
útgjöld Bandaríkjamanna til her-
mála myndu lækka. „Ég efast
ekki um að útgjöld til hermála
lækka., einkum þegar litið er til
niðurskurðar á þessu sviði 'sem
Sovétmenn hafa boðað,“ sagði
Galbraith. Hann kvaðst einnig sjá
fyrir sér hækkun á óbeinum skött-
um.
*
Israelar um meinta
morðhótun Arafats:
SannaraðPLO
aðhyllist enn
hermdarverk
Hofsömum Palestínumönnum hótað lífláti
Washington, Túnisborg, Jerúsalem. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti sagði í gær að meint hótun
Yassers Arafats, leiðtoga Frelsissamtaka Palestinu (PLO), um að
allir þeir Palestínumenn, sem reyndu að binda enda á uppreisnina
á hernumdu svæðunum í ísrael, yrðu teknir af lífi, væri áfall fyr-
ir þá sem vildu koma á friði i Mið-Austurlöndum. Talsmenn PLO
sögðu að Arafat hefði aldrei hótað sliku. Israelar sögðu hins veg-
ar að hótunin væri til vitnis um að PLO hefði aldrei ætlað að
hætta hryðjuverkum og hvöttu þeir Bandaríkjastjórn til þess að
hætta við frekari viðræður við samtökin.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
skýrði frá því á miðvikudag að það
hefði undir höndum segulbands-
upptöku á ræðu sem Arafat hélt
í Sádí-Arabíu á nýjársdag. Þar
hefði hann sagt: „Hvern þann sem
lætur sér detta í hug að binda
enda á uppreisnina á hemumdu
svæðunum áður en markmið henn-
ar hafa náðst skal fá tíu kúlur í
brjóstið frá mér.“
Bush sagði að hann hefði ekki
hlustað á upptökuna og honum
væri ekki kunnugt um í hvaða
samhengi hótunin hefði verið.
Hann sagði þó að ummælin yllu
.honum miklum áhyggjum.
Israelsstjóm hvatti Bandaríkja-
menn til að hætta viðræðum við
PLO vegna hótunarinnar. ísraelski
utanríkisráðherrann Moshe Arens
sagði við bandaríska sendiherrann
í ísrael, William Brown, að hótun-
in sannaði að PLO hefði ekki snú-
ið baki við hryðjuverkastefnu
sinni.
Talsmaður PLO í Túnis, Abd-
ullah Hourani, sagði að Banda-
ríkjamenn, sem mótfallnir væm
viðræðum við leiðtoga PLO,
reyndu að notfæra sér hina meintu
hótun til að koma í veg fyrir frek-
ari viðræður Bandaríkjamanna og
PLO. Hann ítrekaði þær stað-
hæfingar PLO-manna að Arafat
hefði aldrei hótað Palestínumönn-
um lífláti. PLO hefur ekki lagt
fram eigin upptökur eða afrit af
ræðunni.
Palestínumenn skutu í gær
Mohammed Amar Jerandal, sem
grunaður var um að hafa unnið
með ísraelska hernura á Vestur-
bakkanum, þegar hann opnaði fyr-
ir þeim á heimili sínu í þorpinu
Atii. ísraelskir hermenn særðu að
minnsta kosti 37 Palestínumenn í
gær og hafa orðið 14 palestínskum
mótmælendum að bana undan-
farna níu daga. Talsmaður ísra-
elska varnarmálaráðuneytisins
sagði að samkvæmt nýjum tilskip-
unum ísraelsstjómar væri her-
mönnum ekki aðeins heimilt að
skjóta á þá sem kasta steinum og
taka þátt í mótmælum, heldur
einnig þá sem staðnir verða að því
að brenna hjólbarða og loka veg-
um. Ennfremur hefur öllum skól-
um á Vesturbakkanum verið lokað
um óákveðinn tíma vegna óeirða.
VERKSTÆÐI
LADAeigendurathugið.
Höfum flutt verkstæði okkar í nýtt húsnæði sem gjörbreytir allri aðstöðu til þjónustu.
Tökum að okkur allar almennar viðgerðir og einnig reglulegar 10 þúsund km. skoðanir
á LADA bílum.
Einnig önnumst við réttingar og sprautun.
Verkstæðið er opið frá 8-1730 mánudaga - fimmtudaga
8-1630 föstudaga.
JILADA BIFREIÐAR&
UMBOÐIÐ LANDBÚNAÐARVÉLAR hf.
Suðurlandsbraut 14 - S 681200 • bein lína á verkstæði 39760