Morgunblaðið - 21.01.1989, Side 29
29
MORGUNBEAÐIÐ IiAUGARDAGUR 21. JANÚAR' 1989
Guðmundur Jónsson
Selfossi—Minning
Fæddur 23. aprU 1899
Dáinn 16. janúar 1989
Mig langar í nokkrum orðum að
minnast Guðmundar Jónssonar,
skósmiðs, sem lést á hjúkrunar-
heimilinu Ljósheimum á Selfossi
þann 16. þ.m. tæplega níræður að
aldri.
Guðmundur hafði um nokkurt
skeið átt við vanheilsu að stríða og
fór heilsu hans sífellt hrakandi.
Þegar svo er komið er koma
dauðans líkn, þótt alltaf grípi mann
að sjálfsögðu söknuður við brott-
hvarf góðra vina.
Guðmundur fæddist á Miðkekki
í Stokkseyrarhreppi, sonur hjón-
anna Guðbjargar Magnúsdóttur og
Jóns Jóhannessonar. Þaðan urðu
foreldrar hans að flytja tveim árum
síðar og stofnuðu þau þá nýbýlið
Bjarg í sama hreppi. Á Bjargi var
hann síðan heimilisfastur til ársins
1924 að hann flyst til Vestmanna-
eyja. Á Stokkseyri hóf hann nám í
skósmíði árið 1915 hjá Karli Magn-
ússyni og tók námið þrjá vetur.
Aðeins var unnið við skósmíðar að
vetrinum til því á sumrin unnu svo
margir fjarri heimilum sínum að
fólki fækkaði verulega á staðnum
og lítið fyrir skósmiði að gera.
Að námi loknu vann hann ýmis
störf, sem til féllu, þar til hann flutt-
ist til Vestmannaeyja, þar sem hann
stundaði ýmis störf tengd sjósókn.
í Vestmannaeyjum kynntist Guð-
mundur Jóhönnu Ólafsdóttur, ætt-
aðri frá Torfastöðum í Fljótshlíð og
giftu þau sig vorið 1927. Þau eign-
uðust þijá syni sem eru: Marínó,
fæddur 1927, innkaupastjóri í
Reykjavík, kvæntur Guðrúnu Guð-
mundsdóttur. Björgvin, fæddur
1929, málari í Keflavík, var kvænt-
ur Ambjörgu Sigurðardóttur, sem
nú er látin. Ólafur, fæddur 1934,
málari í Kópavogi, kvæntur Ágústu
Hafberg. Áuk þess ólu þau upp
sonarson sinn, Jóhann Marínósson,
hjúkrunarforstjóra á Selfossi,
kvæntan Halldóru Jensdóttur. Jó-
hanna lést árið 1984 eftir erfið veik-
indi. Höfðu þau þá verið 57 ár í
hjónabandi. Var þetta að vonum
mikið áfall gömlum manni, en hann
bjó þó áfram í húsi sínu þar til
hann fór á sjúkrahús 1986. Var vel
með honum fylgst af Jóhanni
Marínóssyni og hans konu.
Um haustið 1927 hóf hann störf
við skósmíðar að nýju og stundaði
það starf óslitið fram yfír áttrætt.
Árið 1930 stofnaði Guðmundur
eigið skósmíðaverkstæði í Vest-
mannaeyjum og rak það í fimmtán
ár. En árið 1945 fluttist hann með
fjölskyldu sína til Selfoss og setti
þar á stofn skósmíðaverkstæði. Á
Selfossi bjuggu þá tæplega 500
manns, en þeim hjónum leist þann-
ig á að þessi staður myndi eiga
framtíð fyrir sér. Reyndust þau þar
sannspá eins og oftar.
Skósmíðar voru á þessum tíma
að sjálfsögðu allt aðrar en nú. Þá
smíðuðu skósmiðir skó í orðsins
fyllstu merkingu. Guðmundur hélt
nákvæma skrá yfir þá skó sem
hann smfðaði og urðu það samtals
566 pör. Hina fyrstu smíðaði hann
í Vestmannaeyjum árið 1932 og þá
síðustu árið 1973.
Guðmundur var maður félags-
lyndur og tók þátt í starfi ýmissa
félaga. Má þar nefna Leikfélagið
og Alþýðuflokksfélagið. Hann fékk
snemma áhuga á leiklist og lék sitt
fyrsta hlutverk á Stokkseyri aðeins
átján ára gamall. Þegar hann var
kominn til Vestmannaeyja tók hann
þátt í starfi leikfélagsins þar og lék
í mörgum leikritum.
Þeir fóru t.d. í leikferð um landið
árið 1941 og léku þá m.a. í gamla
Selfossbíói. Var það í fyrsta skipti
sem leikrit var sýnt í því húsi.
Eftir að Guðmundur var fluttur
til Selfoss hafði hann mikil afskipti
af leiklistarmálum. Hann bæði leik-
stýrði og lék í ótal leikritum í mörg
ár. Síðasta hlutverkið var Jón bóndi
í Fjalla-Eyvindi. Þá var Guðmundur
vel hagmæltur og lét frá sér fara
stökur af ýmsu tilefni, sömuleiðis
orti hann heila bragi, t.d. gaman-
bragi.
Stjórnmálaáhugi var alltaf ríkur
þáttur í fari Guðmundar. Hann
gekk til liðs við Alþýðuflokkinn
strax við stofnun 1916. Á Vest-
mannaeyjaárunum var hann mjög
virkur í starfi flokksins. Fljótlega
eftir að hann kom til Selfoss fór
hann að vinna að því að koma starf-
semi Alþýðuflokksins af stað. Hann
var upp frá því ein aðal-driffjöðrin
í starfseminni á Selfossi meðan
kraftar entust.
Hann var heiðursfélagi Alþýðu-
flokksfélags Selfoss. Við sveitar-
stjómarkosningar hefur hann frá
upphafi átt sæti á framboðslistum
flokksins og sat í hreppsnefnd á
hans vegum árin 1960—1966.
Við nokkrar undanfamar bæjar-
stjómarkosningar skipaði hann
heiðurssætið á framboðslistum Al-
þýðuflokksins. Við síðustu bæjar-
stjómarkosningar var hann kominn
á sjúkrahús, en ekkert hafði áhug-
inn fyrir velgengni flokksins í kosn-
ingunum dvínað. Lét hann þá Al-
þýðuflokknum í té vinnustofu sína
fyrir kosningaskrifstofu. Var það
vel við hæfi að kosningabaráttunni
væri stjómað frá þeim stað sem
verið hafði aðalmiðstöð flokksins á
Selfossi í fjóra áratugi.
Nú að leiðarlokum kveð ég Guð-
mund skósmið með þökk og virð-
ingu. Sonum Guðmundar, tengda-
dætrum og öðrum aðstandendum
votta ég samúð mína.
Steingrímur Ingvarsson
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi
GUÐMUNDUR JÚLÍUS JÓNSSON
fyrrum bóndi,
Vorsabæ, Austur-Landeyjum,
lést í Landspftalanum 16. janúar.
Jónfna Jónsdóttir,
Jón Guðmundsson,
Guðrún Guðmundsdóttir,
Bóel Guðmundsdóttir,
Sjöfn Guðmundsdóttir,
Erlendur Guðmundsson,
Jarþrúður Guðmundsdóttir,
Björgvin Guðmundsson,
Erna Árfells,
Ólafur Guðmundsson,
Ólafur T ryggvason,
Helgi Jónsson,
Ásta Guðmundsdóttir,
Helgi B. Gunnarsson,
Margrét Óskarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
GLÆSILEGRI OG GIRNILEGRI BÆKUR
EN NOKKRU SINNI FYRR
Á hinum árlega bókamarkaði í forlagsverslun okkar að Síðumúla l l verða á boðstólum
mörg hundruð bókatitlar með allt að 90% afslætti. Af sumum titlanna eru aðeins til örfá
eintök og því ekki eftir neinu að bíða.
Svo er það sérstakt tímabundið aff-
mælistilboð sem ekki verður endur-
, tekið. Við veitum 25% afslátt á
1 takmörkuðu upplagi á nokkrum af
okkar helstu verkum.
%
Opið laugardaga frá kl. 10:00—16:00
Opið mánud.—föstud. kl. 9:00 — 18:00
Um þessar mundir eru liðin 25 ár síðan Ferðahandbókin 1964
kom út. Hún var í raun upphaf að útgáfu fyrirtækisins og mark-
aði á margan hátt stefnu þess og störf.
Við höfum ákveðið að minnast afmælisins með því að gefa fólki
kost á að kaupa nokkur okkar helstu verka með 25% afslætti.
Hér er þó um takarmað upplag að ræða eða 150 eintök af
hverju verki.
Landið þitt Island e. Þorstein Jósepsson og
Steindór Steindórsson sex bindi.
Ensk-ísl. orðabók eftir Sören Sörensen.
íslenskt þjóðlíf í 1000 ár e. Daniel Bruun tvö bindi.
Ferðabók Sveins Pálssonar tvö bindi.
íslenskir sögustaðir e. Kristian Kálund fjögur bindi.
Minningar Huldu Stefánsdóttir fjögur bindi.
íslandsmyndir Mayers e. Auguste Mayer tvö bindi.
Hornstrendingabók eftir Þórleif Bjarnason þrjú bindi.
íslenskar tónmenntir eftir Hallgrím Helgason.
Goð og hetjur eftir Anders Bæksted.
Ensk-íslensk skólaorðabók.
Um viðreisn íslands eftir Pál Vídalín og Jón Eiríksson.
ÖRN OG
ÖRLYGUR
SÍÐUMÚLA 11 - SÍMI 84866
VIS/QSd