Morgunblaðið - 11.02.1989, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 1989
Jón Sigurðsson ráðherra um verðlagsfrumvarpið;
Styrkir stöðu neytand-
ans á markaðinum
Sýndarmennskan einber, sagði Egill Jónsson, Sjálfstæðisflokki
Jón Signrðsson viðskiptaráð-
herra mælti í gær í efri deild
Alþingis fyrir stjórnarfrumvarpi
til breytinga á lögum um verðlag,
samkeppnishömlur og óréttmæta
viðskiptahætti. Helztu efiiisatriði
frumvarpsins eru þrjú: Varamenn
skulu skipaðir í Verðlagsráð með
sama hætti og aðalmenn. Hver sá
sem vanrækir að láta Verðlags-
stofriun í té umbeðnar, nauðsyn-
legar upplýsingar skal sæta viður-
lögum. Verðlagning á orku frá
orkuvinnslufyrirtækjum og
dreifiveitum skal falla undir
ákvæði laga þessara á tímabililinu
frá 1. marz 1989 til 1. september
1989.
Jón Sigurðsson, viðskiptaráð-
herra, sagði frumvarp þetta hluta
af ráðgerðum efnahagsaðgerðum
ríkisstjómarinnar. Tilgangurinn
væri ekki sízt að styrkja stöðu neyt-
enda á markaðinum. Ráðherrann
sagði verðlagsaðhald, sem að væri
stefnt, því aðeins bera árangur að
það væri tímabundið. Verðbólga
hafi aldrei risið hærra hér á landi en
í áralangri verðstöðvun.
Ráðherra sagði að orkuvinnsla hér
á landi hefði einokunaraðstöðu.
Þessvegna væri mikilvægt, við
ríkjandi aðstæður, að hún sætti
ströngu verðlagsaðhaldi.
Egill Jónsson (S/Al) sagði frum-
varp þetta þunnt í roði. Eina efnisat-
riðið, sem vigt hefði, væri verðlags-
aðhald að orkufyrirtækjum. Alkunna
væri að sumar hitaveitur og raf-
veitur, sem væm i eigu sveitarfé-
laga, byggju að útgjöldum langt
Egill Jónsson
umfram tekjur. Sama máli gegndi
um Rafmagnsveitur ríkisins. Raf-
magn væri raunar greitt niður til
húshitunar og frystiiðnaðar.
Egill sagði að fmmvarpið væri,
þegar grannt er gáð, sýndar-
mennska.
Guðrún Agnarsdóttir (Kvl/Rvk)
sagði eðlilegt að orkuvinnslufyrir-
tæki sættu verðlagsaðhaldi. Annað
í fmmvarpinu væri veigalítið, nánast
smáatriði.
Eiður Guðnason (A/Vl) sagði
það rétt að hitaveitur byggju við
erfiðleika. Þannig hafi dráttur á af-
greiðslu lánsQárlaga valdið sumum
þeirra áföllum. Hann lét að því liggja
að viðkomandi þingnefnd gæti af-
greitt þetta mál á skömmum tíma.
Sólveig Pétursdóttir (S/Rvk)
sagði að einkageirinn hafi staðið við
sitt í verðstöðvuninni, sem senn lyki.
Jón Sigurðsson
Öðm máli gegndi um ríkisstjómina
sjálfa. Hún hafi hækkað skatta á
fólk og fyrirtæki um milljarði, m.a.
verðþyngjandi skatta. Hún hafi og
heimilað opinbemm stofnunum
hækkun á útseldri þjónustu. Einka-
geirinn væri því verr undir áfram-
haldandi verðlagsaðhald búinn en
ríkisreksturinn. Hún spurði ráðherra
hvaða fyrirtæki hann hafí átt við,
þegar hann fjallaði um „einokunar-
og markaðsráðandi fyrirtæki“.
Jón Sigurðsson ráðherra sagði
það rétt að oft ríkti ekki samræmi
milli verðákvarðana hjá því opinbera
og í einkarekstri. Þessvegna m.a.
væri orkuvinnslan sett undir verð-
lagsaðhald nú. Sem dæmi um „ein-
okunar- og markaðsráðandi fyrir-
tæki“ nefndi hann Flugleiðir, Eim-
skip og steypistöðvar, en þar réðu
örfá fyrirtæki ferð.
Tónleikar í
Listasafiii
Sigurjóns
TÓNLEIKAR á vegum Lista-
safhs Sigurjóns Ólafssonar
verða haldnir sunnudaginn 12.
febrúar klukkan 15.00 í sal
safiisins á Laugamesi.
Þar munu þau Guðný Guð-
mundsdóttir og Gunnar Kvaran
flytja samleiksverk fyrir fiðlu og
selló. A efnisskrá em eftirtalin
verk: Duet eftir Josef Haydn, Dúó
fyrir fiðlu og selló eftir Jón Nord-
al, Passacaglia eftir Hándel-
Halvorsen og Duo op. 7 eftir Zolt-
án Kodály.
Fundur um
„Undirheima“
FJALLAÐ verður um bók Þor-
leifs Friðrikssonar „Undir-
heimar íslenskra stjórnmála" á
fundi hjá Félagi áhugafólks um
verkalýðssögu í dag.
Bókin fjallar um átökin innan
Alþýðuflokksins og verkalýðs-
hreyfingarinnar sem náðu hám-
arki á áranum 1953—1956. Fund-
urinn verður haldinn á Hverfis-
götu 21 í húsnæði Félags bóka-
gerðarmanna kiukkan 14.00.
Árshátíð
Eyfírðinga-
félagsins
Eyfirðingafélagið í
Reykjavík heldur árshátíð sina
Guðný Guðmundsdóttir og
Gunnar Kvaran.
í Félagsheimili Kópavogs,
Fannborg 2, laugardaginn 18.
febrúar.
Húsið verður opnað klukkan
19. Júlíus Sólnes flytur pistil, boð-
ið er upp á skemmtiatriði og síðan
er leikið fyrir dansi. Forsala að-
göngumiða verður í dag kl. 15—17
í Félagsheimilinu.
Skósýning í
Kringlunni
KYNNING á skóm frá skóverk-
smiðjunni Strikinu á Akureyri
stendur nú yfir í verzluninni
RR-skór í Kringlunni. Kynning-
in mun standa til 18. febrúar
og er kölluð „íslandsdagar".
í fréttatilkynningu frá RR-
skóm segir að verzlunin geri mikl-
ar kröfur um gæði, sem íslenzku
skómir frá Strikinu uppfylli ágæt-
lega.
Sænsk sýning
í Gallerí List
SÆNSKA listakonan Elsa Rook
opnar sýningu á málverkum
sínum í Gallerí List í dag klukk-
an 14. Þar sýnir hún 24 akrýl-
verk.
Listakonan hefur haldið sjálf-
stæðar sýningar víða í Svíþjóð,
Danmörku og Finnlandi og tekið
þátt í mörgum samsýningum
norrænna listamanna.
Sýningin stendur til sunnu-
dagsins 19. febrúar. Opið er alla
daga frá klukkan 10.30—18.00,
en sunnudaga frá klukkan
14.00-18.00.
Tónleikar í
Tunglinu
Breska rokkhljómsveitin
Band of Holy Joy er stödd hér
á landi um þessar mundir og
heldur tónleika í skemmtistaðn-
um Tunglinu á sunnudags-
kvöld.
Tónleikamir í Tunglinu hefjast
kl. 22.00, en á undan Band of
Holy Joy leikur íslenska hljóm-
sveitin Risaeðlan.
Myndlist
í Djúpinu
Þormóður Karlsson opnar
myndlistarsýningu í Djúpinu,
Hafiiarstræti 15, í dag.
Á sýningunni em sýnd olíu- og
akrílmálverk, unnin á ámnum
1985—1988. Þormóður hefur áð-
ur haldið sýningu hér heima, í
Danmörku og í Bandaríkjunum.
Sýningin er opin frá klukkan
11.00-23.30.
Morgunblaðið/Bjöm Sveinsson
Kennararnir Jean Marc, Ólafur Pálsson og Sigriður Lárusdóttir
formaður skólafélagsins.
Opin vika í Menntaskólanum á Egilsstöðum:
Hópur athugar stofii-
un Amnesty-deildar
Egilsstöðum.
UM 200 nemendur Menntaskólans á Egilsstöðum leggja hefðbundna
stundaskrá til hliðar þessa viku og snúa sér að öðru námsefni. Þessa
viku er svokölluð opin vika í skólanum og þá taka nemendur upp
hópstarf þar sem þeir vinna að ákveðnum málaflokkum undir leið-
sögn kennara.
Skyldumæting er í hópunum fyr-
ir hádegi dag hvem, en eftir hádegi
gefst nemendum kostur á starfi í
öðrum hópum én þeir em skráðir
í. Á meðan opna vikan stendur yfir
er skólinn öllum opinn og gefst al-
menningi kostur á að kynna sér
skólastarfið og starf hópanna.
Helstu hóparnir sem verða að
störfum þessa viku era starfshópur
um Amnesty Intemational. Mun
hann kynna sérstaklega störf þess-
arar hreyfingar og athuga með
stofnun sérstakrar deildar Amnesty
hér á Egilsstöðum. Tónlistarhópur
verður starfandi og fjallar hann
bæði um popptónlist og klassíska
tónlist, gengst m.a. fyrir tónleikum
með Bubba Moríhens í Valaslq'álf
á miðvikudag. Kvikmyndahópurinn
gengst fyrir sýningum á tveimur
nýlegum bíómyndum í samvinnu við
Valaskjálf. Em það myndimar,
„Cry freedom" sem sýnd verður á
fimmmtudag og „Síðasta freisting
Krists" sem sýnd verður á sunnu-
dag. Einnig munu þeir sýna 16 mm
myndir sem þeir hafa fengið í gegn
um franska sendiráðið.
Það verður gerð skoðanakönnun
á myndbandaeign á Egilsstöðum
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 10. febrúar.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 65,00 44,00 61,79 4,157 256.925
Ýsa 98,00 80,00 93,72 1,855 173.879
Karfi 36,00 36,00 36,00 0,667 20.422
Ufsi 25,00 25,00 25,00 0,063 1.593
Steinbítur 51,00 51,00 51,00 0,215 10.973
Steinbíturjósl.) 50,00 50,00 50,00 0,739 36.950
Lúða 220,00 220,00 220,00 0,008 14.204
Koli 50,00 50,00 50,00 0,045 2.290
Langa 15,00 15,00 15,00 0,029 440
Keila 28,00 28,00 28,00 0,507 14.204
Keila(ósL) 21,00 21,00 21,00 0,202 4.253
Hrogn 164,00 100,00 133,34 0,225 30.114
Samtals 64,27 8,617 553.803
Selt var aðallega úr Náttfara HF, Hamri SH, frá Fiskverkun Sig-
urðar Ágústssonar, Nesveri, Hróa hf., Kristjáni Guðmundssyni
á Rifi og Fiskverkun Valdimars Elíassonar í Hafnarfirði. Næst-
komandi mánudag verður selt óákveðið magn úr ýmsum bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 62,00 62,00 62,00 7,597 470.986
Þorskur(smár) 57,00 57,00 57,00 1,353 77.121
Ýsa 95,00 56,00 82,18 1,724 141.681
Ufsi 37,00 34,00 36,72 4,384 161.001
Karfi 17,00 17,00 17,00 0,222 3.774
Steinbítur 45,00 45,00 45,00 0,078 3.510
Skarkoli 56,00 56,00 56,00 0,022 1.232
Lúða • 265,00 265,00 265,00 0,074 19.610
Samtals 56,87 15,453 878.915
Selt var úr Keili RE. í dag verður selt úr netabátum og hefst
uppboðið klukkan 12.30. Næstkomandi mánudag verða meöal
annars seld 10 tonn af grálúðu, 6 tonn af þorski og 1,6 tonn
af steinbít úr Farsæli SH.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 70,50 50,50 65,11 36,690 2.388.855
Ýsa 92,00 85,00 86,91 1,453 126.281
Ufsi 20,50 19,00 19,41 5,500 106.750
Steinbítur 37,00 30,00 32,33 0,750 24.250
Langa 31,50 18,00 27,82 0,044 1.224
Blálanga 35,00 35,00 35,00 0,141 4.935
Lúða 275,00 275,00 275,00 0,034 9.433
Keila 21,00 20,00 20,82 0,486 10.130
Hrogn 89,00 89,00 89,00 0,020 1.780
Samtals 59,26 45,118 2.633.638
Selt var aðallega úr Skarfi GK, Eldeyjar-Hjalta og Hrungni GK.
I dag verður selt úr snurvoðar- og dagróðrabátum ef á sjó gefur.
og athugað hvaða myndbönd ganga
best á leigunum hér. Einnig er
ætlunin að kanna þátttöku á stofn-
un kvikmyndaklúbbs og kenna Eg-
ijsstaðabúum að fara aftur í bíó.
Útvarpsstöð verður starfrækt þessa
viku og sendir hún út á FM 103,2
allan sólahringinn. Mun sending
hennar ná um allt Fljótsdalshérað.
Verður þar flutt, auk dægurtónlist-
ar, tilbúnir þættir um menningu og
stjórnmál auk frétta og viðtalsþátta
við bæjarbúa. Myndbandahópur
mun einnig starfa og vinna efni
fýrir líðandi stund og heimildir
handa framtíðinni. Einnig verður
unnið að veglegu skólablaði en slíkt
blað hefur ekki komið út í 5 ár.
Opnu vikunni lýkur svo með
Þorrablóti sem sérstakur hópur sér
um. Ættu þá allir að geta mætt í
nýsaumuðum fötum en mikil ásókn
var á saumanámskeið þessa viku
og em þau margsetin. Feimnis-
hópurinn, en það er hópur feiminna
einstaklinga sem ætlar að nota vik-
una til að vinna bug á feimninni,
verður þá laus við alla feimni og
getur heilshugar tekið þátt í gleð-
inni.
- Björn
i