Morgunblaðið - 19.02.1989, Blaðsíða 22
.,mprgunblaðið *fm Wrjmmziw
,a
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Framkvæmdastjóri
Óskum að ráða framkvæmdastjóra til starfa
hjá félagasamtökum á sviði atvinnurekstrar.
Starfssvið framkvæmdastjóra: Stjórnun
daglegs rekstrar. Stefnumörkun og þróun
þjónustu. Áætlanagerð. Samningagerð.
Erlend viðskipta- og félagstengsl. Markaðs-
setning. Yfirumsjón með fjármálum og
starfsmannahaldi.
Við leitum að manni með háskólamenntun
á sviði viðskipta- og rekstrarfræða, fram-
haldsmenntun eða búseta erlendis æskileg.
Starfið krefst þess að viðkomandi sé hug-
myndaríkur, drífandi, geti starfað sjálfstætt
og stjórnað umfangsmiklum rekstri.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Farið verður með allar fyrirspurnir og um-
sóknir sem trúnaðarmál.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir,
merktar „Framkvæmdastjóri 57“ til Ráðning-
arþjónustu Hagvangs hf., fyrir 1. mars nk.
Hagvangur hf
Grensásvegi 13
Reykjavík
Sími 83666
Ráðningarþjónusta
Rekstrarráðgjöf
Skoðanakannanir
Viltu vinna úti á
landi sem bókari?
Fiskvinnslufyrirtæki á Vestfjörðum hefur beð-
ið okkur að útvega sér starfsmann í stöðu
bókara.
Helstu verkefni bókarans eru við færslu fjár-
hagsbókhalds, afstemmingar o.s.frv.
Leitað er að einstaklingi sem er nákvæmur,
vel skipulagður og vanur tölvubókhaldi og
getur annast umsjón bókhaldsins fullunnið í
hendur endurskoðenda.
í boði er spennandi og krefjandi starf ásamt
góðum launum og fríu húsnæði hjá traustu
og framsæknu fyrirtæki.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
okkar, Hafnarstræti 20, 4. hæð. Með um-
sóknareyðublaðinu skal fylgja mynd af um-
sækjanda.
Umsóknarfrestur er til 24. febrúar 1989.
Teitur Iárusson
STARFSMANNA rAðningarwónusta. launaútreikninoar.
ÞJÓNUSTA námskeiðahald. ráðojöf.
hf. HAFNARSTRÆTI 20. VIÐ lækjartorg. ioi REYKJAVlK
SfMI 624550.
Tölvunarfræðingur
Fyrirtækið sérhæfir sig í sölu á meðalstórum
tölvukerfum og sérhugbúnaði tengdum
þeim.
Starfið felst í forritun í COBOL og viðhaldi
gagnagrunnskerfa (relational/SQL, CODA-
SYL), einnig viðhaldi á erlendum hugbúnaði
og notendaráðgjöf.
Hæfniskröfur erU að viðkomandi séu tölvun-
arfræðingar að mennt eða með menntun frá
EDB-skólanum í Danmörku. Sé um hið síðar-
nefnda að ráða er áskilin 2ja ára starfs-
reynsla.
Umsóknarfrestur er til og með 24. febrúar
nk. Ráðning verður samkvæmt samkomu-
lagi.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9.00-15.00.
I
Miieysmga- og rádniiigaþ/onusta
Lidsauki hf.
Skólavorðustig la - 101 Reyk/avik - Sími 6P13SH
ií@
Matvælafræðingar
Einstakt atvinnutækifæri
á Hjaltlandi
Framkvæmdastjóri
- yfireftirlitsmaður
Laun 20.000E á ári + húsnæði + bíll
Shetland Seafood Quality Control hefur með
höndum gæðaeftirlit á fiski og fiskafurðum
á Hjaltandi.
Fyrirtækið mun taka í notkun á næstunni
nýja rannsóknaaðstöðu með gerlarann-
sóknastofu og aðstöðu til efnagreiningar á
fiski. Umsækjandi þarf að geta haft yfirum-
sjón með slíkri starfssemi. Einnig mun hon-
um ætlað að sjá um að viðhalda því eftirliti
sem haft er með fiski og fiskafurðum, sér í
lagi ræktuðum laxi frá Hjaltlandi. Hann þarf
að geta leiðbeint fiskframleiðendum í gæða-
og hreinlætismálum og vera fær um að
starfa sjálfstætt. Starfið hentarvel matvæla-
fræðingi eða manni með hliðstæða menntun.
Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi starfað
við fiskvinnslu og hafi á henni greinargóða
þekkingu. Húsnæði er í boði gegn vægri
leigu. Framfærslukostnaður er um 30% lægri
en á íslandi og skattar eru lágir.
Daglegar samgöngur eru á sjó og með flugi
við Aberdeen í Skotlandi.
Umsækjendur geta nálgast umsóknareyðu-
blöð með því að skrifa eða hringja í Jim
Henry.
Shetland Seafood Quality Control,
93 St. OlafStreet,
Lerwick,
Scotland,
sími 9044-595-3535 innanhúss 343
eða spyrja eftir Leifi Eiríkssyni
í síma 9044-595-88-210 á kvöldin.
„Englar“ óskast
Sjónvarpið auglýsir eftir tveimur strákum til
þess að fara með hlutverk engla í sjónvarps-
myndinni „Englakroppar“.
Æskilegt er að þeir séu feitlagnir og með
búttaðar kinnar.
Sendið nafn, heimilisfang, aldur og Ijósmynd
á afgreiðslu sjpnvarpsins, Laugavegi 176,
Reykjavík, fyrir miðvikudaginn 22. febrúar,
merktar: „Englakroppar".
O
Sjúkrahús
Siglufjarðar
Vegna hjúkrunarfræðingaskorts bráðvantar
hjúkrunarfræðinga til starfa í fastar stöður
og til sumarafleysinga. Á sjúkrahúsinu er
ellideild, sjúkradeild og fæðingardeild, alls
43 rúm. Siglufjörður er 1900 manna bær
með stóru sjúkrahúsi sem er vel tækjum
búið og góðri starfsaðstöðu.
Gott húsnæði. Góð launakjör.
Komið, skoðið og sannfærist eða fáið nánari
upplýsingar hjá hjúkrunarforstjóra í síma
96-71166, heimasími 96-71334.
Sjúkrahús Siglufjarðar.
Kerfisfræði
MARKAÐSSVÐ
vill ráða verktaka til starfa. Æskilegt er
að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Eingöngu koma til greina tölvunarfræðingar
eða aðilar með reynslu í kerfisfræði.
Um er að ræða störf þar sem krafst er
þekkingar eða starfsreynslu á annars vegar
IBM AS/400 eða IBM S/3X og IBM S/370
hinsvegar.
Væntanlegir starfsmenn munu starfa sem
verktakar en IBM leggur til allan búnað og
húsnæði. Umsóknareyðublöð og allarnánari
upplýsingar verða veittar á skrifstofu
okkar, Tjarnargötu 14.
Farið verður með allar fyrirspurnir og
umsóknir í fyllsta trúnaði.
Umsóknarfrestur er til 25. febrúar. .
ftlDNTlÓNSSON
RAÐCJÖF & RAÐN I N CARÞJON U STA
TJARNARGÖTU 14. 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
Skrifstofumaður
Iðnfyrirtæki í Hafnarfirði óskar að ráða mann
til að annast bókhald, launaútreikning, launa-
bókhald, tölvuvinnslu, innheimtu o.fl. almenn
skrifstofustörf.
Við leitum að manni með starfsreynslu, sem
vill vinna 50-70% vinnu, og getur starfað
sjálfstætt. Laust strax.
Nánari upplýsingarveitir Katrín S. Óladóttir.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum, sem liggja frammi á skrifstofu okk-
ar, fyrir 23. febrúar nk. merktar númeri (50 .
Hagvangur hf
Grensásvegi 13
Reykjavík
Sími 83666
Ráðningarþjónusta
Rekstrarráðgjöf
Skoðanakannanir
Tölvunarfræðingur
- UNIX
Við leitum að starfsmanni til að hafa umsjón
með UNIX-kerfum. Starfið felur m.a. í sér
kennslu á UNIX, þjónustu og ráðgjöf við UNIX-
notendur, forritun í UNIX og tæknilega sölu.
Umsækjendur þurfa að þekkja UNIX stýrikerf-
ið, hafa lipra framkomu og vera fljótir að til-
einka sér nýjungar. í boði er góð starfsaðstaða
og góð laun fyrir drífandi starfsmann.
íslensk forritaþróun hf. hefur selt 80 SCO
UNIX/XENIX kerfi, eða um 70% UNIX-kerfa
á landinu. SCO UNIX/XENIX hefur um 85%
hlutdeild af heimsmarkaðnum fyrir UNIX-
kerfi á Intel-örgjörvum.
Nánari upplýsingar veita Örn Karlsson og
Hálfdán Karlsson í síma 671511 eða á skrif-
stofu félagsins á Höfðabakka 9. Farið er með
umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
íslensk
forritaþróun sf
Höfðabakka 9, þriðju hæð,
112 Reykjavík,
sími67 15 11.