Morgunblaðið - 19.02.1989, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 19.02.1989, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ DAGBOK SUNNUDAGUR 19. PEBRÚAR 1989 T T\ A er sunnudagur 19. febrúar. Annar sunnudagnr I UixVJTí föstu, 50. dagur ársins 1989. Árdegisflóð í Reykjavík kl. 6.00 og síðdegisflóð kl. 18.24. Sólarupprás í Reykjavíkkl. 9.09 og sólarlag kl. 18.15. Myrkurkl. 19.05. Sólin er í hádegisstað í Rvík kl. 13.42 og tunglið er í suðri kl. 20.56 (Almanak Háskóla íslands). Þótt þúsund falli þér við hlið og tiu þúsund þér til hægri handar, þá nær það ekki til þín. (Sálm. 91,7.) ÁRNAÐ HEILLA F7f \ ára afmæli. í dag, 19. ■ U febrúar, er sjötugur Elías Kristjánsson frá Vest- mannaeyjum, Furugrund 24, Kópavogi. í Vestmanna- eyjum átti hann heima til árs- ins 1973. Var hann t.d. starfsmaður Áhaldahúss Vestmannaeyjabæjar í 25 ár. Hann er nú starfsmaður Raf- magnsveitu Reylqavíkur. Kona hans er Klara Hjartar- dóttir ^rá Hellisholti í Eyjum. Varð þeim fimm bama auðið. ára aflnæli. í dag, 19. ÖU þ.m., er áttræður Þór- ólfur Jónsson bygginga- meistari, Þingholtsbraut 61, Kópavogi. Kona hans er María Sveinsdóttir og ætla þau að taka á móti gestum á heimili sínu í dag, afmælis- daginn, kl. 15-18. FRÉTTIR_________________ í DAG, sunnudag 19. febrú- ar, er konudagur. í dag byijar góa. „Fimmti mánuður vetrar að fomisl. tímatali hefst með sunnudegi í 18. viku vetrar. .. .Nafnskýring er óviss.“ Þannig segir frá góu í Stjömufræði/Rímfræði. VIÐSKIPTAVIKAN sem hefst á morgun, mánudag, er hin 8. á yflrstandandi ári. lækningum. Ennfremur hafi ráðuneytið veitt Helgu Hrönn Þórhallsdóttur lækni leyfi til þess að starfa sem sérfræðingur í húð- og kynsjúkdómalækningum. FANGELSISMÁLA- STOFNUN ríkisins auglýsir í Lögbirtingi lausa stöðu fangavarðar við fangelsið austur á Litla-Hrauni. Er umsóknarfrestur settur til 28. þ.m. Fangelsismálastofnun hefur aðsetur í nýbygging- unni á Sölvhólsgötu 4. SKIPIN RE YKJ AVÍKURHÖFN: Að- faranótt laugardagsins komu inn af loðnumiðunum til lönd- unar nótaskipin Júpiter og Svanur. í gærkvöldi var tog- arinn Viðey væntanlegur úr söluferð tii útlanda. I dag kemur Kyndill af ströndinni og danska eftirlitsskipið Ing- olf kemur. Togarinn Asbjörn kemur nú um helgina af veið- um til löndunar. í gær kom danskt olíuskip, Rita Mærks, með olíufarm. Það á einnig að losa f Hafiiarfírði. HAFNARFJARÐARHÖFN: í fyrrinótt kom Hvítanes eft- ir mikla vélaklössun ytra. Gengur skipið nú einar 17 mílur. í gær var væntanlegur fær. verksmiðjutogari, Anco, sem er á leið á Grænlands- mið. Tekur hann veiðarfæri hér m.m. Eins var væntanleg- ur af Grænlandsmiðum danskur rækjutogari, Helen Basse. Hann tekur vistir MOLAR • Reiknivél — samlagn- ingar- og firádráttarvél — var búin til árið 1652. Hún var með allt að því sex stafa tölur. Hét sá Pascal sem vélina smíðaði. SÉRFRÆÐINGAR. í tilk. frá heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytinu í Lögbirt- ingablaðinu segir að það hafí veitt Einari Kristni Þór- haUssyni lækni leyfi til að starfa sem sérfræðingur í lyf- • Feneyjakaupmenn flytja árið 1624 kafiB í fyrsta skipti frá Arabíu. í Bretlandi kynnist almenn- ingur kafiBnu árið 1652 og 1665 kemur það í fyrsta skipti til Norðurlanda. KROSSGATAN Lárétt: — 1 mergð, 5 fugl- inn, 8 þor, 9 dúkku, 11 alda, 14 þegar, 15 tigin, 16 vond- an, 17 greinir, 19 slæmt, 21 blóðsugu, 22 markleysuna, 25 ferski, 26 gubba, 27 sefa. Lóðrétt: — 2 hestur, 3 land, 4 deyfð, 5 fuglinn, 6 málmur, 7 svelg, 9 byrðin, 10 spendýr, 12 nærri, 13 stokkinn, 18 tölustafur, 20 drykkur, 21 greinir, 23 svik, 24 öfugur tvíhljóði. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: — 1 goðgá, 5 kátri, 8 emjar, 9 smári, 11 rista, 14 núp, 15 ásinn, 16 afræð, 17 aur, 19 arka, 21 kunn, 22 urtunum, 25 inn, 26 ána, 27 sum. Lóðrétt: — 2 orm, 3 ger, 4 áminna, 5 karpar, 6 ári, 7 rót, 9 smánaði, 19 ágiskun, 12 straums, 18 arðinum, 18 unun, 20 ar, 21 ku, 23 tá, 24 Na. Ég er með góðar fréttir handa ráðherranum fyrir næsta fiind. Afköstin hafa aukist um 30 prósent síðan við tókum upp flæðilínukerfið ... MANNAMÓT BRÆÐRAFÉL. Bú- staðakirkju býður eldri borgurum í sókninni til kaffi- drykkju, í tilefni konudagsins sem er í dag, 19. febrúar, að lokinni messu í kirkjunni. Flutt verður ávarp, söngur og hljóðfæraleikur. FÉL. eldri borgara. í dag, sunnudag, er opið hús í Goð- heimum, Sigtúni 3, kl. 14. Frjálst spil og tafl. Söngkór RARIK (Rafinagnsveitur ríkisins) kemur í heimsókn og tekur lagið. Dansað kl. 20. Á morgun, mánudag, er opið hús í Tónabæ kl. 13.30 en kl. 14 verður spiluð félagsvist. KVENFÉL. Kópavogs heldur spilafund sem er öllum opinn nk. þriðjudagskvöld 21. þ.m. í neðri sal félagsheimilis- ins og verður byijað að spila kl. 20.30. KVENNADEILD Barð- strendingafélagsins heldur aðalfundinn annað kvöld, 20. febr., á Hallveigar- stöðum kl. 20.30. Gestur fé- lagsins á þessum fundi verður frú Friðgerður Friðgeirsdótt- ir. KVENFÉL. Bústaða- kirkju heldui' aðalfund í safnaðarheimili kirkjunnar annað kvöld, mánudag, 20. þ.m, kl. 20.30. ERLENDIS: 1618: Madrid-friðurinn stað- festur. Ófriði Feneyinga og Austurríkismanna lýkur. 1674: Westminster-sáttmáli: Þriðja stríði Englendinga og Hollendinga lýkur. 1797: Tolentinó-friður og páfinn lætur af hendi við Frakka: Romanga, Bologna SAMVERKAMENN móður Teresu halda fund annað kvöld, 20. þ.m, í safn- aðarheimilinu Hofsvallag. 16 kl. 20.30. ITC-kynning. í byijun þessa mánaðar fór fram kynning á vegum ITC og bar yfírskriftina: Býrðu yflr leyndum hæfíleikum eru opn- ir fundir í öllum ITC-deildum. Uppl. um stað og stund deild- anna veita þessir ITC-upplýs- ingafulltrúar: Jónína s. 94-3662, Hjördís s. 91-28996, Marta 91-656154 og Guðrún s- 91-46751. ÁRNESINGAFÉLAG- IÐ í Reykjavík heldur í dag, sunnudag, árlegt góu- kaffí. Býður félagið sérstak- lega öllum eldri Amesingum til kaffísamsætis. Það hefst kl. 14 í Víkingasal Loftleiða- hótels og stendur yfír til kl. 17. Ávörp verða flutt og upp- lestur. GÓUHÁTÍÐ FÉL. ísl. námsmanna í Noregi verður í Risinu á Hverfísgötu 105 nk. laugardag, 25. febrúar, kl. 19. Borðhald verður. Þess- ir gefa nánari uppl.: Sigurður s. 44705, Helgi s. 666911, Sigurbjörg s. 77305 og Sigríður Lára s. 25488 til og með 20. þ.m. til Vínar um Týról. 1803: Kantónumar í Sviss fá aftur sjálfstæði með lög- um. 1807: Breskur floti brýst gegnum Dardanellasund til að styðja Rússa gegn Tyrkj- um. 1940: Eltingaleikur hefst við þýska fragtskipið Altmark. ítölsku Sómalíu frá Kenýa. 1924: Ahmad Persakeisara steypt af stóli. 1945: Árás Bandaríkja- manna á eyjuna Iwo Jima hefst. 1959: Samkomulag Grikkja, Tyrkja og Breta um sjálf- stæði eyjarinnar Kýpur. 1963: Rússar samþykkja að flytja herlið sitt heim frá Kúbu. Flugslys í Prag er sovésk far- þegaflugvél fórst og með henni 77 farþegar. 1978: Egypskir hermenn sendir til Nikósíu og bjarga þar gíslum úr flugvél, en 15 þeirra féllu í átökunum. 1979: íran slítur sambandi við ísrael og lýsir yfir stuðn- ingi við Palestínumenn. HÉRLENDIS: 1662: Daði Halldórsson gengst við faðemi sveinbams Ragnheiðar biskupsdóttur. ORÐABÓKIN Draugorð Svo nefnast þau orð, sem komist hafa í orðabækur fyrir einhvem misskilning — oft mis- lestur, ef ógreinilega er skrifað í handriti, eða þá misheym. Þessi orð hafa því aldrei verið til í mæltu máli. Á ensku nefnast þessi orð ghost words eða phantom words, og er íslenska nafnið bein þýð- ing á hinu fyrmeftida. Vitaskuld er sú hætta alltaf fyrir hendi, að þess konar orð sleppi fram hjá þeim, sem safna til orða- bóka, og komist þannig óverðskuldað á prent og fyrir augu almennings. Skal nú nefnt eitt dæmi úr jafnágætu verki og orðabók Blöndals. 1663: Lög um ábyrgð ráð- herra. 1783: Tilskipun konungs um að jarðnæðislausir bændur visti sig hjá búandi bændum. 1881: Reykjavíkurtjörn flæðir yfir bakka sína. 1968: Bræður fómst í flug- slysi í Reykjavík. 1975: Stjómmálasambandi slitið við Breta. 1979: Fimm mönnum bjarg- að af bát frá Ólafsfírði, einn fórst. Þennan dag fæddust Nicolaus Copemicus hinn pólski stjömufræðingur (1473- 1543), ítalska tónskáldið Lu- igi Boccherini (1743-1805) sænski landkönnuðurinn Sven Hedin (1865-1952) og bandaríski kvikmyndaleikar- inn Lee Marvin árið 1924. Hann lést fyrir nokkmm áram. Þar kemur fyrir so. að þverdúka við einhvem og sögð merkja það að dekra við e-n eða koma sér inn undir hjá e-m. Á þetta orð að vera ættað úr V-Skaftafellssýslu. Ekki er nú svo. Hér hefur p í handriti af misgáningi verið lesið sem þv, enda er þetta sama orðið og perdúka, sem sagt var frá í pistli 27. nóv. sl. V-Skaftfellingar þekktu það orð rrvjög vel fyrir nær 50 ámm, en höfðu aldrei heyrt talað um að þverdúka við e-n. Óhætt mun því að fullyrða, að hér sé um draugorð að ræða, sem best er að gleyma með öllu. - JAJ og Ferrara. Napoleon sækir 1941: Bretar gera innrás í ÞETTA GERDIST 19. febrúar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.