Morgunblaðið - 19.02.1989, Side 23

Morgunblaðið - 19.02.1989, Side 23
ISibíSdiíflSSÐÍÐ ATVINNÍ0K!ð^^fi)í\^ll^i!^cuR SÍ^ebrG AftÁ síW-— s: 3 I atvirma —* atvirma — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Barnafataverslun í miðbænum, sem leggur áherslu á lipra og góða þjónustu, óskar að ráða traustan og samviskusaman starfskraft til sölu- og af- greiðslustarfa. Um er að ræða heilsdags starf. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf óskast sendar auglýsingadeild Mbl. merktar: „B - 9710“ fyrir 24. febrúar nk. ||| PAGVI8T BARIVA Dagvist barna auglýsir eftirtaldar stöður lausar til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 1. mars næstkomandi: Forstöðumaður í Múlaborg, forstöðumaður í Rofaborg. Fóstrumenntun áskilin í þessar stöður. Sálfræðingur í 50% stöðu. Nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri Dagvistar barna í síma 27277. jjj UAGVI8T BARIVA Fóstrur, þroska- þjálfar eða annað uppeldismenntað starfsfólk! Dagvist barna, Reykjavík, óskar eftir starfs- fólki í gefandi störf á góðum vinnustöðum. Til greina koma hlutastörf bæði fyrir og eftir hádegi. Upplýsingar veita forstöðumenn eftirtalinna dagvistarheimila og skrifstofa Dagvistar barna, sími 27277: Nóaborg Austurbær Stangarholti 11 s. 29595 Breiðholt - Grafarvogur Jöklaborg v/Jöklasel s. 71099 Bakkaborg v/Blöndubakka s. 71240 Foldaborg Frostafold 33 s673138 Framkvæmdastjóri íþróttafélag vill ráða duglegan og metnaðar- saman, ungan viðskiptafræðing sem fram- kvæmdastjóra. Starfið getur verið laust strax. Ráðningartími er samkomulag. Góð laun fyrir hæfan aðila. Upplýsingar á skrifstofu okkar. Qidnt Tónsson RÁÐCJÖF &RÁÐN1NCARÞJÓNUSTA TJARNARGÖTU 14,101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22 Framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Knattspyrnudeild KR óskar að ráða fram- kvæmdastjóra til að annast daglegan rekstur deildarinnar, skipuleggja fjáröflun, sjá um framkvæmd kappleikja og námskeiða o.fl. Umsóknir, ásamt upplýsingum um starfsferil og menntun, sendist auglýsingadeild Mbl., merktar: „KR - 7010" fyrir 23. febrúar. Knattspyrnudeild KR. Rafvélavirkjar Óskum eftir vönum rafvélavirkjum til starfa. Upplýsingar á staðnum. Rafverhf. Efnafræðingur sem útskrifast með BS-próf í efnafræði í vor frá HÍ, óskar eftir góðu, krefjandi starfi. Umsóknir óskast sendar á auglýsingadeild Mbl. merktar: „Efni - 3673“ fyrir mánaða- mót. Ungur stýrimaður óskar eftir plássi á .togara eða loðnubát. Upplýsingar í síma 91-73672. Auglýsingagerð Stórt innflutnings- og þjónustufyrirtæki með fjölþættan rekstur óskar eftir að komast í samband við einstakling sem séð gæti um verkefni á sviði auglýsingavinnslu. Umsóknir vinsamlegast sendist auglýsinga- deild Mbl. fyrir, þriðjudaginn 28. febrúar merktar: „A - 6400“. Sölumaður Óskum að ráða sölumann til sölu og dreifing- ar á tóbaksvörum okkar. Tímabundið starf gæti komið til greina. Umsóknir vinsamlegast sendist til auglýs- ingadeildar Mbl. fyrirföstudaginn 24. febrúar merktar: „S - 6359". Globusp Lágmúla 5 Atvinnurekendur Fjármál? - bókhald? Vantar þig hæfan og dugmikinn starfskraft til að sjá um meðferð fjármála, merkingu fylgiskjala og færslur, afstemmingu, uppgjör, útreikning launa, tölvuvinnslu og eftirlit með daglegum rekstri? Hef góða starfsreynslu og menntun. Starf 75-100%. Hafið samband við DV í síma 27022, H - 2850. Sjúkrahúsið á Húsavíksf. Hjúkrunarfræðingar Deildarstjóri óskast á blandaða hand- og lyf- lækningadeild. Hjúkrunarfræðingar óskast nú þegar og til sumarafleysinga. Kannið aðbúnað og kjör. Hringið eða komið í heimsókn. Upplýsingar gefur Aldís Friðriksdóttir, hjúkr- unarforstjóri, í síma 96-41333. Sölumaður auglýsinga Fréttatímaritið Þjoðlíf vill ráða sölumann á auglýsingadeild blaðsins. Laun verða að miklu leyti prósentur af sölu og því eru miklir tekjumöguleikar fyrir hæft fólk. Við leitum að hressum, reyndum og dugleg- um sölumanni (karli eða konu) sem hæfir starfsanda hjá ört vaxandi tímariti. Umsóknir berist auglýsingadeild Mbl. í síðasta lagi 24. febrúar merktar: „Auglýs- ingar -9711“. Nánari upplýsingar veitir aug- lýsingastjóri á Vesturgötu 10a. BORGARSPÍTALINN Lausar Slödur Hjúkrunarfræðingar Okkur vantar áhugasama hjúkrunarfræðinga til að taka þátt í uppbyggingastarfi og skipu- lagsbreytingum hjúkrunarþjónustu slysa- og sjúkravaktar (slysadeild). í boði er: 60 stunda námskeið um hjúkrun á slysa- og sjúkravakt sem hefst í byrjun apríl 1989. Námskeiðið er í formi fyrirlestra, umræðutíma og verklegra æfinga. Eftirfarandi þættir verða m.a. teknir fyrir: Hlutverk hjúkrunarfræðinga á slysa- og sjúkravakt Mat á ástandi sjúklinga Endurlífgun Fjöláverkar Brunameðferð Sárameðferð Brotameðferð Jafnframt verður boðið upp á skipulagðan aðlögunartíma á deildinni. Nánari upplýsingar eru veittar af Herdísi Storgaard hjúkrunardeildarstjóra slysa- og sjúkravaktar í síma 696650. A sótthreinsunardeild Laus er til umsóknar staða aðstoðardeildar- stjóra. Vinnutími er kl. 8.00-16.00 virka daga. Um er að ræða 100% starf. Umsóknar- frestur er til 28. febrúar. Á skurðdeild E-5 Laus er til umsóknar staða aðstoðardeildar- stjóra á sviði háls-, nef- og eyrnaskurð- lækninga. Um er að ræða 100% starf. Um- sóknarfrestur er til 28. febrúar 1989. Nánari upplýsingar eru veittar af Elínborgu Ingólfsdóttur hjúkrunarframkvæmdastjóra í síma 696357. Lausar eru tvær stöður hjúkrunarfræðinga á Endurhæfinga- og taugadeild (Grensásdeild). Endurhæfinga- og taugadeildin er miðstöð endurhæfinga í Reykjavík og önnur stærsta endurhæfinga- stöð landsins. Umhverfið er hlýlegt og að- staða er mjög góð. M.a. ný sundlaug, góð aðstaða sjúkraþjálfunar og vistlegar deildir. Aðal sjúklingahóparnir eru sjúklingar með einkenni frá heila- og taugakeríi og fólk með stoðkerfisvandamál. í starfinu er unnið að andlegri, líkamlegri og félagslegri uppbyggingu einstaklinga í mjög náinni samvinnu við hina ýmsu heilbrigðishópa. Nánari upplýsingar gefur Gunnhildur Valdi- marsdóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 696364 og Erna Einarsdóttir hjúkrunar- framkvæmdastjóri starfsmannaþjónustu í síma 696356. Starfsmaður óskast til aðstoðar við verkstjórn hjá ræstingadeild. Upplýsingar veitir ræstingastjóri milli kl. 10.00-12.00 ekki í síma. Gjafa- og listmunaverslun Óskum að ráða starfskraft til að reka gjafa- og listmunaverslun. Hér er um að ræða sjálf- stætt starf sem krefst reynslu í innflutningi og sölu. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist auglýsingadeild Mbl. merktar: „List - 9712“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.