Morgunblaðið - 19.02.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.02.1989, Blaðsíða 4
4 FRETTIR/YFIRUT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1989 ERLEMT INNLENT Rafitnagn fór af öllu landinu Rafmagn fór af öllu landinu síðdegis á sunnudag er selta olli bilun í tengivirki Landsvirlq'unar á Geithálsi. Illviðri og mikið saltrok ollu margvíslegum rafmagnstrufl- unum víða um land. Sambandsleysi við útlönd Ein af afleiðingum rafmagnsleysisins var sú að jarðstöðin Skyggnir var óvirk í 78 mínútur. Talsam- band við útlönd var rofíð á meðan og flugstjómarmiðstöð- in í Reykjavík var sambandslaus við aðrar flugstjóm- armiðstöðvar í nágrannalöndun- um. Hefði þetta getað haft alvar- legar afleiðingar bilunin hefði orð- ið fyrr um daginn. Ákveðið hefur verið að kaupa aðra jarðstöð til að koma í veg fyrir sambandsrof af þessu tagi. Grænfriðunar mótmæla í 150 borgum Búizt er við mótmælum grænfrið- unga gegn hvalveiðum íslendinga og kaupum á íslenzkum fiski í 150" bandarískum borgum 25. marz. Heimsfrægar hljómsveitir á borð við Eurythmics og Pretenders hafa neitað að spila á íslandi vegna hvalveiðistefiiunnar. Rækjubátar farast Tveir rækjubátar fómst á ísaflarð- ardjúpi á þriðjudag. Kolbrún ÍS sökk í mynni Skutulsfjarðar. Mannbjörg varð, og þakka skip- veijamir tveir það vinnuflotgöll- um, sem þeir vom i. Dóra ÍS var mikið leitað, en formlegri leit er nú hætt. Með bátnum fómst tveir 3.000 atvinnulausír í janúar 3.000 manns, eða um 2,5% vinnu* aflsins, vom atvinnulausir í jan- úar. Greiðslur úr atvinnuleysis- tryggingarsjóði námu 100 milljón- um króna í mánuðinum. Andstæðingum hval- veiða flölgar Samkvæmt nýrri skoðanakönnun em 45,2% þeirra, sem afstöðu taka til hvalveiða, mótfallnir því að halda þeim áfram. í sambærilegri könnun í október vildu 34,4% hætta veiðunum. Lélegustu gæfitir í 30 ár Illviðrið hefur hamlað veiðum og fullyrt hefur verið að gæftir hafi ekki verið lélegri í 30 ár. Þor- skafli jókst þó í janúar, en óvissa ríkti um, hvort tækist að veiða allan loðnukvótann. Utanríkisráðherrar fúnda James Baker, utanrikisráðherra Bandaríkjanna, átti fund með Jóni Baldvin Hannibalssyni starfs- bróður sínum. Baker lýsti því með- al annars yfir að hann teldi æski- legt að varaflugvöllur yrði lagður á Islandi. Jóni Baldvin hefur borizt skrifleg staðfesting á því frá Manfred Wörner, framkvæmda- stjóra Atlantshafsbandalagsins, að varaflugvöllurinn verði ekki hem- aðarmannvirki á friðartímum. Skinka vigtuð með umbúðum í könnun Verðlagsstofnunar kom fram að allir framleiðendur skinku nema tveir verðleggja skinkuna þannig að plastumbúðimar eru vigtaðar með kjötinu. Menn borga því sama kílóverð fyrir plastið og skinkuna. Lögum samkvæmt ber að selja vömr eftir nettóvigt. ERLENT Sovétmenn á brott úr Afganistan Brottflutningi sovéskra hersveita frá Afganistan lauk á miðvikudag en þá vom liðin níu ár og níu vik- ur frá því Sovétmenn réðust inn í landið. íhlutunin kostaði 15.000 sovéska hermenn lífið en talið er að ein miiljón Afgana hafi fallið. Blóðugu lokastríði er nú spáð á mili afganskra skæmliða og her- sveita sovésku leppstjómarinnar í Kabúl. Hamslaus bræði múhameðstrúarmanna Ráðamenn í Iran hafa dæmt ind- verska rithöf- undinn Salaman Rushdie til dauða vegna bókar hans „Söngvar Sat- ans“ sem nýverið kom út en múhameðstrúarmenn telja ritverkið vera guðlast. Múha- meðstrúarmenn hafa víða komið saman til að brenna bókina og islamskir öfgamenn í íran hafa sett hundmð milljóna króna til höfuðs Rushdie. James Baker í Evrópuför Utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, James Baker, sótti ráðamenn í öllum 14 ríkjum Atl- antshafsbandalagsins í V-Evrópu heim í vikunni en fyrsti viðkomu- staður hans var ísland. Fundir Bakers og ráðamanna í V-Þýska- landi vöktu mesta athygli en helsta umræðueftiið var endumýj- un skammdrægra kjamorku- vopna NATO þar í landi. Helmut Kohl kanslari vill að henni verði frestað í tvö til þijú ár en Banda- ríkjamenn og Bretar vilja að ákvörðun verði tekin á þessu ári. Svíakonungur gagnrýnir Norðmenn Karl Gústav Svíakonungur hvatti Norðmenn á miðvikudag til að hætta selveið- um en heimildar- mynd um sela- dráp þeirra hefur vakið mikla reiði í Danmörku, Svíþjóð og Bretlandi. Ummæli konungs féllu í grýttan jarðveg í Noregi og brugðust norskir stjóm- málamenn hinir verstu við er kon- ungurinn kvaðst ekki skilja hvem- ig forsætisráðherra Noregs, Gro Harlem Brundtland, gæti stjóm- að landinu fyrst hún gæti ekki stöðvað þessa ósvinnu. Fyrsti kvenbiskup sögunnar Tímamót urðu í kirkjusögunni um síðustu helgi er bandaríska blökkukonan Barbara Harris tók fyrst kvenna biskupsvígslu f Boston í Banda- ríkjunum. Bar- bara Harris er 58 ára að aldri. Hún tók prests- vígslu árið 1980 en áður hafði hún starfað við almannatengsl. Hryðjuverkið yfír Lockerbie: Deilt að nýju um hvar sprengjan kom um borð Lockerbie. Reuter. BREZK og vestur-þýzk lögreglu- yfirvöld þrátta að nýju um það hvar sprengjan, sem grandaði breiðþotu Pan Am yfir Skotlandi skömmu fyrir jól, kom um borð í þotuna. Brezka lögreglan hefur skýrt frá því að sprengjan hafi verið fal- in í ferðaútvarpstæki með inn- byggðu segulbandstæki. í gær sagði John Orr, jrfirmaður lögreglu- rannsóknar á ódæðisverkinu, að sprengjan hafi að öllum líkindum verið í farangri, sem kom með ann- arri flugvél Pan Am frá Frankfurt og var settur um borð í breiðþotuna á Heathrow-flugvellinum í London. Hún hafi verið í gámi í fremstu farangurslest en þar var farangur- inn frá Frankfurt settur. Vestur-þýzk lögregluyfírvöld Reuter Starfemenn brezku flugslysanefhdarinnar kanna brak Pan Am þot- unnar, sem splundraðist i sprengingu yfir Skotlandi skömmu fyrir jól. héldu því hins vegar fram í gær að engar sannanir væru fyrir því að sprengjan hefði verið sett um borð í Frankfurt. „Bretar benda á Frankfurt að því er virðist í þeim Bandaríkin: Viðskiptahalli minnkar Washington. Reuter. Viðskiptahallinn í Bandaríkjun- um minnkaði verulega i desember- mánuði siðastliðnum, fór niður í 11,89 milþ'arða Bandaríkjadala miðað við 12,22 milljarða í nóvem- ber. Hallinn nam um 137,34 miiy- örðum dala á öllu árinu 1988 og minnkaði um 19% miðað við árið áður. Utflutningur Bandaríkjamanna jókst um 6 af hundraði, nam 29,19 milljörðum dala, og hefur aldr- ei verið jaín mikill. Innflutningurinn jókst hins vegar um 3.3 prósent og var einnig hærri en nokkru sinni fyrr, eða 41,09 milljarðar. tilgangi einum að reyna að draga athyglina frá eigin grandaleysi í öryggismálum," sagði háttsettur maður innan þýzku lögreglunnar. Jiirgen Wamke, samgönguráð- herra V-Þýzkalands, sagði of snemmt að segja til um hvar sprengjan var sett um borð. Enda þótt hún hefði verið í fremstu vöru- lestinni gæti hún eftir sem áður hafa verið í farangri, sem skráður var inn í London. Alþjóðaflugmálastofnunin (ICAO) íhugar nú að banna mönn- um að taka útvarpstæki með sér í flug og er markmiðið að fyrir- byggja sprengjuhættu. Af sömu ástæðu þykir til greina koma að banna mönnum að hafa ýmis önnur rafeindatæki, s.s. ferðatölvur, í far- angri sínum. Endumýjiin kjamorkuvopna og kosningaáhyggjur Kohls JAMES Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hafði tvívegis viðkomu í Bonn i sfðustu viku í for sinni til allra 14 höfuðborga aðildarrfkja Atlantshafebandalagsins (NATO) f Vestur-Evrópu. Bandaríski utanríkisráðherrann ræddi sérstaklega við Helmut Kohl, kanslara Vestur-Þýskalands, og Hans-Dietrich Genscher, utanríkisráðherra Iandsins. Helsta umræðuefnið var endurnýjun skammdrægra kjarnorkueldflauga NATO f Vestur-Evrópu en flestum þeirra hefiir verið komið fyrir í Vestur-Þýskalandi. Al- menn samstaða er innan bandalagsins um að þessi hluti kjarnorku- heraflans þarfiiist endumýjunar en eftir að hafda deilt um málið í rúmt ár, hafa vestur-þýskir ráðamenn gefið til kynna á af- dráttarlausan hátt að þeir muni ekki lýsa sig samþykka þvf á þessu ári að áætlun f þá vera verði hrint f framkvæmd þrátt fyrir umtalsverðan þrýsting bæði Bandarfkjamanna og Breta. Astæðan fyrir þessum ágrein- ingi virðist tvíþætt. f fyrsta lagi mælast endumýjunaráformin ákaflega illa fyrir meðal almenn- ings í Vestur-Þýskalandi og hefur þetta komið fram í dvínandi vin- sældum Kohls kanslara og flokks hans. Þá er uppi ágreiningur um réttmæti slíkrar ákvörðunar í ljósi þess að við- ræður um fækk- un hins hefð- bundna herafla í Evrópu eru á næsta leyti. Hefur því verið hald- ið fram, m.a. af Hans-Dietrich Genscher, að endumýjun eld- flauganna, sem eru bandarískar af gerðinni Lance, geti spillt fyrir viðræðunum og leitt til þess að kula taki á ný í samskiptum aust- urs og vesturs. Kohl og flokksbræður hans, kristilegir demókratar, hafa átt undir högg að sækja að undan- fömu. Fylgi flokksins hefur farið minnkandi í aukakosningum en þingkosningar fara fram í desem- ber á næsta ári. Talið er að stefna Kohls í vamarmálum sé helsta ástæða fylgistapsins auk þess sem mannskæð slys á sýningum her- flugvéla og vafasöm viðskipti BAKSVID eftir Ásgeir Sverrisson vestur-þýskra fyrirtækja og Líbýumanna hafa vafalítið haft mikil áhrif á almenningsálitið. Genscher, sem er án nokkurs vafa áhrifamesti stjómmálamaður Vestur-Þýskalands, virðist hafa haft vinninginn í þessu máli eins og svo mörgum öðrum ef marka BIB má yfirlýsingar Kohls í síðustu viku. Kanslarinn lýsti óvænt yfir því í viðtali við The Financial Times að unnt væri að fresta ákvörðun um end- umýjun eldflauganna um tvö til þrjú ár þar eð Lance-kerfið kæmi að fullum notum allt fram til árs- ins 1995. Þessi fullyrðing er um- deilanleg en NATO ræður yfir 88 skotpöllum fyrir Lance-eldflaugar í Vestur-Evrópu og munu rúmlega 60 þeirra vera í Vestur-Þýska- landi. Flaugamar draga 110 kfló- metra og er taiið að um 600 kjamaoddar séu til reiðu í þær í vopnabúrum NATO. Sovétmenn ráða hins vegar yfír 1.350 skammdrægum eldflaugum í Austur-Evrópu þannig að yfír- burðir þeirra eru augljóslega gífurlegir. Svo virðist sem kosninga- Helmut Kohl hefiir um nóg að hugsa. skjálfti hafi gripið um sig í her- búðum kanslarans, sem óttast vafalaust að flokksmenn Gensch- ers gangi til samstarfs við Jafnað- armannaflokkinn eftir næstu kosningar. Kohl virðist því hafa áfráðið að gefa eftir í þessu máli og aðlaga sig að „sveigjanlegri stefnu" Genschers, sem vestur- þýska dagblaðið Die Welt sagði nýverið að væri „líkastur leigubif- reið með allar dyr opnar“. Líklegt má telja að Bandaríkja- menn og Bretar fallist á þessa afstöðu Kohls því ekki verður betur séð en frekari þrýstingur verði einungis til að stuðla að falli hans. Endumýjun eldflaug- anna verður til umræðu á fundi leiðtoga ríkja Atlantshafsbanda- lagsins, sem lfklegast fer fram í maímánuði í Bmssel. Á fundinum verður vafalítið ítrekað að upp- setning nýrra eldflauga í Vestur- Þýskalandi sé í fullu samræmi við markmið NATO á sviði afvopnun- armála en gera má ráð fyrir að framkvæmdinni verði slegið á frest með einum eða öðmm hætti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.