Morgunblaðið - 21.02.1989, Side 26

Morgunblaðið - 21.02.1989, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1989 Tónlist á vinabæja- viku í Alasundi HÓPUR Akureyringa fer á nor- ræna vinabæjaviku í Alasundi í Noregi dagana 26.-30. júní nk. Þar verður tónlist meginvið- fangsefnið, en ýmislegt fleira verður þó í gangi á meðan á vik- unni stendur. Maður stunginn í kvið ÞRJÁTÍU og sex ára gamall Akureyringur var stunginn í kviðinn um klukkan 3 aðfaranótt sl. sunnudags skammt utan við veitingastaðinn Uppann á Akur- eyri. Nítján ára gamall piltur, sem einnig er Akureyringur, var handtekinn skömmu síðar og hefur hann játað verknaðinn. Forsaga málsins er sú að menn- imir tveir voru að skemmta sér á Uppanum ásamt fleira fólki og kom til nokkurra orðahnippinga þar inn- an dyra. Dyraverðir vísuðu fólkinu út og héldu mennimir áfram upp- teknum hætti með þeim afleiðing- um að annar þeirra dró upp hníf og stakk hinn í kviðinn. Hnífsblaðið mun hafa verið um tíu sm. að lengd. Lögreglan kom fljótlega á vettvang og flutti þann slasaða í Fjórðungs- sjúkrahús Akureyrar. Hann mun ekki vera í lífshættu. Ungi maður- inn var handtekinn og færður í fangageymslu lögreglunnar. Menn- imir voru báðir ölvaðir. Rannsókn málsins er ekki full- lokið. Hún mun þó vera langt kom- in, að sögn rannsóknarlögreglunnar á Akureyri og að henni lokinni verð- ur málið sent ríkissaksóknara. Þriggja til fimm manna hljóm- sveit 12 til 20 ára hljómlistarmanna er boðin þátttaka í vinabæjavik- unni. Gert er ráð fyrir að þátttak- endur verði bæði með eigin dagskrá og taki einnig þátt í sameiginlegu námskeiði og tónleikahaldi með hljómlistarmönnum frá hinum vina- bæjunum. Umsóknir um þátttöku í þessari dagskrá vinabæjavikunnar þurfa að berast til menningarfull- trúa Akureyrarbæjar fyrir 1. mars nk. Þá verður efnt til ljósmyndasam- keppni. Henni er skipt í tvo megin- þætti, sem hafa yfirskriftina „í vinabæjaheimsókn" og „Við fimm í norðri“. Keppninni er síðan skipt í þrjá flokka, svarthvítar myndir, litmyndir og litskyggnur. Hver þátt- takandi má senda inn tvær myndir í hveijum fiokki. Haldin verður kvikmynda- og myndbandasam- keppni þar sem viðfangsefnið verð- ur „Við fimm í norðri“. Aðeins verð- ur keppt í einum flokki og er há- markslengd mynda fimmtán mínút- ur. Myndir í keppnirnar verða að hafa borist skóla- og menningarfull- trúa Akureyrarbæjar, Strandgötu 19B, fyrir 1. mars nk. Hjálpartækjabankinn á Akureyri Morgunblaðið/Rúnar Þór Um eitt hundrað manns komu á sýningu Hjálpartækjabank- ans sem haldin var síðastliðinn laugardag að Bjargi, i húsi Sjálfsbjargar á Akureyri. Sýnd- ar voru meðal annars nýjar gerðir af hjólastólum auk ann- ars búnaðar er kemur fötluðum einstaklingum að gagni. Hjálp- artækjabankinn er eign Sjálfs- bjargar og Rauða kross ís- lands. Á myndinni eru starfs- menn Hjálpartækjabankans þær Jóhanna Ingvarsdóttir iðjuþjálfl og Edda Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur að sýna Vigdísi Steinþórsdóttur, hjúk- runarfræðingi á Fjórðungs- sjúkrahúsi Akureyrar, þau tæki sem bankinn býður upp á. Góður afli á Kögurgnmni „VIÐ höfúm verið í ágætis veiði í þijá daga. Það er gott að vita til þess að það er enn til flskur og menn verða sjálfsagt fegnir í landi að fá eitthvað að gera eftir fískleysi og ógæftir að undanförnu,“ sagði Jón Jóhann- esson, skipstjóri á Harðbak frá Akureyri, i samtali við Morgun- blaðið. Mikil veiði af ágætis þorski, eins og skipstjórar segja, hefur verið á Vestfjarðamiðum að undanförnu. Togararnir hafa verið að fá 5 til 20 tonn í botntrollið. Fyrir helgina hófst veiðin í kantinum vestan við Halann og gekk fiskurinn síðan austur eftir og blandaðist nokkuð við það að sögn Jóns Jóhannesson- ar. I gær var stór hópur togara á Kögurgrunni og nokkrir einnig í Djúpálnum. Togarinn Harðbakur var þar og sagði Jón, að þeir væru nú að ljúka túr. Framan af hefði þetta verið leiðinda bamingur og skakstur og túrinn yrði því fullorð- inn. Aflinn hefði að mestu komið síðustu þijá daga og þeir yrðu inni á miðvikudag, en þeir væru þegar komnir með 150 til 160 tonn. Jón sagði að þeir væru nú í fjórða túr, en til þessa hefði afli verið tregur og leiðinda umhleyp- ingar. Vestanstormar hefðu rekið ísinn yfir þessar slóðir og lítið verið hægt að athafna sig þar til síðustu daga. Nokkur hreyfmg virtist komin á ísinn til austurs og þorskurinn gengi uppeftir und- an honum. „Það verður vonandi áframhaldandi kropp og það er gott að vita til þess að það er til fiskur," sagði Jón. Rúmur helmingur aðspurðra hlustaði stundum á Olund Þuríður Baldursdóttir, Arnór Benónýsson og Margrét Bóasdóttir á æfingu í Lóni. Morgunblaðið/Rúnar Þór Tónlistardagskrár í Davíðshúsi MARGRÉT Bóasdóttir söngkona ^þefur skipulagt dagskrár á veg- um Tónlistarfélags Akureyrar og verða þær fluttar í Davíðs- húsi á næstunni. Fyrri dagskráin er byggð á ljóð- um Davíðs Stefánssonar. Þar mun Amór Benónýsson lesa upp og Margrét Bóasdóttir og Þuríðúr Baldursdóttir munu syngja ljóð Davíðs við lög ýmissa höfunda. Við píanóið verður Guðrún A. Kristins- dóttir. Þessi dagskrá verður flutt annaðkvöld, miðvikudagskvöld, og hefst hún kl. 20.30. Ef nægar pant- anir berast verður hún endurflutt að viku liðinni á sama tíma. Seinni dagskráin er samansett af sönglögum akureyrskra tón- skálda, þar á meðal eru Björgvin Guðmundsson, Birgir Helgason, Áskell Jónsson, Áskell Snorrason og Jóhann Ó. Haraldsson. Flytjend- ur verða söngvararnir Margrét Bó- asdóttir, Hólmfríður Benediktsdótt- ir, Þuríður Baldursdóttir og Michael Clarke ásamt meðleikurum. Þar sem húsrými í Davíðshúsi er takmarkað er nauðsynlegt að panta miða. Pantanir félagsmanna hafa forgang. Tekið er á móti pönt- unum í síma 24234 milli kl. 14 og 18. Miðaverð er 400 krónur fyrir félaga og 800 krónur fyrir aðra. Helmingsafsláttur er veittur skóla- fólki. iiiji*; ii tsriiHíftís i tui Hlustendakönnun, sem út- varpsstöðin Ólund á Akureyri gekkst fyrir í byijun febrúar, leiddi í ljós að 56% aðspurðra hlusta stundum á Ólund. Þar af sögðust 48% aðspurðra hlusta á Ólund þrisvar í viku eða oftar. Könnunin var gerð í skólum bæjarins, í miðbænum og í kjör- búðum. Hún náði til 358 Akur- eyringa á aldrinum 12 til 70 ára. Spurningarnar voru gerðar í sam- vinnu við Gunnar Frímannsson, aðstoðarskólameistara Mennta- skólans á Akureyri. Um fram- kvæmd könnunarinnar sáu nem- endur af samfélagsbraut MA, við- skiptabraut VMA og fleiri. Spurt var hvort viðkomandi hlustaði stundum á útvarp Ólund og ef svo væri, hve oft í viku. Einnig var spurt hvort menn myndu hlusta meira ef útvarpað væri á daginn. 78% í aldurshópnum 12 til 15 ára hlusta stundum á Ólund og þar af hlusta 59% þijú kvöld eða oftar í viku. í aldurshópnum 16 til 22 ára hlusta 65% stundum á Ólund og þar af 46% sem hlusta þrisvar eða oftar í viku hverri. 22% þeirra, sem eru eldri en 23 ára, hlusta stundum á Ólund og af þeim 27% þrisvar eða oftar í viku. 46% sögðust myndu hlusta meira á Ólund ef einnig væri sent út á daginn, 23% voru óákveðin en 36% sögðust ekki myndu hlusta á síðdegisútsendingar. Fimm sóttu um stöðu fræðslustjóra FIMM sóttu um stöðu fræðslu- stjóra Norðurlandsumdæmis eystra, sem veitt verður frá og með 1. júní nk. Tveir umsækjenda óskuðu nafn- leyndar, en aðrir sem sækja um stöðuna eru Trausti Þorsteinsson, skólastjóri á Dalvík, Páll Bergsson, yfirkennari í Glerárskóla, og Þórður Gunnar Valdimarsson, uppeldis- fræðingur. Fræðsluráð mun á næstunni fjalla um umsóknimar og það gerir síðan tillögu til menntamálaráð- herra, sem veitir stöðuna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.