Morgunblaðið - 21.02.1989, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 21.02.1989, Blaðsíða 33
8*31 sAfiiSSKi .ts .iun\ctimn c:a\nnr-Jwtow MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1989 ?P. 33 Rannveig H. Kristfáns■ dóttir — Minning Fædd 3. maí 1907 Dáin 12. febrúar 1989 „Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ (Spámaðurinn. Kahlil Gibran.) „Ég ætlaði bara að láta þig vita Kristján að hún amma þín var að deyja.“ Þögn í símanum. Amma! Hún amma í Öldu. Það gat ekki verið. Hún sem var alltaf svo hress. Jú, staðreynd var það víst, og nú, er ég skrifa þessar línur, er ég að reyna að sætta mig við þá átak- anlegu og illskiljanlegu tilhugsun að eiga aldrei eftir að sjá né heyra ömmu framar. Að er við kvöddumst á tröppunum fyrir framan heimili þeirra hjóna, ömmu og Alla, á Öldu- slóðinni fyrir rúmum mánuði, höf- um við kvaðst í hinsta sinn. Þá til- hugsun verður erfítt að sætta sig við. Það sem fólk tók fyrst eftir í fari ömmu og talaði um, var það hversu hress hún var alltaf. Sama hvað árin færðust yfir. í afmælis- boðum, jólaboðum eða við ferming- ar í fjölskyldunni, alltaf dró amma að sér athyglina. Bara með því að vera hún sjálf. Maður komst í gott skap, bara með því að vera ein- hvers staðar nálægt henni. Enda var það svo að alltaf var eitthvað að gerast í kringum hana. Henni þótti t.d. mjög gaman að því að dansa og oft tók hún nokkur létt dansspor ef hún heyrði þesslega tónlist, og gilti þá einu hvort hún var stödd meðal nánustu ættingja í heimahúsi eða í fjölmennu boði. Kom þá fyrir að hún næði sér í dansherra af yngstu kynslóðinni og kenndi viðkomandi nokkur spor. Svo hló hún sínum smitandi hlátri. Amma var þannig manneskja að hún varð að hafa eitthvað fyrir stafni. Sjaldan kom maður enda svo í heimsókn að ekki væri eitthvað nýtt í fréttum. Einhveijar breyting- ar hafði hún þá kannski gert á lóð- inni sinni, smíðað skápa sem hana vantaði, farið með Alla á málverka- sýningu eða gert bara hvað sem henni datt í hug að gera í það og það skiptið. Ég minnist sérstaklega atburðar sem gerðist nú rétt fyrir jól og mér fínnst lýsa ömmu vel, kominni á níræðisaldurinn. Þá hringir hún til hcarls föður míns og er nokkuð niðri Brids Arnór Ragnarsson íslandsmót kvenna og yngri spilara íslandsmót kvenna og yngri spilara ( sveitakeppni, undankeppni, fór fram um sfðustu helgi í Sigtúni 9. í kvennaflokki kepptu 10 sveitir, og voru spilaðir 12 spila leikir, allir við alla. Sveit Tomma hamborgara tók snemma afgerandi forystu í kvennakeppninni, og náði öruggu fyrsta sæti í undankeppninni. Meiri barátta var um næstu þrjú sæti fyrir undanúrslitin. Lokastaða fjögurra efstu sveita f kvennaflokki varð þessi: Tomma hamborgarar 188 Sigrún Pétursdóttir 151 Freyja Sveinsdóttir 144 AldaHansen 138 I syeit Tomma hamborgara eru þau Est- her Jakobsdóttir, Valgerður Kristjónsdótitr, Anna Þóra Jónsdóttir og Hjördfs Eyþórs- dóttir. I yngri flokki voru einnig spilaðir 12 spila leikir, en þar tóku þátt 8 sveitir. Sveit Hard Rock Café leiddi allan tfmann, en sveit Sveins Rúnars Eirfkssonar var aldrei langt undan. Lokastaða fjögurra efstu sveita f yngri flokknum varð þessi: Hard Rock Café 147 Sveinn Rúnar Eirfksson 136 Guðjón Bragason 117 Þorsteinn Bergsson -112 í sveit Hard Rock Café eru þeir Matthfas Þorvaldsson, Hrannar Erlingsson, Júlfus Siguijónsson og Ari Konráðsson. Úrslitakeppnin fer fram heigina 26.-26. febrúar að Sigtúni 9. Leikir f undanúrslitum verða 32 spil, en 48 spil f úrslitaleiknum. Efsta sveitin f hvorum flokki má velja sér andstæðing til að etja kappi við f undanúr- slitum. Keppnisstjóri f undankeppninni var oj___xr:n.JAi—„„„„ MAZDA 929 LUXUS FRA JAPAN! MAZDA 929 skipar sér á bekk meö þeim bes- tu evrópsku, i þar sem öll smíöi og frágangur er meö því besta, sem sést hefur í bíl. MAZDA 929 er fyrir þig, ef þú gerir kröfur og vilt hafa þaö náðugt! Hagstætt verð og kjör. fyrir, lætur vita af því að þijá krossa vanti á leiði uppi í kirkju- garði. Hvort hann geti ekki bætt þama úr. Jú, það var alveg sjálf- sagt og kvöld eftir var farið með nýsmíðaða krossa upp í garð. En viti menn, krossar voru þar þá fyr- ir. Amma hlyti bara að hafa keypt þá, svo fallegir voru þeir. Er hún var spurð að þessu kvaðst hún hafa rekist á nokkrar spýtur í kjallaran- um, kvöldið áður, er hún sagaði til, lakkaði og negldi svo saman með of stórum nöglum er hún átti og þurfti að saga af. Að þessu var hún til klukkan þrjú um nóttina og vakn- aði 'síðan snemma um morguninn og arkaði með krossana upp í garð. Efniviðurinn í krossana var jú til staðar. Hví þá ekki að drífa í þessu! Þetta er bara eitt af þeim minn- ingarbrotum sem ég geymi af ömmu og mun varðveita í hjarta mínu svo lengi sem ég lifi. Elsku Alli, við Auður og litla langömmubarnið, sem fæddist þann 13. þessa mánaðar, sendum þér okkar innilegustu samúðarkveðjur. Ömmu þakka ég fyrir allar sam- verustundimar og allt það er hún hefur kennt mér. Auður, sem þótti svo vænt um ömmu, biður fyrir innilegar saknaðarkveðjur þar eð hún kemst ekki til að fylgja henni síðasta spölinn. Blessuð sé minning ömmu minnar. Barnabarnið í Noregi, Kristján Ó. Guðnason. Bridsdeild Rangæingafélagsins Lokið er 12 umferðum af 13 f aðalsveita- keppninni og er staða efstu sveita þessi: Daníel Halldórsson 222 Rafn Kristjánsson 219 Ingólfur Jónsson 211 Ingólfur Böðvarsson 207 Ulja Halldórsdóttir 194 Sæmundur Jónsson 190 Sigurleifur Guðjónsson 189 Baldur Guðmundsson 184 Sfðasta umferðin verður spiluð á miðviku- dagskvöld kl. 19.30 f Ármúla 40. Keppnis- stjóri er Sigurjón Ttyggvason. Næsta keppni deildarinnar verður baro- meter og er skráning hafin. M\k\U at#w Rör og fittings Gerum verótilboó Snittuþjónusta og pípulagn- ingameistari ó staónum By ggmgavöruverslunin Burstafell hf.v Bíldshöfða 14« simi 38840. JAFNAR TÖLUR • ODDATÖLUR • HAPPATÖLUR Þetta eru tölurnar sem upp komu 18. febrúar. Heildarvinningsupphæð var kr. 5.115.168,- 1. vinningur var kr. 2.354.802,-. Einn var með fimm tölur réttar. Bónusvinningurinn (fjórar tölur + bónustala) var kr. 409.464,- skiptist á 3 vinningshafa og fær hver þeirra kr. 136.488,- Fjórar tölur réttar, kr. 706.314,- skiptast á 134 vinningahafa, kr. 5.271,- á mann. Þrjár tölur réttar, kr. 1.644.588,- skiptast á 4.153 vinningshafa, kr. 396,- á mann. Sölustaðir eru opnir frá mánudegi til laugardags og er lokaö 15 mínútum fyrir útdrátt. Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.