Morgunblaðið - 21.02.1989, Side 34

Morgunblaðið - 21.02.1989, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1989 Minning: Guðmundur Bjömsson bóndi á Arkarlæk Fæddur 2. september 1896 Dáiun 27. janúar 1989 Guðmundur Bjömsson bóndi á Arkarlæk í Skilmannahreppi andað- ist í Sjúkrahúsi Akraness þann 27. janúar sl. og var útfor hans gerð frá Akraneskirkju 3. febrúar sl. Guðmundur fæddist í Innstavogi við Akranes 2. september 1896 og var því orðinn 92 ára gamall. Aldur sinn bar hann vel þar til fyrir ári að hann varð að leggjast á sjúkra- húsið og átti ekki afturkvæmt það- an. Foreldrar Guðmundar voru hjónin Bjöm Jóhannsson frá Kára- stöðum í Borgarfírði og Sesselja Ólafsdóttir frá Einarsnesi í sömu sveit. Vel gefín myndarhjón. Þau eignuðust átta böm, sex syni og tvær dætur. Guðmundur var yngst- ur og kom það í hans hlut að taka við búi foreldra sinna og annast þau í eljinni. Árið 1923 hóf Guðmundur bú- skap í Litla-Lambhaga en flutti að Arkarlæk 1939 og átti þar heima til æviloka. Arkarlækur mun lengi bera hinum mikla ræktunarmanni fagurt vitni. Þar breytti hann kot- býli í kostajörð. Öll hús jarðarinnar byggði hann að nýju og ræktaði mest allt land hennar, sem hægt er að rækta. Auk þess var hann í fremstu röð bænda með framleiðslu á kartöflum. Hann var framsýnn og duglegur bóndi. Rak lengi stórt bú og arðsamt. Um 40 ár ævinnar var hann jafnframt sjómaður. Verð- ur vikið að því síðar. Guðmundur kvæntist 23. júní 1929 Ástu Jónsdóttur frá Arkar- læk. Hún lést 1975. Böm þeirra eru sex. Þau eru þessi talin í aldursröð: Guðjón framkvæmdastjóri á Akra- nesi, kvæntur Huldu Pétursdóttur úr Vatnsdalnum, Bjöm Jóhann framkvæmdastjóri á Hólabraut í Reykjadal, kvæntur Guðnýju S. Kolbeinsdóttur úr Mývatnssveitinni, Sesselja gift Gísla Búasjmi hrepp- stjóra á Ferstiklu, Bjamfríður gift Sigurði Magnússyni vélvirkja á Akranesi, Valdimar Ingi vélstjóri, Akranesi, kvæntur Júlíönu Sigur- laugsdóttur frá Ragnheiðarstöðum í Flóa og Ásmundur bóndi á Arkar- læk, kvæntur Sigríði Sigurlaugs- dóttur frá Ragnheiðarstöðum. Fyrir hjónaband eignaðist Guð- mundur son með Ingibjörgu Sigurð- ardóttur frá Akrakoti. Er það Guð- mundur Óskar verkstjóri á Akra- nesi, kvæntur Þorgerði Ólafsdóttur frá Efraskarði. Öll böm Guðmundar eru dugnað- ar- og manndómsfólk og afkomend- ur alls komnir yfír 80. I félagsmálum var Guðmundur mjög liðtækur og oft brennandi í andanum. Hann var í áratugi for- maður Búnaðarfélags Skilmanna- hrepps, lengi í stjóm Kaupfélags Suður-Borgfírðinga á Akranesi o.m.fl. Hann var félagshyggjumað- ur af lífí og sál. Sá þann kost best- an til góðs árangurs í lífsbaráttunni og góðra samskipta manna almennt að úrræðum samvinnunnar væri þar beitt. Ég átti lengi mikið og gott samstarf við Guðmund í Framsókn- arfélagi Borgarfjarðarsýslu. Hann var ódeigur baráttumaður og rækti þar öll sín félagsstörf af lifandi áhuga. Sótti vel fundi og hvatti í ræðum sínum til drengilegrar bar- áttu fyrir þeim málstað, sem hann taldi skipta máli, alveg sérstaklega fyrir bændur og íslenskan land- búnað. Þótt Guðmundur á Arkarlæk væri öndvegis bóndi og mikill rækt- unarmaður var sjómennskan honum í blóð borin. Hann var stoltur af því að hafa verið meira og minna starfandi á sjónum í 40 ár sam- fleytt eða frá 1909-48. Honum fannst sjórinn og störfín þar heill- andi og leggja traustan grunn að fjárhagslegri afkomu heimilisins. Draumur hans framan af ævi var að gera sjómennskuna að lífsstarfí sínu og ganga á Sjómannaskólann en af því gat ekki orðið af sérstök- um ástæðum. Það þótti honum mjög miður. Guðmundur gerði ítarlega grein fyrir sjómennsku sinni í viðtali við blaðið Magna á Akranesi fyrir 8 árum. Hann ræður sig á skútu að- eins 12 ára gamall með aðstoð Oddgeirs Ólafssonar á Akranesi, sem á þeim árum var skútumaður. Honum gekk illa að fá samþykki foreldra sinna fyrir ráðningu þess- ari og taldi að móðir sín hefði raun- ar aldrei samþykkt hana, enda lágu til þess gildar ástæður. Skúta þessi hét Haraldur litli og var gerð út af Ziemsen í Reykjavík. Þetta var minnsta skútan í flotanum. Þama var Guðmundur júlí og ágúst 1909. Aflahlutur hans þessa fyrstu vertíð gerði kr. 90, sem þóttu miklir pen- ingar á þeim árum, auk þess fékk hann talsvert tros handa heimili sínu. Hann afhenti föður sínum kr. 80 í heimilið en keypti sér smáhluti fyrir kr. 10 þar á meðal leðurveski fyrir kr. 3, sem entist honum ævina út. Næsta sumar kemst hann á skút- una Ragnheiði úr Reykjavík. Jafn- framt verður hann að semja um það að verða settur í land í byijun sept- ember því þá skyldi ferma hann í Akraneskirkju. Honum var skotið í land á ísafírði. Eftir mikla hrakn- iriga komst hann svo til Akraness 2 dögum fyrir ferminguna, svo hann rétt slapp nógu snemma. Almennt munu unglingar á þeim árum ekki hafa farið til sjós fyrr en eftir ferm- ingu og alveg sérstaklega á skútur. Þegar horft er til baka líta skútu- ferðir Guðmundar 12 og 13 ára út sem ævintýri, en sýna jafnframt hversu bráðþroska og kappgjam hann var. Þetta var upphafíð að sjómennsku hans í 40 ár eða til 1948. Eftir að skútuöldinni lauk, sem Guðmundur hefur gefíð mjög góða lýsingu á, var hann lengi á vertíðarbátum frá Akranesi. Síðast á mb. Farsæl með Jóhannesi Guð- jónssyni á Ökrum. Að dómi Guð- mundar var sjómennskan oft skemmtileg — jafnvel spennandi þegar vel gekk — og gaf miklu meira af sér en búskapurinn. Guðmundur á Arkarlæk var greindur vel og hugsandi maður. Hann braut heilann um ótrúlegustu hluti og velti fyrir sér rökum tilver- unnar í smáu sem stóru. Hann var ákaflega nærgætinn, tilfinninga- næmur og vinfastur með afbrigð- um. Hann hafði lifandi áhuga fyrir mörgum framfaramálum og studdi þau með ýmsum hætti. Afstaða hans var alltaf hvetjandi. Hann horfði alltaf fram á veginn og trúði á hið góða í tilverunni. Hann gat einnig verið fastur fyrir og stífur á meiningunni væri hann sannfærður um að málstaðurinn væri rangur. Slíkt er einkenni manndómsmanna. Hann hafði yndi af ljóðum og gerði talsvert af því að yrkja sér og öðr- um til ánægju. Ævi Guðmundar á Arkarlæk var orðin löng og dagsverkið mikið. Hann lifði nánast tvö aldarskeið — gerólík. Frá bamæsku mundi hann er skip fórst við Flösina á Akranesi síðari hluta september 1905 með 11 mönnum, þar af 3 bræður hans á besta aldri. Á Akranesi vissi eng- inn um slysið fyrr en birti af næsta degi. Þá voru öll fjarskipta- og símasambönd óþekkt og engin höfn á Akranesi. Þá varð fólkið við slíkt að búa. Skyldi það ekki vera ráð- gáta ungu fólki í dag, hvemig slíkt var hægt? Þrettán ámm síðar heyrði hann ógnþmnginn veðurgnýinn kveða feigðaróm að eyrum sér við tangana í Innstavogi er fjórði bróðirinn dmkknaði, ásamt nágranna sínum og vini, skammt frá landi. Slíkir örlagadagar gleymast aldrei og setja á manninn mark. Þegar hin greinargóða lýsing Guðmundar á skútulífínu fyrir 70-80 ámm er borin saman við aðbúnaðinn á togaraflotanum nú, er sem um tvo ólíka heima sé að ræða. Sama hefur gerst með alla búskaparhætti í sveitum landsins. Maður sem lifað hefur fránum sjón- um frá síðustu aldamótum á að baki sér mikia lífsreynslu og víðan sjóndeildarhring, þegar dagur er að kveldi kominn. * Að lokum þakka ég Guðmundi alla þá góðvild og umhyggju, sem hann sýndi mér og áhugamálum mínum um langt skeið. Eg hygg að ýmsir aðrir hafi sömu sögu að segja og eigi þakkir að gjalda er leiðir skilja. Blessuð sé minning Guðmundar á Arkarlæk. Megi hún verða bömum hans og öðrum af- komendum sem ljós á ævibrautinni. Hafðu þökk fyrir öll þín spor. Það besta, sem fellur öðrum í arf, er endurminning um göfugt starf. (D.St.) Daniel Ágústínusson t Kaer systir og mágkona, ODDNÝ G. JÓNSDÓTTIR, GnoAarvogi 26, lést 19. febrúar sl. á sjúkradeild elli- og hjúkrunarheimili Grundar. Baldur Jónsson, Regína Benediktsdóttir. t Eiginmaður minn, sonur, faðir, tengdafaðir og afi, INDRIÐI JÓNSSON stýrimaður, lóst á heimili sínu Stóragerði 7 þann 19. febrúar. Fyrir hönd aðstandenda. Guðrún Marteinsdóttir. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HULDA MAGNÚSDÓTTIR BLÖNDAL lést á Borgarspítalanum 16. febrúar. Fyrir hönd aðstandenda. Erna Helgadóttir, Magnús Helgason, Guðný Helgadóttir. t Bróðir minn, ENGILBERT M. ÓLAFSSON, Hlfðarvegi 26, Kópavogi, lést laugardaginn 18. febrúar. Fyrir hönd aðstandenda, Unnur Ólafsdóttir. t Faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, JÓHANN FRÍMANNSSON, Oddeyrargötu 14, Akureyri, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þann 18. febrúar. Stella Jóhannsdóttir, Edda Jóhannsdóttir, Matthlldur Jóhannsdóttir, Kristbjörg Jóhannsdóttir, Herdfs Jóhannsdóttir, Elfnborg Jóhannsdóttir, Frfmann Jóhannsson, Sofffa Jóhánnsdóttlr, MagnþórJóhannsson, Halldór Jóhannsson, Óttar Jóhannsson, Bergfrföur Jóhannsdóttir, Slgurnýas Frfmannsson, barnabörn og barnabarnabörn. Kristjón Ragnarsson, Jón Matthfasson, Vilhelm Sverrisson, Guðrún Valgarðsdóttir, Hannes Hafsteinsson, Friðrlkka Valgarðsdóttir, Hulda Einarsdóttir, Þorgerður Einarsdóttir, t Elskulegur eiginmaður minn, STEINAR ÞÓRHALLSSON frá Ánastöðum, Framnesvegi 10, Keflavfk, lést 19. þessa mánaðar í Sjúkrahúsi Keflavíkur. Fyrir hönd aðstandenda, Sólrún Leósdóttir. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞÓRARINN JÓNASSON, Hróarsdal, lést laugardaginn 18. febrúar. Jarðarförin, auglýst síðar. Elfnborg Þórarinsdóttir, Lilja Þórarinsdóttir, Ágúst Waltersson og barnabörn. t Elskulega móðir mín og tengdamóðir, MARGRÉT RÍKHARÐSDÓTTIR, Sfðumúla 21, lést 11. janúar sl. Útförin hefur fariö fram í kyrrþey. Fyrir hönd vandamanna, Kolbrún Ingólfsdóttir, Kristján Bragason. t Okkar ástkæra móðir, tengdamóöir, amma og langamma, SIGRÍÐUR PÁLSDÓTTIR, Neshaga5, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 22. febrúar kl. 13.30. IngólfurÁgústsson, Ásdfs Einarsdóttir, Hulda Ágústsdóttir, Oddur Árnason, Ágústd Agústsdóttir, Hjördfs Ágústsdóttir, Pátur Guðjónsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEINDÓR INGIMAR STEINDÓRSSON bifreiðastjóri, Strandaseli 9, Reykjavfk, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju fimmtudaginn 23. febrúar kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á minningarsjóö Land- spftalans. Stelndór I. Steindórsson, Sólveig Sigurjónsdóttir, Ellert K. Steindórsson, Rannveig Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.