Morgunblaðið - 28.02.1989, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 28.02.1989, Blaðsíða 3
AUK/SÍA k110d20-331 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1989 fi3 -----------FLUGLEIDIR---------- OFAR OG OFAR NÝJUSTU FRÉTTIR FYRIR VIÐSKIPTAVINI • FEBRÚAR 1989 - Austurrískar snjófréttir Við viljum vekja athygli á því að það hefur snjóað víðar en á íslandi að undanförnu. Hinn góðkunni skíðafararstjóri Flugleiða í austurrísku Ölpunum, Ingunn Guðmundsdóttir, segir að nú sé skíðafærið gott þar um slóðir og veðrið ekki síðra. í Zell am See er 160 cm snjólag, 150 cm í Kitzbuhel og 100 cm í Mayrhofen. Flugleiðir eru með bein flug alla laugardaga á vit skíðaævin- týranna í Ölpunum. Ferðaskrif- stofur og söluskrifstofur Flugleiða veita nánari upplýsingar. íslendingur 3. mars — Geim- skutlan 13. mars Þetta eru tvær forvitni- legar dagsetningar er varða Orlando, áfanga- stað Flugleiða í Flórída. Frá og með 3. mars mun íslenskur starfsmaður verða á Orlandoflugvelli þegar flugleiðavélar eiga leið um. Sérverkefni hans verður að aðstoða íslendinga með t.d. bílaleigubíla. Þann 13. mars er áætlað að skjóta geimskutlunni Discovery frá Kennedyhöfða, skammt frá Orlando. Flugleiðir vinsælt fyrirtæki Gallup á íslandi kannaði viðhorf íslendinga til fyrir- tækja fyrir viðskiptatíma- ritið Frjálsa verslun og voru niðurstöðurnar birtar fyrir skömmu. Spurt var: „Getur þú nefnt mér þrjú íslensk fyrirtæki sem þú hefur jákvætt viðhorf til?“ Yfir eitt hundrað fyrirtæki voru tilnefnd. En árangur Flugleiða er tvímælalaust góður því sam- kvæmt könnuninni eru Flugleiðir evinsælasta fyrirtæki s. Aðrar skoðanakannanir sem gerðar hafa verið fyrir Flugleiðir leiða einnig ótvírætt í ljós að viðhorf landsmanna eru jákvæð í garð fyrirtækisins. Við þökkum traustið. Kröfuharðir farþegar himinlifandi með Saga Class Arangur - þetta er orð sem lætur vel í eyrum alls athafnafólks. Það má hiklaust setja jafnaðarmerki á milli athafnafólks og Saga Class- farrýmis Flugleiða. Flugleiðir gera þá kröfu til starfsfólks síns að Saga Class-farþegar fái konung- lega ^jónustu, á himni og jörðu, og kröfuhart athafnafólk telur það vitaskuld sjálfsagt fyrir fullt fargjald. Dæmi um árangur Flugleiða á þessu sviði: Undanfarin tvö ár hefur Saga Class-farþegum fjölgað um 14%. Flugleiðir telja þetta eina vísbendingu um að starfsfólkið sé á réttri leið í farþegaþjónustu. Einnig, að Flugleiðir a.m.k. haldi þessum gæðastaðli gagnvart erlendri samkeppni. Starfsfólk Flugleiða er auðvitað í sjöunda himni yfir trausti athafnafólks á Saga Class-þjónust- unm. Nýtt! - Viðskipta- heimurinn til Græn- lands... Lfklega hefur fáum fyrir- tækjum og lögum dottið í hug áð halda fundi, ráðstefnur, námskeið eða vinnu- fundi á Grænlandi? En hugmyndin er góð. Nú markaðssetja Flugleiðir fundaað- stöðu í Narsarsuaq, langt frá hringiðu daglegrar streitu. Við bjóðum Arctic Hotel sem hefur gott vinnurými fyrir um 50 manns og gæðastaðal eins og hótel af svipaðri stærð í stórborgum. Þriggja daga (2 nætur) ferð á fund til Grænlands kostar frá 25.109 kr. (flug, gisting, fullt fæði, fundar- aðstaða). Þotuflug tvisvar í viku, þriðjudaga og fimmtudaga. Frekari upplýsingar um „Græn- landsfund" veitir söludeild Flugleiða ísíma 690100. ...og skemmtiferðir til Færeyja - Tilboð! Þó að Flug- leiðir leggi síaukna áherslú á þjónustu við full borgandi farþega á Saga Class, leggjum við líka talsvert á okkur til að gefa íslendingum kost á hagstæðum tilboðsfargjöldum. Núna vekjum við athygli á Færeyjum - vingjarnlegu viðmóti og góðum mat þar. Þriggja daga helgarferð til Færeyja kostar nú aðeins frá 17.350 krónum. Brottför á laugardögum og heimferð á þriðjudögum. Kostatilboð þetta gildir til 15. júní. Mögulegar brottfarir frá Egilsstöðum og Hornafirði, ef viðskiptavinahópur óskar. Fermingargjafir: Ný lausn Oft virðist leitin að réttu fermingargjöfinni endalaus. Flugleiðir bjóða nýja lausn í þessum efnum - Fluggjafabréf. Fluggjafabréfin komu á markað um síðustu jól og hlutu góðar undirtektir viðskiptavina. Þú getur því verið viss um að Fluggjafabréf hefur ekkert fermingarbarn hlotið að gjöf áður. Þú getur t.d. gefið innanlandsflug- ferð, skotferð til Skotlands eða meiri háttar Bandaríkjaferð. Ferðaskrif- stofurnar og söluskrifstofur Flugleiða hafa bréfin til sölu. í framtíðinni mun Fluggjafabréfið gleðja fermingarbörnin, „stórafmælisbörnin", brúðhjónin, stúdentana, starfsmanninn fyrir vel unnin störf og fleiri og fíeiri. einn markaðskostnaður Flugleiða á erlendri grundu í ár mun nema um einum milljarði króna. Enginn á íslandi ver meiri fjárhæðum til að kynna ísland fyrir útlendingum. Flugleiðir hafa gert samning við glæsilegasta „sendiherra" þjóðar- innar - Lindu Pétursdóttur, Ungfrú alheim, um að sameina kraftana í þágu íslands. Þar mun fara saman fegurð drottningarinn- ar og gífurleg reynsla Flugleiða í markaðsmálum á erlendum vettvangi. f ár munu Flugleiðir og Linda Pétursdóttir leggja land undir fót og kynna ferða- mannalandið ísland um víða veröld. Nú þegar hefur Linda komið fram á vegum Flugleiða í eftirtöld- um heimsborgum: Tókyó, París, London, Luxemborg og Zurich. Næst setja Flugleiðir og Linda stefnuna á Bandaríkin. þessum mikilvæga markaði. Þá verður öll bókunar- og upplýsingaþjónusta innanlandsflugsins skilin frá milli- landafluginu sem á að þýða betri og enn áreiðanlegri upplýsingar til innanlandsfarþega. Nýtt símanúmer verður: 690200. Á símalínunni verður sérhæft afgreiðslufólk sem eingöngu sinnir hinu mikilvæga innanlandsflugi. Innanlandsflug góðan dag! Innanlandsflugið er andlit á íslandi. Okkur er mikill akkur því að þjónustan þar sé ætíð sem best. 1. mars boðar enn betri þjónustu 90200 UNDA PÉTUR DÓTT1R OG FLUGLEIÐIR SAMEINA ' FSSURD OG REYNSUI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.