Morgunblaðið - 28.02.1989, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 28.02.1989, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1989 Er verjandi að nota ráð- gjafarþjónustu við ráðn- ingu nýrra starfskrafta? eftir TheodórA. Bja.rna.son Rannsóknarverkefni unnið af hópi hagfræðinga, sem stunda sérnám við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn, fjallar um þetta efni. í niðurstöðum verkefnisins, sem unnið hefur verið að í rúmlega eitt ár, eru fyrirtækin sjálf hvött til að annast ráðningar í stað þess að nota ráðgjafarfyrirtæki. Á síðustu 20 árum hafa fyrirtæk- in í Danmörku í síauknum mæli notfært sér ráðgjafa, þegar þau hafa ráðið starfsfólk í nýjar stöður. Þetta er áberandi, þegar litið er á atvinnu/stöðuauglýsingar dagblað- anna. Það hefur í raun og veru mynd- ast ný atvinnustétt i tengslum við verkefni sem fyrirtækin önnuðust sjálf áður fyrr. Nú birtast greinar og viðtöl við stjómendur, þar sem skýrt kemur fram, að í sambandi við ráðningar á nýju starfsfólki sé auðveldast, áhættuminnst og ár- angurríkast að snúa sér til ráðning- arstofanna og láta þær annast þessi verkefni. Ifyrirtækin freistast til að velja þægilegustu leiðina og skammtíma- lausnina án þess að hugsa út í þær afleiðingar, sem af þessu kunna að hljótast fyrir fyrirtækin sjálf þegar til lengri tíma er litið. Fyrirtækin velja að kaupa sig frá verkefnunum og að þeirra mati vandamálunum! „Við getum þetta ekki,“ segja stjómendumir, „við höfum ekki tíma til að gera þetta. Við fáum að sjálfsögðu ráðgjafa til að sjá um ráðningarverkefnin — það eru þeir sem hafa nauðsynlega þekkingu og þá tækni sem þarf til þess að leysa þessi verkefni.“ Ummæii þessi em orðin sígild og þar með er lagður grunnur að goðsögninni um ráðgjafana. Það lítur út fyrir að það hafi skapast goðsögn um að bæði ráð- gjafar og ráðgjafarþjónustufyrir- tæki séu betri í að ráða nýtt starfs- fólk en fyrirtækin sjálfí Hvernig geta fyrirtækin undirbúið ráðningu nýrra starfsmanna? Það sem raunverulega ætti að gerast er það, að aflað sé ýtarlegra gmndvallampplýsinga um starfið og starfsvettvanginn. Þessar upp- lýsingar um starfið og starfsvett- vanginn. Þessar upplýsingar em fyrst og fremst nauðsynlegar fyrir fýrirtækið, svo að það geti yfirleitt metið hvers konar umsækjendur þeir hafa þörf fyrir og óska eftir. Einnig hvaða skilyrði fyrirtækinu beri að setja um hæfni umsækjenda. Þessi undirbúningsvinna er verk- efni, sem verður að leysa og er jafn- framt óumflýjanleg til þess að tryggja það að sá starfskraftur sem verður ráðinn endanlega til fyrir- tækisins eigi möguleika á að þrífast í starfí sínu og þar með nýtast fyrir- tækinu sem best. Það getur hreinlega skipt sköp- um, hver aflar fyrrgreindra upplýs- inga um fyrirtækið og fyrir fyrir- tækið. Það er augljóst að það hljóta að vera mismunandi hagsmunir hjá annars vegar utanaðkomandi ráð- gjafa, sem ráðinn er til skamms tíma, og hins vegar starfsmanni fyrirtækisins sem gæti ef til vill nýtt þessar upplýsingar til hagsbóta fyrir fyrirtækið í framtíðinni. Hvers vegna eru þessar upplýsingar nauðsynlegar fyrirtækjunum? Ifyrirtækjunum er stöðugt ögrað af tækniþróuninni. Til þess að lifa af þessa þróun er það mikilvægt, að fyrirtækin geti endurskipulagt til samræmis við kröfur tímans, sem sífellt eru að breytast. Þessir nauð- synlegu endurskipulagshæfíleikar byggjast fyrst og fremst á því, hversu vel fyrirtækið „þekkir sig sjálft". Við „sjálfsviðurkenningu" getur fyrirtækið betur áttað sig á, hvar styrkur þess liggur og hvar helstu veikleika þess er að finna. Hin ýtarlega upplýsingasöfnun, sem er nauðsynleg í sambandi við ráðningar, opnar þannig möguleika fyrir fyrirtækið, að fá betri upplýs- ingar um sjálft sig. Þannig fær fyrirtækið upplagðan möguleika til að bæta og styrkja ímynd sína. Hér er því ekki einungis um upplýsinga- öflun að ræða, heldur einnig mögu- leika sem býðst við að setja upplýs- ingamar saman á mismunandi vegu og nýta þær einnig til annarra verk- efna. Á þann hátt geta upplýsingar sem aflað er í tengslum við nýráðn- ingar, einnig verið nytsamar undir öðrum kringumstæðum. Einmitt þess vegna er það mjög mikilvægt, að upplýsingamar varðveitist í fyr- irtækjunum sjálfum. Það er því augljós skaði fyrir fyrirtækin, ef utanaðkomandi ráð- gjafí tekur þessar upplýsingar út úr fyrirtækinu að verkefninu loknu, þannig að dýrkeyptar upplýsingar verða ef til vill aldrei til hagsbóta fyrir fyrirtækið. Hins vegar til styrktar ráðgjafanum og starfsemi hans. Theodór A. Bjarnason „Það er því augljós skaði fyrir fyrirtækin, ef utanaðkomandi ráð- gjafi tekur þessar upp- lýsingar út úr fyrirtæk- inu að verkefninu loknu, þannig að dýr- keyptar upplýsingar verða ef til vill aldrei til hagsbóta fyrir fyrir- tækið. Hins vegar til styrktar ráðgjafanum og starfsemi hans.“ Hvernig gengur svo í fyrirtækjunum? Svarið gæti verið að allt gangi vel. Fyrirtækið gengur og skilar jafnvel arði þrátt fyrir að það í mörgum tilfellum hafí notfært sér umtalaða ráðgjafarþjónustu, jafn- vel þakkað henni velgengni sína. En er hægt að líta svona einfalt á málið? Hver getur verið öruggur um, að reksturinn gæti ekki verið ennþá arðbærari! Það er ekki óhugsandi að heildar- rekstur fyrirtækisins þyngdist eitt- hvað ef það byijaði skyndilega að sjá sjálft um nýráðningar. Það er eins og með önnur verkefni, þetta þarf að lærast og hlýtur því að reyna á kraftana. Það má segja að allt sé erfitt þangað til þekkingin er fengin. Það er ekki þar með sagt að nýráðningar verði nokkurn tíma létt verk eða auðvelt. Það er mikil- vægt að læra af mistökunum. Þess vegna verður auðveldara að takast á við nýráðningar eftir því sem reynsla og upplýsingar aflast. Þeg- ar til lengri tíma er litið verða mis- tökin sem gerð voru í fortíðinni hugsanlega til hagsbóta fyrir fyrir- tækið, því að nú er það reynslunni ríkara og hæpið að sömu mistökir^ verði endurtekin. Það að auki, eins og áður hefur verið bent á, getur fyrirtækið not- fært sér ástandið í sambandi við nýráðningar til þess að „kynnast sjálfu sér“ þar sem á annað borð er verið að framkvæma „sjálfsat- hugun". Kjaminn er, áð það er ein- mitt þessi þróun sem er sérstaklega mikilvæg fyrir fyrirtækið, því það fær hér tækifæri til að fá þekkingu sem því er nauðsynleg til þess að skipuleggja framtíð sína. Það má því segja að þessi fengna þekking sé raunverulega „ókeypis" í þeim skilningi, að það varð undir öllum kringumstæðum að afla hennar, af utanaðkomandi ráðgjafa eða starfs-^, manni fyrirtækisins. Niðurstaðan hlýtur því að verða sú; að annars vegar aukin sjálfs- þekking fyrirtækjanna sé mikilvæg- ur þáttur til að bæta ástandið í atvinnulífinu, og hins vegar hefð- bundnum hugsanargangi sínum til þess að koma auga á nýjar leiðir til hagsbóta fyrir heildarrekstur og afkomu fyrirtækisins. Spumingin er því, hvort þetta muni borga sig fyrir hin einstöku fyrirtæki — hvort það sé ómaksing^ vert fyrir fyrirtækin að sjá um nýr^' áðningar upp á eigin spýtur? Svarið verður ótvírætt já, „annað er ekki veijandi fyrir fyrirtæki rekin af al- vöru“. Höfundur stundar tramhaldsnám við Viðskiptaháskólann íKaup- mmmahöfn. smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Hilmar Foss lögg. skjalaþ. og dómt. Hafnarstræti 11, símar 14824 og 621464. félagslíf -Aj_X—4__JláA-xA--1_ I.O.O.F. 8 = 170318V2 = 9.I. I.O.O.F. 8 = 170338V2 = G.H. □ 598902287 - 1 Atk. Frl. D EDDA 59892827 = 2 I.O.O.F. R.b.1 = 1382288- XX9.0.FI. □ Sindri 59892287 = 6 FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR11796 og 19533. Dagsferðir sunnudaginn 6. mars 1) Kl. 10.30. Utla kafflstofan- Marardalur-Þingvallavegur. Gengið á skíðum f um 5 klst. Góð æfing fyrir páskaferðirnar. Verð kr. 600,- 2) Kl. 13.00. Öxarárfosa f klakaböndum. Ekið að Almannagjá og gengið eftir henni að öxarárfossi. Nú er rétti tfminn til þess að skoða öxarárfoss í vetrarbúnlngi. Missið ekki af þessari ferð. Verð kr. 800,- 3) Kl. 13.00. Skfðaganga á Mosfellshelði. Lótt gönguferð við allra hæfi. Verð kr. 600,- Brottför fró Umferöarmiðstöð- inni, austanmegin. Farmiöar við bíl. Frltt fyrir börn f fylgd fullorð- inna. Ferðafólag Islands. ADKFUK Hátiðarfundur á Amtmannsstíg 2b. Fundurinn hefst með borð- haldi kl. 19.00. Fjölbreytt dag- skrá. Allar konur velkomnar. Þriöjudaginn 7. mars verður að- alfundur KFUK og sumarstarfs- ins sem hefst kl. 20.00 í húsi félaganna. Venjuleg aðalfundar- störf. Fiölmennið. Krossinn Auöbrekku 2.200 Kópavogur Samkoma f kvöld kl. 20.30. Ró- bert Hunt predikar og Ronnie Eades spilar á saxafón. Allir velkomnir. FERÐAFELAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR 11798og 19533. Aðalfundur Ferðafélags íslands Aðalfundur Ferðafélags íslands verður haldinn fimmtudaginn 2. mars í Sóknarsalnum, Skipholti 50a. Fundurinn hefst stundvís- lega kl. 20.30. Venjuleg aðal- fundarstörf. Mætið á aðalfundinn. Sýnið fé- lagi ykkar áhuga. Ath.: Félagar sýni skírteini frá árinu 1988 við innganginn. Stjórn Ferðafélags íslands. raðauglýsingar M + • * ' ilji liiii "vV Morgunverðarfundur 1. mars heldur Týr, félag ungra sjálfstæðismanna i Kópavogi, morg- unveröarfund. Efni fundarins verður: 1. Nýfengið frelsi landsmanna. 2. Haukur Guðmundsson heldur stutta tölu. 3. Almennar umræður. Fundurinn hefst kl. 7.00 og lýkur kl. 9.00. Fundinum veröur frestað frá kl. 9.00 til kl. 12.00 en þó verður haldið ófram yfir hódegisverði á Fógetanum. Konlaksdeildin. Til heilbrigðis- og trygginganefndar Sjálfstæðisflokksins Fundur verður haldinn föstudaginn 3. mars nk. kl. 17.00 i Valhöll. Farið verður yfir fyrstu drög að landsfundarályktun. Stjómin. Til efnahagsnefndar Sjálfstæðisflokksins Fundur verður haldinn fimmtudaginn 2. mars nk. kl. 17.00 i Valhöll. Farið verður yfir fyrstu drög að landsfundarólyktun. Stjórnin. Til samgöngunefndar Sjálfstæðisflokksins Fundur verður haldinn fimmtudaginn 2. mars nk. kl. 12.00 í Valhöll. Fariö verður yfir fyrstu drög að landsfundarólyktun. Stjórnin. óskast keypt J PC-tölva óskast Óska eftir að kaupa PC 640 K, helst með hörðum diski. Gott væri ef Word Perfect forrit fylgdi með. Upplýsingar í dag eftir klukkan 18.00 í síma 37727.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.