Morgunblaðið - 28.02.1989, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 28.02.1989, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1989 25 ~7 •aunir. Keppendur í úrslitakeppninni þágðu boð ríkisspítala um að skoða ' hvemig eðlisfræðin er nýtt í þágu ' læknisfræðinnar. Sýndi Garðar ; Mýrdal, yfírmaður eðlisfræðideild- ar keppendum nýjan línuhraðal til ; að geisla æxli, ennfremur nýleg röntgentæki og rannsóknir á starf- ; semi skjaldkirtilsins með geisla- ! virku joði. Framkvæmdanefnd land- . skeppninnar, sem í eiga sæti: Hans } Kr. Guðmundsson, Viðar Ágústs- son og Einar Júlíusson, mun í marz ákveða hveijir nemendanna, ! sem beztum árangri náðu í úrslit- unum, verða þjálfaðir til að taka þátt í Olympíuleikunum í eðlis- fræði, sem fram fara í Varsjá í f Póllandi í júlímánuði næstkom- 1 andi. Stefnt er að því að fullt lið, 5 keppendur og 2 fararstjórar, fari f til leikanna, en menntamálaráðu- neytið hefur milligöngu um þátt- ; töku íslands og greiðir ferðakostn- ; að. Pólska menntamálaráðuneytið { greiðir uppihald og ferðir á móts- ! stað.. Snanna í Mosfellsbæ að Urðarholti ’álsson fagna opnun nýja félags- 37. þing Norðurlandaráðs Á fímmta tug íslendinga sækir þingið í Stokkhólmi Sjö þingmenn-þrír starfmenn. Sex ráðherrar-sextán embættismenn ÞING Norðurlandaráðs hófst í Stokkhólmi í gær. Pjöldi íslendinga sækir þingið að venju, á fímmta tug alls. Sjö þingmenn eru fulltrúar á Norðurlandaráðsþinginu og með þeim eru þrír starfsmenn skrif- stofu Norðurlandaráðs á íslandi. Einnig eru í Stokkhóimi sex ráð- herrar, þeir Steingrimur Hermannsson, Jón Sigurðsson, Guðmundur Bjamason, Jóhanna Sigurðardóttir, Steingrimur J. Sigfusson og Halldór Ásgrimsson. Með þeim voru, eftir þvi sem næst verður kom- ist, 16 embættismenn þegar þingið hófst í gær. starfsneftid Norræna félagsins og ÆSÍ, Sveinn Einarsson, dagskrár- stjóri vegna bókmenntaverðlauna ráðsins, Þórður Einarsson, sendi- herra, Gylfi Þ. Gíslason fyrir Nor- ræna félagið og Ragnhildur Helga- dóttir, alþingismaður, sem einn af varaforsetum Evrópuráðsins. Embættismennimir á Norðurland- aráðsþinginu eru: Ingimar Einars- son, ráðgjafi í heilbrigðis- og félags- málum, Guðmundur Benediktsson, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneyt- inu, Páll Flygenring, ráðuneytis- stjóri í iðnaðarráðuneytinu, Bjöm Friðfínnsson, ráðuneytisstjóri í við- skiptaráðuneytinu, Þorsteinn Geirs- son ráðuneytisstjóri í dómsmála- ráðuneytinu, Berglind Ásgeirsdótt- ir, ráðuneytisstjóri í félagsmála- ráðuneytinu, Ólafur S. Valdimars- son, ráðuneytisstjóri í samgöngu- ráðuneytinu, Birgir Amason, að- stoðarmaður viðskiptaráðherra, Haukur Ölafsson, sendiráðunautur, Ámi Þ. Ámason, skrifstofustjóri í iðnaðarráðuneytinu, Kristján Skarphéðinsson, deildarstjóri í sjáv- arútvegsráðuneytinu, Ámi Gunn- arsson, skrifstofusijóri í mennta- málaráðuneytinu, Bjami Einarsson, Byggðastofnun, Bolli Bollason, hagfræðingur í fjármálaráðuneyt- inu, Indriði Pálsson, hagsýslustjóri og Jón Sveinsson, aðstoðarmaður Steingríms Hermannssonar. Auk þess eru í Stokkhólmi fjórir fulltrúar frá ungliðahreyfingum stjómmálaflokkanna, tveir frá sam- Laganeftid Norðurlandaráðs: Áðild Eystrasalts- ríkjanna ótímabær LAGANEFND Norðurlandaráðs hefíir komizt að þeirri niðurstöðu að Norðurlandaráð eigi ekki að láta til sin taka tillögu danska þing- mannsins Kristens Poulsgaards, um að Eystrasaltslöndunum þremur verði boðið að ganga í Norðurlandaráð. Neftidin telur tillöguna ótima- bæra. Deilt á hvalveiðar og selveiðar: Norðmenn munu enga kópa veiða í ár — segir Gro Harlem Brundtland Stokkhólmi. Frá Ólafi Þ. Stephenscn, blaðamanni Morgunblaðsins. SELVEIÐAR og hvalveiðar komu til umræðu á þingi Norðurlanda- ráðs í Stokkhólmi i gær. Gro Harlem Brundtland, forsætisráðherra Noregs, sagði í ræðu sinni að Norðmenn tækju mjög alvarlega gagn- rýnisraddir, sem heyrzt hefðu undanfarið um að aðferðir þeirra við selveiðar væru ómannúðlegar. Hún skýrði frá því að Norðmenn hefðu nú sett á laggimar neftid norskra, danskra og sænskra sérfræðinga til þess að athuga hvort reglur hefðu verið brotnar í selveiðum Norð- manna. Þá hefði norska sjávarútvegsráðuneytið bannað allt kópa- dráp i Noregi á þessu ári. í tillögu Poulsgaards, sem er þingmaður danska Framfaraflokks- ins og fulltrúi í Norðurlandaráði, var lagt til að forsætisnefnd Norð- urlandaráðs kannaði möguleikana á þvi að þeim samþykktum, sem starf ráðsins byggist á, verði breytt ásamt löggjöf einstakra aðildar- landa um norrænt samstarf. Þannig yrði Eystrasaltslöndunum gert kleift að ganga í ráðið, og kröfum þeirra um fullt sjálfstæði veittur stuðningur. „í fyrsta lagi liggur ekki fyrir nein umsókn frá þessum ríkjum um aðild að Norðurlandaráði og í öðru lagi eru þau hluti af rikjasambandi sem heitir Sovétríkin," sagði Eiður Guðnason, þingmaður og formaður laganefndar Norðurlandaráðs, á blaðamannafundi á fimmtudaginn. „Það eru vissulega mjög áhuga- verðir hlutir að gerast í þessum löndum og þróunin stefnir mjög I frelsisátt eftir þvi sem við heyrum hér vestra, en það var niðurstaðan í nefndinni að Norðurlönd efldu menningarsamskipti sín og við- skiptatengsl við þessi ríki, þó svo að þessi tillaga væri ekki tímabær." Eiður sagðist þeirrar skoðunar að tillagan hefði beinlínis skemmt fyrir því að betri tengsl og sam- starf næðist við Eystrasaltsríkin, þar sem hún væri ekki sett fram á skynsamlegan hátt og ekki á réttum tfma. Brundtland sagði að Norð- menn ynnu að því að öðlast sem bezta vitneskju um líffræðilegar að- stæður í hafinu. „Norska stjórnin leggur til grund- vallar það sjónar- Gro Harlem mið, að það eigi Brundtland að nýta allar lif- andi auðlindir í hafínu, en innan skynsamlegra líffræðilegra marka. Fyrir Norðmenn er það afar mikil- vægt að vemda og varðveita lifandi auðlindir þannig að bæði við og komandi kynslóðir getum nýtt þær,“ sagði hún. Þessi orð forsætisráðherrans féllu í misgóðan jarðveg. Margarete Auken, þingmaður Sósíalíska þjóð- arflokksins í Danmörku, sagði að með þessu gæfi ráðherrann í skyn að halda mætti hvalveiðum áfram. Hins vegar hefði Alþjóðahvalveiði- ráðið sagt að Norðmenn mættu ekki veiða hvali og að ráðið hefði aldrei viðurkennt að nauðsynlegt væri fyrir hvalarannsóknir að veiða hvali í vísindaskyni. Auken gagnrýndi bæði íslend- inga og Norðmenn fyrir að skil- greina hvalveiðar sínar sem vísinda- mennsku. „Forsætisráðherrann veit að slíkt er gabb og hefur aldrei verið talið annað en gabb í Alþjóða- hvalveiðiráðinu," sagði þingkonan. Eiður Guðnason þakkaði Brundt- land hins vegar fyrir að árétta það að nýta bæri allar auðlindir hafs- ins. „Það er grundvöllurinn undir tilveru okkar vestnorrænna þjóða,“ sagði Eiður. „Þegar það er sagt að íslendingar og Norðmenn virði ekki alþjóðasamþykktir í þessu efni verð ég að mótmæla. Það er hreinlega ekki satt." Moldviðrið vegna selveiða Norð- manna hefur ekki lægt enn þótt Norðmenn hafi brugðizt við gagn- rýni á veiðiaðferðir sínar. Sænsk náttúruvemdarsamtök mótmæltu ómannúðlegu seladrápi á götum úti í Stokkhólmi í gær. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra i sæti sinu í fundarsal Norðurlandaráðs Aðild íslands að Evrópumörkuðum: Fríverzlun með sjávar- afiirðir ræður úrslitum — segir Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra Stokkhólmi. Frá ólafí Þ. Stephensen, blaðamanni Morgunblaðsins. STEINGRÍMUR Hermannsson, forsætisráðherra, sagði í ræðu sinni á 37. þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi að fúllkomið frelsi í sölu sjávarafúrða réði úrsiitum um það hvort íslendingar vildu eiga aðild að sameinuðum evrópskum markaði. Án þess ættu íslendingar ekk- ert erindi I markaðssamband þjóða Vestur-Evrópu og gætu eins snú- ið sér annað. Steingrímur sagði að mikilvægt væri að EFTA-löndin kæmu sjálf á því viðskiptafrelsi, sem þau vildu njóta á Evrópumark- aðnum, og gagnrýndi Finna sérstaklega fyrir að halda uppi hömlum á fiskverzlun. Steingrímur sagði að íslendingar vildu fyrst og fremst takmarka samstarf sitt við EB við fijálsan markað fyrir framleiðslu beggja aðila, samstarf á sviði vísinda og öryggismála og smám saman á sviði Ijármála og þjónustu. „Til þess að auðvelda slíkt samstarf viljum við laga hið íslenzka stjómsýslukerfí að þeim breytingum, sem em að verða í Vestur-Evrópu. í því skyni leggjum við höfuðáherzlu á náið samstarf Norðurlandanna og EFTA-ríkjanna. Við munum hins vegar ekki afsala okkur yfirráðum yfir náttúruauðlindum landsins eða búsetu, eða fóma því manneskju- lega velferðarkerfi, sem við höfum skapað," sagði forsætisráðherra. Steingrímur sagði að undarlegrar tregðu hefði gætt hjá Finnum að taka upp fríverzlun með sjávaraf- urðir. „Tiltölulega litlir hagsmunir virðast ráða afstöðu einstakra þjóða. Ég vil nota þetta tækifæri og skora á vini okkar Finna að fall- ast á fullt verzlunarfrelsi með sjáv- arafurðir. Það mun stórlega liðka fyrir samstöðu Norðurlandanna og EFTA-landanna,“ sagði hann. Jón Sigurðsson viðskiptaráð- herra tók í sama streng í ræðu sinni. Hann sagði að þvi miður hefðu grannar lslendinga á Norð- urlöndum verið stærsti þröskuldur- inn í vegi fríverzlunar með físk. Harri Holkeri, forsætisráðherra Finna, sagði að svo oft hefði þetta mál verið tekið upp, að allir ættu að vita orðið um hvað það snerist. Finnar gerðu tvo fyrirvara á fullu verzlunarfrelsi með fisk; það væri að segja hvað lax og Eystra- saltssíld varðaði. „Sjávarafurðir", í víðum skilningi, kæmu ekki til með að verða neinum hömlum háðar á finnskum markaði. Holkeri sagði að ekki væri um stórkostlegar flár- hæðir að tefla hvað þetta varðaði í viðskiptum Finna og íslendinga. Málið snerist um menningarleg verðmæti, þar sem veiði þessara fiskitegunda væri í höndum sænskumælandi minnihlutans í F'innlandi. Til þess að unnt mætti reynast að varðveita menningararf þessa fólks yrði fínnska stjómin að fá tíma til að leysa úr vandamálinu á viðunandi hátt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.