Morgunblaðið - 28.02.1989, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1989
Stjórnarformaður Arnarflugs:
Ýmsir möguleikar á
lausn vandans í athugun
- segir stjórnarformaður félagsins
RÍKISSTJÓRNIN ræðir í dag stöðu Arnarflugs í ljósi þess að slitn-
aði upp úr viðræðum við Flugleiði um að kaupa Arnarflug. Stjómar-
formaður Arnarflugs segir að verið sé að athuga ýmsa möguleika
á lausn á flárhagsvanda félagsins í samvinnu við stjómvöld. Araar-
flug notast við eina flugvél sem félagið hefur á leigu, og segir að
með henni sé hægt að halda úti eðlilegri starfsemi félagsins um sinn,
þar sem nú sé ekki annatími. Hægt sé að leigja vélar til fraktflutn-
inga eða sérstakra verkefha, anni þessi eina flugvél ekki verkefiium.
Kristnihaldið frumsýnt
KVIKMYNDIN Kristnihald undir jökli, sem gerð er eftir sam-
nefndri sögu Halldórs Laxness, var frumsýnd í Stjörnubíói á laug-
ardag. Með aðalhlutverkin í myndinni fara Sigurður Siguijóns-
son, Baldvin Halldórsson og Margrét H. Jóhannesdóttir. A mynd-
inni, sem tekin er við frumsýninguna, em mæðgurnar Guðný
Halldórsdóttir, leikstjóri myndarinnar, og frú Auður Laxness.
VEÐUR
Á laugardagsmorgun, var önnur
Boeing 737 flugvél Amarflugs,
TF-VLT, kyrrsett á Keflavíkurflug-
velli, en hún átti þá um morguninn
að fara í áætlunarflug til Amsterd-
am og Zurich. Ástæðan var sú, að
ríkissjóður var þremur dögum áður
orðinn eigandi vélarinnar, og ekki
hafði verið gerður leigusamningur
milli ríkisins og Amarflugs, um
afnot af vélinni.
í vegi fyrir því stóð að Amarflug
/ DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa fslands
(Byggt á veöurspá Id. 16.15 i gaer)
I/EÐURHORFUR I DAG, 25. FEBRUAR
YFIRLIT í GÆR: Við suðurströndina var hiti um eða yfir frost-
marki, en frost i öðrum landshlutum, kaldast á Vestfjörðum, 4-7
stiga frost. Yfir Grœnlandi er 1.020 mb hæð en víðáttumikil 963
mb lægð yfir Noröursjó þokast norður.
SPÁ:Talsvert fer að draga úr úrkomu, líklega úrkomulítið á Vest-
fjörðum og minnkandi éljagangur á Norður- og Austurlandi. Létt-
skýjað verður um sunnanvert landið. Fram eftir degi veröur þó
nokkuð hvasst, einkum austan til á landinu, og má því búast við
skafrenninai. Heldur kólnandi.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR A MIÐVIKUDAG: Breytlleg átt - smáél austsnlends, en
að mestu úrkomulaust. Frost 4-5 stig. . „ „ . . .,
HORFUR A FIMMTUOAG: Hæg suðaustanátt með lítilsháttar snjó-
komu um sunnanvert landið en hægviðri og að mestu úrkomulaust
annars staðar. Frost 2-4 stig.
a Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
III
! ii r Rigning
iii
* i *
/ * / * Slydda
l * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10° Hitastig:
10 gráður á Celsius
y Skúrir
*
V E'
— Þoka
= Þokumóða
» , ’ Súld
OO Mistur
—|- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl veftur Akureyri +3 snjókoma Roykjavík +2 ekýjað
Björgvin 3 rignlng og súld
Helalnki 6 alskýjaö
Kaupmannah. 6 skýjað
Narasarsauaq vantar
Nuuk 4« alskýjaö
Óaló 3 súld
Stokkhólmur 6 rigning
Þórshöfn 4 alskýjaö
Algarve 16 skýjaö
Ameterdam 7 skýjað
Barcalona 7 skýjaö
Beriin 14 lóttskýjaö
Chlcago +11 heiöskfrt
Feneyjar 10 skýjaö
Frankfurt 5 skúr
Qlaagow 6 sk'ur
Hamborg 6 rignlng
Las Palmas 18 skýjaö
Lundúnlr vantar
Los Angslea vantar
Lúxsmborg vantar
Madrld 18 skýjað
Malaga vantar
Mallorca vantar
Montrsal vantar
NavrYork vantar
Oriando 7 þokumóða
Parte 6 skúr
Róm 13 skýjaö
San Disgo 13 heiðskfrt
Vín 10 skýjaö
Washington 2 hólfskýjaö
Wlnnlpeg +19 alskýjaö
gat ekki, að mati fjármálaráðuneyt-
isins, sett fullnægjandi tryggingar
fyrir greiðslu á 30 milljón króna
skuld við Eurocontrol, samstarfs-
fyrirtæki flugfélaga. Var talið að
Eurocontrol gæti kyrrsett flugvél-
ina færi hún úr landi.
Deila um tryggingar
Kristinn Sigtryggsson forstjóri
Arnarflugs hefur sagt í fjölmiðlum,
að ríkið hefði í síðustu viku sent
Amarflugi drög að leigusamningi
vegna vélarinnar, sem Amarflug
hefðu ekki gert athugasemdir við.
Það hafi síðan ekki komið til tals
fyrr en á föstudagskvöld að ríkið
myndi kreijast tryggingar vegna
skuldarínnar við Eurocontrol, og
þá hafi verið orðið of seint að út-
vega bankatryggingu. Ekki náðist
tal af Kristni í gær, en í samtali
við Morgunblaðið staðfesti Hörður
Einarsson stjómarformaður Amar-
flugs þetta.
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra sagði við Morgun-
blaðið, að það hefði verið öllum
ljóst, að flugvélin yrði kyrrsett ytra
af erlendum lánardrottnum Amar-
flugs. íslenska ríkið hefði þá orðið
að borga 20-30 milljónir til að fá
vélina aftur til landsins. Þess vegna
hefði átt að vera augljóst, að ríkið
myndi aldrei senda vélina úr landi
án trygginga.
Um leigusamninginn sagði Ólaf-
ur, að aðeins hafði verið gert upp-
kast að samningi, ef til leigu kæmi.
Það uppkast hefði aðeins verið á
vinnslustigi, og á fímmtudag hefðu
forsvarsmönnum Amarflugs átt að
vita, að þessum samningi yrði að
fylgja trygging fyrir því að vélin
kæmi aftur til landsins, og að eldri
skuldir vegna hennar féllu ekki á
ríkissjóð. '*■
Ólafur sagði að sér hefðu því
komið yfirlýsingar forstjora Arnar-
flugs í fjölmiðlum mjög á óvart. „Ég
átti fund með honum, stjómarfor-
manni Amarflugs og þeim embætt-
ismönnum sem fjölluðu um málið
af okkar hálfu, á mánudagsmorgun,
og málin eru á hreinu að mínum
dómi. Ég tel það þó ekki vera rétt,
að ég útskýri það nánar í fjölmiðlum
og hef ákveðið, m.a. af umhyggju
fyrir félaginu, að tjá mig elcki um
þetta," sagði Ólafur Ragnar.
Óhagkvæmt að leigja
DC-8 flugvél
Þeir farþegar sem fara áttu með
Amarflugsvélinni á laugardags-
morgun, biðu á Keflavíkurflugvelli
fram á kvöld, en þá kom hin vél
félagsins úr leiguflugi og flutti far-
þegana til Evrópu. Amarflugi
bauðst fyrir milligöngu samgöngu-
ráðherra að leigja DC-8 flugvél frá
Flugleiðum til að flytja þessa far-
þega, en því var hafnað. Hörður
Einarsson sagði, að sú vél hefði
verið mjög óhagkvæm í þetta flug.
Bæði hefi hún verið allt of stór, og
eldsneytisfrek, og því fyrirsjáanlegt
að það hefði orðið allt of dýrt, að
taka hana á leigu.
Ekki er enn ljóst hvaða leiðir
verða nú reyndar, til að leysa fjár-
hagsvanda Amarflugs. Viðræðuslit
viðræðunefnda samgönguráðherra
og Flugleiða urðu á föstudagskvöld,
og sagði Steingrímur Sigfússon
samgönguráðherra við Morgun-
blaðið, að viðræðumar hefðu ekki
skilað þeim árangri sem vonast var
eftir, þar sem bilið milli þess hvað
Flugleiðir vildu greiða fyrir Amar-
flug, og hvaða verð sett var upp,
hefði verið of mikið. Því hefði við-
ræðunum verið slitið í bili a.m.k.
Hörður Einarsson sagði að áfram
yrði unnið að athugun málsins hjá
félaginu sjálfu og stjómvöldum.
Rætt hefði verið við ýmsa aðila og
möguleikar skoðaðir, og því yrði
haldið áfram. Hann sagði að hægt
væri að halda úti eðlilegri starfsemi
um sinn með einni flugvél, en vildi
ekki leggja mat á, hvað Amarflug
hefði langan tíma til að fá niður-
stöðu í málið.
Steingrímur Sigfússon sagði að-
spurður, að ríkisstjómin hefði út
af fyrir sig, aldrei útilokað þann
möguleika að Amarflug verði gert
gjaldþrota, ef ekki tækist að leysa
vandamál félagsins með öðmm
hætti. Hann sagði, að segja mætti,
að viðræðumar við Flugleiði hafí
verið tilraun til að afstýra þvf, og
viidi ekki útiloka að aftur yrðu tekn-
ar upp viðræður við Flugleiði. Fjár-
málaráðherra taldi það hins vegar
óliklegt.
Ríkissjóður hefur undanfarið
greitt ýmis rekstrargjöld Amar-
flugs, og einnig af lánum vegna
kaupa á flugvélinni TF-VLT, sem
nú er komin í eigu ríkisins eins og
áður sagði. Þegar Ólafur Ragnar
Grímsson var spurður hvort þessari
aðstoð við félagið yrði nú hætt,
sagði hann að sér heyrðist á for-
svarsmönnum Amarflugs að þeir
væru bjartsýnir og þyrftu lítið á
ríkinu að halda á næstu mánuðum.
Hann sagðist ekki vilja tjá sig nán-
ar um þetta, en sagði ánægjulegt
ef forsendumar hefðu skyndilega
breyst.
Keflavíkurflugvöllur:
Samningaviðræður um
endurnýjun vatnsbóla
STJÓRNVÖLD á íslandi og í
Bandaríkjunum hafa ákveðið að
heQa formlegar samningavið-
ræður um endurnýjun vatnsbóla
Njarðvíkur og Keflavíkur.
Vatnsbólin eru talin í yfirvofandi
hættu vegna mengunar af völd-
um atvinnustarfsemi á Keflavík-
urflugvelli, segir í fréttatilkynn-
ingu frá utanríkisráðuneytinu.
Samningaviðræður þessar voru
ákveðnar í framhaldi af viðræðum
Jóns Baldvins Hannibalssonar ut-
anríkisráðherra við bandarísk
stjómvöld, síðast á fundi hans með
James A. Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna.
Utanríkisráðherra hefur skipað í
samninganefnd af íslands háflu þá
Þorstein Ingólfsson skrifstofustjóra
vamarmálaskrifstofu utanríkis-
ráðuneytisins, Guðmund Eiríksson
þjóðréttarfræðing ráðuneytisins og
Hannes Einarsson formann bæjar-
ráðs Keflavíkur.