Morgunblaðið - 28.02.1989, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 28.02.1989, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1989 7 Verslunarbankinn býður nýja gjaldeyrisreikninga Hægt að geyma yen og svissneska franka Verslunarbankinn býður nú viðskiptavinum sínum að geyma japönsk yen og svissneska franka á innlendum gjaldeyrisreikning- um. Til þessa hafa íslensku bank- arnir boðið innlenda gjaldeyris- reikninga fyrir Qóra erlenda gjaldmiðla, það er bandaríska dollara, sterlingspund, vestur- þýsk mörk og danskar krónur. Amar Bjamason hjá gjaldeyris- deild Verslunarbankans segir að þessir tveir gjaldmiðlar hafi verið tveir af sterkustu gjaldmiðlum heims undanfarin ár. „Við ákváðum að bjóða viðskiptavinum okkar fjöl- breytilegri þjónustu. Það er mjög eðlilegt að geta boðið viðskiptavin- um okkar að geyma japönsk yen, þannig geta þeir komist hjá gengis- tapi sem þeir annars yrðu ef til vill fyrir ef þeir þurfa að byrja á að skipta yenunum yfir í dollara. Við- skipti okkar við Japan hafa farið ört vaxandi á undanfömum ámm og yenið er því orðið mikilvægara en áður í viðskiptum okkar við út- lönd. Það hefur verið þó nokkur eftirspum eftir þessum reikningum og þess vegna bjóðum við nú þessa möguleika." Keflavíkiirflugvöllur: Afengi smygl- að af vellinum LÖGREGLAN á Keflavíkurflug- velli og lögregla Varnarliðsins hafa undanfarið haft til rann- sóknar mál sem varðar ólöglegan flutning áfengis af Keflavikur- flugvelli. Þrír bandarískir hermenn hafa játað að hafa á undanformnum mánuðum selt fjórum íslenskum starfsmönnum hersins, búsettum á Suðumesjum, á annað hundrað flöskur af sterku áfengi. íslending- amir hafa ekki játað aðild að mál- inu. Þeir eru ekki í haldi. Klemmdist milli bíla HÖFUÐ manns klemmdist milli tveggja bfla á Skúlagötu á laug- ardagsmorgun. Maðurinn skarst á höfði og meiddist á baki. Maðurinn hafði ekið bíl sínum austur Skúlagötu og var með annan í togi. Móts við hús Hörpu fór hann út úr bfl sínum til að losa taugina sem bundinn var milli bflanna. Með- an hann var að því rann bfll hans afturábak með fyrrgreindum afleið- ingum. Þá varð harður árekstur á mótum Amarbakka og írabakka aðfara- nótt laugardagsins. Bfll á leið út úr írabakka rann í hálku og í veg fyrir leigubfl á leið suður Amar- baka. Farþegi í aftursæti leigubfls- ins slasaðist á fæti og hálsi og var fluttur á slysadeiid. Reglugerð um safiisendingar: Leiðir til lækkun flutn- ingsgjalda og vöruverðs Fjármálaráðherra hefur gefíð út reglugerð um safíisendingar i innflutningi og segir ráðher- rann, að þarna sé verið að koma til móts við óskir innflutningsað- ila. Fyrirkomulagið skapi mögu- leika á sameiginlegum innflutn- ingi margra innflytjenda, sem Fjarkamótið: Síðasta um- ferð í dag SÍÐASTA umferðin á Fjarkamótinu á Hótel Loft- leiðum verður tefld i dag og hefst hún kl. 13. Fyrir síðustu umferðina er Balasjov i efeta sæti með 8,5 vinninga. í öðru sæti eru Margeir Pétursson og Helgi Ólafeson með 8 vinninga en í þriðja sæti er Engom með 7,5 vinninga. I kvöld lýkur svo mótinu formlega með hófi í boði menntamálaráðherra þar sem verðlaunaafhendingin fer fram. hafí í för með sér meiri hag- kvæmni, sem aftur leiði til lækk- unar á flutningsfíöldum og stuðli þannig að lækkun vöruverðs. Samkvæmt reglugerðinni verður flutningsaðilum, farmflytjendum og flutningsmiðlurum heimilað að ann- ast skiptingu safnsendinga sem þessir aðilar sjá um flutning á til landsins. Auk ákvæða um safnsend- ingar er með reglugerðinni kveðið skýrar á um innheimtu aðflutnings- gjalda af innfluttum vörum, bæði að því er varðar gjalddaga og ein- daga aðflutningsgjalda. Þá er þar kveðið á um ábyrgð á greiðslu að- flutningsgjalda, svo og innheimtu dráttarvaxta og stöðvun tollaf- greiðslu vegna vanskila. Ólafur Ragnar Grímsson, fjár- málaráðherra, sagði þetta vera lið í því að koma til móts við ýmsar óskir innflytjenda og verslana á undanfömum árum. Vonaði hann að þeir kynnu að meta þessa breyt- ingu og fullyrðingar þeirra um lækkun vöruverðs myndu ganga eftir. Reglugerðin tekur gildi 1. apríl nk. Dagleg grænmetísuppboð GRÆNMETISUPPBOÐ Sölufé- lags garðyrkjumanna hefíast í þessari viku þegar fyrstu gúrk- urnar koma á markaðinn. Stefíit er að því að í sumar verði dagleg uppboð og að þau verði opin öllum sem hafa verslunar- leyfi en ekki aðeins heildsölum og stórmörkuðum eins og var siðastliðið ár. Hrafn Sigurðsson fram- kvæmdastjóri Sölufélagsins sagði að verið væri að undirbúa upp- boðin og breytingar á fyrirkomu- Iaginu í ljósi þeirrar reynslu sem fengist hefði síðastliðið sumar. Þeir teldu sig geta ráðið við dag- leg uppboð og að hafa fleiri kaup- endur, þannig að stefnt væri að breyta fyrirkomulaginu í þá veru. 50 flöskum af áfengi stolið BROTIST var inn í veitingahús að Laugavegi 22 aðfaranótt sunnudags og stolið þaðan um 50 flöskum af áfengi og 20 kar- tonum af vindlingum. Málið er í rannsókn. Þá var brotist inn í íbúðarhús í Kópavogi og stolið sjónvarpstæki og tékkhefti. Málið er óupplýst. -DAGUR á morgun V eitingastaðurinn IVESTURBÆ býður ykkur velkomin Vió opnum 1. mars nk. kl. 18.00. Fjölbreyttur matseóill Opió virka daga kl. 11.00-15.00 og 18.00-01.00 Föstudaga og iaugardaga til kl. 03.00.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.