Morgunblaðið - 28.02.1989, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1989
LEIKLIST/Friðrika Benónýs
Af karlmennsku
Litla svið Þjóðleikhússins:
Brestir
Höfúndur Valgeir Skagflörð
Leikstjóri Pétur Einarsson
Leikmynd og búningar Gunnar
Bjarnason
Lýsing Ásmundur Karlsson
Tónlist og áhrifahljóð Pétur
Hjaltested
Hvað er karlmennska? Spum-
ing sem ég og eflaust fleiri vildu
gjaman fá svar við. Það er því
með nokkurri eftirvæntingu sem
maður sest í sæti sitt og bíður
þess að leikritið Brestir hefjist,
því í viðtölum við höfundinn hefur
verið ítrekað að hér sé brugðið
Ijósi á það um hvað karlmennskan
snýst. Og sýningin hefst. Tveir
bræður í upprifjunum á gömlum
syndum, átök þeirra á milli vegna
konu annars þeirra, klofningur í
afstöðunni til mömmu. Sjóarinn
og arkitektin, sá óheflaði og sá
fágaði skiptast á að miða byssu
hvor á annan, öskra, lýsa glæpum
sínum, drekka og gráta. Og þrátt
fyrir mjög góðan vilja er áhorf-
andinn engu nær um það hvað
þessir menn em að hugsa í raun
og vera, hvað þeim finnst um
sjálfa sig og aðra. Er það kannski
karlmennska að kíkja aldrei inn
fyrir ysta lagið?
í framkallinu trommar hópur
karlmanna á svið og bukkar sig,
enginn kvenmaður í augsýn. Og
ósjálfrátt riflast upp þær ásakanir
á hendur kvenrithöfundum að þær
einfaldi oftast karlpersónur sínar,
geri þá granna og ósannfærandi.
Mikið er Valgeir SkagQörð hepp-
inn að vera karlmaður. Því varla
er hægt að ásaka hann um annar-
legar hvatir þótt hann lýsi karl-
mönnum sem tilfínningasljóum og
sjálfbyrgingslegum drambum.
Eða hvað?
Það era þeir Egill Ólafsson og
Pálmi Gestsson sem hafa það van-
dasama hlutverk með höndum að
gæða þá bræður Kobba og Palla
lífi og persónueinkennum. Þeir
komast furðu vel frá því. Kobbi
er stífur og góður með sig í túlk-
un Egils, en óskaplega fjarlægur
og maður finnur alltof mikið fyrir
því að hér er verið að leika. Og
í iðranarkastinu verður hann ekki
bijóstumkennanlegur heldur
hlægilegur, sem er kannski mein-
ingin en virkar engu að síður fár-
ánlega í ultra-natúralískri um-
gjörð leikmyndar Gunnars
Bjamasonar og í samanburði við
það sem á undan er gengið.
Pálmi Gestsson nær góðum
tökum á Palla, gerir þessa stöð-
luðu sjóaraklisju næstum því
mannlega og ekta. En dúkkulísur
hafa aðeins eina hlið og er ekki
við Pálma að sakast þótt ein-
hæfnin verði leiðigjöm til lengdar.
Brestir era hefðbundið stofu-
drama og era leikmynd, búningar
lýsing og tónlist í samræmi við
það. AUt stuðlar að því að vekja
áhorfendum þá tilfínningu að þeir
séu gluggagægjar hjá ósköp
venjulegum bræðram úti í bæ.
En þessi nálægð vekur ennþá
sterkari tilfinningu fyrir göllum í
uppbyggingu verksins og per-
sðnusköpun og spuming er hvort
leikstjórinn hefði ekki átt að
freista þess að stílfæra meira,
ganga alla leið í því að gera klisj-
umar að klisjum og engu öðra.
LEIKLIST/Friðrika Benónýs
í ÆVINTÝRAHEIMI
Leikfélag Reykjavikur:
Ferðin á heimsenda
Höfúndur Olga Guðrún Árna-
dóttir
Leikstjóri Ásdis Skúladóttir
Tónlist Soffia Vagnsdóttir
Leikmynd og búningar Hlin
Gunnarsdóttir
Lýsing Lárus Björnsson og
Egill Orn Árnason
Aðstoðarleikstjóri Margrét
Ámadóttir
Loksins er komið bamaleikrit á
fjalimar í Iðnó. Og það sem meira
er, alvöra leikhús þar sem rækt
er lögð við alla þætti sýningarinn-
ar.
Ferðin á heimsenda er ævintýri
með galdrahyski, álfum, tröllum
og öllu sem við á að éta. Alvara
og grín í bland, hrollur og fögnuð-
ur. Olga Guðrún Ámadóttir tekur
mið af ímyndunarafli og fróðleiks-
fysn bamanna, án þess að ein-
falda eða slá af þeim kröfum sem
gera þarf til áhorfenda í góðri
leiksýningu. Og fíflagangurinn og
heimskan sem svo sorglega víða
ráða ríkjum við gerð bamaefnis
era víðs flarri.
Ferðin á heimsenda segir frá
ferð prinsessunnar I Ljósalandi á
Heimsenda með vemdargrip álf-
anna Geislaglóð. Galdrakarlinn
Hrappur og aðstoðarstúlka hans,
Skotta, hafa ágimd á gripnum
og reyna að nappa honum af
prinsessunni. Þrír krakkar í sum-
arleyfi flækjast inn I atburðarás-
ina og lenda í mörgum og stóram
< ævintýram af þeim sökum.
Ástæðulaust er að rekja sögu-
þráðinn frekar, aðeins skal ítrekað
að hér er á ferð skemmtilegt og
örvandi leikhús þar sem leikritið
sjálft, leikmyndin, tónlistin, lýs-
ingin og leikurinn vinnur saman
að því að skapa listræna heild.
0g hvorki bömum né fullorðnum
ætti að leiðast í Iðnó næstu helg-
ar.
Það era þau Edda Björgvins-
dóttir, Ása Hlín Svavarsdóttir og
Stefán Sturla Sigurjónsson sem
leika þremenningana Línu, Sissu
og Lúlla, sem óvart verða til þess
að bjarga framtíð Ljósalands. Þau
gera persónumar trúverðugar og
lifandi og koma vel til skila per-
sónueinkennum hvers um sig.
Kjartan Bjargmundsson og
Margrét Ámadóttir era Hrappur
og Skotta, skemmtilegar fígúrar
og sannfærandi, þótt mér hefði
fundist eðlilegra að meira sam-
ræmi væri í leikmáta þeirra. Þau
eru oft óborganleg’í klaufaskap
sínum og aulahætti og eignast
samúð áhorfenda ekkert síður en
þremenningamir og prinsessan.
Ólöf Söebeck og Margrét Guð-
mundsdóttir skiptast á um að
leika prinsessuna, lítið hlutverk
en mikilsvert og komast vel frá
sínu.
Aðrir leikendur, þær Valgerður
Dan Jónsdóttir, Rósa Guðný Þórs-
dóttir, ólöf Sverrisdóttir og Am-
heiður Ingimundardóttir, fara
með mörg smærri hlutverk hver
og bregða upp skemmtilegum
myndum af pöddum, vetrarálfum,
syngjandi tijám og fleiri furðuver-
um. Valgerður leikur mjmdina af
ömmu Hrapps og tröllastrákinn
Garp og skapar skemmtilegar
persónur úr báðum. Rósa Guðný
er mikilúðleg sem köngulóar-
drottningin, þótt söngur hennar
sé ekki eins skýr og æskilegt hefði
verið, og Gerpla verður sérlega
lifandi persóna f meðföram Rósu.
ólöf Sverrisdóttir er skörungsleg
Frostrósa og kemur söng hennar
vel til skila.
Þá ljá þau Sigrún Edda Bjöms-
dóttir og Krisfján Franklín Magn-
ús golunni og grasinu raddir sínar
og tekst að skapa dulúðugt and-
rúmsloft í upphafí leiks.
Leikmynd Hlínar Gunnarsdótt-
ur er meistaraverk. Einföld,
stílhrein og tæknilega vel útfærð
og á, ásamt lýsingu þeirra Láras-
ar Bjömssonar og Egils Amar
Ámasonar, einna stærstan þátt í
að skapa það andrúm ævintýrs
og hugarflugs sem einkennir sýn-
inguna.
Tónlist Soffíu Vagnsdóttur er
hressileg og skemmtileg og fellur
vel að persónum og atburðarás.
Leikstjórinn, Ásdís Skúladóttir,
hefur haldið sig við hófstillingu
og fágun í leikmáta persónanna
og hvergi fallið í þá gryfju að
láta skrípalæti og gauragang
koma í stað túlkunar.
í sem stystu máli sagt er þessi
sýning LR og öllum aðstandend-
um til mikils sóma og mjög vel
við hæfi sem kveðjusýning í gamla
Iðnó. Það er full ástæða til að
hvetja alla, ekki síður fullorðna
en böm, til að taka tvo tíma í það
einhverja helgina að heimsækja
Iðnó og upplifa alvöra leikhús.
::i3
Milliveggja-
plötur
Við bjóðum þér
milliveggj apiötur
framleiddar úr völd-
um hráefhum undir
stöðugu gæðaeítirliti
rannsóknarstofu
okkar.
Stærðir og notkun:
50X50X5 cm
• fyrir minni hleðslur,
t.d. í kringum baðker
50X50X7 cm
• fyrir milliveggi í íbúð-
arhúsnæði
50X50X10 cm
• fyrir milliveggi í versl-
unar-, skrifstofu- og
iðnaðarhúsnæði
25X50X10 cm
• fyrir milliveggi þar sem
þörf er á sérstaklega
mikilli hljóðeinangrun.
Þú getur valið um 2 efhis-
gerðir: Gjall eða vikur.
Gjallplötur: Þar sem kraf-
ist er mikillar hljóðein-
angrunar.
Vikurplötur: Þar sem létt-
ar plötur eru nauðsyn-
legar.
Við bjóðumst til að senda
þér milliveggjaplöturnar
heim búir þú á Stór-
Reykjavíkursvæðinu, til
flutningsaðila búir þú
utan þess.
Hafðu samband við
okkur í síma 68 50 06 og
kynntu þér kosti þess að
velja hlaðinn, múrhúðað-
an vegg, úr milliveggja-
plötum frá B.M. Vailá.
Við getum í leiðinni
gefið þér upplýsingar um
aðrar vörur sem við
bjóðum til múrverks.
B.M.VALLÁ?
STEINAVERKSMIÐJA
Söluskrifstofa
Breiðhöfða 3
Pantanasími:
(91) 68 50 06
AÐALSKRIFSTOFA
Korngörðum 1
Pósthólf 4280
124 Reykjavík
Sími: (91) 680 600
Fax: (91) 689366