Morgunblaðið - 28.02.1989, Page 22

Morgunblaðið - 28.02.1989, Page 22
PO 22 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRUAR 1989 Pólland: Boða hertar aðg'erðir gegn námsmönnum Varsjá. Reuter. PÓLSKA ríkisstjórnin hefiir ákveðið að grípa til harðra að- Svíþjóð: Banna sölu á alkalí- rafhlöðum Stokkhólmi. Reuter. SVIAR hafa ákveðið að banna notkun rafhlaða sem innihalda alkali frá og með 1. janúar 1990. Sænska umhverfisráðuneytið greindi frá þvi að bannið næði yfir þær rafhlöður sem innihalda meira en 0.025% af kvikasilfri og kadmium, en það er næstum 90% allra rafiilaða sem nú eru notkun í Svíþjóð. Áður en lögin taka gildi verða rafhlöður sem notaðar eru á heimil- um merktar tákni sem sýnir að þær eru skaðlegar umhverfínu. Náttúruvemdarráð Sviþjóðar komst að þeirri niðurstöðu árið 1986 að 6 tonn af kvikasilfri og 15-20 tonn af kadmíum úr ónýtum rafhlöðum menga umhverfið á ári hverju. gerða til að stemma stigu við mótmælum námsmanna sem beinast gegn kommúnista- stjórninni. Til átaka kom í borg- inni Kraká á föstudag er lög- regla beitti táragasi gegn ung- mennum sem dreifðu and- kommúniskum áróðursritum og létu ófriðlega. 39 lögreglumenn slösuðust í átökunum og 24 ung- menni voru tekin höndum. Átökin eru þau alvarlegustu í Póllandi frá því í maí á siðasta ári þegar lögreglan leysti upp verkföll sem Samstaða, hið ólöglega verkalýðsfélag, hvatti til. Fúlltrúar stjómvalda og Sam- stöðu fordæmdu óeirðimar og sögðu að þær væru tilraun til að hindra viðræður á milli þessara aðila sem hófust 6. febrúar síðast- liðinn. „Það mun hafa geigvænlegar afleiðingar fyrir framtíð landsins og þá sem stóðu að þessum óeirð- um ef áætlanir um róttækar um- bætur í Póllandi renna út í sandinn," sagði í yfírlýsingu ríkis- stjómarinnar. Tveir róttækir hópar náms- manna, Bandalag um sjálfstæði Póllands og Samtök ungra bar- áttumanna, stóðu fyrir mótmælun- um í Kraká. Samtökin hafa deilt á fulltrúa Samstöðu fyrir að taka þátt í hringborðsumræðunum. UTSALA - UTSALA Peysur, blússur, pils. Stórnúmer. 20-50% afsláttur. Glugginn, Laugavegi 40, Kúnsthúsinu. Sálfræðistööin Námskeið Sjálf sþekking - Sjálfsöryggi Á námskeiöinu kynnast þátttakendur: • Hvaða persónulegan stíl þeir hafa I samskiptum • Hvernig má greina og skilja samskipti • Hvernig ráða má við gagnrýni • Hvernig finna má lausnir í árekstrum • Hvemig læra má samskipti sem auka sjálfsöryggi Leiðbeinendur eru sálfræðingarnir Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal. wékm.. Innritun og nánari upplýsingar í í símum Sálfræðistöðvarinnar: | VISÁ 62 30 75 og 21110 kl. 11-12. Samtökin eru fámenn og njóta ekki stuðnings Lechs Walesa, leið- toga Samstöðu. Þau beijast gegn kommúnisma og vilja uppræta sovésk áhrif í Póllandi. Lögreglan handtók 20 félaga úr and-kommúnískum samtökum þegar þeir voru á leið til ólöglegs fundar í bænum Jastrzebie, að sögn stjórnarandstæðinga. Þeir sögðu að um 100 manns hefðu safnast saman í kirkju í bænum til að mótmæla viðræðum Sam- stöðu og ríkisstjómarinnar. Bandaríkin: Reuter John Tower með fréttamenn á hælunum eftir að hann hét að bragða ekki áfengi í embætti varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Öldunga- deild Bandaríkjaþings tekur afstöðu til þess í vikunni hvort Tower getur talist hæfúr ráðherra. Heitir því að bragða ekki áfengi í embætti Sam Nunn herðir róðurinn gegn útnefningu Towers Washington. Reuter. JOHN Tower, sem George Bush Bandaríkjaforseti hefur útnefiit til embættis varnarmálaráð- herra, hét því á sunnudag að bragða ekki áfengi í starfi. Her- málanefiid öldungadeildar Bandaríkjaþings mælti með því á fimmtudag eftir ítarlega rann- sókn á ferli Towers að þingið neytti réttar síns og hafiiaði hon- um. I samtali við ABC-sjónvarpsstöð- ina sór Tower og sárt við lagði að á meðan hann gegndi starfí vamar- málaráðherra myndi hann ekki bragða áfengi. Tower, sem er tvískilinn, var spurður hvort hann myndi bregðast við ásökunum um kvennafar á sama hátt. Hann sagð- ist ekki geta lofað slíku því hann væri einhleypur. Kvennafar væri teygjanlegt hugtak og hann væri ekki reiðubúinn að hætta að hitta kvenfólk. Tower, sem er 63 ára gamall, las einnig yfírlýsingu frá lækni nokkrum í Texas sem fjar- lægði á sínum tíma æxli úr ristli Towers. Sagðist læknirinn ekki hafa fundið nein líkamleg merki óhóflegrar áfengisneyslu hjá sjúkl- ingi sínum. Tower vlðurkenndi í samtalinu við ABC-sjónvarpsstöðin að hafa átt við áfengisvanda að stríða á áttunda áratugnum. Nú drykki hann hins vegar ekki nema léttvín með mat og sterkra drykkja hefði hann ekki neytt í 12 ár. Öldungadeildarþingmaðurinn Sam Nunn sem hvað harðast hefur barist gegn útnefningu Towers bætti um betur á sunnudag. Nunn sakaði Tower um siðferðisbrot er hann seldi vopnaframleiðendum sérþekkingu sem hann öðlaðist sem samningamaður Bandaríkjastjómar í START-viðræðunum í Genf árið 1985. Tower segist hafa haldið sig innan marka laganna þegar hann „þáði greiðslu fyrir að leggja mat á upplýsingar sem þegar voru á allra vitorði." Öldungadeildin tekur afstöðu til útnefningar Towers á morgun, mið- vikudag, og meira að segja starfs- menn Hvíta hússins viðurkenna að kraftaverk þurfi til að Tower hljóti náð fyrir augum deildarinnar. Demókratar með Sam Nunn í farar- broddi eru með meirihluta í öld- ungadeildinni. í dag hyggst fosetinn hitta nokkra þingmenn demókrata að máli til að reyna að snúa þeim á sveif með Tower. Ungveijaland: VELA-TENGI Allar gerðir Öxull — í — öxul. Öxull — í — flans. Flans — í — flans. Tengiö aldrei stál — í — stál, hafiö eitthvaö mjúkt á milli, ekki skekkju og titring milli tækja. Allar stærðir fastar og frá- tengjanlegar Vesturgötu 16, sími 13280 Frjáls verkaiýðs- samtök stofiiuð Búdapest. Reuter. FYRSTU frjálsu verkalýðssam- tökin í valdatíð kommúnista í Ungveijalandi voru stofiiuð í Búdapest á laugardag. Fimm hundruð manns sóttu stofii- fúndinn. Áður höfðu ungverskir menntamenn stofiiað nokkur stéttarfélög. Gyorgy Gyori er símvirki og einn helsti hvatamaður að stofnun samtakanna. Sagði hann að sam- tökin er nefnast Samstaða verka- manna ættu að gera Samstöðu i Póllandi að fyrirmynd sinni. Full- trúi samtaka vísindamanna, Pal Forgacs, flutti nýju verkalýðssam- tökunum kveðjur félaga sinna og sagði í ávarpi sínu að 40 ára stjóm kommúnista hefði leitt þjóðina á óheillabraut. Landsmenn yrðu nú að horfast í augu við allt það versta sem kommúnistar hefðu sagt að einkenndi ríki kapítalis- mans; arðrán, verðbólgu og at- vinnuleysi. Það hefði verið glæp- samlegt að svipta verkalýðsfélögin sjálfstæði sínu. „Verkalýðshreyf- ingu, ríkisvaldi og stjómarflokki var hrært saman í eitt. Verkamenn hafa glatað trausti á [opinberu] verkalýðsfélögunum og líta á þau sem tæki skrifkeranna, er ekki gagnist hagsmunum verka- manna.“ Stjómvöld hafa ákveðið að leyfa starfsemi annarra stjómmála- flokka með vissum takmörkunum. Reynt hefur verið að blása nýjum lífsanda í tvo gamla stjórnmála- flokka en nú virðist sem innbyrðis deilur ætli að kæfa þær tilraunir í fæðingu. Sjálfstæði smábænda- flokkurinn hefur rekið fjóra af frammámönnum sínum og Mihaly Bihari, er rekinn var úr kommúni- staflokknum fyrir skömmu og tal- inn var líklegur leiðtogi flokks sósíaldemókrata, hefur hætt af- skiptum af fiokknum vegna deilna um stefnuskrá. Stjómmálaský- rendur höfðu talið líklegt að flokk- urinn myndi, undir stjóm Biharis, laða að sér aragrúa af óánægðum liðsmönnum kommúnistaflokks-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.