Morgunblaðið - 28.02.1989, Page 45
PöPl vf ÁH irííifil'vl 9-Q S4Tf;>Aíí'T5 •'íííd m'« J Á . : • ' i í • /
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1989
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu ..
Armband tapað-
ist í Kringlunni
Fríða SigTirösson hringdi:
Ég var svo óheppin að tapa
armbandi í Kringlunni, líklega í
matvöruverslun Hagkaupa, á mið-
vikudag og bið fínnandann vin-
samlegast um að hafa samband
við mig í síma 25307.
Misgengið verð-
ur að leiðrétta
I. G. hringdi:
Er hægt að réttlæta það, þegar
launastöðvun hefur verið í landinu
síðan í sumar, þá hafa ýmsar verð-
hækkanir orðið til þess, að láns-
kjaravísitala hefur hækkað og þar
með skuldir launamanna eins og
annarra? Er það ekki nóg byrði
að þurfa að standa undir verð-
hækkunum án þess að laun
hækki, þó að skuldir hækki ekki
líka sjálfkrafa? Hvers vegna
skyldi hækkun á verði áfengis t.d.
eiga að hafa áhrif á lánskjaravísi-
tölu? Áfengi er hægt að skatt-
leggja að vild, en sá skattur á
aðeins að koma niður á neytend-
um þess. Og að lokum þetta: Ef
misgengi verður á vísitölunni,
verður það að leiðréttast. Annað
er ekki heiðarlegt.
Sammála Stein-
grími Sigurðssyni
Kristin hringdi:
Ég er með Morgunblaðið héma
glóðvolgt í hendinni og þar er svo
ágætur pistill eftir Steingrím Sig-
urðsson í dálkunum þínum. Mig
langar til að þakka Steingrími
fyrir ummæli hans um sjónvarps-
efnið, sem hann telur fyrir neðan
allar hellur. Undir það get ég tek-
ið heils hugar. Mér fínnst, að
prestamir okkar ættu að taka
þetta mál fyrir í ræðu og riti.
Þeir hljóta að geta haft einhver
áhrif á þetta.
Smáfuglarnir éta
heilhveitibrauðs-
mola með bestu lyst
Kjartan Guðjónsson hringdi:
Fólk hefur verið að kvarta yfir,
að ekki fengist svokallað fugla-
kom í verslunum. Mig langar til
að benda á, að þessir vinir okkar
éta afganga af heilhveitibrauði
með bestu lyst. Svo vildi ég nota
tækifæri til að koma á framfæri
fyrirspum til Sjónvarpsins um
það, hvort ekki væri hægt að end-
ursýna úrvalsþætti eins og Ég
Kládíus og Emil Zola.
Skiði tekin
í misgrípum
Skúli hringdi:
Ég lenti í því á sunnudaginn,
þegar ég fór með síðustu ferð
Teits Jónassonar úr Bláfjöllum,
að Blizzard-skíðin mín voru tekin
í misgripum, en Elan-skíði, sem
vom í alveg eins poka og mín,
skilin eftir. Eg bið hlutaðeigandi
vinsamlegast að hafa samband
við mig í síma 42454.
Skíði tekin
í misgripum
í Bláfjöllum
Sesselja hringdi:
Síðastliðið þriðjudagskvöld,
milli klukkan 20-22, vom tekin
rauð Fischer-bamaskíði, sem lágu
upp við Bláfjallaskálann, í mis-
gripum og önnur svipuð, en eldri,
skilin eftir. Ég bið viðkomandi
vinsamlegast um að hringja í síma
671173.
Að gefnu tilefni
Margrét Hjálmtýsdóttir
hringdi:
Allir vita, hve forseti íslands
hefur verið landi og þjóð til mik-
ils sóma á ferðalögum sínum í
öðmm löndum. Glæsileg og hlýleg
framkoma hennar hefur aukið á
virðingu fyrir íslenskri þjóð og því
sú besta landkynning, sem íslend-
ingar hafa notið, síðan við eignuð-
umst nóbelsskáld. Á íslandi er frú
Vigdís elskuð og virt vegna sirina
mörgu góðu kosta. Þess vegna
biðjum við ríkisstjómina að hlífa
þjóðinni við að bendla nafn henn-
ar við hið ógeðfellda hvaladráps-
mál. Þess er beðist að gefnu til-
efni.
Kveðja til hand-
knattleiksstrák-
anna í Strasbourg
Kona í Kópavogi hringdi:
Mig langar til að senda hand-
knattleiksstrákunum okkar í
Strasbourg hamingjuóskir og
þakkir. Þeir em stórkostlegir,
gullfallegir í bláu búningunum
sínum og bera af öðmm keppend-
um fyrir prúða framkomu og
glæsileik.
Eftir hvern
er vísan?
Eldri kona í Laugarnesinu
hringdi:
Mig langar að vita eftir hvem
þessi alþekkta vísa er; ég held ég
muni hana nokkum veginn rétt:
Ef stelurðu litlu og standirðu
lágt
í steininn máské sérðu;
en stelirðu miklu og standirðu
hátt,
í stjómarráðið ferðu.
byrjendanámskeiö
Á þessu yfirgripsmikla námskeiði öðlast þátttakendur
þekkingu á öllum meginatriðum í notkun Macintosh.
• Grundvallaratriði, tengingar og stýrikerfi
• Ritvinnsla með Works
• Gagnasöfnun og úrvinnsla með Works
150 blaðsíðna handbók um tölvuna og forritið Works
innifalin auk símaaðstoðar í tvær vikur að loknu námskeiði.
Morgunnámskeiö: 6.-8.mars kl. 8.30 - 12.30
Morgunnámskeiö: 20.-22.mars kl. 8.30-12.30
Síödegisnámskeiö: 20.-28.mars kl. 16-19
Kvöldnámskeiö: fimmtudaga, hefst 9.mars kl. 19.30
Túlvu- og
verkfræÖiþjónusían
Grensásvegi 16
sími 68 80 90
FISKI- OG
SLÓGDÆLUR
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER
FerÖahátíÖ
meö stú og stæl
— sunnudagínn 5. mars nk.
★ Með Elsu Lund í broddi fylkingar ásamt
fríðum flokki gleöi- og gáskamanna úr
gleðidagskránni „Hvarer Elsa?“
★ Húsið opnað klukkan 19.00
- boðið verður upp á fordrykk hússins.
★ Ferðakynning: ^IöuwplTÍg
kynna sumarferðirtil Mallorca,
Benidorm og Kanarfeyja.
★ Ferðabingó:
Glæsilegir sólarlandavinningar.
★ Hátíðarsveit Magnúsar
Kjartanssonar leikur fyrir
dansi.
★ Kynnir kvöldsins:
Hinn eini, sanni Guðlaugur
Tryggvi Karlsson.
★ Matseðill: Gómsæt nautapip-
arsteik m/piparsósu.
Freistandi ísþrenna
m/hindberjamauki.
!>ÓRs|cAFÉ
alltafsólarmegin!
ZESZ*-"*.
Brautarholti 20. Símar: 23333 og 23335.
Scensku Cylindaþvottavélamar
hafafengidfrábœra dóma í
neytendaprófum á kröfuhörðustu
mörkuðum Evrópu.
Þúgeturvalið umframhlaðnar eða
topphlaðnarCylinda vélar. Þœrtoþp-
hlöðnu spara gólfpláss ogekki þarf
að bogra við þvottin
Cylinda nafnið er tryggingfyrir
fyrstaflokks vöru ogsannkallaðri
maraþonendingu.
Þegarodeins þad
besta er nógu gott
TOPPHLAÐÍN
Cylinda
ÞVOTT/WÉIAR - UPPÞVOTTAVÉLAR
TAUÞURRKARAR
/FQnix
HATÚNi 6A SIMI (91)24420
ARGUS/SÍA