Morgunblaðið - 03.03.1989, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1989
Stjörmi-
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Einar Brynleifs-
son
Ég á ágætan vin, Einar Biyn-
leifsson stærðfræðikennara.
Hann er Steingeit með Tungl
í Ljóni og Sporðdreka Rísandi.
Einar er einnig menntaður í
sagnfærði og var þegar ég
kynntist honum fyrst harður
á móti stjömuspeki. Hann
lagði þessa spumingu fyrir
mig: „Ef stjörnuspeki á að
hafa áhrif á örlög manna,
hvemig voru þá stjömukort
þeirra þúsunda hermanna
Hannibals sem féllu í stríðinu
við Rómverja? Voru þau öll
eins?“ Ég gat ekki svarað
þessu í fljótu bragði og Einar
fór sigri hrósandi af fundi
mínum. Þegar ég hafði hugs-
að málið f nokkum tíma sá
ég hins vegar hvert svarið
var. Það var einungis stjömu-
kort Hannibals sem skipti
máli, því þegar hermenn lúta
skilyrðislaust stjóm eins hers-
höfðingja ganga þeir um leið
örlögum hans á hönd.
Einar er
dökkhœröur
Nú orðið sættir Einar sig við
stjömuspeki. Það kom helst
til tvennt. í fyrsta lagi er Ein-
ar dökkhærður, frekar dulur
og á til að vera hvass í fram-
komu þó hann sé einlægur og
hlýr maður við nánari kynni.
Ég sá strax að einlægnina
mætti skrifa á Tungl í Ljóni
og að stífnina og raunhyggj-
una mætti skrifa á Steingeit-
ina. Hið dökka og varfæmis-
lega yfirbragð var ekki að sjá
á plánetum í korti hans og
því ákveða ég eftir nokkra
umhugsun að Einar væri
Rísandi Sporðdreki.
Égreikna
Ég settist því niður og tók til
við að reikna út hvenær sólar-
hringsins Sporðdreki var
rísandi á fæðingardegi Ein-
ars. Eftir nokkrar vangavelt-
ur ákvað ég að Einar hefði
fæðst um fímmleytið að
morgni. Ég gekk því að hon-
um og sagði: „Einar, þú ert
örugglega rísandi Sporðdreki
og ert því fæddur klukkan
fimm að morgni." Það var
glampi í augum hans og þar
stóð skýmm stöfum: „Nú af-
sanna ég stjömuspeki!"
Tíminn líÖur
Svo líður og bíður og ekkert
bólar á svari frá Einari. „Ætli
hann hafí aldrei haft samband
við mömmu sína?“ hugsa ég.
Eftir nokkra bið ákveð ég að
ganga á Einar og spyija hann
um niðurstöðu málsins. Ég
sagði því næst þegar ég hitti
hann: „Hvenær sagði mamma
þín að þú værir fæddur?“ Ein-
ar leit á mig með hvössum
Sporðdrekasvip og ég sá að
honum var allt annað en
skemmt. Hann þagði lengi en
svaraði þó loks og komu orðin
dræmt úr munni hans: „Hún
sagði að ég væri fæddur
klukkan fimm mínútur yfír
fimm að morgni."
Steingeitur láta
ekki plata sig
Það sem í öðru lagi og endan-
lega fór með Einar vin minn
gerðist skömmu síðar. Ég
hafði þá starfaði í nokkurn
tíma við að lesa úr stjörnu-
kortum. Einar, sem alltaf er
mikill vísindamaður í sér, kom
til mín og spurði: „í hvaða
merkjum eru þeir helst sem
koma í tíma til þín?“ Ég hugs-
aði mig um nokkra stund og
sagði síðan sannleikanum
samkvæmt: „Ætli það komi
ekki hlutfallslega fæstir úr
merkinu þínu, Steingeitinni."
Þá jjómaði andlit Einars og
hann sagði sigri hrósandi:
„Já, þetta vissi ég, við Stein-
geitur trúum ekki á svona
vitleysu."
i!!B!!!!!!!!!!!!i!!!!l'!"!!!!
GARPUR
#ð liíxa yn/?
HAM>i,TBEt-A (SErZBL) . ,s__
EíTTHVABþU A V
l3Y_
GRETTIR
BRENDA STARR
þö GETUH EJNS 1ÆZ XATAD SHSUH
DUDL ETy DULL / KOSNJNcSUNUAj^
UÓSKA
FERDINAND
\ ih // \\ /to / © 988 UnH*d Featur* Syndlcete. Inc. — —c-—^ om A rÁi i/
/. \ / w oMArULK 7 " -,-\7 . <
FIR5T m OF 5CH00L WE HAVE
T0 BE VERV CAREFUL...
WANT TO / NOT 0ECOME
LOOKTOO Wou’MARCIE!
í
Við gætum reynt þetta svona,
herra...
Eða jafiivel svona... en fyrsta
daginn í skólanum verðum við
að fara mjög varlega...
Þú vilt ekki vera of falleg.
Kaldhæðni fer þér ekki vel,
Magga.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Hugmynd sagnhafa var góð,
en hann var full bráðlátur að
hrinda henni í framkvæmd.
Suður gefur: AV á hættu.
Norður
♦ G109
VG10953
♦ 842
♦ 54
Vestur Austur
♦ 5432 ♦ —
♦ 42 |I J876
♦ G6 ♦ K1097
♦ ÁKG106 ♦D98732
Suður
♦ ÁKD876
♦ ÁKD
♦ ÁD53
♦ -
Vestur Norður Austur
Pass
Pass
Pass
Pass
2 tígiar Pass
2 grönd Pass
3 spaðar Pass
Pass Pass
Suður
2 lauf
2 spaðar
3 tíglar
6 spaðar
Útspil: laufás.
Norður afmeldar tvívegis við
alkröfuopnun suðurs, en suður
veðjar samt á slemmuna, enda
þarf hann litla hjálp frá n. akker.
Áætlunin hlýtur að ganga út
á það að nýta hjartalit blinds.
Það er því einfalt ef trompin
liggja 2-2, en 3-1-legan er erfíð-
ari viðfangs, því þá þvælist
hjartað heima fyrir. Einn mögu-
leiki er að trompa bæði laufín
og taka tvisvar trömp. Eigi vest-
ur þrílitinn í trompi er samning-
urinn í höfn, því þótt hann
trompi þriðja hjartað verður
hann að gefa slag á móti með
því að spila tígli upp í gaffalinn
eða laufi út í tvöfalda eyðu. Eigi
austur hins vegar þrílit í spaða,
verður að treysta á tígulsvin-
ingu.
En sagnhafí fann betri leið:
hann kastaði hjarta niður í lauf-
ásinn! Góð hugmynd, því nú
getur hann losað um hjartalitinn
áður en þriðja trompinu er spil-
að. Fjögur-núll-lega var þó
meira en hann þoldi.
Þetta var óþarfa fljótfæmi.
Best var að trompa útspilið hátt,
spila blindum inn á tromp og
kanna leguna. Ef báðir fylgja lit
er nú hægt að spila laufí og
kasta hjarta. í þessari legu verð-
ur hann hins vegar að svina
tíguldrottningunni og ná 12.
slagnum með tígultrompun í
borðinu.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlegu móti í Bem í Sviss,
sem lauk í síðustu viku, kom þessi
staða upp í skák sovézka stór-
meistarans Mikhail Gurevich,
sem hafði hvítt og átti leik, og
heimamannsins Fliickiger.
Úrslit á mótinu i Bern urðu
þessi: 1. Gurevich 8*/2 af 11
mögulegum, 2. Judasin (Sov-
étrikjunum) 8 v. 3. Campora
(Argentínu) 7*/2 v. 4. Cebalo.
(Júgóslavíu) 7 v. 5 Klinger
(Austurríki) 6'/2 v. o.s.frv.
Svisslendingamir á mótinu röð-
uðu sér í neðstu sætin.
Gurevich lék I þessari stöðu:
33. Hxg7+! og svartur gafst upp,
því hann tapar drottningunni efír
33. - Rxg7, 34. Re7+.