Morgunblaðið - 11.03.1989, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MARZ 1989
Sviss:
Uggandi um
að Egyptar
reisi eit-
urefiia-
verksmiðju
Ztirich. Reuter.
TALSMENN svissneska
byggingafyrirtækisins Krebs
sögðu í gær að þeir hefðu
ákveðið að rifta samningum
við egypska aðila um bygg-
ingu efnaverksmiðju í
Egyptalandi, sem svissneska
ríkisstjórnin óttast að hægt
verði að framleiða efiiavopn
í.
Talsmaður Krebs, sem er
verktakafyrirtæki með höfuð-
stöðvar í Ziirich, sagði að fyrir-
tækið hefði sent tæki til efna-
verksmiðju í Abu Zaabal, norð-
ur af Kaíró, sem Egyptar segja
að verði notuð til að framleiða
lyf.
„Svissneska utanríkisráðu-
neytið fór þess á leit við okkur
að við hættum við þetta verk-
efni, og við urðum við þeirri
ósk,“ sagði framkvæmdastjóri
fyrirtækisins, Hans Rudolf
Weber.
Talsmaður utanríkisráðu-
neytisins sagði í Bem í gær að
um nokkra hríð hefðu þeir haft
grunsemdir um að unnt yrði
að framleiða efnavopn í verk-
smiðjunni, en það væri þó með
öllu ósannað. „Þaið er hins veg-
ar hvorki í þágu Sviss né sviss-
neskra fyrirtækja að stuðla vilj-
andi eða óviljandi að útbreiðslu
efnavopna," sagði hann.
Nagorno-Karabakh:
Verkfóll
brjótast
út á ný
ARMENAR í Nagomo-Karabakh
héraði í Sovétlýðveldinu Az-
erbajdzhan hafa á ný hafið verk-
fdU tíl stuðnings kröfum sinum
um að héraðið verði aðskilið ÍBrá
Azerbajdzhan. VerkföUin, sem
hófiist á mánudag í höfuðborginni
Stepanakert, era fyrstu mótmælin
sem vitað er um frá því að stjóra
héraðsins var færð undir sérstaka
Kremlarnefnd í janúar síðastliðn-
um.
Vinna hefur lagst niður við öll
fyrirtæki í Stepanakert að matvæla-
verslunum undanskildum, að sögn
embættismanns Kommúnistaflokks
N agomo-Karabakhs.
Hann sagði að ástæður verkfalls-
ins mætti rekja til ótta Armena um
að héraðið, sem er að langmestu leyti
byggt Armenum, verði ekki aðskilið
frá Azerbajdzhan með stjómarskrár-
breytingum á þessu ári. Hann sagði
jafnframt að íbúum Nagomo-Kara-
bakh þætti seinagangur á fram-
kvæmdum áætlunar um sérstakar
aðgerðir í menningar- og efhahags-
málum héraðsins, sem Kremlarstjóm
lagði fram.
Reuter
Á meðan hart er barist í Afganistan fjölgar þeim sífeUt sem sækja
um vegabréfsáritanir í þessu stríðshrjáða landi, einkum til Indlands
og Austur-Evrópu. Hér sést götuljósmyndari taka myndir á fornfá-
lega myndavél fyrir utan indverska sendiráðið í Kabúl. Viðskiptavin-
imir bíða þolinmóðir efltir myndum á vegabréfin.
Asbest-hræðslu áróður
kostaði milljarða króna
TÆPUR milljarður danskra króna, sem dönsk yfirvöld hafa eytt í
að íjarlægja asbest-plötur úr lofltldæðningu opinberra bygginga í
Danmörku, fór í súginn, að sögn dansks læknis og prófessors við
háskólann í Óðinsvéum. Þetta kemur fram í frétt danska blaðsins
Jyllaads-Posten sem hefur jafiiframt eftir lækninum að stjóra-
málamenn hefðu átt að bíða efltir haldbetri upplýsingum áður en
þeir samþykktu Qárveitinguna.
Prófessorinn, dr. Philippe Grandje-
an, segist hafa gert könnun sem
sýni að þótt allir Danir dveldu ævi-
langt í herbergi með loftplötum úr
asbesti myndu í mesta lagi 10 (af
5 milljónum) deyja úr krabbameini
sem asbestið ætti sök á. Hann bend-
ir á að þær 900 milljónir d.kr. (sjö
milljarðar ísl. kr.) sem varið hefur
verið til endurbótanna hefðu komið
sér vel t.d. í baráttunni gegn tó-
baksreykingum og umferðaróhöpp-
Víðir Kristjánsson hjá Vinnueft-
irlitinu tjáði Morgunblaðinu að inn-
flutningur á asbesti og asbestvörum
hefði að mestu verið bannaður síðan
1983. Hins vegar hefði stofnunin
yfirleitt ekki ráðlagt mönnum að
rífa niður asbesteinangrun en til
greina kæmi að merkja plötumar í
visum tilvikum, einkum þegar þær
væru bak við aðra klæðningu, svo
að viðgerðamenn geti varast að
anda að sér asbestryki.
Afganistanher gerir loftárásir á skæruliða:
Þúsundir manna sasrðir
hafa flúið tíl Pakistans
íslamabad. Reuter.
Stjóraarherínn í Afganistan hefur gert harðar lofltárásir á stöðv-
ar skæruliða umhverfis borgina Jalalabad, sem skæruliðarnir hafa
setið um að undanfömu. Árásirnar hafá valdið miklu mannfalli og
þúsundir manna hafa flúið til Pakistans, að sögn skæruliða. Þeir
sögðu einnig að framrás skæruliða héldi áfram og þeir væru nú
skammt frá flugvellinum í Jalalabad. Afgönsk stjórnvöld skýrðu
einnig frá hörðum bardögum.
Skæruliðar hófu fyrr í vikunni
árásir á Jalalabad, sem er þriðja
stærsta borg landsins, en áformað
er að höfuðstöðvar bráðabirgða-
stjómar þeirra verði í borginni.
„Mujahideen-skæmliðar hófu á
miðvikudag harðar árásir úr öllum
áttum áttum á Jalalabad," sagði
heimildarmaður úr röðum skæru-
liða. „Þeir náðu varðstöðinni í
Saracha Pul, sem er aðeins tveimur
km frá Jalalabad, og baráttan um
flugvöllinn heldur áfram," bætti
hann við. Afganskur embættismað-
ur sagði að flugvellinum hefði ekki
verið lokað þrátt fyrir harðar árás-
ir. Hann hélt því jafnframt fram
að stjómarherinn hefði yfirhöndina
í stríðinu.
Fimmtíu skæruliðar höfðu í gær
særst síðan á fímmtudagskvöld í
loftárásum stjómarhersins en ekki
var vitað hversu margir hefðu fall-
ið. Margir hinna særðu vom fluttir
á sjúkrahús í Peshawar í Pakistan.
Bráðabirgðastjóm afgönsku
skæmliðanna hélt sinn fyrsta fund
í gær nokkmm kílómetmm fyrir
innan afgönsku landamærin. „Okk-
ar fyrsti fundur var haldinn hér en
sá næsti verður á öðmm stað í
Afganistan,“ sagði leiðtogi bráða-
birgðastjómarinnar, Sibghatullah
Mojadidi, við fréttamenn. „Við ætl-
um að halda áfram til Kabúl-borg-
ar,“ bætti hann við.
Mannréttindanefhd SÞ:
Tillögn um sér-
staka eftirlitsnefnd
á Kúbu haftiað
Mikið magn eiturlyfla gert upptækt
London. JReuter.
STARFSMENN bresku tollgæslunnar kváðust í gær hafa gert upp-
tæk 45 kg af heróíni að verðmæti 6 milljónir punda, um 520 milljón-
ir ísl. króna. Þetta er I þriðja sinn á einum sólarhring sem tollgæsl-
an kemur í veg fyrir stórháttað eiturlyfjasmygl í Englandi.
Lögreglan handtók flmmtán
manns þegar uppvíst varð um smygl
á kókaíni og kannabisefnum á
fímmtudag að verðmæti 70 milljón-
ir punda, um 6.240 milljónir ísl.
króna.
Lögreglan segist vongóð um að
umfangsmikill suður-amerískur eit-
urlyfjahringur hafí verið upprættur
þegar starfsmenn tollgæslunnar í
Portsmouth fundu 135 kg af kók-
aíni og tvö tonn af kannabisefnum
á fimmtudag. Eiturlyfín voru falin
innan um balsavið í gám sem send-
ur hafði verið frá Ekvador og kom
til Bretlands frá frönsku hafnar-
borginni Le Havre.
Baunabað
Breti að nafni Ian Hunt ákvað að safna fjármunum til góðgerðar-
starfsemi í fyrradag. Til að vekja athygli á sér greip hann til þess
uppátækis að liggja í 10 klukkustundir ofan í baðkeri fullu af bökuð-
um baunum. Baðkerinu kom hann fyrir inni á ölstofu í London.
Vonaðist hann til þess að safna eitt þúsund sterlingspundum eða
jafnvirði 90 þúsund ísl. kr.
Bretland:
Genf. Reuter.
Mannréttindanefiid Samein-
uðu þjóðanna samþykkti á
fímmtudag að halda áfram að
fylgjast með mannréttindabrot-
um á Kúbu en hins vegar var
tillögu Bandaríkjamanna um að
senda sérstaka efltirlitsnefiid tO
Kúbu hafiiað.
Bandaríkjamenn höfðu einnig
lagt til að mannréttindanefndin
fjallaði sérstaklega um mannrétt-
indabrot á Kúbu á næsta ári. Þessu
var einnig hafnað en þess í stað
var samþykkt ályktun, sem Suður-
og Mið-Ameríkuríki lögðu fram og
Kúbveijar studdu, þess efnis að
kúbversk stjómvöld skýrðu aðalrit-
ara Sameinuðu þjóðanna reglulega
frá mannréttindaþróuninni á Kúbu.
Ennfremur er kúbverskum stjóm-
völdum þakkað fyrir samstarfið við
nefnd Sameinuðu þjóðanna, sem
send var til Kúbu í september. í
skýrslu sem nefndin skilaði voru
Kúbveijar ekki sakaðir um mann-
réttindabrot. Ályktunin var sam-
þykkt með 32 atkvæðum gegn einu
og tíu sátu hjá.
Kúbverska fréttastofan Prensa
Latina fagnaði ákvörðun mannrétt-
indanefndarinnar og sagði að
Bandaríkjamenn hefðu beðið mik-
inn ósigur í atkvæðagreiðslunni.
Bretland:
Starfeþjálf-
un fyrir at-
vinnulausa
Newcastle. Reuter.
MARGARET Thatcher, for-
sætisráðherra Bretlands,
kynnti í gær áætlun um
starfsþjálfun fyrir atvinnu-
lausa og vonast hún til þess
að þjálfunin nuuii í senn efla
breskan iðnað og draga úr
atvinnuíeysi. Fyrirhugað er
að veita þremur milljörðum
punda (270 milljörðum ísl.
kr.) í verkefiiið.
Áformað er að koma á fót
100 nefndum víðs vegar um
landið er fái það hlutverk að
skipuleggja námskeið, sem
frammámanna í iðnaði sæju um
í samráði við verkalýðsleiðtoga
og sveitarstjómarmenn. At-
vinnulaust ungt fólk fær þar
starfsþjálfun og eldra fólk, sem
misst hefur vinnuna, fær end-
urmenntun.
Norman Fowler, vinnumála-
ráðherra Bretlands, sem var
ásamt ásamt forsætisráðher-
ranum á ferð um Norður-
England til að kynna áætlun-
ina, sagði að nefndimar myndu
starfa sem sjálfstæð smáfyrir-
tæki. Hann sagði að sú fyrsta
hæfí störf eftir eitt ár.