Morgunblaðið - 15.03.1989, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 15.03.1989, Blaðsíða 27
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1989 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, ÁrniJörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 900 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 80 kr. eintakið. Samruni risa á fíölmiðlavettvangi Nýlega bárust fréttir um að tveir risar í bandaríska fjölmiðlaheiminum, Wamer og Time, hefðu sameinast og myndað stærsta fjölmiðlafyrir- tæki heims. Time Wamer fyr- irtækið er metið á 18 milljarða dollara eða 900 milljarða íslenskra króna og árstekjur þess eru um 10 milljarðar doll- ara eða 500 milljarðar íslenskra króna. Steven Ross, stjómarformaður Wamers, sagði í tilefni af sameining- unni: „Aðeins mjög öflug, bandarísk fyrirtæki munu lifa af samkeppnina og breyting- amar, sem verða með tilkomu innri markaðar Evrópubanda- lagsríkjanna 1992.“ Nýja fyr- irtækið verður hið stærsta í heimi í tónlistarútgáfu, tíma- rita- og bókaútgáfu, kvik- myndagerð og kapalsjónvarpi. Ástæða er fyrir almenning um heim allan að gefa þessari frétt gaum. Fyrirtæki sem þetta snertir okkur hvert og eitt, sem lifum í fijálsum þjóð- félögum, þar sem ekki eru sett- ar hömlur á dreifíngu upplýs- inga, frétta, prentaðs máls, kvikmynda, myndbanda, sjón- varpsefnis og tónlistar á bönd- um, plötum eða diskum. Ætlun þeirra sem að sameiningunni standa er að halda sínum hlut á hinum alþjóðlega markaði og bregðast við nýjum aðstæð- um. Flestum þykir líklega óþarfí fyrir bandarísk fyrirtæki í þeim viðskiptum, sem hér er um að ræða, að hafa áhyggjur af stöðu sinni á alþjóðlegum markaði. Hér á landi sem víða annars staðar þykir mörgum nóg um yfírburði bandarískra fyrirtækja á þessu sviði og meira en nóg af framleiðslu þeirra flæði nú þegar yfír alla heimsbyggðina. Frá sjónarhóli þeirra sem stjóma bandarísku fjölmiðlarisunum horfír málið greinilega öðru vísi við. Er ekki að efa að þeir hafa látið rannsaka til hlítar, hver áhrif samruninn innan Evrópu- bandalagsins hafí á stöðu þeirra. I stað þess að keppa hvor í sínu homi ákveða þeir að taka saman höndum til að standa betur að vígi við nýjar aðstæður. Samruni fyrirtækja á þessu sviði viðskipta vekur jafnan meiri athygli en þegar þeir taka höndum saman sem starfa á annars konar vett- vangi, þar sem bein tengsl við milljónir manna ef ekki millj- arði eru ekki fyrir hendi. Fjöl- miðlun í víðtækustu merkingu þess orðs verður sífellt mikil- vægari á upplýsingaöld og menn velta því alls staðar fyr- ir sér, hvemig þeir eiga að bregðast við þeim byltingar- kenndu umskiptum, sem nú em að verða bæði vegna tækn- innar og aukinnar samvinnu á öllum sviðum. Vangaveltumar snúast um hvort tveggja fjár- hagslega aðstöðu og menning- arleg áhrif. Við lifum umróts- og bylt- ingartíma í íslenskri fjölmiðlun og höfum ekki enn séð fyrir endann á því sem afnám einok- unar ríkisins á útvarpsrekstri hefur í för með sér. Þá er Ijóst, að við núverandi aðstæður gengur ekki til lengdar fyrir stjómmálaflokka eða aðra að reka málgögn sín með tapi. Þar koma meðal annars til breytingamar, sem hafa orðið á íslenskum fjármagnsmark- aði. Tvær útvarpsstöðvar einkaaðila, Bylgjan og Stjam- an, hafa ákveðið að taka hönd- um saman til að styrkja stöðu sína. Umræður um framtíð Þjóðviljans, sem skuldar tugi milljóna króna, hafa að nokkm beinst í þá átt, hvort flokkar á vinstri væng geti tekið hönd- um saman og staðið að útgáfu blaðs, sem gæti staðið á eigin fótum fjárhagslega og efnis- lega. Á því er mikill munur, þegar litið er til stærðar og áhrifa, hvort rætt er um sammna risa á borð við Time og Wamer eða samstarf eða samruna fjöl- miðlafyrirtækja á Islandi. Á hinn bóginn er munurinn lítill sem enginn, ef tekið er mið af yfirlýstum tilgangi slíkra aðgera, sem sé því að gera fyrirtæki betur í stakk búin til að sinna hlutverki sínu og standa sig á hinum almenna markaði. Hvorki hér né annars staðar blómstra þeir sem standa á brauðfótum, hvort heldur þeir sinna fjölmiðlun eða einhverju öðm. Versta aðstaðan er þó sú að neita að horfast í augu við veika eigin stöðu og halda áfram að basla án þess að hafa fast land und- ir fótum. Er það kannski íslenska leiðin? AF INNLENDUM VETTVANGI STEINGRÍMUR SIGURGEIRSSON Kosið til Stúdentaráðs í dag: Almenn pólitík eða hagsmunir stúdenta? í DAG ganga stúdentar í Háskóla íslands til kosninga og kjósa helm- ing þeirra 30 fiilltrúa er sitja í Stúdentaráði, þar af tvo fulltrúa i Háskólaráð. Likt og á siðasta ári eru tveir listar í boði, listi Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, og listi Röskvu, samtaka félags- hyggjufólks, sem bauð firam í fyrsta sinn í siðustu kosningum, eftir samruna Félags vinstri manna og Félags umbótasinnaðra stúdenta. í siðustu kosningum hlutu Vökumenn 8 fulltrúa, af þeim 15 sem kosið var um, en Röskva 7. Þar sem Vökumenn höfðu 7 fulltrúa fyrir og Félag vinstri manna og Umbar 8 til samans kom upp patt- staða í Stúdentaráði. Hvor fylkingin um sig hafði 15 fiilltrúa. Náð- ust samningar um að Vaka færi með stjórn Stúdentaráðs í vetur en Röskva fengi m.a. fulltrúa stúdenta i Lánasjóð íslenskra náms- manna. Sambúð fylkinganna tveggja hefur verið stormasöm á köfl- um. í janúar lýsti Röskva þvi yfir að málefhasamningurinn við Vöku væri ógildur og bar fram vantrauststillögu á stjórnina sem féll á jöfhum atkvæðum. Ágreiningurinn snerist um hækkun tekjutillits við útreikning námslána úr 35% i 50%. Vildu Röskvumenn fállast á hækkun þegar í stað en Vökumenn bfða þar til skerðing námslána hefði verið bætt að fullu. Báðar fylkingarnar eru þó að mörgu leyti ánægðar með árangur vetrarins og fagna hækkun námslána og þvi að komið hefur verið böndum á rekstur Stúdentaráðs. Deilt um leiðir og eðli Stúdentaráðs Samstaða virðist vera milli fylk- inganna um helstu málefni þó ein- hver ágreiningur kunni að vera uppi um hvaða leiðir eigi að fara í þeim efnum. Er deilan um tekjutil- litið gott dæmi um það. Hún snýst í raun ekki um meginatriðið, það er að skerðingu námslána beri að afnema, en um það eru báðar fylk- ingamar sammála, heldur er hún tæknilegs eðlis, það er á hvaða stigi beri að hækka tekjutillitið. Nú þeg- ar, eða þegar búið er að afnema skerðinguna að fullu, í janúar á næsta ári. Ágreiningur Vöku og Röskvu virðist fyrst og fremst snúast um hvert eigi að vera eðli og hlutverk Stúdentaráðs. Deilan um útvarps- stöðina Rót er líklega táknræn um þau mismunandi sjónarmið sem þar eru uppi. Stúdentaráð gerðist hlut- hafi í Rót undir stjóm Vinstri manna og Umbótasinna veturinn 1986-87. Vökumenn hafa á þessu ári lagt til að hlutabréf Stúdenta- ráðs í Útvarpi Rót verði seld og hafa borist nokkur tilboð í þau. Halda þeir því fram að hlustun á stöðina sé lítil sem engin, hvorki meðal stúdenta né annarra, og þjóni það því ekki hagsmunum stúdenta að taka þátt í þessum rekstri. Röskvuliðar hafa hins vegar neitað að selja hlutabréfin og vilja áfram- haldandi þátttöku Stúdentaráðs. Þá hefur verið deilt um aðild Stúdenta- ráðs að Suður-Afríkusamtökunum, sem Vaka hafnaði, sem og tillögu Röskvu um að Stúdentaráð héldi ráðstefnu um Afríska þjóðarráðið. Fylkingamar deila líka hart um innritunarkröfur í Háskólann. Vaka vill að áfram verði stuðst við.stúd- entspróf en Röskva vill að allir þeir er náð hafa 26 ára aldri fái að hefía nám í Háskólanum. Ekki almenna pólitíska umræðu Vökumenn leggja mesta áherslu í þessum kosningum á að Stúdenta- ráð sé ekki vettvangur almennrar pólitískrar umræðu heldur eigi ráð- ið einvörðungu að vinna að hags- munamálum stúdenta. Þetta rökstyðja þeir m.a. á þann hátt að skylduaðild sé að Stúdentaráði, samkvæmt lögum um Háskóla ís- lands, og sé sú skylduaðild rökstudd með því að ráðið vinni að hagsmun- um þeirra. Telja þeir það grundvall- arbrot á mannréttindum að skylda fólk til þátttöku í pólitísku félagi. Einnig benda þeir á, að Röskva, sem vilji ræða t.d. utanríkismál innan Stúdentaráðs, hafi aldrei kynnt stúdentum neina stefnu í þeim málaflokki. Skoðanakönnun sem gerð var af SKÁÍS í vetur bendir til að þetta sjónarmið Vökumanna eigi nokkum hljómgrunn meðal stúdenta. í könn- uninni sögðust 81% stúdenta vera á móti því að Stúdentaráð ræddi pólitísk mál. Sveinn Andri Sveinsson, formað- ur Stúdentaráðs, segir að eitt meg- inmarkmiðið í vetur hafí verið að opna Stúdentaráð fyrir stúdenta og auka allt samband við þá. Við upp- haf vetrar hafi verið settar upp stór- ar auglýsingatöflur í flestar bygg- ingar Háskólans þar sem hengdar hafí verið upp fundargerðir, auglýs- ingar og tilkynningar um t.d. fundi. Þetta hafi aldrei áður verið gert. Þá hafí fréttaflutningur frá Stúd- entaráði verið stóraukinn. Gefin hafi verið út tíu fréttablöð og miðað við að þau kæmu ekki síðar út en viku eftir Stúdentaráðsfund. Loks hafí verið ákveðið að ljúka vetrar- starfínu á því að dreifa úrdrætti úr skýrslu stjómar til allra stúd- enta. Fullyrti Sveinn Andri að upp- lýsingamiðlun til stúdenta hefði aldrei verið meiri. Skoðanakannanir á vegum SKÁÍS væra líka vísbend- ing um að þetta hefði skilað sér. í fyrra hefðu 60% stúdenta ekki haft skoðun á starfinu í Stúdentaráði en nú væri sú tala farin niður i 40%. Þessi aukna kynningarstarfsemi hefði líka komið deildar- og skorar- félögum til góða. Þau hefðu getað kynnt sína starfsemi mun betur en áður þar sem hægt hefði verið að treysta á tímasetningu útgáfu. Meginmarkmiðið með útgáfustarf- Kartöflur: Hvað kostar innflutníngsbannið? eftirÞorvald Gylfason Það var í morgunútvarpinu fyrir mörgum áram, að talsmaður kart- öflubænda var inntur eftir því, hvequ það sætti, að skemmdar kartöflur væra seldar fullu verði í verzlunum og hvers vegna í ósköp- unum þær væra ekki fjarlægðar úr búðunum eða þá að minnsta kosti lækkaðar í verði. Þessu svar- aði erindrekinn með þjósti: „Ekki myndu þær batna við það!“ Þessi saga kemur í hugann nú, þegar kartöflumálin era enn á ný á allra vörum. Hvert kíló af kartöfl- um kostar nú um 115 krónur í búðum. Kaupmenn hafa sagzt mundu geta boðið kartöflur fyrir 35 krónur hvert kíló, ef innflutning- ur erlendra kartaflna væri gefinn frjáls. Mismunurinn er 80 krónur á hvert kíló. Heildameyzla kartaflna nemur nú um 160 kílóum á hveija fíögurra manna fjölskylduí landinu á ári að meðaltali. Hver fjölskylda greiðir þess vegna um 13.000 krón- um meira fyrir kartöflur á hveiju ári en hún þyrfti að greiða, ef inn- flutningur væri fijáls. Heimilin í landinu greiða því um 800 milljón- um króna meira fyrir kartöflur á hveiju ári en þau þyrftu. Það munar um minna fé. Til sam- anburðar kostar rekstur allra grannskóla í Reykjavík 987 milljón- ir króna á þessu ári samkvæmt fjár- lögum. Það væri með öðram orðum hægt að tvöfalda fjárveitingu ríkis- ins til grunnskólanna eða því sem næst með því einu að afnema kart- öfluinnflutningsbannið. Rekstur allra menntaskóla í landinu kostar 584 milljónir króna á þessu ári. Afnám innflutningsbannsins myndi skila þeirri upphæð á 9 mánuðum. Fjárveitingar ríkisins til menningar- mála nema 1.086 milljónum króna alls í ár samkvæmt fjárlögum, en þá er meðal annars átt við öll fram- lög ríkisins til safna, leikhúsa, hljómsveita, kvikmyndagerðar, náttúruvemdar, vísindarannsókna, og æskulýðs- og íþróttamála. Þess- ari fjárhæð myndi afnám innflutn- ingsbannsins skila á 16 mánuðum og þannig áfram. Það væri sem sagt hægt að auka fjárveitingai MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1989 í 27 seminni almennt hefði verið að hún ætti ekki að vera fjárhagsleg byrði á stúdentum. „Við viljum ekki borga með útgáfunni heldur nota þá fíár- muni sem sparast í góð málefni. Halli Stúdentablaðsins veturinn 1987-88 var 1,6 m.kr. en hefur í vetur verið 200.000 kr. Þessi spam- aður samsvarar framlögum Stúd- entaráðs í Byggingarsjóð stúdenta og hinum auknu framlögum í fé- lagslíf stúdenta." Sveinn Andri sagði að þjónusta Stúdentaráðs hefði einnig stórauk- ist í vetur. Húsnæðismiðlun stúd- enta hefði verið endurreist og gerð- ur samningur við Almennar tiygg- ingar um leigjendaábyrgð sem hefði orðið til að stórauka framboð á þessum vetri. Hefði húsnæðismiðl- unin haft milligöngu um 135 samn- inga í vetur samanborið við 35 vet- urinn þar áður. Atvinnumiðlun stúdenta hefði einnig verið mjög virk og þjónustan víkkuð út með stofnun hluta-..og ígripastarfamiðl- unar. Þá hefði verið stoftiuð Rétt- indaskrifstofa stúdenta. Fyrir henni væri gert ráð í lögum um Stúdenta- ráð en hún ekki verið starfrækt hingað til. Sagði Sveinn að Rétt- indaskrifstofan hefði tekið að sér málefni tíu einstaklinga sem hefðu rekist um í kerfinu. Reksturinn hallalaus í vetur Loks hefði fjárhagur Stúdenta- ráðs verið reistur úr rústum. Þegar Vaka tók við af meirihluta vinstri manna hefði verið tekið við 2 millj- óna króna skuldabagga. Til dæmis hefðu ekki verið greidd opinber gjöld allt það ár. Þessi skuldabaggi hefði tekið veralegan hluta af þeim fjármunum sem hefðu verið til ráð- stöfunar í vetur en stjómin hefði einsett sér að skila góðu búi samt sem áður. Rekstrargjöld hefðu verið skorin niður en þrátt fyrir það náðst að auka framlög í Byggingarsjóð stúdenta úr 0 í 600.000 þús. krónur og um eina milljón króna f félagslff- ið. „Við skilum af okkur hallalausu búi og höfum ekki þurft að fara út í neins konar greiðslustöðvun líkt og fyrri meirihluti," sagði Sveinn Andri og bætti við að stjómarand- staðan hefði f málflutningi sfnum reynt að þakka þetta allt þeirri stefnu sinni að hækka innritunar- gjöld. „Það er vissulega rétt að tekj- ur SHI hafa aukist á milli ára vegna þessa, en sá tekjuauki hefur horfið í þá skuldahít sem við tókum við, svo og í kostnaðarsama tölvuvæð- ingu. Meginástæða þess að við get- um aukið framlög í félagslíf stúd- enta og í Byggingarsjóð stúdenta er sú að við höfum snúið við of- boðslegum halla á útgáfunni. Bros- legt er einnig að fylgjast með því hvemig Röskva hefur rejmt að af- saka stórfelldan niðurskurð sinn á sfnum tíma f félagslíf stúdenta og ekkert framlag í Byggingarsjóð, með því að stúdentum hafi fækkað svo mikið það árið. Stúdentunum fækkaði um 100 sem þýðir um 1-200.000 kr. Þetta era því allt hlægilegar blekkingar." Þrátt fyrir mikið starf varðandi umbætur á rekstri og aukningu á þjónustu Stúdentaráðs sagði Sveinn að lang stærsta verkefni stjómar- innar hefði verið lánamálin. „Þegar ný ríkisstjóm tók við í vetur höfðum við sóknarfæri þar sem hinn nýi menntamálaráðherra hafði lofað miklu áður en hann settist í stólinn. Við hófum gífurlega herferð og kröfðumst þess að þau loforð yrðu efnd. Ráðherrann varð að láta und- an og liggja nú fyrir tillögur um afnám skerðingarinnar. Það verður hins vegar að segjast að stjómar- andstaðan í Stúdentaráði leit á þetta sem formsatriði og taldi ekki möguleika á að ná neinu f gegn.“ Niðurstaða þessa starfs hefði verið að ráðherra skipaði vinnuhóp til að finna leiðir til að afnema fiysting- una og hefði sá vinnuhópur í mörgu unnið ágætt starf. Fýlkingamar deildu hins vegar um tekjutillitið. Að mati Vöku væri það verslunar- vara sem ætti að nota í skiptum fyrir hærri lán. Það mætti þó aldrei fara yfír 50%. Styrkur og veikleiki í verkefiiaskiptingunni „Við höfum einbeitt okkur að námslánunum í vetur og afnámi skerðingar þeirra," sagði Amar Guðmundsson, oddviti Röskvu í Stúdentaráði. „Einnig höfum við lagt áherslu á föst framlög f Bygg- ingarsjóð.“ Amar sagðist telja að í verka- skiptingunni í Stúdentaráði í vetur hefði falist bæði styrkur og veik- leiki. Styrkurinn fælist í því að Stúdentaráð hefði náð langt á mörgum sviðum. Vökumenn hefðu að hans mati unnið mjög gott starf varðandi endurskipulagningu rekst- ursins en Röskvumenn varðandi Byggingarsjóðinn og LÍN. „Mér sýnist vera málefnalegur ágreining- ur varðandi lánamálin. Námslán hafa verið skert undanfarin ár en tekjutillitið lækkað. Þetta þýðir að peningar era færðir frá þeim sem vinna sumarvinnu til þeirra sem hafa hærri tekjur." Ámar sagði allar námsmannahreyfingamar hafa mótmælt því þegar tekjutillitið var lækkað niður í 35% þar sem Sveinn Andri Sveinsson, Vöku, formaður Stúdentaráðs: „ Vökumenn telja að hægft sé að vinna sam- an að hagsmunamál- unum af heilindum en þá verður að halda ai- mennri pólitík fyrir utan til að spilla ekki andrúmsloftinu.“ þetta fjármagn hefði betur verið notað í hærri námslán. Aðspurður um hversu hátt tekjutillitið mætti vera sagði hann það vera sfna per- sónulegu skoðun að það ætti ekki að fara yfir 50%. „Okkur þykir það sérkennileg stefna hjá Vöku að hafa viljað hafna þessu samkomu- lagi í þágu þeirra námsmanna sem hafa hæstar tekjur og þurfa þvf minna á lánum að halda. Okkar krafa til stúdentaráðsliða er að þeir séu kosnir til að sinna hagsmunamálum. Það getur þó komið upp sú staða að í Stúdenta- ráði þurfi að taka á pólitfskum málum. Stúdentaráð verður að taka á málum á borð við matarskattinn þó að það komi illa við einhveija stjóramálaflokka." Varðandi umræðu um utanríkis- mál í Stúdentaráði sagði Arnar að árlega kæmu upp 1-2 mál þar sem leitað væri til Stúdentaráðs um stuðning t.d. gegn mannréttinda- brotum. „Við lítum þannig á að við hljótum að taka málefnalega af- stöðu til slíkra erinda. Viljum við Arnar Guðmundsson, oddviti Röskvu í Stúdentaráði: „Okkar krafa til stúd- entaráðsliða er að þeir séu kosnir til að sinna hagsmunamálum. Það getur þó komið upp sú staða að í Stúdenta- ráði þurfí að taka á pólitískum málum.“ styðja það? Getum við stutt það? Höfum við tíma til að sinna því? Ákvarðanir um svona mál á að taka innan Stúdentaráðs því annars er það gert annars staðar. Þetta þarf alls ekki að bitna á hagsmunabar- áttu Stúdentaráðs. Við eram ekki talsmenn þess að álykta út um holt og hóla en viljum styðja réttinda- baráttu í öðram löndum." Þegar hann var spurður hvar ætti að draga mörkin í þessum efn- um sagði Amar að það yrði Stúd- entaráð að meta hveiju sinni. Hags- munir námsmanna yrðu að ráða. Skilinskýr Þegar vinstri menn og umbóta- sinnar sameinuðust á sfðasta ári var talað um að skilin yrðu skarp- ari með færri framboðum. Amar telur að sú hafi orðið raunin. „Ég held að skilin séu mjög skörp. Við eram að kjósa um áframhald á öflugri lánamálabaráttu sameinaðr- ar námsmannahreyfingar og fram- hald á félagslegri uppbyggingu fyr- ir stúdenta. Þetta er það sem Röskva býður upp á. Hins vegar era einhveijar óljósar kröfur uppi um að Stúdentaráð eigi að verða hlutlaust nemendafélag." Hann taldi árangurinn í vetur í fjármögnun Félagsstofnunar og lánamálunum sýna ótvfrætt að Röskva hefði skýra pólitíska stefnu. Vaka hefði að mörgu leyti staðið sig vel en Röskva hefði kosið að fylkingamar hefðu getað starfað saman af meiri heilindum. Til dæm- is hefðu Vökumenn tekið sér ger- ræðisvald varðandi sum mál. Sveinn Andri Sveinsson sagði aðspurður að munurinn á milli fylk- inganna fælist fyrst og fremst í mismunandi afstöðu til Stúdenta- ráðs. Hvort það ætti að vera hags- munafélag stúdenta einvörðungu eða pólitfsk stofnun sem ályktaði fyrir hönd stúdenta. „Vökumenn telja að hægt sé að vinna saman að hagsmunamálunum af heilindum en þá verður að halda almennri pólitfk fyrir utan til að spilla ekki ■ andrúmsloftinu." Meirihluti Vöku eða pattstaða? Ómögulegt er að spá um úrslit kosninganna í dag. Oft geta örfá atkvæði riðið baggamuninn. Þegar kosið var á sfðasta ári munaði 32 atkvæðum á fylkingunum, Röskva hlaut 933 atkvæði og Vaka 965 atkvæði, eða 51%, sem var mesta kjörfylgi félagsins sfðan árið 1966. í kosningunum 1987 fékk Félag vinstri manna 756 atkvæði og sex menn, Félag umbótasinnaðra stúd- enta 388 atkvæði og tvo menn, og Vaka fékk 868 atkvæði og sjö menn kjöma. Ef úrslitin nú verða sam- bærileg við úrslit síðustu tveggja ára má búast við annaðhvort hrein- um meirihluta Vökumanna eða áframhaldandi pattstöðu. Litlar líkur er á hreinum meirihluta Röskvu þar sem til þess þyrfti 9 fulltrúa af þeim 15 sem kosið er um. Þorvaldur Gylfason rfkisins til menningarmála um næstum 75% til frambúðar með því einu að afnema kartöfluinnflutn- ingsbannið! Og það væri Iíka hægt að skila þessum 800 milljónum til almennings milliliðalaust, til dæmis „Frjáls innflutningnr kartaflna myndi sem sagt spara fólkinu í landinu 800 milljónir króna eða um 13.000 krónur á hvert heimili að meðaltali á hveiju ári.“ með því að lækka kartöfluverð nið- ur í 35 krónur hvert kíló eða með því leggja 80 króna skatt á hvert kíló af kartöflum til þess að halda kartöfluverðinu óbreyttu og lækka aðra skatta til mótvægis um næst- um 13.000 krónur á hveija fjögurra manna fíölskyldu á ári að meðaltali. Fijáls innflutningur kartaflna myndi sem sagt spara fólkinu í landinu 800 milljónir króna eða um 13.000 krónur á hvert heimili að meðaltali á hveiju ári. Hvers vegna í dauðanum er kartöfluinnflutning- ur þá ekki gefinn fijáls? Svarið er einfalt. Afnám innflutningsbanns- ins strandar á stjómmálamönnum. Þeir gætu aflétt banninu með einu gennastriki, en þeir gera það ekki. Ýmsir þeirra tala að vísu fjálglega um fijálsa samkeppni, þegar þeim hentar, en þegja þunnu hljóði um fijálsan kartöfluinnflutning. Aðrir bera því við, að innflutningsbann sé nauðsynlegt til þess að vemda kartöflubændur gegn erlendri sam- keppni. Og hvað era kartöflubændumir margir? Samkvæmt upplýsingum Hagstofu íslands era þeir um 100, en þá er átt við fíölda ársverka við kartöflurækt. Þetta þýðir það, að vemdin kostar neytendur um 8 milljónir króna á ári á hvem kart- öflubónda að meðaltali! Jafnvel þótt hveijum kartöflubónda væru greiddar 8 milljónir króna í skaða- bætur fyrir að þurfa að hafa fyrir því að fá sér önnur og hagfelldari verk að vinna, þá myndi fólkið í landinu eftir sem áður hagnast um 800 milljónir króna eða jafngilda upphæð á hveiju ári framvegis. Öðram kosti væri til dæmis hægt að spara 600 milljónir króna á hveiju ári með því að greiða hveij- um kartöflubónda 2 milljónir á ári fyrir að rækta ekki kartöflur. Þetta nær auðvitað engri átt. Ef stjómmálamennimir vilja endilega vemda innlendan kartöflubúskap gegn heilbrigðri samkeppni, þá eiga þeir að gera það án þess að mis- bjóða heilbrigðri skynsemi. Það er enginn vandi að vemda kartöflu- bændur til dæmis með því að leyfa kartöfluinnflutning og leggja toll á hann til bráðabirgða til þess að gefa bændum tækfæri og tíma til þess að laga sig að nýjum aðstæð- um. Vemdartollinn væri síðan hægt að lækka í áföngum og afnema hann á endanum. Þetta þurfti íslenzkur iðnaður að sætta sig við á sínum tfma til mikilla hagsbóta fyrir almenning, og þykir engum mikið. Hví skyldu kartöflubændur ekki sitja við sama borð? Eitt enn að endingu. Kartöflu- málið er aðeins tindur jakans. Und- ir yfirborðinu leynist margfalt meiri sóun en hér hefur verið lýst. Stjóm- málamennimir sóa ekki aðeins 800 milljónum króna á ári af aflafé al- mennings annaðhvort í hugsunar- leysi eða til að þóknast þröngum sérhagsmunum kartöflubænda, heldur sólunda þeir mörg þúsund milljónum króna á ári í margt ann- að af svipuðu tagi í þokkabót. Þess vegna era ekki til peningar til þess að borga kennuram viðunandi laun, jafnvel þótt alvarlegur vandi steðji að öliu skólastarfí í landinu langt fram í tímann vegna ónógs og ófull- nægjandi kennaraliðs. Þess vegna eru ekki til peningar til þess að hlynna sómasamlega að menning- arlífinu í landinu, jafnvel þótt marg- ar mikilvægustu menningarstofn- anir þjóðarinnar búi við smánarlega þröngan kost Og þess vegna býr fíöldi fólks á íslandi við miklu lak- ari kjör en efnahagur þjóðarinnar gefur tilefni til. Höfundur erprófessor í hagfræði við Háskóla Islands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.