Morgunblaðið - 15.03.1989, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 15.03.1989, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. MARZ 1989 Athugasemd við fi’étt í Morgunblaðinu eftir Torfa K. Stefánsson Hjaltalín AÐ GEFNU tilefhi vil ég gera athugasemd við frétt sem birtist í Morgunblaðinu 10. mars. Einn blaðamanna Morgunblaðs- ins taldi ástæðu til að upplýsa les- endur blaðsins um það, að séra Sig- urður Haukur Guðjónsson, sóknar- prestur í Langholtskirkju, hafi ekki notað „messuskrá biskupsstofu" við messu á æskulýðsdegi þjóðkirkj- unnar þann 5. mars síðastliðinn. Forsaga þessarar sérkennilegu fréttar er sú, að fjórblöðungur sem hafði að geyma messuskrá, auk ávarps biskups og söng „æskulýðs- dagsins", hafði verið sendur út í tilefni dagsins. Slíkt hefur verið gert í fjölda mörg ár með það að markmiði að kojna á tilbreytingu í messunni og að auka hlut fjöl- skylduguðsþjónustunnar í helgi- haldinu. Ekki hefur þó verið skylt að nota messuskrána. Þar til fyrir tveimur árum hefur yfírleitt verið sent út hefti með upplýsingum um „efni“ æskulýðsdagsins, ávarpi biskups og messuskrá og prestum í sjálfsvald sett hvort og hvemig þeir noti það. Þó hefur verið talið eðlilegt að ávarpi biskups væri kom- ið á framfæri við kirkjugesti, hvort heldur sem það er afhent (og heftið í heild) þeim, lesið upphátt af sókn- argresti eða sérprentað. I fyrra var gefin út sér messu- skrá fyrir fjölskylduguðsþjónustu, sem nota mætti við slíkar guðs- þjónustur allt árið um kring. Prest- um var boðið að panta slíka messu- skrá fyrir æskulýðsdaginn, en fáir gerðu það. Því var ákveðið að prenta stórt upplag af messu- skránni fyrir æskulýðsdaginn í ár og senda öllum sóknarprestum (eins og reyndar oft hefur verið gert áður). Tveir söngvar, sem þýddir hafa verið úr sænsku, vom þar prentaðir sem mætti syngja. Annar þeirra hefur verið í notkun í kirlq- unni í mörg ár og er einn vinsæl- asti söngurinn í barna- og unglinga- starfi hennar. Því var tekin ákvörð- un um það á síðasta ári, að hafa þann söng sem fastan lið í flöl- skylduguðsþjónustunni. í ár var það sama gert, enda ekki ráðlegt að breyta árlegu því messuformi sem verið er að reyna að koma á. Þess má geta að bæði í Noregi og Svíþjóð Vönduð heildarútgúfa AB ú Ijóðum Tómasar Guð- mundssonar — óskaskálds Reykjavíkur. Glæsilega innbundið með kápuskreytingu eftir listamanninn Torfa Jónsson. Kristján Karlsson skrifar afar glöggan og skarpsýnan formála sem gefur okkur ómetanlega innsýn í hugar- heim skáldsins. Kvœði Tómasar skipa veglegan sess í hugum fslend- inga og œttu að vera sjálfsögð á hverju heimili. Fermingargjöf sem njóta má um aldur og œvi. Torfi K. Stefánsson Hjaltalín „Gagnrýni á fyllsta rétt á sér, en hún verður að berast rétta boðleið til þeirra sem eiga að taka hana til sín, en ekki komið þannig á fram- færi að viðkomandi fái fyrst að heyra og sjá slíka gagnrýni í jQöl- miðlum.“ er þessi söngur fastur liður í hverri fjölskylduguðsþjónustu. Þýðandi textans Lilja S. Kristjánsdóttir, er enginn viðvaningur í textagerð. Hún á alls 17 texta, þýdda og fmmsamda, í söngbókinni „í lífi og ieik“, sem gefin var út af Skál- holtsútgáfunni og æskulýðsstarfi þjóðkirkjunnar árið 1984 og hefur verið endurprentuð þrisvar sinnum! Margir þeir söngvar, sem Lilja hef- ur gert texta við, em einhveijir vin- sælustu söngvamir í bama- og unglingastarfi kirkjunnar og er hún að mínu mati einn besti þýðandi, sem æskulýðsstarf þjóðkirkjunnar hafur haft. Söngurinn „Stjörnur og sól“ er engin undantekning þar á. Hinn söngtextinn er söngur æskulýðsdagsins í ár, „Vér reisum upp merki". Þýðandi hans, Ingólfur Steinsson, er heldur enginn viðvan- ingur í söngtextagerð, né tónlistar- iðkun. Hann er fyrmm liðsmaður hljómsveitarinnar „Þokkabót", sem vakti athygli á sínum tíma fyrir vandaða og innihaldsríka texta. Ingólfur átti þar marga texta, sem notið hafa vinsælda. Fyrir æsku- lýðsdaginn í ár þýddi Ingólfur, ásamt séra Kristjáni Val Ingólfs- syni, söngtextana í söngleiknum „Brauðundrið", og var söngleikur- inn fluttur á æskulýðsdegi, bæði í útvarpsmessu á rás eitt, svo í Bú- staðakirkju þá um kvöldið. Em flestir þeir sem ég hef rætt við sam- mála um, að þeir textar allir hafi komið vel út og hefur Sjónvarpið komið að máli við okkur og lýst vilja sínum á að flytja hluta hans í Stundinni okkar nú á næstunni! Það er ekkert því til fyrirstöðu af okkar hálfu hér á biskupsstofu að nýta starfskrafta Ingólfs og Lilju, og ég vona að fréttaflutning- ur sem þessi komi ekki í veg fyrir það, að góðir þýðendur og textahöf- undar, eins og þau tvö, fáist til að þýða og semja fyrir íslensku þjóð- kirkjuna. Gagnrýni á fyllsta rétt á sér, en hún verður að berast rétta boðleið til þeirra sem eiga að taka hana til sín, en ekki komið þannig á framfæri að viðkomandi fái fyrst að heyra og sjá slíka gagnrýni í §ölmiðlum. Mál eins og þeta er auðvitað „innanhússmál", ekki fjöl- miðlamatur. Einnig vil ég beina þeirri spum- ingu til fréttastjóra Morgunblaðs- ins, hvort hann telji ekki eðlilegra að birta hlutlausar fréttir af því sem fór fram á æskulýðsdeginum, eins og sjónvaipsrásimar tvær gerðu, í stað þess að vera með þennan nei- kvæða fréttaflutning? Að lokum vil ég benda á að æsku- lýðsstarf á vegum safnaða landsins er mjög blómlegt og full ástæða til að gera því betri skil en gert er í fjölmiðlum landsins, Morgunblaðinu sem öðmm. Virðingarfyllst. Höfundur er œskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar. Beðið eftir aðabiámskrá eftir Guðmund Magnússon Frá því var greint í Þjóðviljanum 8. mars sl. að drög að nýrri aðal- námskrá gmnnskóla lægju nú á borði Svavars Gestssonar, mennta- málaráðherra. Kvað blaðið það ætl- un ráðherrans að gefa drögin út fyrir lok þessa mánaðar svo þau yrðu lögð til gmndvallar í skóla- starfi á ári komanda. Aðalnámskrá gmnnskóla er sem kunnugt er fyrirmæli menntamála- ráðuneytisins um hvað kennt skuli og numið í gmnnskólum landsins. Menntamálaráðherra segir í við- talinu við Þjóðviljann að ný aðal- námskrá hafi lengi verið í deiglunni og „eitt helsta bitbein manna í skólamálaumræðu undanfarinna ára“. Orðrétt hefur blaðið síðan eftir ráðherra: „Forverar hans hefðu farið offari í því máli. Hópur manna er vann að nýrri aðalnám- skrá hefði verið rekinn frá störfum haustið 1984 og síðan hefði málið verið í eins konar biðstöðu. Mennta- málaráðherra fyrri stjórnar, Birgir ísleifur Gunnarsson, hefði síðan ætlað að þræla út aðalnámskrá án nægilegs samráðs við samtök kenn- ara og foreldra og nauðsynlegar skólastofnanir." Sjálfur kveðst Svavar hafa haft annan hátt á og ekki hafi skort á samráð. Ummæli Svavars Gestssonar um Svavar Gestsson vinnubrögð fyrirrennara hans í embætti í þessu máli em staðlausir stafir. Um það geta embættismenn menntamálaráðuneytisins borið vitni. Sjálfur þekki ég vel til hvern- ig hagað var undirbúningi aðalnám- skrár í tíð fyrrverandi ráðherra og veit að þar skorti sannarlega ekki á samráð við þá fjölmörgu aðila er málið varðar. Drög þau að nýrri aðalnámskrá sem hafist var handa um í tíð Ragnhildar Helgadóttur og Sverris Hermannssonar og lokið við sl. sumar vom t.d. í raun samin af hundruðum kennara. Og þau vom kynnt kennumm á haustþing-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.