Morgunblaðið - 08.04.1989, Side 1
4 8 SIÐUR 6 OG LESBOK
79. tbl. 77. árg.
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Fjármálahneykslið í Japan:
Yerður Takeshita
að hrökklast frá?
Tókýó. Reuter.
FORMENN Qögtirra helstu stjórnarandstöðuflokkanna í Japan hafa
sameinast um þá kröfu, að Noboru Takeshita forsætisráðherra segi
af sér vegna uppljóstrana á síðustu dögum um að hann eða stuðnings-
menn hans hafí tekið við miklu fé frá japönsku útgáfu- og fjarskipta-
fyrirtæki.
Á undanförnum mánuðum hafa
nokkrir ráðherrar orðið að segja af
sér vegna þessa hneykslismáls og
telja stjórnmálaskýrendur ekki ólík-
legt, að Takeshita verði næstur.
Formenn Sósíajistaflokksins,
flokks, sem kallast Óspillt stjórn,
Lýðræðislega sósíalistaflokksins og
Jafnaðarmannabandalagsins hafa
ákveðið að leggjast á eitt í kröfunni
um afsögn Takeshita og nýjar kosn-
ingar og er þetta í fyrsta sinn í tvö
Kanada:
11 manns
í gíslingu
Ottawa. Reuter.
Vopnaður maður hélt um
ellefu mönnum i gíslingu i
langferðabifreið fyrir utan
þinghúsin í Ottawa í gær og
krafðist þess að allir fangar
í Líbonon yrðu Iátnir lausir.
Var gíslunum sleppt seint í
gærkvöldi.
Maðurinn skaut þremur
skotum að bandaríska sendi-
ráðinu, sem er skammt frá
þinghúsunum. Lögreglumenn
umkringdu bifreiðina og
reyndu að semja við manninn.
Kona fór úr bifreiðinni með
skilaboð um að vopnaði maður-
inn væri með sprengju og vildi
ræða við fjölmiðlamenn, en lög-
reglan hafnaði þeirri beiðni.
Langferðabifreiðinni hafði
verið rænt í Montreal, en hún
var á leiðinni til New York.
Maðurinn sleppti öllum gíslun-
um seint í gærkvöldi eftir að
hafa haldið þeim í sex tíma.
ár, sem stjórnarandstöðunni tekst að
samræma afstöðu sína til mikilvægra
mála.
í þessari viku hafa fjölmiðlar skýrt
frá því, að Takeshita eða kosninga-
vél hans hafi tekið við 23 milljóna
ísl. kr. styrk frá fyrirtækinu fyrr-
nefnda en áður hafði Takéshita við-
urkennt að hafa þegið frá því 7,5
milljónir. Er það nú haft eftir ýms-
um, að innan stjórnarflokksins,
Frjálslynda Iýðræðisflokksins, sé
vaxandi stuðningur við að fórna
Takeshita í von um að það geti kom-
ið í veg fyrir ófarir í næstu kosning-
um.
I skoðanakönnun, sem birt var í
gær, fékk Takeshita ekki stuðning
nema 12,6% en 81,9% voru andvíg
honum. Hefur flokkur hans verið við
stjórnvölinn í Japan óslitið frá árinu
1955.
Reuter
Elisabet II Bretadrottning heilsar Mikhail Gorbatsjov i anddyri
Windsor-kastala. Drottningin hefúr þegið boð leiðtogans um að heim-
sækja Sovétríkin.
Bandaríkin:
North seg-
ist hafa log-
ið að þinginu
Washington. Reuter.
OLIVER North, fyrrum ráðgafí
Bandaríkjaforseta, viðurkenndi i
gær við réttarhöld vegna Iran-
kontramálsins að hafa logið að
Bandaríkjaþingi og eyðilagt opin-
ber skjöl til að leyna aðild sinni
að málinu.
North sagðist hafa logið að þing-
nefnd fulltrúadeildarinnar í ágúst
árið 1986 er hann var spurður hvort
hann hefði tekið þátt í því að veita
kontraliðum í Nicaragua efnahags-
aðstoð þrátt fyrir að Bandaríkjaþing
hefði bannað slíkt. Hann kvaðst einn-
ig hafa rifið leyniskjöl Þjóðarörygg-
isráðs Bandaríkjanna í tætlur.
í réttarhöldunum voru einnig lögð
fram gögn, þar sem lýst er tilraunum
stjórnar Ronalds Reagans, fyrrum
Bandaríkjaforseta, til að fara í kring-
um bann þingsins með því að fara
þess á leit við önnur ríki að veita
kontraliðum aðstoð. Þar er því enn-
fremur haldið fram að George Bush
Bandaríkjaforseti hafi tekið þátt í
slíku, en aðspurður sagðist Bush
ekki vilja tjá sig um réttarhöldin fyrr
en að þeim loknum.
Gorbatsjov í Guildhall;
Hörð orð um mögulega
endumýjun kjamavopna
Vestrænir vopnasérfræðingar segja að lokun tveggja sov-
éskra úranvinnsluvera muni hafa litla raunhæfa þýðingu
London. Reuter.
RÆÐU Míkhaíls Gorbatsjovs Sov-
étleiðtoga í ráðhúsi Lundúna, Gu-
ildhall, var beðið með nokkurri
eftirvæntingu. Sovéskir embættis-
menn höfðu áður sagt að ræðan
væri sú mikilvægasta sem leið-
toginn hefði flutt siðan hann
skýrði frá verulegri fækkun í
hefðbundnum herafla Sovétríkj-
anna á þingi Sameinuðu þjóðanna
í desember síðastliðnum. Gorbatsj-
ov réðst í gær harkalega á áform
um endurnýjun skammdrægra
kjarnavopna Atlantshafsbanda-
lagsins. Hann sagði einnig að Sov-
étmenn hygðust hætta að vinna
úran til kjarnavopnaframleiðslu
og leggja niður tvær slíkar
vinnslustöðvar.
Talsmaður bandaríska utanríkis-
Táðuneytisins sagði að þessi ákvörð-
un skipti litlu máli þar sem Sovét-
menn myndu eftir sem áður ráða
yfir nægum búnaði og hráefni til að
N or ður-N oregur:
Kviknar í sovéskum kj amorkukaflbáti
Stokkhólmi. Reuter.
Stokkhólmi. Reuter.
Eldur kom í gær upp í kjarnorkuknúnum sovéskum kafbáti af
gerðinni „Mike“ í Norðurishafinu, um 200 km vest suð-vestur af
Bjarnareyju, sem er á milli Noregs og Svalbarða. Varnarmálaráð-
herra Noregs, Johan J. Holst sagði að kafbáturinn hefði líklega
sokkið.
I yfirlýsingu norska varnarmála-
ráðuneytisins segir að fjöldi sov-
éskra skipa og flugvéla hafi komið
á svæðið. Norsk herflugvél hafi
flogið yfir svæðið og flugmenn
hennar hafi séð að eldur hafí kom-
ið upp í kafbátnum.
Bandarískir embættismenn í
Washington sögðust telja að kaf-
báturinn væri af gerðinni „Mike“,
en fyrsti kafbáturinn af þeirri gerð
var tekinn í notkun árið 1984. Um
95 manna áhöfn er í slíkum kaf-
bátum. Embættismennirnir sögðu
að svo virtist sem kjarnorkuvopn
væru ekki í kafbátnum en kváðust
ekki geta útilokað þann möguleika.
Kafbátamir eru byggðir til að flytja
stýriflaugar til að ráðast á skip og
skotmörk á iandi. í flaugunum
geta verið kjarnaoddar, að sögn
sérfræðinga.
Talsmaður norska vamarmála-
ráðuneytisins sagði í gærkvöldi að
ekki væri vitað hvort hætta væri á
geislavirkni vegna leka í kjama-
kljúfum kafbátsins. Bandarískir
embættismenn sögðust telja að ein-
hveijir úr áhöfn kafbátsins hefðu
farist.
Sjá viðtal við Jón B. Hanni-
balsson utanrikisráðherra á
baksíðu.
Sovéskur kafbátur af gerðinni „Mike“.
Reuter
framleiða kjarnahleðslur. Embættis-
menn í aðalstöðvum Atlantshafs-
bandalagsins í Bmssel sögðu að
miklar birgðir væm til í heiminum
af plútoni, sem notað er í kjama-
sprengjur.
George Bush Bandaríkjaforseti
vísaði í gær á bug þeim ummælum
Gorbatsjovs að samningaviðræður
risaveldanna um takmörkun vígbún-
aðar gengju seint vegna breyttrar
stefnu Bandaríkjastjómar. Bush
sagði að sovéski leiðtoginn vissi ofur
vel að Bandaríkjamenn tefðu á engan
hátt fyrir viðræðum.
Gorbatsjov sagði í ræðu sinni að
mannkynið væri nú á krossgötum í
alþjóðasamskiptum þar sem velja
yrði milli tveggja leiða. Annars vegar
væri stefna valdbeitingar og fyrir
henni væri löng hefð. Hins vegar
væri stefna sem væri í burðarliðnum.
Hún byggðist á þeirri hröðu þróun
er ætti sér stað og hefði í för með
sér að þjóðir heims yrðu sífellt háð-
ari hver annarri, heimurinn yrði ein
heild, hagsmunirnir sameiginlegir.
„Það er kunnugt að við emm á
móti því að málefni séu tengd með
óréttlátum hætti í viðræðum um tak-
mörkun vígbúnaðar. Við gemm ekki
samkomulag á einu sviði að skilyrði
fyrir samningi um annað . .. En það
er óhjákvæmilegt að framfylgi Atl-
antshafsbandalagið áformum sínum
um endurnýjun skammdrægra
kjarnavopna mun það hafa áhrif á
viðræðumar í Vín [um takmörkun
hefðbundins vígbúnaðar], gagn-
kvæmt traust og almennt ástand í
Evrópu," sagði Gorbatsjov.