Morgunblaðið - 08.04.1989, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 08.04.1989, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1989 flltrgi Útgefandi imfrlftfrft Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri BaldvinJónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 900 kr. á mánuði innanlands. (lausasölu 80 kr. eintakið. Ráðuneyti varnar- og öryggismála Guðmundur H. Garðarsson og þrír aðrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hyggjast leggja fram tillögu til þings- ályktunar um ráðuneyti vam- ar- og öryggismála er lúti sér- stökum ráðherra. í greinar- gerð með tillögunni er vísað til atburða síðustu daga, þar sem fram hafi komið að for- sætisráðherra, utanríkisráð- herra og jafnvel ríkisstjórnin í heild virtist ekki hafa tök á að fylgjast með framvindu ör- yggis- og varnarmála og þess vegna sé þörf á að sérstakur varnar- og öryggismálaráð- herra með tilheyrandi ráðu- neyti og starfsliði fjalli um þessi mál. Öryggis- og varnar- mál íslands séu alltof mikilvæg og viðkvæm mál fyrir íslend- inga og bandamenn þeirra til þess, að þau séu einhver hom- reka tækifærissinnaðra stjóm- málamanna, eins og það er orðað. Öllum ætti að vera ljóst hvers vegna þessi tillaga er komin fram nú á þessari stundu. Fleirum en þingmönn- um Sjálfstæðisflokksins hefur blöskrað framganga Páls Pét- urssonar, formanns þingflokks framsóknarmanna, og Steingríms Hermannssonar, formanns Framsóknarflokks- ins og forsætisráðherra, í um- ræðunum um æfingar varaliðs Bandaríkjahers hér á landi næsta sumar. Þegar Steingrímur var utanríkisráð- herra talaði hann á þann veg, að hann gæti ekki fylgst nægi- lega vel með framgangi innan- landsmála úr „fílabeinsturni“ utanríkisráðuneytisins. Nú þegar hann er orðinn forsætis- ráðherra kemur í ljós, að hann hefur haft svo mörgum hnöpp- um að hneppa í utanríkisráðu- neytinu, að áform varnarliðs- ins um 1.000 manna heræf- ingu hér í sumar hafa farið fram hjá honum. Lýsir þessi reynsla Steingríms Hermanns- sonar því líklega í hnotskum, hve kröfuhart embætti ut- anríkisráðherra er orðið. Þegar Geir Hallgrímsson var utanríkisráðherra breytti hann skipulagi ráðuneytisins með því að styrkja stöðu vam- armáladeildar og breyta henni í sérstaka stjórnarskrifstofu. Sinnir hún nú víðtækara verk- efni en áður og eru miklar kröfur gerðar til þess að starfsmenn hennar fylgist náið með framvindu öryggis- og varnarmála samhliða því sem hún sinnir tvíhliða samskiptum við varnarliðið. Hið mikla mannvirki flugstöð Leifs Eiríkssonar var reist undir for- sjá varnarmálaskrifstofu og rekstur hennar er einnig á hennar vegum svo og eftirlit með verktakastarfsemi og mannvirkjagerð varnarliðsins og nú hefur Ratsjárstofnun komið til sögunnar. Eins og kom fram hér í blaðinu á fimmtudag eru viðfangsefni Ratsjárstofnunar margþætt og snerta á sinn hátt nýtingu hátækni í landinu og þróun hennar. Öll þessi starfsemi lýt- ur pólitískri forsjá utanríkis- ráðherra. Tillaga Guðmundar H. Garðarssonar og þriggja þing- manna Sjálfstæðisflokksins er tímabær áminning um það, að ekki er unnt að kasta til hönd- unum öryggis- og vamarmála. Alltof mikið er í húfi bæði að því er varðar sjálfstæði þjóðar- innar út á við og viðkvæm og vandmeðfarin málefni inn á við. Utanríkisviðskipti hafa ný- lega verið flutt í utanríkisráðu- neytið. Var það tímabær ákvörðun. Af henni leiðir að utanríkisráðherra og sendiráð- in eiga að verða virkari á þessu sviði en áður. Fyrir dyrum stendur formennska íslands í ráðherranefnd EFTA á tíma- mótum í samskiptum EFTA og Evrópubandalagsins. Er ekki að efa að í þá sex mán- uði sem utanríkisráðherra gegnir þar formennsku krefst hún svo mikils af hans tíma, að önnur mál verða líklega látin sitja á hakanum. Ósanngjamar árásir Páls Péturssonar, Þjóðviljans og annarra andstæðinga íslenskra landvarna á varnar- málaskrifstofuna, skrifstofu- stjóra og starfsmenn hennar eiga ekki við rök að styðjast. Þær em til marks um skort á málefnalegum rökum í um- ræðum um sjálfstæðismál þjóðarinnar. Mikilvægi varnar- og öryggismálanna réttlætir það fyllilega, að um þau verði stofnað sérstakt ráðuneyti. Um minnisleysi og trunaðarbrest eftir Þorstein Pálsson í vikunni fóru fram einkar at- hyglisverðar umræður á Alþingi um vamarmál. Þær snerust fyrst og fremst um væntanlegar heræfingar svonefnds varaliðs sem fram eiga að fara á sumri komanda. Hér er um tiltölulega umfangs- litla heræfingu að ræða. í flestra augum er hún einvörðungu eðlileg- ur þáttur í framkvæmd varnanna og tæpast tilefni mikillar umræðu. Athyglisverðustu atriðin sem fram komu við umræðuna á Alþingi lutu enda að allt öðm en heræfingunni sjálfri. Árás Framsóknar á utanríkisráðherra Það er fyrst á það að líta að málshefjandi í þessum umræðum á Alþingi var Páll Pétursson, formað- ur þingflokks framsóknarmanna. Þannig er það að þingflokksformað- ur þess flokks sem, að formi til að minnsta kosti, fer með forystu í ríkisstjórninni, hefur umræður á Alþingi gegn utanríkisráðherra ríkisstjómarinnar í þeim tilgangi að fá stefnu hans og ákvörðunum breytt. Eiður Guðnason, formaður þingflokks Alþýðuflokksins, benti á að það mun vera einsdæmi í þing- sögunni að þingflokksformaður for- ystuflokks í ríkisstjórn standi að málum með þessum hætti. Forsætisráðherra upplýsti síðan í umræðunum að hann hefði sér- staklega samþykkt að Páll Péturs- son gerði þessa aðför að utanríkis- ráðherranum. Það sýnir ótvírætt að formanni Framsóknarflokksins er mikið í mun að hafa vinstri arm flokksins góðan um þessar mundir. En það er einmitt í gegnum vinstri arm Framsóknarflokksins sem formaður Alþýðubandalagsins hef- ur náð undirtökunum í efnahags- stefnu ríkisstjómarinnar. Hjá því getur ekki farið að þessi þjónkun forystunnar við vinstri arminn geri Framsóknarflokkinn ótrúverðugan í utanríkismálum. Refskákin innan ríkisstjómarinnar er þannig augljóslega látin hafa áhrif á jafn viðkvæm atriði eins og varnar- og öryggismál. Það grefur mjög undan trausti Framsóknar- flokksins á því sviði. Og því miður varpar það einnig sama ljósi á ríkis- stjórnina. Menn gráta það ekki í innanlandspólitíkinni, en það skaðar okkur út á við. Morgunblaðið flutti fréttir af þessum heræfmgum í nóvember síðastliðnum. Hvorki Alþýðubanda- lagið né vinstri armur Framsóknar- flokksins töldu þá vera tilefni til athugasemda. Ástæðan fyrir því að þessir aðilar töldu rétt að gera at- lögu að Alþýðuflokknum núna virð- ist fyrst og fremst vera sú að Al- þýðuflokkurinn er samkvæmt skoð- anakönnunum kominn í mjög veika stöðu. Samstarfsaðilarnir í vinstra armi Framsóknar og Alþýðubanda- laginu hafa talið klókt að láta kné fylgja kviði. Talaði forsætisráðherra gegn betri vitund? Annar athyglisverður þáttur í þessari umræðu lýtur að málflutn- ingi forsætisráðherrans. Með stór- um orðum ásakaði hann vamarliðið fyrir það að hafa ekki tilkynnt um fjölda hermanna sem þátt tækju í væntanlegri æfíngu. Ef fullyrðingin hefði verið á rökum reist hefði ver- ið ærið tilefni til þess að gagnrýna yfirstjórn varnarliðsins. En utanrík- isráðherra upplýsti í umræðunum að það væri ekki fótur fyrir ásökun- um forsætisráðherrans. í ræðu sem utanríkisráðherra flutti aðfaranótt síðastliðins þriðju- dags gerði hann í ítarlegu máli grein fyrir því hvemig bandarísk yfirvöld höfðu komið upplýsingum um æfingamar og fjölda þátttak- enda til íslenskra stjómvalda. Þetta var fyrst gert árið 1986. Upplýsing- ar þar að lútandi vom einnig bókað- ar á fundi vamarmálanefndar með- an Steingrímur Hermannsson var utanríkisráðherra. Og í heimsókn hans til vamarliðsins í ágúst 1987 var honum greint frá æfíngunum og fjölda þátttakenda. Forsætisráðherra ber fyrir sig minnisleysi. Nú má það vel vera að ráðherrann muni ekki hvað sagt var við hann í heimsókn hans til Keflavíkurflugvallar fyrir meira en ári. Engar athugasemdir em gerðar við það. En utanríkisráðherra upp- lýsti, að áður en umræðan hófst á Alþingi hafi hann afhent forsætis- ráðherranum gögn um framgang málsins þar sem fram kemur hvern- ig og hvenær Bandaríkjamenn gerðu íslenskum stjórnvöldum grein fyrir æfingunum og fyölda þátttak- enda. Þó að forsætisráðherra hafi haft slíkar upplýsingar í höndum fyrir umræðuna fullyrðir hann í ræðu sinni að Bandaríkjamenn hafí enga grein gert fyrir fjölda þátttakenda. Og það er í þessum punkti sem spumingar hljóta að vakna um það, hvort hann hafi talað gegn betri vitund. Ljóst er að forsætisráðherra hefur ekki tekist að hreinsa sig af þeim gmnsemdum. Viðkvæm mál Það er auðvitað slæmt þegar at- burðir af þessu tagi draga úr trún- aðartrausti inn á við. En hitt er verra þegar þeir leiða til þess að ísland fellur í áliti út á við. Það minnir okkur enn á að umfjöllun og umræður um utanríkis-, öryggis- og varnarmál kalla á miklu meiri ábyrgð en almennt er gerð krafa til í þjóðmálaumræðu um landsmálin. Vandræði forsætisráðherrans í mál- inu eru tvenns konar. í fyrsta lagi er það ekki trúverðugt að ásaka utanríkisráðherrann um tíma- skekkju í ljósi þeirrar ábyrgðar sem forsætisráðherra ber á aðdraganda málsins. í annan stað liggur fyrir samkvæmt upplýsingum utanríkis- ráðherra að forsætisráðherra hafði fyrir umræðuna skrifleg gögn um að íslensk stjórnvöld höfðu fengið vitneskju um fjölda þátttakenda í æfingunni þegar árið 1986. MÖRGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1989 23 Þorsteinn Pálsson „Þó að forsætisráð- herra hafi haft slíkar upplýsingar í höndum fyrir umræðuna fiill- yrðir hann í ræðu sinni að Bandaríkjamenn hafi enga grein gert fyrir Qölda þátttak- enda. Og það er í þess- um punkti sem spurn- ingar hljóta að vakna um það, hvort hann hafi talað gegn betri vitund. Ljóst er að for- sætisráðherra hefur ekki tekist að hreinsa sig af þeim grunsemd- um.“ Steingrímur skrifar Starra í Garði Einstaka þingmenn Alþýðu- bandalagsins hafa látið í veðri vaka að endanleg ákvörðun utanríkisráð- herra í þessu efni kunni að hafa áhrif á setu þeirra í ríkisstjórn. Hér er um marklausar hótanir að ræða. Alþýðubandalagið er fyrir lifandi löngu búið að gefast upp í andstöð- unni við aðildina að Átlantshafs- bandalaginu og varnarsamninginn við Bandaríkin. Þingmennimir munu allir halda áfram að greiða ríkisstjórninni at- kvæði og ráðherrarnir munu sitja sem fastast. Steingrímur Sigfússon, sem hefur skrifast á við Starra í Garði út af þessu máli að undan- förnu, mun senda honum enn eitt bréfið og segja sem svo: Við urðum að láta sitja við bókun þar sem við mótmæltum þessu framferði. Við töldum nauðsynlegt að sitja áfram til þess að koma mikilvægari hug- sjónamálum Alþýðubandalagsins fram, svo sem eins og því að greiða opinberum starfsmönnum ekki laun í verkfalli! Forsætisráðherra gefst upp í síðustu viku voru birtar skoð- anakannanir um að mikill meiri- hluti þjóðarinnar væri nú andvígur ríkisstjórninni, stjómarflokkamir hefðu tapað vemlegu fylgi og engin ríkisstjórn hefði fyrr notið jafn lítils stuðnings meðal fólksins í landinu. Allt var þetta athygli vert. En það vom þó fyrst og fremst viðbrögð forysturnanna og talsmanna ríkis- stjórnarinnar sem athygli vöktu af þessu tilefni. Forsætisráðherrann sjálfur lýsti því yfir í viðtali við DV að hann hefði setið hjá í atkvæðagreiðslu um stuðning við ríkisstjómina ef hann hefði verið óbreyttur fram- sóknarmaður. Hann telur það með öðmm orðum vera formlega skyldu sina sem forsætisráðherra að styðja ríkisstjórnina, en viðurkennir á hinn bóginn að það séu engin efnisleg rök fyrir hinn almenna framsóknar- mann að styðja ríkisstjómina leng- ur. Öllu ákveðnari uppgjafaryfirlýs- ingu er ekki unnt að gefa. Alþýðubandalaginu hefur tekist að ná þeim undirtökum í þessari ríkistjórn að það hefur að mestu mótað stefnu hennar í fjármálum og efnahagsmálum. Slík stefna get- ur ekki leitt til annars en aukinnar skattpíningar og hallareksturs at- vinnuveganna, glundroða og upp- lausnar. Og það er auðvelt að hafa samúð með formanni Framsóknar- flokksins þegar hann segir við óbreytta framsóknarmenn að það séu ekki efnislegar ástæður fyrir því að þeir styðji ríkisstjórn sem þannig er komið fyrir. Flökt eða hægri kredda? Alþýðublaðið túlkar skoðana- kannanimar með þeim orðum að fylgi Alþýðuflokksins sé sama og ekki neitt og hljóti að leiða til innri íhugunar forystufólks flokksins. Því er haldið fram að flokkurinn stefni innn í göngu um myrkviði stjórn- málanna og meginástæðan er rakin til þverstæðna í málflutningi flokks- ins. Loks em í forystugrein Al- þýðublaðsins persónulegar árásir á formann Alþýðuflokksins, en þær verða ekki gerðar að umtalsefni hér. Það er innanbúðarmál þeirra alþýðuflokksmanna. Forystugrein Þjóðviljans sem skrifuð var í tilefni af skoðanakönn- uninni gefur þá skýringu á ófömm ríkisstjórnarinnar að hún geti ekki verið sérlega trúverðug með því að hún dragi dám af kreddufyllstu hægri klíkum nágrannalandanna í utanríkis- og öryggismálum. Og Þjóðviljinn segir að meðan árangur- inn láti á sér standa verði hann að taka undir með forsætisráðherran- um að erfitt sé að svara til um stuðning við ríkisstjóm Steingríms Hermannssonar. Af þessum umræðum má sjá að alvarlegir þverbrestir em_ komnir í þetta vinstra samstarf. Árangurs- leysi vinstri stefnunnar hefur grafið undan trausti Alþýðuflokksins og Framsóknarflokksins meðal kjós- enda. í stjórnarherbúðunum sjálf- um gera menn sér orðið fulla grein fyrir því að áframhald þessarar vinstri stefnu hlýtur að leiða íslenskt atvinnulíf í algjörar ógöng- ur. Krafan um fijálslynda umbóta- stefnu verður því háværari. Sjálf- stæðisflokkurinn einn boðar skýra stefnu á þeim gmnni og því vex honum nú ásmegin. Á að auglýsa stól Ólafs Ragnars? Uppákomurnar innan Alþýðu- bandalagsins em um margt athygli- verðar. Svavar Gestsson mennta- málaráðherra hefur nú byijað að víkja skólastjómm til hliðar með aðferðum sem ekki hefur verið beitt síðan Brynjólfur Bjamason sat í aeim stóli. Það mál er enn ein sönn- inin um það hvernig forystumenn \lþýðubandalagsins sýna klær /aldahrokans um leið og þeir kom- ist í ríkisstjóm. Engar tilraunir em jerðar til þess að leita sátta eða !riðsamlegrar niðurstöðu í málum if því tagi sem hér hefur verið íefnt. Þar gilda klær valdahrokans. Með svipuðum hætti og kennar- imir í Ölduselsskóla skrifuðu menntamálaráðherra bréf sendu nokkrir miðstjómarmenn í Alþýðu- bandalaginu bréflega kvörtun um það að þeir gætu ekki sætt sig við framkvæmd formannsins á stefnu Alþýðubandalagsins og heimtuðu miðstjómarfund. Ef sama regla ætti að gilda þar og varðandi skóla- stjórann í Ölduselsskóla þá bæri nú að auglýsa stöðu formanns Al- þýðubandalagsins lausa til umsókn- ar. Sigur fyrir Davíð og Albert Annar bar það helst til tíðinda á þeim fundi að alþýðubandalags- menn vísuðu frá tillögu um það að gagnrýna íjármálaráðherra fyrir að greiða ekki laun í verkfalli. Með því hefur Alþýðubandalagið étið ofan í sig öll stóryrðin og fúkyrðin sem höfð vom í frammi gegn Davíð Oddssyni, borgarstjóra, og Albert Guðmundssyni, ij ármálaráðherra, haustið 1984 af sama tilefni. Það er einstæður atburður þegar miðstjómarfundur Alþýðubanda- lagsins dregur slíkar árásir til baka þótt nokkuð sé um liðið. Þeir sem settust niður eftir verkfallsatburði naustsins 1984 og skrifuðu heila oók þurfa nú að setjast við ritvélina í nýjan leik til þess að hæla bæði \lbert og Davíð fyrir framgöngu jeirra í þeim átökum í ljósi hinnar íýju samþykktar miðstjómar Al- pýðubandalagsins. í raun réttri vora aeir Davíð og Albert hinir málefna- egu sigurvegarar fundarins. Höfiindur er formaður Sjálfstæð- isflokksins. Húsbréf- kostur fyrir þig eftir Jóhönnu Sigurðardóttur Hvað er húsbréf? A (kaupandi) hefur ákveðið að kaupa 4 herbergja íbúð af B (selj- anda) á 5,4 millj. kr. B. samþykkir að lána A 65% af kaupverði eignar- innar, þ.e. 3,5 millj. kr., til 25 ára. Áður en viðskiptin fara fram metur Húsnæðisstofnun veðhæfni fast- eignarinnar og greiðslugetu kaup- anda til að standa undir greiðslu- byrði af láninu. Að því loknu gefur A (kaupandi) út fasteignaveðbréf (3,5 millj. til 25 ára) til B (seljanda) sem B fær skipt hjá Húsnæðisstofnun ríkisins fyrir ríkistryggð húsbréf. Þessi ferill frá því A (kaupandi) og B (seljandi) ákveða fasteignaviðskipti sín á milli á ekki að þurfa að taka nema 2—3 vikur. En hvað þýða þessi fasteignavið- skipti annars vegar fyrir kaupanda og hins vegar fyrir seljanda? Seljandi — engin áhætta Byggingarsjóður ríkisins er nú orðinn eigandi að fasteignaveðbréf- inu sem kaupandi (A) eignarinnar gaf út. Það er því Byggingarsjóður ríkisins sem innheimtir reglulega afborganir og vexti af fasteignaveð- bréfinu. Áhættan af því að kaupandi standi ekki í skilum er því hjá bygg- ingarsjóðnum, en ekki seljanda eign- arinnar. Hvað gerir seljandi við húsbréfin? Seljandi eignarinnar B er nú laus allra mála vegna fasteignaveðbréfs- ins, sem hann tók við sem greiðslu fyrir 65% af verði eignarinnar. í stað þess er hann nú með húsbréf sem gefur honum þijá kosti. Hann getur: 1. Átt húsbréfið, sem hvern annan sparnað, en bréfin em sambæri- leg eign og spariskírteini ríkis- sjóðs. 2. Látið húsbréfin ganga áfram upp í önnur fasteignaviðskipti. 3. Selt húsbréfin fyrir reiðufé. Er hætta á afföllum á húsbréfiim? Þarf B (seljandi) að búast við af- föllum á húsbréfunum? Em þau fóð- ur fyrir gráa markaðinn eins og andófsmenn húsbréfanna halda fram? Svarið við því er nei. Liklegt er að húsbréfin seljist á svipuðum vöxtum og spariskírteini ríkissjóðs og hafi svipaða stöðu og þau þar sem húsbréfm em ríkis- tryggð. Seljandi getur ávallt vitað með vissu hver verðmæti húsbréf- anna em því að á hveijum degi ligg- ur fyrir opinber skráning á verð- mæti bréfanna. Byggingarsjóður ríkisins og Seðlabanki íslands em ávallt kaup- og söluaðilar að húsbréfum. Verð- bréfamarkaðnum er óheimilt að kaupa eða selja húsbréf undir opin- berlega skráðu gengi bréfanna. B (seljandinn) getur því strax eft- ir fasteignaviðskipti sín við A (kaup- anda) selt þau á því gengi sem hann tók við þeim. Kjósi B hinsvegar að Jóhanna Sigurðardóttir „Líklegt er að húsbréf- in seljist á svipuðum vöxtum og spariskír- teini ríkissjóðs og hafi svipaða stöðu og þau þar sem húsbréfin eru ríkistryggð. Seljandi getur ávallt vitað með vissu hver verðmæti húsbréfanna eru því að á hverjum degi liggur fyrir opinber skráning á verðmæti bréfanna.“ halda húsbréfunum og geyma þau eins og hvem annan spamað og vextir hækka á því tímabili gæti verið um afföll aðræða. Á hinn bóg- inn myndu húsbréfin seljast á yfir- gengi ef vextir lækkuðu á tímabilinu. Dæmi: Húsbréf B (seljanda) em með 6% vöxtum. B á þau í 2 ár og selur þau þegar skráð gengi bréfanna miðast við 5%. Þá hagnast B sem nemur vaxtamuninum. Hins vegar ef vextir hækka í 7% á sama tímabili, þá tap- ar B því sem nemur vaxtamismunin- um á húsbréfunum og sölugengi bréfanna þegar hann selur þau. Rétt er að undirstrika í þessu sambandi að seljandi getur valið að eiga húsbréfin þar til þau koma til innlausnar og fær hann þá umsamda vexti allan tímann. En víkjum næst að því hvernig fyrmefnd fasteignaviðskipti blasa við kaupanda eignarinnar. Kaupandi eignarinnar A Ein af forsendum fyrir húsbréfun- um er að gengi þeirra miðast við markaðsvexti. Vextir fasteignabréfa sem kaupandi gefur út (og seljandi skiptir síðan fyrir ríkistryggð hús- bréf) munu bera sömu vexti og út- gefin húsbréf hveiju sinni. Ef gengið er út frá í ofangreindu dæmi og að A (kaupjndinn) geti sjálfur lagt fram það sem á vantar, þ.e. 1,9 milljónir króna (þ.e. mismun á kaupverðinu 5,4 milljónum króna og útgefnum fasteignaveðbréfum 3,5 milljónum króna), þá verður greiðslubyrði A (kaupanda) eftirfar- andi miðað við að fjölskyldutekjur A Fjölskyldutekjur 1500 þús. kr. Vext. fast.bréfs 7% Matsverð eignar 5379 i þús. kr. (lán / 0,65) Nettó Eigna- Tekju- Vaxta- Vextir Ár Lán Ann. Vextir Eft. eign skerd. skerð. bætur e. skatt 0 3496 300 1 300 245 3441 1938 0% 75 160 2 300 241 3382 1997 0% 75 160 2,3% 3 300 237 3318 2060 0% 75 160 2,3% 4 300 232 3251 2128 0% 75 157 2,3% 5 300 228 3178 2200 0% 75 153 2,3% 6 300 222 3101 2278 0% 75 147 2,4% 7 300 217 3018 2361 0% 75 142 2,4% 8 300 211 2929 2450 0% 75 136 2,5% 9 300 205 2834 2545 0% 75 130 2,6% 10 300 198 2732 2646 0% 75 123 2,6% 11 300 191 2624 2755 0% 75 116 2,7% 12 300 184 2507 2871 0% 75 109 2,9% 13 300 176 2383 2996 0% 75 101 3,0% 14 300 167 2250 3129 0% 75 92 3,1% 15 300 157 2107 3272 0% 75 82 3,3% 16 300 147 1955 3424 0% 75 72 3,6% 17 300 137 1791 3587 3% 75 60 3,9% 18 300 125 1617 3762 9% 75 46 4,4% 19 300 113 1430 3949 15% 75 32 5,0% 20 300 100 1230 4149 21% 75 20 5,6% 21 300 86 1016 4362 27% 75 8 6,3% 22 300 71 787 4591 33% 71 0 7,0% 23 300 55 542 4836 42% 55 0 7,0% 24 300 38 280 5098 48% 38 0 7,0% 25 300 20 0 5379 57% 20 0 7,0% Samtals vaxtabœtur 2207 séu 1.500 þúsund og vextir af fast- eignabréfinu sem hann gaf út til B (seljanda) 7%: Hér kemur meðfylgjandi tafla) Eins og sjá má á meðfylgjandi töflu er greiðslubyrði A (kaupanda) fyrstu 12 árin um 10—14% af tekjum Á á ári að teknu tilliti til vaxtabóta og vextir fyrstu 12 árin fara ekki yfir 2—3% eftir skatt. Vaxtabætur, sem greiðast út líkt og barnabætur nú, geta hæst verið 160 þúsund krónur á ári fyrir hjón — (ijárhæðir miðað við desember 1988) og lækka síðan með vaxandi tekjum og eign- um. Dæmi um greiðslubyrði kaupanda Dæmi um greiðslubyrði A (sjá líka töflu) af fasteignaveðbréfi (3,5 millj. til 25 ára): 1. ár: Ársgreiðsla 300 þús. (þar af vextir 245 þús.) Frádr. vaxtabætur 160 þús. Greiðslubyrði 140 þús. eða um 10% af tekjum A. Greiðslubyrðin fyrstu 12 árin hjá A verður að jafnaði sambærileg og ofangreint dæmi, þ.e. 10% af tekjum fara í afborgun og vexti eftir skatt. Raunvextir sem A greiðir eftir skatt verða 2—3% að jafnaði á þessu tíma- bili. Síðari helming lánstímans eftir 12—25 ár, fer greiðslubyrðin hins vegar hækkandi upp í 20% af tekjun- um. Breytingin felst einkum í sífellt aukinni eignamyndun, lækkun vaxtagreiðslu samfara því að vaxta- bætur minnka jafnt og þétt og falla að lokum út á 21 ári (sjá aftur meðf. töflu.) Ekki þörf fyrir skammtímalán í bönkum Kosturinn fyrir A í húsbréfakerf- inu er ótvíræður. Hann felst einkum í því að B (selj- andinn) hefur lánað A stóran hluta af kaupverði eignarinnar (6%). A hefur því sloppið við að fara píslar- göngumar í bankastofnanir eftir dýmm og þungum skammtímalán- um fyrstu árin, sem alltof oft hafa leitt til gjaldþrota hjá fólki. Greiðslubyrði A í húsbréfakerfinu er því bæði jafnari á lánstímanum og það sem öllu skiptir, miklum mun léttari fyrstu árin eftir kaup á íbúðar. Hér hefur verið reynt að skýra á einfaldan hátt hvemig fasteignavið- skipti ganga fyrir sig í húsbréfa- kerfi og hvað þau þýða fyrir kaup- endur og seljendur eigna. Vonandi getur það orðið innlegg í málefnalega umræðu um húsbréfa- kerfið. Höfundur er félagsmálaráðhem. Önnurgrein um húsbréfín birtist i Morgunblaðinu nk. þriðjudag. Húsnæðisstofhun ríkisins: Lánsumsóknir vegna 825 kaupleigu- íbúða HÚSNÆÐISSTOFNUN ríkisins hafa borist umsóknir um lán vegna 825 kaupleiguíbúða sem óskir eru um að byggja, eða kaupa, á árinu 1989. A síðast- liðnu ári var úthlutað lánum vegna 250 kaupleiguíbúða, sem byggðar verða í sveitarfélögum utan höfuðborgarsvæðisins. Einnig voru veitt 46 lán vegna kaupleiguíbúða með búseturétti, segir í fréttatilkynningu frá fé- lagsmálaráðu neytinu. Félagsmálaráðherra hefur gefíð út reglugerð um kaupleiguíbúðir. Félagslegar kaupleiguíbúðir em fjármagnaðar með lánum úr Bygg- ingarsjóði verkamanna en almennar kaupleiguíbúðir era hins vegar fjár- magnaðar með lánum úr Bygging- arsjóði ríkisins. í reglugerðinni seg- ir að þeir, sem staðið geti að bygg- ingu eða kaupum á félagslegum kaupleiguíbúðum, séu annars vegar sveitarfélaög og hins vegar félaga- samtök, eða þessir aðilar í samein- ingu. Þeir, sem staðið geta að al- mennum kaupleiguíbúðum, era hins vegar sveitarfélög, félagasamtök eða fyrirtæki, eða þessir aðilar í sameiningu. Lán til almennra og félagslegra íbúða nema að hámarki 85% af þeim kostnaðargmndvelli sem húsnnæðismálastjórn hefur sam- þykkt og liggur til gmndvallar lán- veitingum úr Byggingarsjóði verka- manna, segir í fréttatilkynningunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.