Morgunblaðið - 08.04.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.04.1989, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1989 Hagnaður Utvegs- bankans 44,3 millj. HAGNAÐUR Útvegsbanka íslands hf. nam alls um 44,3 m.kr. á síðastliðnu ári. Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 126,8 m.kr. en þar frá dregst 36,1 m.kr. sem er hækkun á lifeyrisskuldbinding- um fyrrverandi bankastjóra. Ja&iframt dregst frá eignarskattur og tekjuskattur, sem er lækkun á gjaldfærðri tekjuskattsvild, samtals 46,4 m.kr. Rekstrartekjur bankans voru 3.466 m.kr. og rekstrar- gjöld 3.339 m.kr. Heildareignir bankans í árslok voru samtals 16.810 m.kr. og eigið fé 1.396 m.kr. en það jókst um 13,5% frá fyrra ári. Hallgrímur Snorrason, for- maður bankaráðs, sagði m.a. í ræðu sinni að sameining svo flókinna fyrirtækja sem bankar væru hlyti að taka nokkurn tíma. „Við okkar aðstæður er jafnframt hætt við að hún dragist um of á langinn og endurspegli þar með einn helsta veikleika bankakerfísins hér á landi, þ.e. skiptingu bankanna eftir at- vinnugreinum. Sameiningarviðræð- ur gætu jafnvel steytt á slíku skeri. Af þeim sökum kynni að vera nauð- synlegt að Útvegsbankinn kæmi enn frekar eða á annan hátt við sögu en með sölu hlutabréfa einni saman. Hér skiptir einnig máli að kaup á Útvegsbankanum hljóta að vera erfið fyrir aðra innlenda banka vegna stærðar hans í samanburði við aðra hlutafélagsbanka." Halljgrímur sagði ennfremur að fyrir Utvegsbankann væri óvissan um framtíðina honum nokkur byrði. Þessi óvissa ylli vandkvæðum við skipulagningu á starfsemi hans þar sem ekki væri vitað til hve margra nátta væri tjaldað. Þá ylli þetta ástand og umræður um bankann sem á stundum hefðu verið fremur ógætnar, óöryggi meðal starfsfólks. Jón Sigurðsson, viðskiptaráð- herra, sagðist í ávarpi sínu telja að heimild um að erlendir bankar mættu eiga fjórðung hlutafjár í Útvegsbankanum ætti eingöngu að nota ef það væri sýnilega leið til að efla bankann og laða til sam- starfs innlendar lánastofnanir þannig að sala á bréfunum yrði til að styrkja íslenska bankakerfið, stuðla þar að aukinni hagræðingu og umfram allt auknu öryggi fyrir viðskiptavini bankanna. í bankaráð voru kjömir Ragnar Aðalsteinsson, Björgvin Jónsson, Hallgrímur Snorrason, formaður, Jón Dýrfjörð og Kristján Ragnars- son. Þá var samþykkt að greiða 3,5% arð. Morgunblaðið/Jón Hafsteinn Sendibíll a ftan á vörubíl Harður árekstur varð eflir hádegi á Elliðavogi í gær, þegar sendibíl var ekið aftan á vörubíl. Bílstjórana tvo sakaði þó ekki, en af myndinni má sjá, að sendibíllinn er mikið skemmdur, enda gekk pallur vörubílsins langt inn í stýrishúsið. Sigló hf. gjaldþrota: Starfsemin hefst á ný innan 2ja vikna Starfsfólki Sigló boðin vinna hjá nýja félaginu „VIÐ stjórnarformaður Sigluness hf. funduðum með starfsfólki Si- gló og fórum fram á að fá það til starfa hjá Siglunesi. Allflestir hafa lýst sig reiðubúna til þess og við stefnum að því að verksmiðj- an taki til starfa að nýju innan hálfs mánaðar," sagði Guðmundur Skarphéðinsson, framkvæmdastjóri hlutafélagsins Sigluness, sem hefiir tekið rekstur Sigló hf. á leigu. Á fimmtudag var Sigló, sem rekið hefur stærstu rækjuverksmiðju landsins, úrkurðað gjaldþrota og samdægurs var gengið frá leigu Sigluness á rekstrinum. Guðmundur Skarphéðinsson sagði að þegar hefði verið samið við um 10 báta að leggja upp hjá Siglunesi hf. í sumar. „Þessir bátar eru með 15-1600 tonna kvóta og við stefnum að því að ná samning- um við fleiri,“ sagði Guðmundur. Hann sagði að áætlanir um afkomu hins nýja félags lægju ekki fyrir fyrr en eftir helgina og þá skýrðist einnig hvert heildarhlutafé Siglu- |H0ir0imhlaMÍ> Veðuryfírlit og spá, sem birtst hefur á blaðsíðu 4 í blaðinu undanfarin ár, fellur niður í verkfalli veðurfræðinga. ness hf. yrði. Fjármagn þyrfti til að koma rekstrinum aftur af stað og leitað hefði verið eftir því til Danmerkur. „Sigló hf. átti í viðræð- um við danska aðila, þegar ætlunin var að leita nauðasamninga og fá aukið fjármagn inn í reksturinn. Tilraunir til nauðasamninga runnu út í sandinn, en við höldum áfram að reyna að fá fjármagn frá Dönum og nú til að opna verksmiðjuna á ný.“ Hluthafar Sigluness hf. eru fjórir af fyrrverandi eigendum Sigló. Auk Guðmundar Skarphéðinssonar, framkvæmdastjóra, eru það þeir Jón Guðlaugur Magnússon, Magnús Aspelund og Guðmundur Arnalds- son, sem jafnframt er stjómarform- ■aður fyrirtækisins; ........... SAMNINGAR BSRB OG RÍKISINS Ögmundur Jónasson og Ólafur Ragnar Grímsson takast í hendur að lokinni undirritun samningsins. • • Ogmundur Jónasson, formaður BSRB; Sérstök áhersla á að verja kjör hinna lægstlaunuðu „Ég er feginn að það er búið farinn að hafa áhyggjur af að þet Það var kominn tími til að gera Jónasson, formaður BSRB. Hann sagði að miðað við allar aðstæður væru samningurinn vel við unandi. Af hálfu BSRB væri hann hugsaður sem skammtíma- lausn. í þessu samkomulagi væri leitast við að koma í veg fyrir að það væri hrifsað aftur sem náðst hefði fram með verðlagseftirliti og verðstöðvun á ýmsum sviðum og niðurgreiðslum á landbúnaðarvör- um. Einnig væri tekið á ýmsum mikilvægum réttindamálum, svo sem fæðingarorlofi, stöðu lausráð- inna og tryggingarmálum. „Þetta er kjarajöfnunarsamning- ur, sem byggist á jafnri krónutölu og hugsaður sem slíkur. Við erum einnig inni með sérstakar hækkan- ir til handa lægst launaða fólkinu. I rauninni teljum við rétt við allar aðstæður að gera slíka samninga, en við þessar aðstæður nú, þá lögð- um við sérstaka áherslu á að verja kjör hinna lægst launuðu," sagði að ljúka þessu verki. Maður var ta drægist firam á vor og sumar. kjarasamning," sagði Ögmundur Ögmundur. Aðspurður hvort hann óttaðist ekki að aðrir sem semdu síðar tæ- kist að bera meir úr býtum, sagði hann svo ekki vera: „Ég vona að launamönnum takist að sækja réttlátar kröfur, hvar sem þá er að finna. Öllum þessum félögum okkar, sem eiga ólokið kjarasamn- ingum, sendum við baráttukveðj- ur,“ sagði Ögmundur. Hann sagði að til þess að ná lengra í þessum samningum hefði þurft eitthvað meira en röksemd- imar einar. í samningnum væru einnig ákvæði um að tekið skuli á ýmsum mikilvægum velferðarmál- um. Vinna eigi að því á samningst- ímanum og BSRB ætlaðist til þess að búið væri að ganga frá þessum málum áður en kæmi til næstu kjarasamninga. Aðspurður um að Landssamband lögreglumanna hefði ekki viljað vera með hinum félögunum í því að undirrita samningana, sagði Ögmundur: „Þetta er samstarf sem byggir á fúsum og frjálsum vilja og það er mín skoðun að samstarf sem byggir á þeim grunni sé traust- ast og best. Það gengur enginn þvingaður til samstarfs innan BSRB. Þeir hafa ákveðið að fresta undirskrift um sinn meðan þeir hyggja að ýmsum vanefndum og það er að sjálfsögðu þeirra að meta það.“ Hann sagði að samningurinn þýddi nokkuð mismunandi hækk- anir eftir félögum frá 8-10%. Lægra launaða fólkið fengi meira en hitt. Annars væri erfítt að.meta kaupmáttarprósentur. „Hvernig á til dæmis að meta 600 milljónir sem fara til niðurgreiðslna á landbúnað- arvörum og hafa mikil áhrif á kaup- máttinn. Landbúnaðarvörur myndu að öðrum kosti hækka um 12-14%. Þetta eru prósentur. Þær vigta ekki í þessum samningi, en þær vigta í pyngju hvers og eins.“ Sairniingurinn í samræmi við markmið í ríkisbúskapnum - segir Ólafur Ragnar Grímsson, flármálaráðherra „Ég er mjög ánægður með þessa niðurstöðu. Þetta er kjarasamn- ingur sem samrýmist forsendum fjárlaga, sem mótaðar voru á síðastliðnu ári, og hann samrýmist einnig forsendum endurskoðaðr- ar þjóðhagsáætlunar. Þetta er því samningur sem felur í sér efna- hagslegan stöðugleika," sagði Olafur Ragnar Grímsson, fjárniála- ráðherra. „Hann er einnig mótaður af því grundvallarsjónarmiði að auka launajafnrétti í landinu með því að lægra launaða fólkið fær hlutfalls- lega meira. Samningurinn sam- rýmist því mjög vel þeirri lífshug- sjón sem ég aðhyllist og þegar það fer saman við það að hann er efna- hagslega traustur og í samrými við upphafleg markmið sem flestir töldu að myndu aldrei nást þegar þau voru mótuð, þá er ég mjög ánægður með niðurstöðuna og þakklátur BSRB fyrir þeirra góðu vinnu í þessari samningsgerð.“ Ólafur sagðist vísa gagnrýni vinnuveitenda um að samningurinn sé gerður af ábyrgðarleysi alger- lega á bug. Hann benti á að VSÍ hefði sjálft gert samning við iðnað- armenn til haustsins og það væri enginn verulegur munur á þessum tveimur samningum. Þessi samn- ingur fæli það einnig í sér að launa- breytingar í landinu í heild væru í samræmi við þá þjóðhagsáætlun sem mótuð hefði verið. „Málflutningur Vinnuveitenda- sambandsins byggist hins vegar á þvíað því er virðist að þeir ætli sér að yfirfæra þennan samning með þeim hætti sem þeir einir ákveða yfír í sitt launakerfí og koma á þeim grundvelli með gengisfelling- arkröfur. Hér er verið að leiðrétta laun fólks sem í heildartekjur er með 40-50 þúsund krónur á mán- uði. Það er skrýtið að nota slíkan samning til þess að hækka enn meir laun fólks sem er með heildar- tekjur kannski í kringum 60 þús- und krónur á mánuði. Þar að auki og það fínnst mér vera grundvallar- atriði málsins: Viljum við hafa hér þjóðfélag með fijálsum samnings- rétti? Vinnuveitendur hafa verið að krefjast frelsis á peningamarkaði, vinnumálamarkaði, þjónustumark- aði og þjóðfélaginu í heild. Samtök launafólks hafa réttilega krafíst þess að samningsrétturinn væri frjáls og ríkisvaldið hefði þar ekki afskipti. Nú ef fijáls samningsrétt- ur er grundvallarreglan, þá er það verkefni atvinnurkenda á almenna vinnumarkaðnum og samtaka launafólks sem þar eru að gera sína kjarasamninga. Það er nánast fáránlegur málflutningur að segja að við séum að gera kjarasamninga fyrir hönd þeirra og allra sérkenni- legast að þegar það kemur úr munni þeirra sem eru að heimta frelsi á öllum sviðum og ætla sér þess vegna núna að gerast tals- menn fullkominnar ríkisforsjár í launamálum. Það er þess vegna spurningin hvort.. jToenrjirnÍC. Á Garðastrætinu eru nægilega hug- djarfír til að axla það frelsi sem þeir eru alltaf að biðja um bæði á virkum dögum og hátíðisdögum," sagði Ólafur. „Þessi kjarasamningur er í sam- ræmi við þau markmið sem við settum okkur í búskap íslenska ríkisins. Hann er þess vegna full- komlega ábyrgur út frá því fyrir- tæki, ef ég má nota það orð, sem mér og ríkisstjóminni er ætlað að reka. Nú er það verkefni hinna sem eru á hinum fijálsa vinnumarkaði að gera fijálsa kjarasamninga, sem eru í sams konar samræmi við þá ábyrgð sem þeir eiga að gæta í sínum fyrirtækjum,“ sagði Ólafur. Hann sagðist halda að ekki hefði í áratugi verið gerður kjarasamn- ingur sem væri í eins miklu sam- ræmi við forsendur fjárlaga og þjóðhagsáætlunar. „Ég minni á að þegar ég lagði fjárlagafrumvarpið fram þá sameinaðist stjórnarand- staðan og vinnuveitendur um að gagnrýna mig fyrir það að launa- forsendur fjárlagafrumvarpsins myndu ekki standast í samningum við opinbera starfsmenn. Þessi samningur staðfestir það að þær standast fullkomlega." Aðspurður sagði hann að það væri ekki veijanlegt að gera samn- ing við aðildarfélög Bandalags há- skólamenntaðra ríkisstarfsmanna, sem eru nú í verkfalli, um meiri hækkanir en við aðildarfélög BSRB.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.