Morgunblaðið - 08.04.1989, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 08.04.1989, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRIL 1989 19 Dagskrá í Reiðhöllinni; Æskan og hesturinn EFTR verður til fræðslu- og skemmtifundar í Rciðhöllinni í Víðidal, á morgun sunnudag undir heitinu „Æskan og hesturinn". Fræðslu- nefnd Hestamannafélagsins Fáks eliiir til sýningarinnar en börn og unglingar munu annast flest atriði hennar. Að lokinni dag- skránni verður börnum geflnn kostur á að fara á hestbak. Dagskráin hefst klukkan 14. Ungmenni munu ríða hópreið inn á sýningarsvæðið og sýna leiki og óþróttir á hestum sínum. Landskunnir tamn- ingamenn munu sýna góðhesta og hæfileika þeirra. Þorkell Bjamason hrossaræktarráðunaut- ur mun fræða gesti um hesta, gerð þeirra og hæfileika með sýnikennslu. Meðal annara atriða má nefna að sýndur verður kerruakstur og ha- gyrðinga úr röðum hestamanna mæta á staðinn. Aðgöngumiði kostar 500 krónur fyrir fullorðna en 100 krónur fyrir börn, 5-14 ára. Morgunblaðið/Gísli Úlfarsson Fimm keppendur eru um titilinn Ungfrú Vestfirðir 1989. Þær eru frá vinstri: Hafdís Jónsdóttir, Jóna Hrund Jónsdóttir, Áslaug Fjóla Magnúsdóttir, Guðbjörg Hilmarsdóttir og Lilja Ingólfsdóttir. Ungfrú Vestfirðir valin í kvöld Isafirði. Keppnin um titilinn „Ungfirú Vestfirðir 1989“ fer fram að Uppsölum á Isafirði í kvöld. Fimm stúlkur taka þátt í keppninni, Qórar frá Isafírði og ein úr Súðavík. Sigurvegarinn tekur síðan þátt í keppninni um titilinn „Fegurðardrottning íslands 1989“ sem fer fram á Hótel íslandi í maí. Stúlkurnar, sem keppa, heita Ás- laug Fjóla Magnúsdóttir Súðavík, Guðbjörg Hilmarsdóttir ísafirði, Hafdís Jónsdóttir ísafirði, Jóna Hrund Jónsdóttir ísafirði og Lilja Ingólfsdóttir ísafirði. Dagný Björk Pjetursdóttir danskennari hefur séð um undirbúning keppninnar og þjálf- un keppenda. Sigurvegarinn hlýtur 20 þúsund króna verðlaun frá Óðinsbakaríi, handsmíðaða nælu frá Gullauga, sportfatnað frá Sporthlöðunni, auk þess sem Flugleiðir flytja hann frítt til Reykjavíkur vegna aðalkeppninn- [©JPerstorpForm - PLASTBAKKAR - ALLSSTAÐAR I ATVINNULÍFINU ar. Auk þess fá allir keppendur íþróttaskó frá Sportvöruþjónustunni í Reykjavík, hljómplötur frá Hljómt- orgi og snyrtivörur Krismu. Dómarar verða Ólafur Laufdal framkvæmdastjóri í Reykjavík, Frið- þjófur Helgason ljósmyndari í Reykjavík, Anna Margrét Jónsdóttir Ungfrú ísland 1987, Martha Jör- undsdóttir núverandi Ungfrú Vest- firðir og Anna Lind Ragnarsdóttir, sem kjörinn var vinsælasta stúlkan hér í keppninni í fyrra. Boðið verður upp á þríréttaðan matseðil á Uppsölum og á meðan borðhaldi stendur fer fram tískusýn- ingar þar sem keppendur ásamt börnum sýna fatnað frá helstu tísku- verslunum bæjarins og frá Eggerti feldskera í Reykjavík. Anhauser- Busch býður gestum upp á fordrykk og Hafsteinn Vilhjálmsson heildsali býður mönnum upp á konfektsmakk. Toppblómið á ísafirði sér um blóma- skreytingar og stúlkur frá Hár- greiðslustofu Siggu Þrastar sjá um hársnyrtingu. Úlfar. Herradeild P & Ó þrítug: „ Allt frá hatti of- an í skó“ frá P Ó Herradeild P & Ó er þrítug um þessar mundir, en hún var stofn- sett 10. apríl 1959 af þeim Pétri Sigurðssyni (P) & Óla Maríus- syni (Ó). Þá var hún aðeins í helmingi þess húsnæðis sem hún er í nú til dags í Austurstræti 14. Núverandi eigendur eru Guðmundur Blöndal og Jón Ólafsson, en þeir keyptu verslunina 15. september 1986. Guðmundur hafði unnið hjá P & Ó i 13 ár, en Jón hafði selt fyrirtækinu föt í 8 ár áður en til sölunnar kom. Herradeildin var til húsa í Aust- þess vísari eftir samtöl við marga urstrætinu einvörðungu til síðari hluta ársins 1963, en þá voru kvíamar færðar út og önnur P & Ó-verslun opnuð að Lauga- vegi 95 og starfrækt þar í sex ár. Þá var hún færð neðar í göt- una, til Laugavegs 66 og rekin þar til ársins 1975, en þá var hún lögð niður. Síðan var ein P & Ó-verslun starfrækt allt til síðasta árs, en í desember 1988 opnuðu núverandi eigendur nýja P & Ó- verslun í nýja verslunarhúsinu Kringlunni 4. „Það skiptast á skin og skúrir í þessu og það er gaman þegar vel gengur. Hins vegar fínnum við vel fyrir samdrættinum í þjóð- félaginu," sögðu þeir Guðmundur og Jón í samtali við Morgunblað- ið. Þeir sögðu jafn framt að þrátt fyrir að á móti blési nokkuð í seinni tíð, væri engan bilbug á þeim að finna, hvorki í Austur- stræti né í Kringlunni 4. „Verslun- in í Kringlunni byijaði vel, en satt best að segja höfum við orðið aðila, að fólk veit ekki einu sinni um P & Ó-verslunina í Kringlunni 4, veit varla einu sinni af því hús- næði. Það hefur sínar ástæður auðvitað, húsið sjálft og umhverfi þess er enn ekki fullfrágengið, en það stendur allt til bóta. Við erum ekki síður stórhuga með verslun okkar í Kringlunni 4,“ bættu þeir Guðmundur og Jón við. Strax eftir að þeir félagar keyptu verslunina í Austurstræti gerðu þeir miklar breytingar og úrbætur á versluninni að innan. „Við höfum samt lagt ríka áherslu á að breyta í engu þeim góða anda sem hér hefur alltaf verið. Það kom til dæmis aldrei til greina að breyta nafninu. Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu. Hjá P & Ó hafa margir starfað í gegn um tíðina, þar á meðal sum- ir af helstu fatakaupmönnum Reykjavíkur í dag,“ sögðu þeir Guðmundur Blöndal og Jón Ólafs- son. Morgunblaðið/Emilfa. Eigendur Herradeildar P & O, Guðmundur Blöndal t.v. og Jón Ólafsson t.h. GÆÐI, ENDING, ÖRYGGIÞÆGINDI -OG ÞÚ FÆRÐ MIKIÐ FYRIR PENINGANA. STERKIR - LETTIR OG HANDHÆGIR NES ttm PQRTHF UMBOÐS OG HEILDVERSLUN Austurströnd 1 sími 62 11 90 Seltjarnarnesi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.