Morgunblaðið - 08.04.1989, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 08.04.1989, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1989 ATVIN NU AUGL YSINGAR Bæjartækni- fræðingur Vestmannaeyjabær auglýsir stöðu bæjar- tæknifræðings lausa til umsóknar. Leitað er eftir byggingartæknifræðingi. Bæjartæknifræðingur er yfirmaður tækni- deildar bæjarins. Skilyrði er að umsækjendur hafi reynslu af stjórnun, gerð framkvæmda- og verkeftirliti. . Umsóknarfrestur er til 19. apríl. Umsóknir skal senda bæjarstjóra Vest- mannaeyja, Ráðhúsinu, 900 Vestmannaeyj- um. Upplýsingar um starfið gefa bæjarstjóri og bæjartæknifræðingur í síma 98-11088. Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum. Lögfræðingar - laganemar Opinber stofnun óskar eftir lögfræðingi til innheimtu- og lögfræðistarfa. Starfið er fjöl- þætt og áhugavert. Laun samkvæmt kjara- samningi ríkisstarfsmanna, en að auki er bílastyrkur í boði. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknum sé skilað til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 20. apríl nk. merktar: „Lögfræði - 9764“. Yfirvélstjóri Yfirvélstjóra vantar á rækjutogarann Nökkva HU 15, sem gerður er út frá Blönduósi. Upplýsingar gefur Guðmundur Ingþórsson í síma 95-4590 eða heima í síma 95-4243. Fisktæknir óskar eftir starfi eftir ca. 3 mánuði úti á landi. Hef góða þekkingu á verkstjórn, fram- leiðslustjórnun, bókhaldi og tölvuvinnslu. Til greina kemur starf tengt fiskiðnaði eða fleiri greinum. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt: „F - 2672“. Viltu breyta til? Byggingafyrirtæki á Malmösvæðinu í Svíþjóð auglýsir eftir einum múrara og tveimur smið- um. Húsnæði fyrir hendi. Nánari upplýsingar verða veittar nk. þriðju- dag milli kl. 14 og 16 að ísl. tíma. íslendingur svarar. Sími: 904646 709738, Löddeköpinge, Svíþjóð. Myndlistargagnrýn- andi - Leiklistar- gagnrýnandi - Tón- listargagnrýnandi - Balletgagnrýnandi Morgunblaðið vill ráða gagnrýnendur til starfa við blaðið. Stefnt er að því að ráða gagnrýnendur til starfa með núverandi myndlistargagnrýn- anda og tónlistargagnrýnanda. Ennfremur er stefnt að því að ráða leiklistargagnrýn- anda og balletgagnrýnanda. Umsóknir um þessi störf sendist ritstjórum Morgunblaðsins eigi síðar en 15. apríl með upplýsingum um náms- og starfsferil. fHorpnliM Rafeindavirkjar Okkur vantar rafeindavirkja vanan viðgerðum á siglingatækjum. Góð vinnuaðstaða og næg verkefni fyrir góðan mann. Greiðum flutning búslóðar. Upplýsingar hjá framkvæmdastjóra eða Guð- jóni Bjárnasyni, radíódeild, í síma 94-3092. Póllinn hf., ísafirði. Fjórðungssjúkra- húsið á Akureyri Staða yfirlæknis við fæðinga- og kvensjúk- dómadeild sjúkrahússins er laus til umsóknar. Staðan er laus strax eða síðar eftir sam- komulagi. Umsóknarfrestur er til 21. apríl 1989. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist framkvæmdastjóra sjúkra- hússins, Halldóri Jónssyni, sem einnig veitir nánari upplýsingar. Stjórn Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. RÍKISSPÍTALAR Bráðavakt Bráðavakt (almenn) verður felld niður á Landspítalanum föstudaginn 7. apríl vegna verkfalla. Barnadeild Landspítalans gegnir þó bráða- vakt þennan dag samkvæmt áætlun. Borgarspítalinn mun í staðinn annast al- menna bráðavakt umræddan dag, 7. apríl. Ríkisspítalar. RAÐA UGL YSINGAR FUNDIR - MANNFA GNAÐIR l/AI intllAKIklACAtiTAl/ 1 4 rv/-\univi/-\iv i vyr\. ) ÍSLANDS Aðalfundur 37. aðalfundur Kaupmannasamtaka íslands verður haldinn laugardaginn 8. apríl 1989 á Hótel KEA á Akureyri kl. 10.00 árdegis. Dagskrá: 1. Fundarsetning. 2. Ræða formanns. 3. Skýrsla framkvæmdastjóra. 4. Lagðir fram endurskoðaðir réikningar. Umræða og atkvæðageiðsla. 5. Greinargerð formanns bankaráðs Versl- unarbanka íslands hf., Gísla Einarssonar. 6. Greinargerð fulltrúa K.í. í stjórn Lífeyris- sjóðs verslunarmanna, Gunnars Snorra- sonar. Hádegisverðarhlé 7. Viðskiptaráðherra, Jón Sigurðsson, ávarpar fundinn og svarar fyrirspurnum. 8. Kosinn formaður og varaformaður K.í. til tveggja ára. 9. Kosnir tveir endurskoðendur og tveir til vara til tveggja ára. 10. Lagabreytingar. 11. Önnur mál. Tillögur og ályktanir. Þýsku skáldin Jurgen Becker, Ulla Hahn, Gunter Kunért og Guntram Vesper, lesa eigin kvæði úr bókinni „og trén brunnu" ásamt þýðendum sínum í Norræna húsinu laugardaginn 8. apríl kl. 14.00. Allir velkomnir. Goethe-lnstitut. Skeljungur hf. Aðalfundur Olfufélagsins Skeljungs hf. 1989 Aðalfundur félagsins verður haldinn föstu- daginn 28. apríl nk. kl. 17.30 á Suðurlands- braut 4, 8. hæð. Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins og póstlögðu fundarboði til hluthafa. Olíufélagið Skeljungur hf. Aðalfundur Aðalfundur Orlofsdvalar hf. verður haldinn laugardaginn 22. apríl 1989 kl. 14.00 í Nesvík, Kjalarnesi. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Breytingar á 3. grein samþykkta félagsins. Reikningar félagsins liggja frammi hjá for- manni frá 16. apríl. Stjórnin KENNSLA Bakarar- matreiðslumenn og aðrir, sem áhuga hafa Hinn heimsþekkti, danski „Konditör"meist- ari, Gert Sörensen, heldur sýnikennslunám- skeið í kökuskreytingum, sykurskreytingum og gerð eftirrétta í húsnæði Matreiðsluskól- ans okkar í Bæjarhrauni 16, Hafnarfirði, vik- una 10.-15. apríl. Hvert námskeið stendur í einn dag frá kl. 9-18 með matar- og kaffihléum. Fagmenn ganga fyrir, þar sem rými er takmarkað. Pantanir eru teknar í síma 651316 alla daga frá kl. 13-19. Missið ekki af þessu einstaka tækifæri! .ilftlillMi iCSSlll

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.