Morgunblaðið - 08.04.1989, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 08.04.1989, Blaðsíða 41
41 !80i JÍH'IA .8 HUOAdHAOUAJ ŒCÍAJaMUDHOM MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1989 Þessir hringdu . . . Kápa tekin í misgripum Gunnþórunn hringdi: Konan sem tók kápuna mína í misgripum á Rauðakrossfundi á Hótel Lind við Rauðarárstíg síðastliðið mánudagskvöld gjöri svo vel að hringja til mín í síma 22697. Fín fiskbúð Fiskunnandi hringdi. Ég vil endilega koma á fram- færi þökkum til þeirra sem opn- uðu fískbúð aftur í Starmýri. Þama var svo sem ágæt búð fyr- ir nokkrum árum en þessi verslun er hreint til fyrirmyndar hvað varðar hreinlæti og svo er fískur- inn þama hjá strákunum alltaf nýr og góður. Það er mjög gaman að koma til þeirra þeir em alltaf svo hressir og kátir. Elsku strák- amir mínir, haldið ykkur á sömu braut, það er svo mikilvægt að fá nýjan og góðan fisk. Skíðahúfa tapaðist Sjöfíi hringdi. Á föstudaginn langa týndi ég rauðri skíðahúfu í Fossvogsda’.n- um ásamt skíðavettlingum. Ég sé mjög eftir húfunni sem er rauð með skyggni úr efni og pijónuðum neðri helmingi. Ef einhver hirðu- samur hefur tekið hana til handar- gagns þá væri mér mikil þægð í því að hann hringdi í mig í síma 681388. Einnig vil ég leggja áherslu á hve Fossvogsdalur er dásamlegur til skíðaiðkana. Það er svo mikils virði að komast út í náttúmna og undursa'mlegt að þessi dalur skuli vera í miðri borg á tímum of mikillar vinnu og hraða. Fermingarhringurinn týndur Bára Hlín Erlingsdóttir hringdi. Ég týndi fermingarhringnum mínum milli Þrastarhóla og Hraunbergs í Breiðholti á mánu- daginn. Hringurinn er þrílitur úr silfri, kopar og gulli. Finnandi vin- samlegast hringi í síma 76134. Barnaefni vekur ótta Orn Leó Guðmundsson hringdi. Ég vil leyfa mér að mótmæla harðlega þeirri þróun sem virðist eiga sér stað á flutningi bamaefn- is hjá ríkissjónvarpinu. Vil ég nefna sem dæmi þáttaröð sem kallast Tuskutóta, nánar tiltekið þátt úr þeirri röð sem sýndur var sunnudaginn 2. apríl síðastliðinn. Það efni var að mínu mati alls ekki við hæfí barna. En þar voru atriði sýnd sem voru til þess eins fallin að kalla fram ótta og óör- yggi og spumingar um tilveru drauga. Slíkt efni gerir jafnvel heimili bamsins að dularfullum stað sem ógnar tilvem þess. Ég spyr forráðamenn ríkissjónvarps- ins og þá sem teljast ábyrgir fyr- ir því efni sem borið er á borð fyir böm þjóðarinnar hver er til- gangurinn með slíkum flutningi? Vinsamlegast sýnið efni fyrir bömin okkar sem vekur gleði og áhuga á því sem telst uppbyggj- andi og fagurt og þroskandi. Þið foreldrar sem eruð mér sammála vinsamlegast látið í ykkur heyra! Með þökk fyrir það sem vel er gert hjá ríkissjónvarpinu og von um afdráttarlaus og skjót við- brögð. Aðför að Sjöfii Húsmóðir hringdi: Ég er móðir þriggja bama f Seljahverfí og mér fínnst ýmislegt dularfullt í herför foreldra gegn skólastjóra Ölduselsskóla. Aður fyrr gekk erfíðlega að fá fólk í stjóm foreldrafélagsins en nú skyndilega var mikill áhugi á því. Einnig hefur maður heyrt að tveir í stjóminni eigi máka í kennara- liði skólans og eigi því sérstakra hagsmuna að gæta. Einnig virðist mér að stjómin afgreiði margt án þess að almennir foreldrar komi þar við sögu. Ég hef áhyggjur af því að þessi stjóm ætli að skemma fyrir okkur með sínum málflutn- ingi. Það er líka skrýtið að skóla- stjórinn fékk ekki tækifæri tjl að sýna hvað í henni býr, hún var strax kveðin niður. Eitt bama minna er mjög ánægt í tímum hjá Sjöfn en kemur heim einn daginn og spyr mig hvað sé um að vera. Það er erfitt að skýra það út. Auðvitað heldur maður bömunum sem mest frá svona málum en kemst ekki hjá því að ræða þau. Alltaf hefur verið góður andi í þessum skóla og þess vegna fara lætin fyrir bjóstið á manni. Armbandsúr týndist Armbandsúr tapaðist mánu- daginn 5. apríl á leiðinni frá Há- skóla ■ íslands niður í miðbæ. Skilvís fínnandi vinsamlega hafí samband í síma 657275. Hvareru N epal-töskurnar ? Guðný hringdi. Veit einhver hvar hægt er að fá Nepal-töskur? Þær fengust áður í Tínu Mínu á Laugaveginum sem nú er hætt. Hrikalegar miðdegissögur Anna hringdi. Mér fínnst hryllingur að hlusta á miðdegissöguna Riddarann og drekann sem nú er verið að lesa þar sem djöfullinn er ein af sögu- hetjunum. Og ekki var Blóðbrúð- kaup skárra sem áður var lesið. Má ég þá frekar biðja um að hald- ið verði áfram að lesa ævisögu Ama prófasts en sagan sú er hafsjór af fróðleik. Góður lestur hjá Pétri þul Þorvarður Júliusson á Sönd- um í Vestur-Húnavatnssýslu hringdi. Margs er góðs að minnast úr Ríkisútvarpinu en langhæst ber á þeim vetri, sem nú er að líða, lest- ur Péturs Péturssonar, fyrrver- andi þuls, úr æviminningum séra Áma prófasts Þórárinssonar. Dýrum fötum stolið Bryndís hringdi. Á miðvikudag fyrir páska var stolið svörtum stórum plastpoka með miklu af dýrum kven- og bamafatnaði við pakkaafgreiðsl- una á Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík. Þar á meðal var mód- elrússkinnskápa og leðuijakki. Þeir sem eitthvað kynnu að vita um fótin vinsamlegast skili pokan- um á Umferðarmiðstöðina eða hringi í síma 91-72398 eða 98-11292. ÞRJAR GOÐAR SÝNINGAR •• LEYSUMOLL LEKAVANDAMÁL Leggjum þakdúka á flöt þök. Þéttum svalir yfir íbúðum. Þéttum bárujárnsþök sem leka. hrnHWlM#1 IVV1 Símar 651710 og rL A A AHU III ■ 685350, bílas. 985-23838 Tölvustýrður gjaldtökubúnaður verður tekinn í notkun á Bakkastæði vestan Kalkofnsvegar mánudaginn 10. apnl nk. Gjaldskylda er , frá 07.30 til 19.00 mánud.-föstud. Ókeypis er frá kl. 19.00- 07.30 svo og um helgar. Ýta verður þó á hnapp og taka segulmiða til að opna innhlið og nota síðar við úthlið. Gjaldið er 30 kr. fyrir fyrstu klukkustundina, en síðan 10 kr. fyrir hverjar byrjaðar 20 mínútur. Miðaaflesari við varðskýli tekur við þrem mynt- stærðum, 5 kr., 10 kr. og 50 kr. og getur gefið til baka. Týnist segulmiði skal ýtt á hnappinn „týndur miði“ og verður þá að greiða 450 kr. til að komast út sé vörður ekki á stæðinu. Mánaðarkort eru seld í varðskýli á 3000 kr. og verður hægt að kaupa þau til fleiri mánaða í senn. Aðeins er ekið inn á stæðið frá Kalkofnsvegi og út í Tryggvagötu. ■■■ l| f Gatnamálastjóri. LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL. 10-17 UTIHURÐIR FLÍS AR G L E R LISTGLER Sími: 45133 KÁRSNESBRAUT 110 Láttu sjá þig á Kársnesbrautinni, það verður tekið vel á móti þér. SÍMI43411 KÁRSNESBRAUT 98 SÍMI46044 KÁRSNESBRAUT 106 Metsölublað á hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.