Morgunblaðið - 08.04.1989, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 08.04.1989, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRIL 1989 Jón Kr. Kristjáns- son fv. skólsLStjóri, Víðivöilum - Minning Fæddur 29. júlí 1903 Dáinn 29. mars 1989 Eitt af því fáa sem við, mann- anna böm, vitum með fullri vissu er það, að einhvern tíma á lífsleið okkar, fyrr eða síðar, ber dauðinn að dyrum. Og enginn kemst nokkru sinni undan að hlýða kalli hans. En þótt við vitum þetta, kemur „ __dauðinn okkur raunar alltaf á óvart. Við vitum að vísu, að ekkert er eðlilegra en hann drepi á dyr, þegar langri og farsælli starfsævi er lokið og andlegir og líkamlegir kraftar eru senn að fullu þrotnir. Engu að síður kemur hann þá líka á óvart, því að söknuður okkar eftir látinn ástvin, hvenær sem hann fer, er ætíð sár. Hins vegar er alltaf hug- ljúf huggun og sárabót, að hinn látni hafði notið þeirrar gæfu að lifa langan dag og skila ættjörð sinni og afkomendum þörfu og heill- aríku ævistarfi. Alveg sérstaklega kemur þó dauðinn okkur á óvart, þegar hann drepur á dyr hinna ungu, sem ýmist hafa ekki náð fullum þroska eða eru að búa sig undir mikilsvert og göfugt lífsstarf, — eða em hreint og beint í blóma lífsins, á hátindi mannlegs þroska. Þá er söknuður okkar þyngri en orð fá lýst. Þessum sannindum brá fyrir í huga mér þegar ég frétti í gær, síðdegis, 29. mars, að elskulegur vinur minn og samstarfsmaður um áratugi, Jón Kr. Kristjánsson, fv. skólastjóri og bóndi á Víðivöllum í Fnjóskadal, hefði látist þá um vjiorguninn á sjúkrahúsi á Akureyri. í þetta sinn kom dauðinn raunar ekki mjög á óvart. Hann barði að dyrum gamals manns, sem lokið hafði frábærlega farsælu og bless- unarríku ævistarfí og var að verða þrotinn að líkamsþreki, þótt hann héldi, sem betur fór, vöku sinni að mestu til hinstu stundar. Engu að síður munu ástvinir hans, samstarfsmenn og vinir allir eiga erfítt með að sætta sig við það, að hann skuli vera farinn,— að þeir skuli ekki lengur geta hitt og deilt geði við þennan ráðholla og vitra öðling. En þrátt fyrir það fer hann raunar aldrei frá okkur að fullu. Minningamar mörgu og ___góðu um hann munu alltaf fylgja okkur meðan við erum á veginum og vera okkur sífelld hvatning til að duga vel í störfum og bregðast ekki í neinu. Á þær bar aldrei neinn skugga. Eg og fjölskylda mín nutum þeirrar gæfu að eignast órofa vin- áttu Jóns og Huldu og fáum það aldrei fullþakkað. Af þeim ástæðum eru þessi fáu kveðju- og þakkarorð flutt. Jón fæddist að Veisu í Fnjóska- dal 29. júlí 1903. Foreldrar hans vom Kristján Jónsson bóndi þar og á Víðivöllum í sömu sveit og kona hans, Anna Krístjánsdóttir. Hann lauk kennaraprófi árið 1930. Bóndi á Víðivöllum í Hálshreppi 1933—76. Kennari í Hálsskólahverfí 1926—29 og 1930—32. Skólastjóri heimavist- arbamaskóia að Skógum í Fnjóskadal 1932—72. Formaður Ungmennafélagsins Bjarma 1924—29 og 1930-34. Sýslunefnd- armaður 1938-1970. í hreppsnefnd 38-42. Formaður Búnaðarfélags i Hálshrepps 1942—59. Formaður sjúkrasamlags Hálshrepps 1945—72. Formaður sóknamefndar og safnaðarfulltrúi Draflastaða- sóknar 1950—79. í stjórn Spari- sjóðs Fnjóskæla 1944—82. Af þessu lauslega starfsyfirliti sést, hve mikið traust sveitungar og samferðamenn hafa borið til Jóns að fela honum, áratugum sam- an, forystu í flestum ábyrgðarmestu trúnaðarstörfum sveitar og héraðs. Og öll störf sín vann Jón af þeirri trúmennsku, festu og vitsmunum sem allir kunnugir þekkja. En það er margt fleira en þama er nefnt sem Jón vann að, á and- legu og félagslegu sviði, auk um- svifamikilla ræktunar- og land- búnaðarstarfa, sem þau hjón stund- uðu af fágætum þrótti og myndar- skap áratugum saman. Ég nefni hér aðeins tvennt: Hann var um árabil í stjóm Kenn- arafélags Suður-Þingeyinga, þar sem leiðir okkar lágu fyrst saman. Og þar lagði hann alltaf gott til mála eins og annars staðar, þar sem hann kom við sögu. Hann var einn- ig um tíma í stjóm Kennarasam- bands Norðurlands, sem hafði mik- il og farsæl áhrif í skólamálum fjórðungsins. Hitt atriðið var mælska hans og ritleikni. Hann var mjög vel máli farinn og vakti jafnan athygli á mannfundum fyrir rökfastan mál- fiutning og fagurt mál. Komu þeir eiginleikar líka glöggt fram í mörg- um erindum og greinum, sem hann skráði, flutti og birti um ýmis efni og ekki síst um þjóðlegan fróðleik. Vöktu þær greinar verðskuldaða athygli og þyrfti að safna þeim saman á bók. Hann hafði tvímæla- laust veralega fræðimannshæfi- leika en gat ekki, vegna margvís- legra anna, lagt þá rækt við þann hæfíleika sem hann hefði gjarna viljað. En það veit ég vel, eins og allir nákomnir, að margur dagurinn og mörg vökustundin fór til félagsmála hans og ritstarfa. Starfsvettvangur hans var því óvenju víðtækur og fjölþættur. Jón á Víðivöllum var mikill ham- ingjumaður í einkalífí sínu. Hann var kvæntur ágætri, mikilhæfri og listrænni konu, sem lifir mann sinn, Huldu Kristjánsdóttur, bónda í Nesi í Fnjóskadal Jónssonar, og Guðrún- ar Stefánsdóttur frá Selalæk í Rangárvallasýslu. Börn þeirra era fímm, öll mikil- hæf og bráðdugleg eins og þau eiga kyn til. Þau eru þessi í aldursröð: Karl, f. 4.2. 1935, lögregluþjónn, búsettur á Akureyri, kvæntur Mars- elínu Hermannsdóttur. Þau eiga tvö börn; Kristján, f. 1.1. 1937, bóndi á Veturliðastöðum í Fnjóskadal, kvæntur Guðríði H. Arnþórsdóttur. Þau eiga fjögur börn; Álfhijdur, f. 3.6. 1938, húsfreyja, gift Árna S. Ólasyni. Þau búa í Víðifelli, sem Þann 30. mars síðastliðinn lést amma okkar Stefanía Þorvalds- dóttir í Landspítalanum í Reykjavík. Stefanía fæddist í Veturhúsum í Hamarsfirði Suður-Múlasýslu 23. apríl árið 1902. Foreldrar hennar vora Þorvaldur Ólafsson og Mekkín Valgerður Eiríksdóttir. Nokkurra ára gömul flutti hún, ásamt foreldr- um sínum, að Hálsi í sömu sveit og síðar að Karlsstöðum á Beru- fjarðarströnd. Árið 1927 giftist Stefanía Þorleifi Hildibjarti Sig- urðssyni í Fossgerði og bjuggu þau þar ailan sinn búskap. Þau eignuð- ust þrjú böm, Þorgerði árið 1928 sem er gift Eiríki Jónasi Gíslasyni brúarsmiði, Sigurð árið 1930 sem er kvæntur Kristbjörgu Sigurðar- dóttur, þau búa á Karlsstöðum, og Ragnhildi árið 1943 sem er gift Jóni Hannibalssyni kennara. Þorleifur afi okkar dó árið 1958 en amma hélt áfram búskap með aðstoð barna sinna, einkum Sigurð- ar sem býr á næsta bæ við Foss- gerði, en einnig dætra sinna fyrir sunnan. Á árunum 195,6 til 1983 vorum við systkinin, eitt eða fleiri í einu, í sveit hjá ömmu. Við eigum góðar minningar frá þessum sumram og þó að við höfum verið í Fossgerði er nýbýli, byggt úr landi Víðivalla. Þau eiga þijú böm; Völundur, f. 6.8. 1943, landfræðingur, starfs- maður hjá Rannsóknastofnun bygg- ingariðnaðarins. Ókvæntur; Áðal- steinn, f. 10.6. 1949, bóndi á Víði- völlum, kvæntur Jónínu E. Guð- mundsdóttur. Þau eiga þijú börn. Eins og fyrr segir bjuggu Jón og Hulda rausnarbúi á Víðivöllum til ársins 1976, eða í 43 ár. Nokkru fyrr höfðu þau flutt til dóttur sinnar og tengdasonar, sem þá höfðu byggt sér fallegt nýbýli, Víðifell, sunnan við Víðivallabæinn. Tók þá yngsti sonurinn, Aðalsteinn og kona hans við búinu á Víðivöllum. Þegar Jón og Hulda hófu búskap á Víðivöllum var jörðin harla rýr og búskaparhættir að mestu í líku horfi og verið hafði í sveitum ís- lands um aldir. En með ráðdeild og þrotlausum dugnaði tókst þeim á búskapartíma sínum að gjörbreyta jörðinni, svo að segja má hiklaust, að hún hafi verið orðin stórbýli. Um það mikla framtak mætti skrifa langt mál, en ég nefni aðeins þetta: Þau byggja stórt og fallegt íbúð- arhús úr steini á áranum 1940 til 1945. Seinna byggja þau vönduð fjárhús ásamt hlöðu og ráku alltaf stórt bú með blönduðum kúa- og fjárbúskap. í búskapartíð þeirra hjóna margfaldaðist túnið að stærð, svo að það nær nú milli landa- merkja. Snemma á 6. áratugnum byggðu þau vandaða heimilisraf- stöð, sem fær afl sitt úr læknum ofan við bæinn. Þau höfðu bæði mikinn áhuga á tijá- og garðrækt og komu furðu mikiu í verk á því sviði. Þau rækt- á mismunandi tímum eru minningar okkar samofnar og koma oft upp í samtölum okkar systkinanna. Til dæmis erfðum við búin hvert eftir annað. Þar höfðum við kindur, kýr og hesta eins og á alvöra sveitabæj- um og annað slagið fengum við ömmu til að koma og leggja blessun sína yfír búskapinn. Um leið og við kveðjum ömmu og þökkum henni samfylgdina langar okkur að rifja upp nokkur atriði sem era okkur í bamsminni. Amma vildi að við værum dugleg þegar mikið var að gera. Til dæmis ef hey lá flatt og þokan að læðast inn fjörðinn. Reynt var að gera ein- hæf störf áhugaverð með ýmsu móti. Þannig hafði amma ofan af fyrir Gísla þegar verið var að snúa með hrífum í stórum flekkjum með því að útskýra fyrir honum almenn brot. „Núna væri búinn einn þriðji hlutinn af flekknum og þá væru eftir tveir þriðju." Sauðburðurinn á vorin var líka mikill annatími því amma hugsaði mjög vel um kind- urnar sínar. Hún vildi fá hraust og falleg lömb og var oft ánægðari með einlembinga en tvílembinga sem gátu verið minni og veiklulegri þó að auðvitað væri hagstæðara að fá tvílembinga. Við fengum yfirleitt Stefanía Þorvalds- dóttir - Minning uðu skóg, sem nú er orðinn stórvax- inn, í brekkunum fyrir ofan bæinn og fallega skrúðgarða við íbúðar- húsið. Þessi mikla ræktun er hin mesta staðarprýði og vekur athygli allra, sem þangað koma og fara um veginn. Kunnugir vita, að þar á Hulda langstærstan hlut að máli. Þegar ég hugsa um þessar miklu framfarir á jörðinni í búskapartíð Jóns og Huldu, finnst mér það ævintýri líkast. Enginn vafi er á því, að þar hef- ur frábær samhugur og dugnaður hjónanna ráðið mestu, og að sjálf- sögðu hafa bömin létt mikið undir strax og þau stækkuðu og á meðan þau vora heima, enda öll bráðdug- leg. En ég veit, að á engan er hall- að þó að ég fullyrði, að þar sé hlut- ur hinnar þrekmiklu, fjölhæfu og listfengu húsfreyju langstærstur. Áram saman hvíldi búskapurinn að stóram hluta á herðum hennar, þegar Jón var tímum saman við kennslu og umfangsmiki! félags- májastörf. Ég fann það líka oft á vini mínum, Jóni, að hann gerði sér fulla grein fyrir því að hann átti frábæra konu. Eftir að gömlu hjónin hættu bú- skap og fluttu til dóttur sinnar og tengdasonar, unnu þau að sjálf- sögðu alltaf sitt af hveiju við bú- skapinn hjá bömum sínum, tengda- dóttur og tengdasyni. Og svo mun það hafa verið með Jón allt fram á síðasta ár. Heilsu hans hafði þó hrakað með köflum síðustu missir- in. En þrátt fyrir það gat hann nær alltaf verið heima og oftast haft fótavist. Það var ekki fyrr en í mars sl., að hann varð svo þróttlít- ill, að nauðsynlegt reyndist að flytja hann á sjúkrahús til Akureyrar. Þar var hann síðan rúmfastur í fullan mánuð og naut bestu að- hlynningar sem hægt var að veita. Hann leið aldrei mikið, en kraftar hans þurra smám saman með hveij- um degi sem leið. Þó hélt hann vöku sinni fram undir það síðasta. Hulda var hjá honum allan tímann og veitti honum ró og öryggi, eins og hún hafði alltaf gert. Hanri andaðist að morgni mið- vikudagsins 29. mars. Ég get ekki lokið þessum ófull- komnu kveðjuorðum mínum án þess að rifja upp í örstuttu máli, hvemig kynni okkar Jóns bar að höndum og ég fann þann einlægasta og besta vin, mér ótengdan, sem ég hef nokkra sinni eignast. Atvik höguðu því svo til, að ég varð skólastjóri á Húsavík haustið 1940 og hélt því starfi í tuttugu ár. Það kom einnig í minn hlut strax að taka við formennsku í Kennara- félagi Suður-Þingeyinga. Og vorið 1941 boðaði ég alla kennara sýsl- unnar til fundar og nokkurra daga námskeiðs á Húsavík og fékk Aðal- stein Sigmundsson, síðar námstjóra frá Árbót, sem leiðbeinanda, en hann var þá þegar orðinn lands- kunnur fyrir r.ýjar og áhugaverðar kennsluaðferðir, sem hann beitti. Fundur og námskeið vora mjög vel sótt úr báðum sýslum, og allir einkar ánægðir með leiðsögn Aðal- steins, enda hafði hún mikil áhrif á kennsluaðferðir okkar margra. Þessa eftirminnilegu daga urðu fyrstu kynni okkar Jóns. Og þegar ég hugsa um það núna, undrast ég bæði og gleðst innilega yfir því, hve vináttutengsl okkar urðu fljótt náin og aldrei fallið á þau nokkur skuggi öll þessi ár. Það var strax eins og við hefðum lengi verið nátengdir. Og okkur hefur ekki nægt að tala saman í síma og hittast öðra hveiju. Við höfum alltaf skrifast á síðan, mörg og oft löng bréf á hveiju ári. Bréf okkar hafa því nú náð furðu- lega hárri tölu. En svo kom fleira til. Við gerðum okkur fljótt grein fyrir því, að kon- ur okkar vora náskyldar, föð- urömmur þeirra vora systur. Eftir það urðu heimilatengsl okkar ennþá nánari. Þau hjónin og börn þeirra urðu heimilisgestir okkar er þau komu til Húsavíkur og við hjá þeim. Einkum var það Jón, sem oft kom til okkar vegna starfa sinna í sýslu- nefnd og öðram félagsmálum. Og alltaf var hann jafnmikill aufúsu- gestur. Raunar get ég sagt með sanni, að við höfum mörg árin átt annað heimili hjá þeim, því að þau tóku tvo drengi okkar í fóstur mörg sumur og dvöldum við þá líka hjá þeim dögum saman. Af þessu má sjá, að ég og fjöl- skylda mín stöndum í ómetanlegri þakkarskuld við þessi ágætu hjón fyrir órofa vináttu þeirra, ástúð og hjálpsemi. Og nú er Jón á Víðivöllum, sá frábæri drengur og mikilsvirti leið- togi, horfinn frá okkur til nýrra ókunnra heimkynna, þar sem við vonum að hitta hann áður en lang- ir tímar liða. Hann verður jarðsettur að Hálsi laugardaginn 8. apríl. Ég og fjölskylda mín sendum honum enn okkar innilegustu þakk- ir og biðjum honum allrar blessunar á nýjum tilverasviðum. Það munu einnig allir gera sem kynntust hon- i I í 4 4 4 um. Eiginkonu og íjölskyldu hans sendum við einlægar þakkir og inni- legar samúðarkveðjur. Sigpirður Gunnarsson, IV. skólastjóri. frí í skóla á vorin til að fara austur í sauðburðinn. Inn á milli komu tímabil þar sem lítið var að gera og þá lékum við okkur úti eða lágum upp í dívan heilu dagana og lásum. Þetta fannst ömmu alveg sjálfsagt þó að hún væri sjaldan iðjulaus. Hún sagði að börn þyrftu að leika sér og okkur er öllum minnisstætt að hún sagði oft að það mætti aldrei svíkja börn. Henni var einnig mjög umhugað um að börn fengu nóg að bórða og nógan svefn og það þýddi ekkert að biðja hana að vekja sig á morgn- ana nema að eitthvað sérstakt stæði til. Ríkt var í ömmu að vera sjálfri sér nóg og láta engan eiga neitt hjá sér. Það sama á við marga af hennar kynslóð. Hún þakkaði fyrir í hvert skipti sem eitthvert verk var unnið. Okkur systkinunum voru eignaðar kindur og gefnir pening- arnir sem fengust fyrir lömbin á haustin. Þetta var rausnarlegt kaup fyrir sumardvöl okkar krakkanna en amma kallaði okkur alltaf kaupafólkið sitt. Amma hafði mjög gaman af blómum og gróðri. Henni var annt um tijálundina á landareigninni sem afi gróðursetti að mestu en hún var þó meira fyrir litskrúðug blóm. Inni vora blóm í öllum gluggum, síblómstrandi og falleg, sérstaklega vora pelargóníumar ræktarlegar. í seinni tíð var brekkan fyrir ofan bæinn afgirt og friðuð á vorin og sumrin svo að blágresið gæti blómgast. Fyrsta útsprangna blá- gresið á vorin var mikið gleðiefni og þegar sjónin var farin að dapr- ast spurði hún iðulega hvort brekk- an væri blá núna. Henni þótti vænt um túnið sitt og lét aldrei leggja veg yfír það heim að bænum. Held- ur náði túnið alveg að bæjarveggn- um. Snyrtimennska var ömmu mik- ilvæg, jafnt úti sem inni. Hún sá til þess að hvergi væri drasl og öll hús vel máluð. Amma vildi hafa fugla kringum bæinn og mátti kötturinn una því að vera undir strangri gæslu og

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.