Morgunblaðið - 08.04.1989, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 08.04.1989, Blaðsíða 33
6861 Jlfl'íA .8 flU0ACIflADUAJ aiOAjaVIUOflOM _______________________ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARUAGUR'8."APRÍL "Í989 33 Minning': Guðmundur S. Einars son frá Dalsmynni Fæddur 17. desember 1950 Dáinn 29. mars 1989 Enn einu sinni stöndum við mannanna böm frammi fyrir torr- áðnustu gátu lífsins, sláttumaður- inn slyngi hefur reitt til höggs og skilið eftir sig sár í bijóstum vorum. Maður á góðum aldri hefur verið kallaður yfir móðuna miklu til nýrra verka. Við slíka fregn vakna marg- ar spurningar en fátt verður um svör. Andspænis slíkum krafti dugar lítið margslungið vit mannsins eða tækniundur nútímans, enginn getur flúið sinn skapadóm. Guðmundur Siggeir fæddist og ólst upp í Dalsmynni í Villingaholts- hreppi og bjó hann þar ásamt for- eldrum sínum, Einari Einarssyni og Eyrúnu Guðmundsdóttir. Hann var búfræðingur að mennt og hafði mikið yndi af öllum skepnum en þó sérstaklega hestum, ófáar eru fjallferðirnar sem hann hafði farið ásamt ýmsum öðrum hestaferðum. í slíkum ferðum áttum við oft góð- ar stundir saman, þar sem léttleiki og kímni Guðmundar naut sín vel. Félagi vor og vinur Guðmundur Einarsson hefur nú lagt í það ferða- lag, sem ekki verður aftur úr snúið. Tíma hans á meðal vor er lokið. Megi fagrir fjallasalir og grænar sléttur taka honum opnum örmum, þar sem hófatök fáka og kindajarm bergmálar milli fjallstoppa. Megi foreldrar hans og systkini minnast hins góða í fari hans og fyrirgefa honum breyskleika. Með þessum orðum viljum við þakka Guðmundi samfylgdina. Fjölskyldu hans sendum við inni- legustu samúðarkveðjur. Bragi Agústsson, Jóhann Agústsson. Drottinn gaf og Drottinn tók. Þegar mér bárust þau hörmulegu tíðindi að Guðmundur vinur minn í Dalsmynni væri allur, duttu mér í hug orð Þórbergs Þórðarsonar: „Ég þarf að hugsa, ég á svo margt eft- ir óhugsað." Guðmundur fæddist í Dalsmynni 17. desember 1950. Gummi átti dálítið sérstætt líf. Hann var dreng- ur sérstaklega góður og þótti vænt um dýr og menn og bar virðingu fyrir því grasi og þeirri mold sem hann gekk á. Hver er sinnar gæfu smiður, Gummi var einfari og þáði ekki atlot annars fólks. Hann bjó í for- eldrahúsum alla sína ævi, var bæði glöggur á skepnur og menn og tók tillit til þeirra dýra sem gengu af íslenskri náttúru. Ég kynntist Guðmundi fyrir 13 árum, þá riðum við saman til fjalls, inn á Flóamannaafrétt. Gummi var geysigóður smali með arnfrá augu og betri heyrn en gekk og gerðist meðal smala. Ástæða þess að ég skrifa um Gumma örlítinn pistil er sú að ég vil þakka honum sam- fylgdina. Þó árin væru ekki ýkja mörg, þá rista þau í hjarta mitt, minningu um góðan dreng og sér- stakan skepnumann. Ég vil þakka fyrir þessi ár sem við nutum kunn- ingsskapar hvor annars, og bið góðan guð að varðveita hann í nýj- um heimi, því ég veit það af eigin raun, að Guðmundur í Dalsmynni þykir góður liðsauki í Himnaríki. Ég sendi foreldrum hans og systkinum samúðarkveðjur mínar. Jóhann B. Guðmundsson t Útför eiginmanns míns og föður okkar, JENS ELÍS JÓHANNSSONAR fyrrum bónda f Sælingsdal, ferfram frá Hvammskirkju f Dalasýslu laugardaginn 8. apríl kl. 14.00. Bíll fer vestur frá Umferðarmiðstöðinni kl. 8.00 á laugardaginn og til baka sama dag. Vinsamlega hafið samband við Unni í síma 43438 eða Erlu í síma 92-27326. Fyrir hönd annarra vandamanna, Guðrún Oddsdóttir og börn. t Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐFINNA KRISTJÁNSDÓTTIR, Hringbraut7, Hafnarfirði, lést í Borgarspítalanum 1. apríl. Útförin hefur farið fram. Ármann Sigurðsson, Kristján Armannsson, Aðalheiður Björnsdóttir, Sigurbjörg Armannsdóttir, Gylfi Sigurðsson, Rán Armannsdóttir, Bergþór Pálmason, Ægir Armannsson, Ragnhildur Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. t Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, RÓSU GUÐMUNDSDÓTTUR, Laugarásvegi 58. Helga M. Einarsdóttir, Ólafur Guðnason, Sigriður Einarsdóttir, Guðmundur Ingólfsson, barnabörn og barnabarnabörn. Kristín H. Stefáns- dóttir - Minning Fædd 28. júní 1895 Dáin 1. apríl 1989 í gær, föstudag, fór fram frá Foss- vogskirkju útför Kristínar Hólmfríð- ar Stefánsdóttur. Kristín var dóttir hjónanna Stef- áns Bergmanns Björnssonar, bónda, og Elínar Sigríðar Þorsteinsdóttur, en þau bjuggu í Miðfirði í Skeggja- staðahreppi þegar Kristín- fæddist. Þau Stefán og Elín áttu þrjú önnur börn; Hildigunni, sem dó í æsku; Jónínu, sem einnig dó ung; og Stein- þór, sem lést árið 1967. Þegar Kristín var á öðru ári lést faðir hennar. Móðir hennar varð þá að bregða búi og fór Kristín í fóstur að Kálfaströnd við Mývatn, þar sem móðursystir hennar var húsfreyja. Taldi Kristín Mývatnssveitina alltaf æskustöðvar sínar, þótt hún færi aftur til móður sinnar níu ára göm- ul. Dvaldi hún enda áfram á Kálfa- strönd mörg sumur eftir það. Kristín giftist árið 1920 Matthíasi Lýðssyni, verkstjóra, frá Hjallanesi í Landsveit. Elín, móðir Kristínar, fylgdi dóttur sinni og bjó hjá þeim hjónum til dauðadags, árið 1955. Þau Kristín og Matthías eignuðust þijú börn; Elínu, sem lést árið 1977; Huldu, sem gift er Runólfi Halldórs- syni; og Gunnar, sem kvæntur er Theodóru Ólafsdóttur. Bamabörn Kristínar eru sjö og bamabarnabörn- in orðin tólf. Eiginmann sinn missti Kristín árið 1974. Síðasta áratuginn bjó Kristín hjá Huldu dóttur sinni og eiginmanni hennar. Þar naut hún aðhlynningar og þau hjónin gættu þess að aldurinn yrði Kristínu ekki einangrun. Rúmir níu áratugir eru löng ævi. Kristín hélt andlegu og líkamlegu þreki að mestu fram undir hið síðasta og lifði því hvert ár lifandi. Hún var barn síðustu aldamóta og um margt sérkennileg kona. Einkum í ljósi líðandi stundar, því hún lét tímann og tískuna ekki breyta viðhorfum sínum að ráði. Hún átti skap og var stundum stjórnsöm í meira lagi. Á móti var hún glettin og létt í lund og fann þannig sitt eigið jafnvægi. Hennar verður minnst með brosi og hlýju. Halldór Valdimarsson Minning: Margrét F. Bjarna- dóttir - Kirkjuferju Fædd 27. júlí 1917 Dáin 28. mars 1989 í dag kveðjum við ömmu á Kirkju- feiju, Margréti F. Bjamadóttir. Það er okkur systkinunum mjög erfitt að setja á blað kveðjuorð til hennar. Minningarnar sem við eigum em svo margar og góðar og einkennast af allri þeirri ást og hlýju sem hún gaf okkur. Þegar við voruu. krakkar var farið nánast um iiveija helgi til afa og ömmu 4 Kirkjufeiju, alltaf var okkur tekið opnum örmum. Mörg jól og áramót voru haldin hjá þeim. Amma var alltaf sístarfandi og undi sér sjaldan hvíldar, því gesta- gangur var mikill og heimilið stórt. Þrátt fyrir það, munum við hana ekki öðmvísi en i góðu skapi og fjör- ugri og hafði hún ætíð tíma fyrir okkur sama hvað bjátaði á. Amma eignaðist 12 börn og em 11 á lífi, barnabör'nin em 39 og langömmubörnin em orðin 26. Hún var virkilega stolt af sínum stóra hóp. Elsku mamma, við sendum þér og systkinum þínum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Elsku ömmu þökkum við fyrir alla hennar ástúð og hlýju. Söknuðurinn er mikill. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Sigga, Þórunn, Jóna, Þórður. + Þökkum auðsýnda vináttu og hlýhug við fráfall eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa okkar, BJÖRNS BJÖRNSSONAR. Guðrún Pétursdóttir, Sigríður Björnsdóttir, Helga Björnsdóttir, Dagný Björnsdóttir, Ragnar Guðmundsson, Pétur H. Björnsson, Sigurdís Sigurbergsdóttir, Björn Logi Björnsson, Petrfna Úlfarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum innilega öllum, andlát og útför, + er auðsýndu okkur samúð og hlýhug við VALGERÐAR SIGURÞÓRSDÓTTUR, frá Lambhaga. Þóra Gfsladóttir, Ingileif Gísladóttir, Helga Gfsiadóttir, Sveinn Sigurðsson, Nikulás Gfslason, Edda Helgadóttir, Ólafur Gíslason, Sigríður Vilmundardóttir, Ingvar Ingvarsson, Þóra Stefánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum af alhug samúð og vináttu okkur sýnda við andlát og jaröarför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, JÓNASAR K. JÓSTEINSSONAR yfirkennara, Mávahlfð 8. Sérstakar þakkir eru færðar Oddfellowum. Gréta Kristjánsdóttir, Kristin Jónasdóttir, Valdimar Örnólfsson, Kári Jónasson, Ragnhildur Valdimarsdóttir, Jónas Valdimarsson, Örnólfur Valdimarsson, Kristján Valdimarsson, Þórunn Káradóttir, Daði Kárason. + Þökkum innilega auösýnda samúð og vinarhug við andlát og út- för móður okkar, stjúpmóður, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, MAGNEU SIGURÐARDÓTTUR. Hrafnhildur Einarsdóttir, Viggó Einarsson, Björgvin Hannesson, Ástrfður Hannesdóttir, Dóra Hannesdóttir, Karl Sveinsson, Sigurbjörg Hjálmarsdóttir, Sigurveig Sólmundsdóttir, Bjarni Magnússon, Jón H. Júlíusson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.