Morgunblaðið - 08.04.1989, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1989
Tveir valkostir til skoðunar hjá ATLANTAL:
Bjartsýni á nýtt
álver eða stækkun
Svar berst stjórnvöldum fyrir 3. maí
Á FUNDI ATLANTAL-hópsins með íslensku viðræðunefndinni í gær-
dag var ákveðið að fyrirtækin fjögur í hópnum myndu hvert um sig
tilkynna íslenskum stjómvöldum niðurstöðu sína um þátttöku i nýju
álveri eða stækkun ÍSAL eigi síðar en 3. mai nk. Morgunblaðið ræddi
við fulltrúa fyrirtækjanna fjögurra að loknum fundinum og voru þeir
allir bjartsýnir á að annar hvor kosturinn yrði valinn í vor. Jóhannes
Nordal formaður viðræðunefndarinnar segir öll fyrirtækin Qögur enn
inn í myndinni og að næsti fundur með þeim og nefndinni hefði ver-
ið ákveðinn 24. maí nk. Á þeim fundi yrði farið yfir svör þeirra og
fi*amhald viðræðna ákveðið.
Per Olof Aronson forstjóri Gráng-
ers í Svíþjóð segir að meðal þeirra
fjórmenninganna ríki bjartsýni um
að hægt verði að ráðast í byggingu
nýs álvers á íslandi. Hinsvegar þurfi
allir að ihuga kostnaðartölur við
þessa fjárfestingu nánar. Eftir 3.
maí eigi svo afstaða allra að liggja
fyrir.
Aðspurður um hvort hann sé per-
sónulega bjartsýnn á að málinu yrði
haldið áfram eftir 3. maí segir Per
Olof svo vera. „Það sem við þurfum
nú að kanna er hve samkeppnisfært
nýtt álver á íslandi kemur til með
að vera í samanburði við önnur slík
i heiminum," segir hann. Hvað varð-
verið rædd ítarlega. „Við náðum
nokkuð góðum árangri hér og ég tel
góðar líkur á að við höldum málinu
áfram,“ segir van der Ros.
Edward Notter forstjóri Alusuisse
segir að viðræðumar á fundinum
hafi leitt i ljós að allir aðilar séu
jákvæðir gagnvart uppbyggingu
áliðnaðar á Islandi. Hann er því
bjartsýnn á framhald málsins. Fri-
edrich Stachel fulltrúi Austria Met-
all tók undir það sjónarmið en vildi
að öðru leyti ekki tjá sig um málið.
Morgunblaðið/Þorkefl
Útnefhd ljósmyndafyrirsæta Elite
Þórunn Sómonsen, 17 ára gömul, var útnefiid Ijósmyndafyrir-
sæta Nýs Lífs og Elite-umboðsskrifstofunnar á Hótel Loftleiðum
í gærkvöldi. Hún verður fulltrúi íslands í lokakeppni Elite sem
fram fer í París næsta haust. Unnur Valdís Kristjánsdóttir, sigur-
vegari síðasta árs, afhenti Þórunni verðlaunin.
Sölusamband íslenskra fiskframleiðenda:
3400 selja
rauða fjöður
LIONS-menn byijuðu í gærmorg-
un að selja rauðu íjöðrina og verð-
ur sölunni haldið áfram fram á
sunnudagskvöld.
„Það er greinilegt að mikil
stemmning hefur skapast meðal al-
mennings fyrir þessu átaki núna,“
segir Þórunn Gestsdóttir kynningar-
stjóri átaksins. Afraksturinn af sölu
rauðu fjaðrarinnar í ár fer til styrkt-
ar byggingar vistheimilis fyrir fjöl-
fatlaða. Alls munu 3.400 Lionsmenn
setja fjöðrina um helgina.
Enn einn bruni
í skátaheimilinu
SLÖKKVILIDIÐ í Reykjavík var
kallað út skömmu fyrir kl. 22 að
skátaheimilinu í Gerðubergi í
Breiðholti. Er að var komið var
mikill eldur í heimilinu. Slökkvi-
starf gekk greiðlega og var að
mestu lokið fyrir miðnættið.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
eldur kemur upp í þessu skátaheim-
ili. í tvö síðustu skiptin sem eldur
hefur komið þar upp var talið að um
íkveikjur væri að ræða.
ar stækkun ISAL og áhuga Gran-
gers á þátttöku í því dæmi segir Per
Olof að áhuginn fari eftir þeim skil-
málum sem í boði séu.
J.G.D. van der Ros fulltrúi Alum-
ined Beheer í Hollandi er einnig
bjartsýnn á að málinu verði haldið
áfram eftir 3. maí. Hann segir að
fundurinn í Reykjavík hafi verið
mjög gagnlegur og að málin hafi
Tímabundin stöðvun á verkun
saltfisks til Miðjarðarhafsins
Fundur ASÍ
og VSÍ um
miðjavikuna
ENGIR sáttafúndir voru í kjara-
deilu Bandalags háskólamennt-
aðra rikisstarfsmanna og ríkis-
valdsins í gær og hefúr næsti
fúndur ekki verið tímasettur,
en búist við að af honum verði
eftir hádegi í dag. Síðasti fúnd-
ur var í fyrrakvöld og þar Iagði
BHMR fram gagntillögur við
tillögum stjórnvalda til lausnar
deilunni.
Ellefu aðildarfélög BHMR hafa
verið í verkfalli síðan á miðnætti
á miðvikudag.
Engir fundir hafa verið boðaðir
í viðræðum Alþýðusambands ís-
lands og vinnuveitenda. Sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins er þeirra varla að vænta fyrr
en um eða upp úr miðri viku, þar
sem aðilar telja sig þurfa tíma til
þess að fara yfir samning BSRB
og átta sig á efnisatriðum hans.
*
0116 marka
dreng í sjúkra-
bíl á fleygiferð
Selfossi.
„ÉG VAR alveg viss um það að
hann kæmi i bílnum,“ sagði
Sigríður Helga Karlsdóttir á
Melum í Hrunamannahreppi sem
ól 16 marka dreng í sjúkrabíl
aðfaranótt föstudags. Sjúkra-
bfilinn var á fleygiferð þegar
fæðingin átti sér stað en þrátt
fyrir það gekk allt að óskum.
Eiginmaður Sigríðar Helgu,
Guðjón Birgisson, og Guðrún
Sveinsdóttir móðir hennar tóku á
móti baminu klukkan 3.25 í sjúkra-
bílnum á Skeiðaveginum. Þrátt fyr-
ir erfiðar aðstæður í bílnum gekk
fæðingin mjög vel og móður og
bami heílsast vel. „Það var ekkert
við þessu að gera, drengurinn ætl-
aði sér að koma og kom bara,“
sagði Sigríður Helga, en þau hjón-
in eiga fyrir tvær teípur, 2ja og 5
ára. — Sig. Jóns.
Um 3000 tonn af saltfíski fara utan á næstu vikum
SÖLUSAMBAND ísienskra fisk-
framleiðenda hefúr sent fram-
leiðendum saltfisks skeyti þess
efiiis að þeir hætti tímabundið
að framleiða pakkningar á
markaði á Spáni, ítaliu og
Grikklandi. Búið sé að framleiða
upp í gildandi samninga á þessa
markaði en á næstu vikum verð-
ur afskipað á þá um 3000 tonn-
um af saltfiski. Magnús Gunn-
arsson framkvæmdastjóri SÍF
segir að þetta sé gert til að vekja
athygli framleiðenda á að til
lengra birgðahalds geti komið
um tíma. SIF sé að tileinka sér
svipuð vinnubrögð og tíðkast hjá
öðrum sölufyrirtækjum, t.d. í
frystingu og síldarútvegsnefnd.
SIF muni á næstunni fara I við-
ræður um áframhaldandi kaup
saltfisks í þessum löndum en
Magnús getur ekki sagt til um
hvað það tekur langan tíma.
Þessi lönd taka nú við 27-28%
af heildarsaltfisksútflutningn-
um. „Við erum alls ekki hættir
að selja til þessara landa, heldur
höfúm framleitt upp í gildandi
samninga,“ segir Magnús. „Við
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
Sigriður Helga Karlsdóttir með
soninn sem hún ól í sjúkrabíln-
erum fyrst og fremst að biðja
menn tímabundið um að beina
framleiðslunni inn á aðra mark-
aði eins og Frakkland og Port-
úgal.“
Soffanías Cecilsson, forstjóri
Fiskverkunar Soffaníasar Cecils-
sonar á Grundarfirði, segir að þeir
hafi gert ráð fyrir þessu stoppi og
því komi það þeim ekki á óvart.
Hann segir einnig að aðrir fram-
leiðendur hefðu mátt búast við
þessu.
„Þetta kemur ekki illa út fyrir
okkur. Hið sama gerðist í fyrra,
þá urðu tafir á framleiðslunni til
þessara landa,“ segir Soffanías.
„Þá seldum við tandurfisk í miklu
Albert Guðmundsson:
Myndi kjósa Sjáif-
stædisflokk núna
ALBERT Guðmundsson, sendi-
herra og fyrrum formaður Borg-
araflokksins, lét svo um mælt i
viðtali við Ríkissjónvarpið í gær-
kvöldi að það léki enginn vafi á
því að hann myndi kjósa Sjálf-
stæðisflokkinn ef hann ætti nú
að velja milli sins gamla flokks
og Borgaraflokksins, sem hann
stofiiaði fyrir tveimur árum.
Albert ræddi einnig um það að
margir af helztu stuðningsmönnum
sínum væru aftur á leið inn í Sjálf-
stæðisflokkinn. „Þeir koma allir úr
þeim röðum, og eru flestir mjög
ánægðir með að það hefur skapast
afslappað andrúmsloft milli mín og
Sjálfstæðisflokksins. Ég held að það
sé okkur báðum til sóma, Þorsteini
Pálssyni og mér, að við skyldum
ná saman sem samstarfsmenn eftir
þær hörðu deilur, sem komu upp á
milli okkar á þeim tíma sem ég var
flæmdur úr Sjálfstæðisflokknum,"
sagði Albert. Hann bætti við að
eins og væri hefði Borgaraflokkur-
inn stutt ríkisstjómina til skatta-
hækkana og ákvarðana, sem væra
í beinni andstöðu við stefnuskrá
hans. Albert sagði að hann stefndi
að því að halda áfram í stjóm-
málum, er hann sneri aftur frá
París, og það væri jafhvel líklegt
að hann myndi nálgast Sjálfstæðis-
flokkinn enn frekar þegar hann
kæmi aftur heim.
Albert skýrði loks frá því að
franska ríkið hefði í huga að fá
Inga Bjöm son hans til þeirra trún-
aðarstarfa, sem Albert hefur gegnt
-fyrir franska ríkið hér-á landi:-
Albert Guðmundsson.
magni til Portúgals en það kom
svo í höfuðið á okkur aftur því
þessi fiskur var endurseldur til ít-
alíu.“
Hermann Hansson kaupfélags-
stjóri á Höfn í Homafirði segir að
þetta stopp nú komi sér illa hjá
þeim. Það liggi ljóst fyrir að verið
sé að stöðva framleiðslu á verð-
mætasta fiskinum á þá markaði
sem gefa hæsta verðið. „Þetta
þýðir einfaldlega telquminnkun hjá
okkur. í fyrra var ákveðin verð-
jöfnun á þessum útflutningi sem
ekld er í ár heldur er greitt eftir
markaðssvæðum. Því kemur þetta
illa niður á okkur," segir Hermann.
Hermann segir að stöðvunin
komi afar illa fyrir framleiðendur
sérstaklega í ljósi þess að verð-
lækkanir hafa orðið í fyrra og aft-
ur í febrúar í ár. Því sjái hann
ekki betur en saltfiskverkunin sé
nú rekin með tapi.
Eiríkur Tómasson útgerðarstjóri
hjá Þorbimi hf. í Grindavík segir
að þar sem búið sé að stórskaða
markaðinn hefði mátt búast við
þessu. Skaðinn er, að hans sögn,
einkum fólginn í útflutningi héðan
á ferskum flöttum fiski á þessa
markaði. Fiskurinn er flattur og
ísaður og sendur í gámum til Spán-
ar. Þar er hann seldur sem íslensk-
ur fiskur. Hann er oftast lélegur
er hann kemur til Spánar því hann
þolir illa flutinginn. „Þessi fiskur
er að stórskaða nafn okkar á þess-
um markaði," segir Eiríkur.
Eiríkur segir að mikið hafi verið
reynt til að stöðva þennan útflutn-
ing en án árangurs.
Sjöfii Signrbj örnsdóttir:
Tek við mínu fyrra starfí
við Fj ölbrautaskólann
Morgunblaðinu hefúr borizt
eftirfarandi yfirlýsing frá
Sjöfii Sjgurbjömsdóttur, skóla-
stjóra Ólduselsskóla:
„Ársleyfi mitt frá starfi við
Fjölbrautaskólann í Breiðholti
rennur út hinn 1. ágúst næstkom-
andi þegar ég, lögum samkvæmt,
læt af starfi við Grunnskóla
Reykjavíkur. Mun ég þá taka við
mínu fyrra starfí við Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti, þar sem ég
hefi ákveðið að sækja ekki um
stöður á vegum menntamálaráðu-
neytisins á meðan kommúnistinn
Svavar Gestsson fer þar með hús-
bóndavald. Ég þakka velunnurum
símhringingar, bréf, blóm og hlý-
hug.