Morgunblaðið - 08.04.1989, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 08.04.1989, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1989 Ungversk menningarvika: Yiljanánari viðskipta- tengsl UNGVERSK fyrirtæki og stjórnvöld standa fyrir ung- verskri viðskipta- og menning- arviku á Hótel Sögu, dagana 10. og 14. apríl. Það hefur ver- ið stefha ungverskra stjórnvalda á und- anfomum árum að taka upp nánari tengsl við Vesturlönd, bæði á sviði verslunar og stjóm- mála og er sýningin í Reykjavík liður í þeim markvissu vinnu- brögðum. Á annan tug ungver- skra fyrirtækja tekur þátt í við- skiptasýningunni, en nokkur þeirra em fulltrúar fyrir enn stærri hóp framleiðenda i Ung- veijalandi. Tilgangur sýningarinnar er að auka áhuga Islendinga á gagn- kvæmum viðskiptum, auka sam- skipti og menningartengsl milli Iandanna og kynna Ungveijaland sem eitt litríkasta og ódýrasta Stofiifimdur bjóraðdáenda Framhaldsstofnfundur íslenskra bjóraðdáenda verður haldinn í dag í Klúbb-kjallaran- um, Borgartúni 32, kl. 14.00. Allir eru velkomnir meðan hús- rúm leyfir, segir í fréttatilkynn- ingu frá íslenskum bjóraðdáend- um. Tumi sýnir í Slunkaríki I DAG, laugardaginn 8. apríl, klukkan 4 verður opnuð sýning á málverkum eftir Tuma Magn- ússon í Slunkaríki á ísafirði. Tumi fæddist í Reylq'avík árið 1957. Hann stundaði nám við MHÍ og í Hollandi og sýndi fyrst í Asmundarsal árið 1978. Síðan hefur hann haldið margar einka- sýningar og tekið þátt í samsýn- ingum. Sýningin í Slunkaríki er opin frá 8.-29. apríl. Borgarafimd- ur um Mýrar- húsaskóla FORELDRA- og kennarafélag Mýrarhúsaskóla á Seltjarnar- nesi heldur fúnd um málefni Mýrarhúsaskóla mánudaginn 10. apríl klukkan 20.30 í Félags- heimili Seltjarnamess. Frummælendur verða bæjar- stjóri og skólastjóri Mýrarhúsa- skóla. A fundinum verða einnig til staðar fulltrúar frá heilsu- gæslustöðinni, lögreglu o.fl. Fundurinn er opinn öllum og er þess vænst að sem flestir mála- flokkar sem tengjast skólanum verði teknir til umræðu, því já- kvæð umíjöllun nemenda, kenn- ara, foreldra, bæjarstjómar, skólanefndar og skólayfirvalda hlýtur að stuðla að því að gera góðan Mýrarhúsaskóla betri. (Fréttatilkynning) Bandarísk bókavika BÓKAVERSLUN Sigfusar Ey- mundssonar heldur bandaríska bókaviku dagana 10.—15. apríl nk. Þetta er í annað sinn sem slíkur markaður er haldinn á vegum bókaverslunarinnar. Titlar era valdir þannig að þeir sýni þverskurð bandariskrar bókaútgáfu. Bókamarkaðurinn verður form- lega opnaður mánudaginn 10. apríl kl. 10 með ávarpi Brad Leit- hauser, rithöfundar og gistipróf- essors í bókmenntum við Háskóla íslands. Ruth Slenczynska. Fyrirlestur um etýður Chopins PÍANÓLEIKARINN Ruth Slenczynska mun halda fyrir- lestur og tónleika um etýður Chopins op. 10 í menningarmið- stöðinni Gerðubergi mánudag- inn 10. apríl nk. kl. 21.00. Hún mun útskýra verkin og jafn- framt leika allar etýðumar. Þessi fyrirlestur/tónleikar eru ætlaðir nemendum og kennurum í píanóleik, svo og öllum áhuga- sömum unnendum píanótónlistar. Aðgangur er ókeypis. NATO 40 ára í DAG verður þess minnst á ráðstefhu Samtaka um vest- ræna samvinnu og Varðbergs, að 40 ár eru liðin frá því að Atlantshafsbandalagið var stofnað. Hefst ráðstefiian kl. 10.30 í Súlnasal Hótel Sögu. Fyrir hádegi flytja þeir ræður Steingrimur Hermannsson, for- sætisráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, og Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. í hádegis- verði flytur Arnór Siguijónsson, varnarmálafulltrúi, erindi um varnir íslands. Síðdegis taka síðan ræðumenn þátt í pallborðsumræð- um og auk þeirra Albert Jónsson, starfsmaður Öryggismálanefnd- ar, en Bjöm Bjamason, aðstoðar- ritstjóri, stjórnar umræðunum. Ráðstefnan er opin félags- mönnum í SVS og Varðbergi og gestum þeirra. * Irsk tónlist ÍRSKA hljómsveitin Diarmuid O’Leary & the Bards heldur feraa tónleika hér á landi á næstunni. Miðvikudaginn 12. apríl og sunnudaginn 16. apríl leikur hljómsveitin á Hótel Borg í Reykjavík, en fimmtudaginn 13. apríl og föstudaginn 14. apríl í Sjallanum á Akureyri. Diarmuid O’Leary & the Bards leikur þjóðlagatónlist með nútíma- legu ívafi. Hljómsveitin nýtur vin- sælda á írlandi, þar sem plötur hennar hafa náð því að verða meðal söluhæstu hljómplatna. Skugginn af Emmu í Há- skólabíó LAUGARDAGINN 8. apríl kl. 14.00 verður hin margverð- launaða kvikmynd Sörens Kragh-Jacobsen frumsýnd í kvikmyndahúsinu Regnbogan- um. Myndin heitir á frummál- inu Skyggen af Emma en á íslensku Skugginn af Emmu. Leikstjóri kvikmyndarinnar, Sören Kragh-Jacobsen, verður viðstaddur frumsýninguna en hann er okkur íslendingum kunn- ur fyrir fyrri myndir sínar, s.s. Gummí Tarzan og Sjáðu sæta naflann minn. Húmor í Jón- asi spámanni ÞÓRIR Kr. Þórðarson próf- essor flytur fyrirlestur um Húmor í Jónasi spámanni á fundi hjá Félagi kaþóiskra leik- manna í Safnaðarheimilinu, Há- vallagötu 16, mánudaginn 10. apríl kl. 20.30. Öllum er heimill aðgangur. Listvinafélag Hallgrímskirkju; Dagskrá um Hannes Pétursson á sunnudag LISTVINAFÉLAG Hallgríms- kirkju efnir á morgun, sunnu- dag, til dagskrár um Hannes Pétursson skáld og hefst hún í kapellu í suðurálmu Hallgríms- kirkju klukkan 17. Páll Valsson bókmenntafræðingur flytur er- indi um ljóðagerð Hannesar, kórar Hamrahlíðarskóla syngja lög við ljóð hans undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur og Hannes Pétursson les nokkur ljóða sinna. Það er nú mest fyrir orð Sigur- björns Einarssonar biskups að ég tek þátt í þessari dagskrá í Hall- grímskirkju en ég man ekki til þess að ég hafi áður lesið ljóð mín í kirkju, sagði Hannes Pétursson í spjalli við blaðamann Morgun- blaðsins. Ég geri ráð fyrir tíu mínútna upplestri tvisvar sinnum og síðan verður sungið á milli. Ljóðin eru frá ýmsum tíma, bæði eldri og yngri og kannski frekar ljóð sem eru trúarlegs eðlis þótt önnur fljóti með. Sum ljóðanna finnst mér hæfa vel flutningi í kirkju en önnur alls ekki og ég hef reynt að velja þau ljóð sem mér finnst að falli að þessari dag- skrá. Hannes Pétursson sagðist m.a. lesa ljóð úr tveimur síðustu bókum sínum sem komu út árin 1980 og 1983 og sagðist aðsgurður varla lesa nokkuð nýrra. JÉg er alltaf með eitthvað.í déiglunni en það er hálfkarað og bíður því betri tíma sagði Hannes. Páll Valsson bókmenntafræð- ingur flytur í upphafi nokkur orð um Hannes Pétursson og skáld- skap hans en hann skrifaði BA- ritgerð um Hannes og hefur auk hennar skrifað um fleiri bækur hans. Hannes Pétursson er ótvír- ætt fremstur í flokki samtíma- skálda okkar, sagði Páll. Það sem einkennir skáldskap hans eru frumleiki, skynjun hans á um- hverfinu og yrkisefninu og hann á alltaf erindi við lesandann. Hann hefur feikilega góð tök á mynd- máli og stíl og má segja að fyrsta ljóðabók hans, Kvæðabók, sem út kom árið 1955, sé einhver besta frumraun ljóðskálds sem sögur fara af. Kórar Menntaskólans við Hamrahlíð, þ.e. Hamrahlíðarkór- inn og Kór Menntaskólans við Hamrahlíð flytja lög við ljóð eftir Hannes Pétursson. Þorgerður Ing- ólfsdóttir stjórnar kórunum. Kór- amir syngja lög eftir tónskáldin Þorkel Sigurbjömsson, Jón Nordal Hannes Pétursson skáld les Ijóð sín í Hallgrímskirkju á sunnudag. og Jón Ásgeirsson en auk þeirra hafa ýmis önnur samtímatónskáld samið lög við ljóð Hannesar. Framundan hjá Listvinafélagi Hallgrímskirkju er kirkjulistahátíð dagana 5. til 15. maí og er hún nú haldin öðm sinni. Á dagskrá hátíðarinnar em fjölmargir tón- leikar, leiksýning, myndlistarsýn- ing og helgihald í kirkjunni verður með sérstökum hátíðarbrag þessa daga. Reyklaus dagur 12. apríl Reyklausi dagurinn í ár verður næstkomandi miðvikudag, 12. apríl. Þetta er þriðja árið í röð sem hald- inn er reyklaus dagur hér á landi en alls hefur hann verið haldinn hér fimm sinnum við vaxandi hljóm- gmnn og þátttöku meðal þjóðarinn- ar. Þessi dagur verður auk þess fyrsti heilbrigðisdagur Ijósvaka- miðlanna en gera má ráð fyrir að þeir fjalli ekki síst um reykingamál enda em reykingar eitt mesta heil- brigðisvandamál sem þjóðin stendur frammi fyrir. Reyklaus dagur er, eins og nafn- ið bendir til, fyrst og fremst haldinn til þess að gefa reykingamönnum sameiginlegt tilefni til að hvíla sig og aðra á tóbaksreyk eða a.m.k. draga úr reykingum sínum. Könnun tóbaksvarnanefndar eftir reyklausa daginh í fyrra gaf til kynna að nálega tveir af hverjum fímm reykingamönnum hefðu breytt frá reykingavenjum sínum þenn- an dag, þ.e. alls ekkert reykt eða þá minna en vanalega. Konur sem spurðar vom virtust hafa tekið körl- um fram að þessu leyti því að nær helmingur þeirra hafði breytt frá vananum. Einnig hafði fólk utan höfuðborgarsvæðis bmgðist tiltölu- lega betur við en fólk á höfuð- borgarsvæðinu. Enginn vildi kann- ast við að hann hefði reykt meira en vanalega! Önnur ástæða til að hafa reyk- lausan dag er sú að stór hluti reykingamanna vill hætta að reykja GENGIOG GJALDMIÐLAR GENGISSKRÁNING Nr. 68 7. eprfl 1889 Kr. Kr. ToU- Ein. Kl. 09.1B Kaup 8*1« 9*ngl Dollari 52.74000 52.88000 53.13000 Sterlp. 89,78700 90.02600 90.40100 Kan. dollari 44,20200 44.3200 44,54200 Dönsk kr. 7,26450 7,28370 7,23600 Norsk kr. 7.76040 7.78100 7.77210 Sænsk kr. 8,26780 8.28970 8,27440 Fi. mark 12,53030 12,66360 12.50410 Fr. franki 8,36080 8.38300 8,34260 Belg. franki 1.34770 1.35130 1.34690 Sv. franki 32,13890 32.22430 32,34310 Holl. gyllini 25,00770 26,07410 25,01470 V-þ. mark 28,21450 28,28940 28,20890 it. Ilra 0.03846 0,03856 0,03848 Austurr. sch. 4,00960 4.01202 4.00970 Port. escudo 0.34200 0.34290 0,34280 Sp. peseti 0,45480 0,45600 0,45290 Jap. yen 0,39950 0.40056 0.40000 frskt pund 75,24700 75.44700 75.44700 SDR (Sórst.) 68,59680 68,77890 68,82300 ECU, evr.m. 68,71280 58,86870 58,76380 Tollgengi fyrir apríl er sölugengi 28. mars. Sjálfvirkur8Ímsvarigengis9kráningarer62 32 70. (það hafa kannanir sýnt hér á landi sem annars staðar) og mörgum þykir heppilegt að miða á einhvern sérstakan dag til að stíga það skref. Um hver áramót hætta til dæmis margir að reykja og reyklausi dag- urinn getur tvímælalaust verið heppilegur í þessu tilliti eins og dæmin sanna. Fyrir þá sem nota tækifærið á miðvikudaginn kemur getur skipt miklu máli að aðrir reykingamenn séu sem jákvæðastir og bregðist vel við þeim tilmælum að reykja ekki þann dag. Sérstak- lega mikilvægt er að samstaða geti orðið um þetta á vinnustöð- um og tilefnið verði þar jafn- framt notað til að framfylgja betur reglum um takmarkanir á reykingum, hafi það ekki verið gert sem skyldi. (Úr fréttatilk. frá Tóbaksvarnancfhd.) Fiskverð á uppboðsmörkuðum 7. apríi. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 46,00 38,00 44,06 9,114 409.726 Þorskur(ósL) 43,00 37,00 40,30 15,038 606.009 Ýsa 48,00 40,00 47,10 5,648 266.428 Karfi 23,50 18,00 19,77 65,255 1.290.219 Ufsi 21,50 12,00 20,45 41,248 843.866 Langa 15,00 15,00 15,00 0,857 12.861 Lúða 405,00 90,00 192,20 0,506 97.393 Koli 35,00 35,00 35,00 0,459 16.070 Steinbítur 18,00 18,00 18,00 0,092 1.661 Rauðmagi 20,00 20,00 20,00 0,019 380 Hrogn 100,00 100,00 100,00 0,010 1.000 Samtals Selt var aðallega úr Víði HF og Óskari Halldórssyni RE. Næst- komandi mánudag verður selt úr bátum. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 45,00 40,00 44,59 10,245 456.790 Þorsk(ósl.l.bL) 30,00 30,00 30,00 0,268 8.040 Þorsk(ósl.ln) 44,00 42,00 43,30 28,624 1.239.293 Ýsa 52,00 35,00 35,35 5,172 182.805 Ýsa(ósL) 60,00 18,00 51,15 8,064 412.513 Karfi 22,00 17,00 21,01 73,807 1.550.699 Ufsi 22,00 21,00 21,95 17,167 376.768 Steinbítur(ósL) 32,00 26,00 29,92 0,196 5.864 Langa 22,00 20,00 22,00 0,422 9.284 Lúða 260,00 100,00 118,82 0,102 12.120 Grálúða 37,00 35,00 36,25 64,399 2.334.477 Rauðmagi 63,00 50,00 51,12 0,300 15.335 Lifur 5,00 5,00 5,00 0,051 255 Hrogn 135,00 135,00 135,00 0,047 6.345 Samtals 31,65 208,900 6.611.127 Selt var úr Jóni Vídalín ÁR, Ásgeiri RE, netabátum óg frá Heima- skaga. í dag verða meöal annars seld 10 til 15 tonn af þorski og 3 tonn af ýsu og hefst uppboðiö klukkan 12.30. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 37,00 31,00 34,00 12,000 408.000 Þorskur(ósL) 44,00 30,00 42,20 18,211 768.532 Ýsa 51,00 30,00 38,22 1,150 43.950 Ýsa(ósl.) 76,00 15,00 51,35 14,190 728.210 Karfi 23,00 15,00 21,88 5,264 115.195 Ufsi 15,00 15,00 15,00 1,100 16.500 Steinbítur 22,50 15,00 15,97 0,574 9.179 Hlýri+steinb. 19,00 19,00 19,00 0,800 15.200 Skarkoli 52,00 35,00 48,50 2,088 100.240 Lúða 205,00 205,00 205,00 0,030 6.150 Keila 10,00 10,00 10,00 0,450 4.500 Samtals 39,67 56,068 2.224.036 Selt var aðallega úr Farsæli GK, Hvalsnesi GK, Baldri KE, Eldeyj- ar-Hjalta GK og Hraunsvík GK. í dag verður meðal annars selt óákveðið magn af þorski, ýsu, löngu og keilu úr Eldeyjar-Boða GK. Selt verður úr dagróðra- og snurvoðarbátum. »imt» ■ * * » * ■ ■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.