Morgunblaðið - 08.04.1989, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 08.04.1989, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1989 21 GATT-viðræður í Genf: Landbúnaðarmálin erfiður þröskuldur Á fundi aðildarríkja GATT- samkomulagsins í svonefndum Ur- uguay-viðræðum, sem nú stendur yfir í Genf, hefúr ekki enn tekist samkomulag um skammtímamarkmið varðandi landbúnaðarmál. Skammtímamarkmiðunum er ætlað að gilda á til loka ársins 1990, en að sögn Sverris Hauks Gunnlaugssonar, sendiherra í Genf, er þess vænst að þá hafi náðst. samkomulag um langtímamarkmið varð- andi landbúnaðarmál. Stofnað var til Uruguay-við- ræðnanna árið 1986 og eiga þær að standa til loka ársins 1990, en markmið þeirra er að einfalda milliríkjaviðskipti með niðurfellingu tolla og annarra viðskiptahindrana. Á fundinum sem nú stendur yfir er verið að undirbúa lokalotu við- ræðnanna og ganga frá samnings- ramma varðandi 15 málasvið. Þeg- ar hefur náðst samkomulag um 11 af þessum sviðum, en ekki hefur náðst samkomulag um landbúnað- armál, hugverk í viðskiptum, vefn- aðarvöruviðskipti og verndarað- gerðir. Meginstyrinn í viðræðunum stendur um landbúnaðarmálin, en stefna Bandaríkjanna hefur verið að fá niðurfellingu á viðskiptahindr- unum á landbúnaðarvörum á eins víðtækan hátt og eins fljótlega og mögulegt er, en önnur ríki hafa viljað fara hægar í sakirnar. Land- búnaðarþáttur viðræðnanna skipt- ist í þrennt, en þar er um að ræða samningsramma um langtíma- markmið, skammtímamarkmið og samræmingu á heilbrigðisreglu- gerðum. Að sögn Sverris Hauks Gunn- laugssonar hefur nú nokkurn veg- inn tekist samkomulag um hvemig standa eigi að viðræðum um langtímamarkmið, en þær fara fram á næstu 18 mánuðum. Varð- andi skammtímamarkmið sagði hann að stefnt væri að því að aðild- arríki GATT geri með sér sam- komulag um að útflutningsstyrkir á landbúnaðarvörum hækki ekki á næstu 18 mánuðum, og hindranir varðandi innflutning á landbúnað- arvörum verði ekki auknar á sama tímabili. Þá verði styrkjakerfi varð- andi innanlandsframleiðslu ekki aukið frá því sem nú er. Þessar bráðabirgðaaðgerðir eiga að gilda til loka ársins 1990, en þá er þess vænst að samkomulag hafi náðst um langtímamarkmið. Fundurinn sem nú stendur yfir hófst á miðvikudaginn og lýkur honum væntanlega í dag, laugar- dag. Niðurstöður hans munu mynda grunn að viðræðum sem hefjast um miðjan apríl og standa munu yfir til loka ársins 1990. Afganistan: 50.000 hafa flúið á flórum mánuðum Islamabad, Kabul. Reuter. UM 50.000 Afganir hafa flúið yfir landamærin til Pakistan frá þvi í desembermánuði. Að sögn starfsmanna í flóttamannabúðum hand- an landamæranna flúðu um 20.000 manns í síðasta mánuði er skæru- liðar hertu sókn sína gegn hersveitum stjórnarhersins við borgina Jalalabad í austurhliita landsins. Sömu heimildarmenn kváðu flóttamannastrauminn hafa farið vaxandi undanfarna daga en um 3,2 milljónir afganskra flóttamanna voru fyrir í Pakistan. í bardögunum við Jalalabad hefur öflugum vopna- búnaði óspart verið beitt m.a. lang- drægum stórskotaliðsbyssum og eldflaugum. Sprengjuflugvélar stjórnarhersins hafa gert loftárásir á stöðvar skæruliða og mannfall er talið hafa verið mikið í báðum fylkingum auk þess sem óttast er að fjöldi óbreyttra borgara hafi týnt lífi. Yfirvöld í höfuðborginni Kabúl lýstu á fimmtudag yfir einhliða vopnahléi en þá hófst föstumánuður múhameðstrúarmanna, Ramadan. Skæruliðar voru hvattir til að virða vopnahléið en jafnframt varaðir við að gera árásir á höfuðborgina. Ekki færri en 16 óbreyttir borgarar féllu í eldflaugaárásum skæruliða á Kab- úl á þriðjudag og miðvikudag. Fiskeldi í Danmörku: Ströng lög gegn sjávarmengun Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bmun, fréttaritara Morgunblaðsins. Umhverfismálaráðherra Danmerkur, Lone Dybkjær, hefúr ákveð- ið að Ieggja til atlögu gegn mengun frá 500 kvíaeldisstöðvum i landinu með lagasetningu. Köftiunarefhisúrgang á að minnka úr 2.200 tonnum á ári í 1.400 tonn og fosfór úr 400 tonnum í 125 tonn. Fulltrúar eldisstöðvanna mót- mæla harðlega áformunum og telja að nauðsynlegur vatnshreinsibún- aður muni kosta þá um 170 milljón- ir d.kr. (1200 milljónir ísl.kr.) og framleiðsla muni minnka um 10 til 15% meðan breytingarnar standa yfir, aðallega vegna þess að sam- kvæmt lögum eiga framleiðendur að nota nýja tegund af fóðri. Fiskur- inn á auðvelt með að nýta sér nýja fóðrið til að byggja upp vöðvavef og því verður úrgangur minni en áður. Auk þessa verður réttur fisk- eldismanna til að nýta sér vatn úr dönskum ám á sumrin takmarkað- ur. Ráðherrann segir að þetta muni létta þeim róðurinn sem vinna að því að reisa við upprunalegan laxa- stofn í dönskum ám. Samband stangveiðimanna í Danmörku heldur því fram að of- veiði, mengun og sjúkdómar ógni nú laxastofnum í Eystrasalti og á Norður-Atlantshafi. Eldislax, sem sleppi úr kvíum, smiti villtan lax og btjóti viðnám hans á bak aftur. Vilja stangveiðimenn að komið verði í veg fyrir að fiskur úr kvíaeld- isstöðvum geti komist í hafið. Vortilboðf 89 CITROEN Opið í dag frá 13-17. SAAB Globus Lágmúla 5 H F ■ í dag opnum við markaðstorg í Kolaportinu, það fyrsta sinnar tegundar hérlendis, þar sem allir geta komið og selt allt milli himins og jarðar. Yfir 100 aðilar, einstaklingar, félagasamtök og fyrirtæki bjóða til sölu margvíslegan varning, sumir eru að hreinsa út úr geymslum sínum, aðrir að selja glænýjar vörur og enn aðrir með léttar veitingar. Eitt er víst, að það verður skemmtileg markaðsstemmning og sannkallað ævintýri að líta við - og örugglega hægt að gera góð kaup. Fjölmennum í Kolaportið! Næg bflastæði (- fyrir utan Kolaportið). KOLAPORTIÐ MrfR KaÐStOgjr — við Arnarhól. I KOLAPORTID! OPIÐ í DAG FRÁ KL. 10-16 Áskriftarsíminn er 83033 85 40

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.