Morgunblaðið - 08.04.1989, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 08.04.1989, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1989 5 Morgunblaðið/Þorkell 640 húðsjúkdómalæknar fanda HÉR á landi eru nú staddir ura 640 húðsjúkdómalæknar í boði hollenzka stórfyrirtækisins Gist-broca- des. Læknamir, sem eru frá átta löndum, komu hér á fimmtudag og fara á morgun, sunnudag. Gist-brocades býður læknunum hingað vegna kynningar á nýju lyfi, sem meðal annars á að hafa áhrif gegn psoriasis og exemi. Fyrirtækið er eitt hið stærsta í heiminum og er meðal annars stærsti framleiðandi fiikkalyfja á borð við penicillín. Við opnun ráðstefhu læknanna á föstudag voru bæði Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, og Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra viðstödd. 83 ökumenn grunað- ir um ölvun í mars Fleiri komu við sögu í umferðaróhöppum ÖLVAÐIR ökumenn, sem lögreglan hafði afskipti af í mars, voru svipað margir og í sama mánuði í fyrra, eða 83. Fleiri ölvaðir komu þó við sögu í óhöppum, eða 13 í liðnum mánuði, á móts við 8 í mars 1988. Laugardagsútgáfa Þjóðviljans felld niður um hríð; Erfiðari staða en oftast áður - segir Ulfar Þormóðsson ÁKVEÐIÐ hefur verið að hætta útgáfu Þjóðviljans á laugardög- um um hríð vegna fjárhagsörð- ugleika og erfiðrar skuldastöðu blaðsins. Að sögn Úlfars Þor- móðssonar, formanns útgáfu- stjórnar Þjóðviljans, er allsendis óákveðið hversu lengi laugar- dagsblaðið kemur ekki út. Úlfar segir að staða blaðsins sé nú erf- iðari en ofitast áður, en það sé þó ekkert uppgjafarhljóð í Þjóð- viljamönnum. I Þjóðviljanum í gær er skýrt frá því að nefnd skipuð fulltrúum úr forystu Alþýðubandalagsins og stjórn Þjóðviljans muni taka til starfa í næstu viku og reyna að finna Ieiðir til lausnar vanda blaðs- ins fyrir aðalfund útgáfufélagsins í maí. Að sögn Úlfars Þormóðssonar er verið að skoða ýmsa möguleika til þess að rétta af reksturinn. Með- al annars er gengið fyrir dyr stuðn- ingsmanna blaðsins og þeir eru beðnir um að láta af hendi rakna það sem þeir mega missa. Úlfar sagði þó aðspurður, að það væru Sjöfii Sigurbjörnsdóttir: Óhróður og ósannindi VEGNA yfirlýsinga þeirra Sigmars Hjartarsonar og Mörtu Guðmundsdóttur svo og Guðmundar Hjálmarssonar í Morgunblaðinu, í dag, 7. apríl, vil ég segja það eitt, til viðbótar því sem ég hef áður sagt, að þegar margir taka sig saman um síendurtekin og langvarandi ósannindi, þá má einstaklingurinn sín lítils. Hrokafullum óhróðri Svavars Gestssonar um mig, bæði á Stöð 2 í gærkvöldi, svo og víðar, verð- ur svarað á öðrum vettvangi. Sjöfn Sigurbjörns- dóttir, skólastjóri. Ferðaskrifstofurnar: breyttir tímar hvað þetta varðaði. „Menn eru ekki eins einhuga varð- andi Þjóðviljann og áður fyrr, ekki frekar en um Alþýðubandalagið," sagði hann. „Þegar menn eru ekki einhuga um eitthvað, gefur það auga leið að árangurinn verður minni. Á síðasta ári voru 86 ökumenn grunaðir um ölvun við akstur, en í liðnum mánuði voru þeir 83. Að sögn Ómars Smára Ármannsson- ar, aðalvarðstjóra, var ölvuna- rakstri gefinn mikill gaumur í liðn- um mánuði, þar sem óttast var að margir freistuðust til að setjast undir stýri eftir að hafa fengið sér bjórglas. Ómar taldi að tölur um ölvunarakstur í þessum mánuði sýndu þó, að menn hefðu tekið mark á þeim áróðri, sem verið hefur gegn ölvunarakstri. í mars 1988 hefði verið mikil umræða um ný umferðarlög og sá mánuður hefði því einnig komið vel út. Ómar benti á, að fleiri ölvaðir hefðu átt hlqt að óhöppum í liðnum mánuði en á sama tíma í fyrra. Óhappatalan gæfi nokkuð skýra mynd af fjölda ölvaðara öku- manna, því aldrei væri hægt að haga því svo að lögreglan næði til allra sem aka undir áhrifum. Eftir því sem fleiri ölvaðir lentu í óhöppum mætti ætla að fleiri öku- menn væru ekki allsgáðir. Undanfarna mánuði hafa að meðaltali 12 ölvaðir ökumenn átt hlut að umferðaróhöppum. Á síðasta ári voru slík mál flest í nóvember, eða 18. Í989 NYJAR VELAR ~ NY FJOÐRUN Stuttur/langur■ dieselvél/bensínvél ■ sjálfskiptur/beinskiptur MEIRI ORKA: 2,51 dieselvél með forþjöppu og millikæli. Afköst = 95ho (DIN) við 4200 sn/mín 3,01 V-6 strokka bensínvél með rafstýrða fjölinnsprautun. Afköst = Í4!hö (DÍN) við 5000 sn/mín. MEIRIMÝKT: Gormafjöðrun að aftan með stigverkandi höggdeyfum. Endurbætt sæti. (V6) STAÐLAÐUR BÚNADUR ma.: • Aflstýri • Framdrifslokur • Samlæsing á hurðum (Lengri gerð) • Rafdrifnar rúðuvindur (lengri gerð) • Tregðulæsing á afturdrifi • Rafhituð framsæti • jöfnunarloki á hemlum afturhjóia • Aukamiðstöð afturí • Hallamælir/ Hæðarmælír • Rafknúin sóllúga og álfelgur (Super wagon) VERÐ FRÁ KR. 1.636.000 (stuttur) /.986. OOO (langur) 20% minna sætaframboð Sætaframboð ferðaskrifstofanna í sumarleyfisferðir árið 1989 mun minnka sem neraur 20 prósentum, efltir því sem segir í fréttatilkynn- ingu frá Félagi íslenskra Ferða- skrifstofa. í tilkynningu félagsins kemur auk þess fram, að þrátt fyrir miklar fyrir- spurninr almennings um sumarleyf- isferðir og mikla aðsókn í auglýs- ingabæklinga ferðaskrifstofanna væru bókanir færri en á svipuðum tíma á síðasta ári. Því hafi ferðaskrif- stofurnar með hliðsjón af „þeirri óvissu sem ríkir í efnahagsmálum dregið verulega úr fyrirhuguðu fram- boði á leiguflugsferðum til að aðlaga framboðið að núverandi eftirspurn," 1 i > KR1299I BILL FRA HEKLUBORGARSIG HEKLAHF Laugavegi 170-174 Simi 695500

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.