Morgunblaðið - 08.04.1989, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 08.04.1989, Blaðsíða 30
30 Stjörnu- speki Umsjón: Gunniaugur Guðmundsson Satúrnus f dag ætla ég að fjalla um áhrif Satúmusar í framvind- um. Það sem átt er við með framvindu er að við göngum í gegnum mismunandi tímabil frá ári til árs. Talað er um Satúmusartímabil þegar hann myndar t.d. samstöðu eða spennuafstöðu við Sól eða Tungi. Það hvort Satúmus myndar slíka afstöðu eða ekki má sjá í plánetutöflum, t-d. þeirri sem er aftast i stjömu- spekibókinni Hver er ég? Ef hann er i sama merid og Sólin þá myndar hann samstöðu o.s.frv. Öldrun og vinnuálag Sagt er að Satúmusi fylgi oft minnkandi mótstöðuafl og hætta á sjúkdómum vegna stréitu og of mikils vinnu- álags, enda fylgir tímabilum hans oft mikið vinnuálag. Þar sem Satúmus er táknrænn fyrir tímann verður fólk oft vart við líkamleg merki þess að það er að eldast þegar hann lætur sjá sig. „Guð hvað ég er að verða gömul“ er algeng setning sem heyrist þegar hann er í framvindu og jafn- vel það þó viðkomandi sé ekki eldri en tuttugu og fimm eða þtjátíu ára. Raunsceis- ogagatimi Á tímabilum Satúmusar verð- um við meðvitaðri um skyldur okkar og ábyrgð. Maður sem hefur drukkið lengi eða reykt of mikið segir kannski við sjálfan sig; „Þetta gengur ekki lengur, nú tek ég mér tak.“ Við borgum gamla reikninga á tímabilum Satúmusar og endurbyggjum það I lífi okkar sem er að hruni komið. Áhyggjur Oft fylgja Satúmusartímabii- um áhyggjur vegna framtíð- arinnar og jafnframt skömm- umst við okkar fyrir það hversu litlum árangri við höf- um náð. Við sjáum einnig ófullkomleika okkar. Þungar hugsanir um hæfileika og hæfileikaleysi ásækja okkur þegar við berum árangur olck- ar saman við hina fullkomnu fyrirmynd. Við verðum óör- ugg, þunglynd, hræðumst ald- ur okkar og verðum öryggis- laus en fyllumst jafnframt sterkri þörf fyrir auldð öryggi. Jákvœð Þessi Satúmusarupptalning er hálf neikvæð. Við ættum samt ekki að stimpla orku Satúm- usar sem vonda. Stundum þurfum við að horfa á raun- veruleikann og gera úrbætur. Óánægja er í raun fyrsta skrefið i átt til breytinga og þvf ber ekki að taka hana sem neikvætt afl. Besta ráðið við óánægju er að gera breytingar og endurskipuleggja líf sitt. Satúmus þarf ekki að vera óþægilegur ef menn taka rétt á honum og hafa gert það áður. Endurmat Besta ráðið við Satúmusi er að viðurkenna hann og segja við sjálfan sig að nú sé timi til að endurmeta stöðu sina f lífinu. Þar sem orka Satúmus- ar er efnisleg, er ekki sfst verið að tala um efnalega stöðu, s.s. fjármál, vinnu o.þ.h. ( stað þess að fyllast hræðslu við Satúmus er betra að vera jákvæður og segja; „Þetta er fint mál, nú get ég tekið til í Ufi mínu.“ Best er að setjast niður og skipuleggja tíma sinn og gera áætlanir sem eiga að stuðla að betra lífí. Fyrir þá sem hafa áhyggjur af pening- um getur verið gott að leggja fyrir þó ekki sé nema 100 krónur á viku eða mánuði. Það skapar öryggiskennd. Það góða við Satúmus er að okkur tekst oft á tímabilum hans að gera það sem krefst aga og hefur áður mistekist. Ef líf okkar er reglusamt og skipu- lagt á tímabilum hans á allt að vera í góðu lagi. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1989 m----ii" - i -*t •i •; u-ci'tp ■; ; GARPUR BRENDA STARR UÓSKA FERDINAND SMÁFÓLK ^YOU KNOuJ UJklAT YOU 5H0ULPUJRITE? YOU SHOULP UJKITE A "KI5S-AMP- . TELL " B00K., Veistu hvað þó ættir að skrifa? Bók um að „Kyssa og kjafta frá“. Ég kjafta frá! Ég kjafta frá! BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Amarson Eftir vafasama opnun á veik- um tveimur í hjarta lenda NS í næfurþunnu geimi. Suður gefur; AV á hættu. Norður ♦ G10972 Vestur ▼ D4 ♦ ÁKD7 ♦ K5 Austur ♦ D5 ♦ K643 ♦ Á10 tlllll ♦ G83 ♦ G932 ♦ 85 ♦ D10962 ♦ Á843 Suður ♦ Á8 ♦ K97652 ♦ 1064 ♦ G7 Vestur Norður Austur Suður — — — 2 hjörtu Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass Sagnhafi leysti sitt fyrsta vandamál þegar hann ákvað að láta lítið lauf úr boðinu. Austur drap með ás og skipti yfir í spaða. Hvorki suður né vestur fundu bestu spilamennskuna í fram- haldinu. Suður drap strax á spaðaásinn og spilaði litlu trompi á drottningu blinds. Þegar hún átti slaginn, dúkkaði hann hjarta frá báðum höndum og vann sitt spil. Eftir spilið var vestur sjálfum sér gramur. Hann sá að með því að stinga upp trompásnum og spila spaða gat vörnin tryggt sér annan trompslag. Austur yrði að yfírdrepa drottninguna og spila meiri spaða, sem vestur myndi trompa með tíunni. Hjartagosi austurs yrði þá fjórði slagur vamarinnar. En sagnhafi gat tryggt sér vinninginn með því að dúkka spaðann og ijúfa þannig samn- inginn í fitnum. Umsjón Margeir Pétursson Á danska meistaramótinu í ár kom þessi staða upp i skák al- þjóðlega meistarans Erlings Mortensen, sem hafði hvítt og átti leik, og hins fræga stórmeist- ara Bent Larsen. 33. Hd5! - Bb2 (lakara er að þiggja skiptamunsfómina strax, 33. - Rxd5, 34. Hf7+ - Kg8, 35. exd5 og svartur er vamar- laus) 34. e5! - Rxd5, 35. Hn+ — Kg8, 36. cxd5 — Bxe5, 37. Hf5+ — Kh7, 38. Hxe5 og með tvo menn fyrir hiók vann hvítur án teljandi erfíðleika. Þessir tveir skákmenn, Larsen og Mortensen, urðu jafnir og efstir á mótinu og munu innan skamms tefla einvígi um titilinn. Þetta er í fyrsta sinn í langan tíma sem Larsen er með á danska meistaramótinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.