Morgunblaðið - 08.04.1989, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1989
SAMNINGAR BSRB OG RÍKISINS
Samkomulag rík-
issjóðs og BSRB
HÉR á eftir fer samkomulag Qármálaráðherra fyrir hönd ríkis-
sjóðs og aðildarfélaga BSRB um breytingar og framíengingu á kjara-
samningum, sem undirritað var í gær. BSRB-félögin undirrituðu
samkomulagið með fyrirvara um samþykki félagsmanna. Samningn-
um fylgja sex bókanir.
„Gildandi lq'arasamningar aðila
samkomulags þessa framlengjast
til 30. nóvember 1989 og falla þá
úr gildi án sérstakarar uppsagnar.
Eftirfarandi breytingar taka gildi
á samningstímanum:
1. grein
Mánaðarlaun skv. grein 1.1.1.
hækka um 2.000 kr. frá 1. apríl
1989, aftur um 1.500 kr. frá 1.
september 1989 og um 1.000 kr.
1. nóvember 1989.
2. grein
Hinn 1. júní 1989 skal starfs-
maður fá greidda sérstaka orlofs-
uppbót að upphæð 6.500 kr., er
miðast við fullt starf næstliðið or-
lofsár. Greitt skal hlutfallslega fyr-
ir hluta úr starfi.
3. grein
í launaflokkum 227-231 í launa-
töflum BSRBl og BSRB6 og í
launafiokkum 328-332 í launatöflu
BSRB2 ákvarðist launaþrep skv.
lífaldri.
burðarleyfí í allt að 12 mánuði í
stað 9 mánaða nú.
4. Óheimilt er að segja bams-
hafandi konu upp starfi nema gild-
ar ástæður séu fyrir hendi.
5. Skylt er, þar sem því verður
við komið, að færa bamshafandi
konu til í starf, ef það er þess eðl-
is, að heilsu hennar eða fósturs er
af því hætta búin, enda verði ekki
við komið breytingum á starfs-
háttum. Slík tilfærsla skal ekki
hafa áhrif á launakjör viðkomandi
til lækkunar.
6. Heimilað verði að skipta
bamsburðarleyfi vegna heilsufars
bams, þegar sérstaklega stendur á.
Bókun2
Samningsaðilar eru sammála
um, að reglugerð nr. 135/1988,
um veikindaforföll starfsmanna
ríkisins, verði breytt þannig, að
viðmiðunartímabil vegna meðaltals
yfirvinnu verði 12 mánuðir í stað
6 mánaða áður. Endurgreiðsla
vinnuveitanda á læknisvottorði skv.
7. mgr. 1. greinar reglugerðarinnar
taki einnig til greiðslu til læknis
fyrir viðtal vegna öflunar vottorðs-
ins.
Bókun 3
Tekin verði til skoðunar hækkun
á örorkubótum vegna slysa í starfi.
Örorkubætur verði greiddar sem
næst verðlagi greiðslumánaðar í
stað slysdags.
Bókun4
líeimilt verði aðilum samkomu-
lags þessa að gera breytingar á
röðun einstaklinga og/eða starfs-
heita í launaflokka sem svari til,
að y« hluta félagsmanna færist til
um 1 lfl. Samstarfsnefndir aðila
taki ákvörðun um breytingar þess-
ar, sem taki gildi 1. júlí 1989.
Bókun 5
Samkvæmt ósk fjármálaráðu-
neytisins mun heilbrigðisráðu-
neytið kanna leiðir til að greiðsla
fæðingarorlofs fylgi bami við
andlát móður í fæðingaror-
lofstímabiii.
Bókun6
Aðilar em sammála um, að
ráðning með uppsagnarfresti
Morgunblaðið/Emilía
Davíð Oddsson borgarstjóri og Sjöfii Ingólfsdóttir varaformaður
Starfsmannafélags borgarinnar undirrita samkomulagið.
verði ríkjandi ráðningarform.
Þegar þannig stendur á, að verk-
efnislok em fyrirfram ákveðin eða
um afleysingu er að Tæða, verði
slík ráðning þó tímabundin. Þegar
tímabundin ráðning hefur varað
í 2 ár verði henni breytt í ráðn-
ingu með uppsagnarfresti.
Réttur lausráðinna til launa í
veikindum, bamsburðarleyfi o.fl.
verði ákveðinn sérstaklega að
undangengnum viðræðum við
heildarsamtök ríkisstarfsmanna.
Viðkomandi stéttarfélag fer
með forsvar fyrir laus- og fastr-
áðna félagsmenn sína í þjónustu
ríkisins, sem gegna störfum á
samningssviði félagsins sbr.
ákvæði laga nr. 94/1986 og í
samræmi við 2. lið yfirlýsingar
ijármálaráðherra frá 3. september
1.982.
Öll ákvæði persónulegra sér-
samninga stofnana við félags-
menn í viðkomandi aðildarfélagi,
er fela í sér skerðingu á kjörum,
sem starfsmanni ber skv. lögum,
reglugerðum eða Iqarasamningi
skulu ógild. Óheimilt er að gera
samninga, sem fela í sér slíka
skerðingu lögbundinna eða umsa-
minna réttinda.
Unnið verði að fullnaðarfrá-
gangi ákvæða skv. ofanrituðu á
samningstímanum. Verði þeirri
vinnu lokið fyrir 15. september
1989. Fyrirvari er gerður um
nauðsynlegar lagabreytingar.
Yfirlýsing ríkissljórnarinnar um verðlagsmál
1. þrep 16 ára aldur
2. þrep 17áraaldur
3. þrep 19 ára aldur
4. þrep 22 ára aldur
5. þrep 25 ára aldur
6. þrep 28 ára aldur
7. þrep 31áraaldur
8. þrep 36 ára aldur
Aldur reiknist frá upphafi næsta
mánaðar eftir afmælisdag. Enginn
skal þó lækka um þrep við breyt-
ingu þessa.
Jafnframt falli niður grein 1.2.5
(1.1.10 hjá SFR) og hliðstæðar
greinar í öðrum samningum, sem
§alla um mat á öllum almennum
störfum til starfsaldurs í umrædd-
um launaflokkum.
Þeir starfsmenn, sem færast úr
þessum launaflokkum upp í launa-
flokka, þar sem reglan gildir ekki,
halda þó því þrepi er þeir höfðu náð.
4. grein
HÉR á eftir fer yfirlýsing ríkis-
stjórnarinnar um verðlagsmál
og tvær yfirlýsingar fjármála-
ráðherra vegna samkomulags
við BSRB.
Ríkisstjómin og Bandalag
starfsmanna ríkis og bæja eru sam-
mála um nauðsyn þess að spoma
eins og frekast er unnt við verð-
hækkunum á gildistíma
skammtímasamnings. Verðstöðvun
verður sett á opinbera þjónustu
þannig að verðlagning hennar mið-
ist við forsendur fjárlagaársins
1989.
Einnig verða niðurgreiðslur á
landbúnaðarvörur auknar í því
skyni að tryggja að einungis verði
lágmarksbreytingar á verðlagi á
mikilvægustu landbúnaðarvörum á
næstu mánuðum þannig að verðlag
á slíkum nauðsynjavörum hækki
ekki á samningstímanum umfram
Iaun lágtelq'ufólks.
Ríkisstjómin beiti sér fyrir að-
haldi að verðákvörðunum einokun-
arfyrirtælqa og fyrirtækja er ráð-
andi eru á markaði sínum.
Fulltrúar ríkisstjómarinnar og
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja munu eigi sjaldnar en á
tveggja mánaða fresti fara yfir
þróun verðlagsmála og ræða um
aðgerðir sem stuðli að því að grund-
völlur kjarasamninganna haldist.
Yfirlýsing
Qármálaráðherra
um félags- og
velferðarmál
Ríkisstjómin lýsir sig reiðubúna
til þess að taka upp viðræður við
BSRB um leiðir til þess að bæta
lífskjör almennings og styrkja vel-
ferðarkerfið.
í viðræðum þessum skal m.a.
fjallað um eftirfarandi:
☆ Dagvistarmálefni -
☆ Húsnæðismál
☆ Skattamál
☆ Lífeyris- og tryggingamál
☆ Jafnréttismál
☆ Vinnutíma
☆ Endurmenntunarmál
Aðilar skulu vinna sameiginlega
að stefnumótun og áætlunum varð-
andi þessa málaflokka og skal þess-
ari vinnu vera lokið fyrir 20. októ-
ber 1989. Þau atriði, sem heyra
undir löggjafarvaldið, leggi ríkis-
stjórnin fram á Alþingi í byijun
þings á hausti komanda.
Yfírlýsing
flármálaráðherra
Ríkisstjómin hefur ákveðið að
veija á þessu ári 15 milljónum
króna í þeim tilgangi að styrkja
atvinnumöguleika skólafólks á
komandi sumri og verður þeim fjár-
munum varið til sumarvinnu skóla-
fólks við landgræðslu og skógrækt.
Ákvæði um' desemberuppbót í
kjarasamningum aðila orðist svo:
Starfsmaður í fullu starfi fá
greidda persónuuppbót 1. desem-
ber ár hvert, sem nemi 30% af
desemberlaunum í 244. launaflokki
6. launaþrepi skv. launatöflum
BSRBl og BSRB6 og samsvarandi
upphæð skv. öðrum launatöflum
BSRB. Með fullu starfi er átt við
100% starf tímabilið 1. janúar til
30. nóvember sama ár. Hafi starfs-
maðurinn gegnt hlutastarfi eða
unnið hluta úr ári, skal hann fá
greitt miðað við starfshlutfall
og/eða starfstíma, þó þannig að
hann hafi starfað samfellt a.m.k.
frá 1. september það ár.
Starfsmaður, sem fór á eftir-
laun á árinu, en hefði ella fengið
greidda persónuuppbót í desember,
skal fá hana greidda eigi að síður,
enda hafi hann skilið starfi, er svari
til a.m.k. hálfs starfsárs það ár.“
Bókun 1
Samningsaðilar eru sammála um
að reglugerð nr. 633/1987 um
barnsburðarleyfi verði endurskoð-
uð hvað varðar eftirfarandi efnisat-
riði:
1. Viðmiðunartímabil vegna yfir-
vinnu og vaktaálags verði 12 mán-
uðir I stað 6 mánaða áður.
2. Kona, sem hyggst láta af
starfi við lok bamsburðarleyfis,
skal segja upp starfi sínu með
venjulegum uppsagnarfresti.
3. Heimilt verði að lengja bams-
Margar perl-
ur í þess-
um samningi
-segir Einar Ólafeson
„EINS og ég hef áður sagt, þá
er ekki hægt að skipta þvi sem
ekki er til, og tel ég þennan
kjarasamning vera á þeim nót-
um. Ég sé aftur á móti margar
perlur í þessum samningi, en þar
er fyrst og fremst um að ræða
ýmis félagsleg atriði. Kaup-
hækkanir eru vissulega ekki
miklar í samningnum og þær
halda varla í við verðhækkanir.
Við þykjumst þó hafa sæmilega
tryggingu fyrir því að stjórn-
völdum takist að halda niðri
verðlagi á meðan á samningstí-
manum steridur, en þá verður
l(ka að vera búið að koma hlut-
unum í rétt horf,“ sagði Einar
Óalfsson, formaður Starfe-
mannafélags ríkisstofrianna.
„Miðað við hvemig komið er í
þjóðfélaginu í dag i sambandi við
atvinnulífið, þá tel ég vera tíma til
kominn að allir launamenn í
landinu athugi sinn gang og skipti
sér af efnahagsmálum á raun-
hæfan hátt. Það er hægt að taka
alla hluti fyrir og endurskoða og
koma rekstri á réttari og betri kjöl.
Þetta er meining okkar með þess-.
um kjarasamningi, og þess vegna
semjum við til skamms tíma. Við
ætlum okkur að setjast niður á
þessu tímabili og skoða málin frá
öllum sjónarhomum, og til þess
viljum við fá aðstoð frá öðrum laun-
þegasamtökum á móti því valdi sem
stjómar þjóðfélagi okkar hveiju
sinni, og reyna þannig að finna
betri lausnir á vandamálunum held-
ur en við höfum séð að hafi verið
notaðar á undanfömum árum.“
Sætti mig
við þennan
samning
-segir Ragnhildur
Guðmundsdóttir
„ÞESSIR kjarasamningar voru
erfiðir, og við reyndum til hins
ítrasta til að ná þvi fram sem
við töldum réttlætanlegt fyrir
okkar fólk með þvi að taka tillit
til þess ástands sem er í landinu.
Ég gerði mér ekki nijög háar
hugmyndir um þennan samning
í fyrstu, en eftir breytingar sem
á honum voru gerðar, þá get ég
eftir atvikum sætt mig við hann
miðað við það að samningstím-
inn er stuttur," sagði Ragnhildur
Guðmundsdóttir, formaður Fé-
Meqsjy-a. ^jmaipann.a,
-Ég vona að þessi samningur
leiði ekki til meiri vanda en þegar
er fyrir hendi, og ég vonajafnframt
að ríkisstjómin meti það tillit sem
við höfum tekið til hennar, og taki
þess vegna fullt tillit til okkar á
ailan hátt. Við munum að sjálf-
sögðu vinna mjög ötullega að und-
irbúningi næsta kjarasamnings og
nota þennan tíma sem til stefnu
er til þess að leggja grunn að samn-
ingi sem verður sterkari, auk þess
sem farið verður inn í ýmiss konar
réttindamál og reyna að leysa
vanda sem skapast hefur á því
sviði. Það er því mikið starf fram-
undan og veitir ekki af þeim tíma
sem til stefnu er.“
Landssamband
lögreglu-
manna skrif-
aði ekki undir
„ÞAÐ liggur fyrir að Landssam-
band lögregiumanna skrifar
ekki undir þennan kjarasamning
vegna umtalsverðra vanefrida
rikisvaldsins á fyrri samningum
okkar, en í því felast þó engin
mótmæli gegn samningnum sem
slíkum," sagði Jóhannes Jónas-
son, stjórnarmaður í Landssam-
bandi lögreglumanna, en það
ei.tt aðildarfélaga BSRB skrifaði
ekki undir nýgerðan kjarasamn-
ing.
„Við afsöluðum okkur verkfalls-
réttinum á sínum tíma gegn
ákveðnum forsendum, sem síðan
hafa ekki verið efndar. Þess vegna
höfum við gengið eftir því við
stjórnvöld að fá verkfallsréttinn
aftur í stað þeirra forsendna sem
hann var látinn af hendi fyrir. Þar
var um að ræða falskaup sem við
ætlumst til að verði látin ganga til
baka, “ sagði Jóhannes.
*
Asættanleg-
ursamningur
-segir Sjöfii
Ingólfsdóttir
„MIÐAÐ við ríkjandi aðstæður
tel ég að þessi samningur sé vel
ásættanlegur, og greiddi samn-
inganefrid félagsins honum sam-
hljóða atkvæði," sagði Sjöfri Ing-
ólfsdóttir, varaformaður Starfs-
mannafélags Reykjavíkurborg-
ar.
„Þessi samningur kemur að
sjálfsögðu ekki til móts við okkar
ítrustu kröfur, en það var mat okk-
ar að miðað við rílq'andi aðstæður
gætum við sætt okkur við hann í
þetta skamman tíma. Þetta er þó
nokkuð langt frá því sem við lögð-
um af stað með í upphafi þessarra
samningaviðræðna. “