Morgunblaðið - 08.04.1989, Side 44
Aukin þægindi
ofar skýjum
FLUGLEIDIR
J®j0rj0twWW>i§>
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 80 KR.
Jón Sigurðsson bankamálaráðherra:
Vextir verðtryggðra
útlána lækki uni 0,5%
Goðinn dregnr danska flutningaskipið á flot á háflæðinu síðdegis í gær. Morgunbiaðið/Fnmann óiafsson
Mariane komin á flot
Grindavík.
MARIANE Danielsen rann nokk-
uð greiðlega á flot á kvöldflóð-
inu í gærdag þegar björgunar-
skipið Goðinn byrjaði að draga
i hana.
„Hún fer á flot í kvöld,“ sagði
Finnbogi Kjeld um borð í Mariane
um fimmleytið í gærdag, „við sáum
hvað fór úrskeiðis í gærdag og
erum búnir að bæta úr því. Guð-
laugur Guðmundsson forsvarsmað-
ur Lyngholts sf. tók undir með
Finnboga og sagði að tilraunin í
gær hefði verið árangursrík. Þá
hefðu komið sjór í vélarrúmið sem
væri ekki núna og dælur hefðu vel
undan leka. Auk þess hefði skipið
losnað af nibbu sem það var fast á
á bakborða.
Bjartsýni þeirra félaga átti við
rök að styðjast og um klukkan
hálf sjö þegar háflæði var byijaði
Goðinn að strekkja á línunni milli
skipanna og Mariane rann af stað.
Goðinn dró hana afturábak útfyrir
innsiglinguna í Grindavík þarsem
ankeri var kastað. Fyrirhugað var
að draga skipið til Njarðvíkur
síðastliðna nótt.
FÓ
Á FIJNDI Seðlabankans og við-
skiptabankanna í fyrradag
beindi bankastjórn Seðlabankans
þeim eindregnu tilmælum til
innlánsstofiiana, að vextir af
verðtryggðum útlánum yrðu al-
mennt lækkaðir um 0,5% irá 11.
þessa mánaðar, eða lrá næstkom-
andi þriðjudegi. Þetta var gert í
framhaldi af fiindi sem Jón Sig-
urðsson bankamálaráðherra og
fleiri ráðherrar áttu með stjórn
Seðlabankans og sagðist banka-
málaráðherra í gær vera bjart-
sýnn á að innlánsstofiianir yrðu
við þessum tilmælum.
Bensín- og
olíuverð
hækkar
TVERÐLAGSRÁÐ samþykkti í
gær hækkanir á verði bensíns,
gasolíu, svartolíu, sements, far-
gjalda í innanlandsflugi og farm-
gjalda skipafélaga. Bensínlítrinn
hækkar því í dag um 2,1%, úr
42.90 krónum í 43,80, gasolíulítr-
inn um 6,9%, úr 10,20 krónum í
10.90 og tonnið af svartolíu um
5,3%, úr 7.600 krónum í 8.000.
Jón sagði að á þessum fundi
hefði því jafnframt verið beint til
þeirra stofnana sem beita mismun-
andi háum útlánsvöxtum, eftir mati
á tryggingum lántakenda, eða svo-
kölluðu kjörvaxtakerfi, að þær
drægju nokkuð úr bilinu á milli
hæstu og lægstu útlánsvaxta.
„Bankastjórn Seðlabankans, sem
er sammála um þetta, leggur mikla
áherslu á að allar innlánsstofnanir
verði við þessum tilmælum," sagði
Jón.
Ráðherra sagði þessi tilmæli
fyrst og fremst vera framkvæmd á
þeirri stefnu sem sameiginlega
hefði verið mörkuð. „Það eru reynd-
ar merki um almenna lækkun raun-
vaxta víða á markaðnum, eins og
fram hefur komið. Þarna er verið
að fylgja henni eftir og um leið að
sýna að það sé mikil alvara í því
að skapa aðstæður skipulega á
markaðnum fyrir lækkun raun-
vaxta. Fyrsta skrefið og grundvöll-
urinn að því var lagður fyrir 1.
apríl þegar Seðlabankinn tók
ákvörðun um breytta bindiskyldu
og lausaíjárstöðu. Ég á því fyllilega
von á því að innlánsstofnanir verði
við þessum eindregnu tilmælum,"
sagði Jón Sigurðsson, viðskipta- og
bankamálaráðherra.
Samningar náðust milli ríkisins, Reykjavíkurborgar o g BSRB í gærmorgun:
Laun hækka að meðaltali um
9,5% á samningstímanum
KJARASAMNINGAR milli stórs hluta aðildarfélaga Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja og viðsemjenda voru undirritaðir um hádegisbilið
í gær eftir næturlangan fund aðila. Samningamir gilda til 30. nóvem-
ber og fela í sér hækkanir á töxtum, sem jafngilda 8% að meðaltali
þegar þær eru að fúllu komnar fram, en 9,5% þegar allar launahækkan-
irnar eru teknar með í reikninginn. Hækkuðu öll dagvinnulaun í landinu
samkvæmt þessum samningum jafiigilti það hins vegar um 7%, sam-
kvæmt útreikningum hagdeildar fjármálaráðuneytisins.
Olíufélögin höfðu farið fram á
meiri hækkanir á verði bensíns og
gasolíu, en hluta þeirra, það er
hækkun álagningar, tók verðlags-
ráð ekki afstöðu til. Þær beiðnir
verða teknar fyrir síðar. Þessar
verðhækkanir sem nú voru sam-
þykktar eru miðaðar við birgðir í
landinu og eru vegna gengisbreyt-
inga.
Skipafélögin höfðu farið fram á
13% hækkun, en samþykkt var 7%
hækkun á farmgjöldum.
Flugfélögin fóru fram á 20%
hækkun, en samþykkt var 7%
hækkun.
Sementsverksmiðjan óskaði eftir
10% hækkun, en samþykkt var 6%
hækkun.
í hækkanabeiðnum hinna þriggja
síðast töldu er gert ráð fyrir launa-
hækkunum, en verðlagsráð sam-
þykkti ekki að taka tillit til þeirra,
jjar sem kjarasamningar hafa ekki
_ verið gerðir.
Bæjarstarfsmannafélög önnur en
Starfsmannafélag Reykjavíkurborg-
ar, sem einnig undirritaði samninga
í gær, Siglufjarðar og Akraness,
hafa haft með sér samflot og eiga
nú viðræður við Launanefnd sveitar-
félaga um svipaða samninga.
Samningarnir fela í sér þrjár
krónutöluhækkanir á samningstím-
anum, 2.000 krónur frá 1. apríl,
1.500 krónur frá 1. september og
1.000 krónur frá 1. nóvember. Sér-
stök orlofsuppbót að upphæð 6.500
krónur verður greidd út 1. júní og
viðmiðun persónuuppbótar í desem-
ber hækkar um rúmlega 3.000 krón-
ur og verður 21.500 krónur. 0,5%
til launaflokkatilfærslna koma 1. júlí
og ákvæði er um að lögð verði meiri
áhersla á lífaldur í starfsaldri, sem
kemur þeim félögum innan BSRB
sem hafa lægstlaunaða félagsmenn
einkum til góða. Auk þess fýlgja
samningnum bókanir, yfirlýsing ríki-
stjórnarinnar um verðlagsmál og
auknar niðurgreiðslur á landbúnað-
arvörum þannig að þær hækki ekki
á samningstímanum umfram laun
lágtekjufólks. Ennfremur yfirlýsing
um viðræður um ýmis félags- og
velferðarmál við BSRB, sem skal
vera lokið fyrir 20. október. Þá ákvað
fjármálaráðherra í tengslum við
samninginn að veija 15 milljónum
króna til að styrkja atvinnumögu-
leika skólafólks í sumar og verður
þeim fjármunum varið til skógræktar
og landgræðslu.
Tíu ríkisstarfsmannafélög undir-
rituðu samningana. Þau eru Starfs-
mannafélag ríkisstofnana, Félag
flugmálastarfsmanna ríkisins, Félag
íslenskra símamanna, Félag starfs-
manna stjómarráðsins, Ljósmæðra-
félag íslands, Póstmannafélag ís-
lands, Starfsmannafélag Ríkisút-
varpsins, Starfsmannafélag Sjón-
varps, Starfsmannafélag Sjúkrasam-
lags Reykjavíkur, Tollvarðafélag ís-
lands. Landssamband lögreglu-
manna, sem átti hlut að samflotinu,
undirritaði samninga ekki sökum
vanefnda ríkisvaldsins, sem ekki
fengust leiðréttingar á í viðræðunum,
að sögn fulltrúa sambandsins. Hjúkr-
unarfélag íslands, Fóstrufélag ís-
lands og Meinatæknafélag íslands
áttu ekki aðild að samflotinu og eru
með lausa samninga. Kjarasamning-
arnir eru undirritaðir með fyrirvara
um samþykkt félaganna, eins og
venja er. Atkvæðagreiðslur fara í
gang á næstu dögum, en taka mis-
langan tíma eftir félögum og niður-
staðna ekki að vænta fyrr en eftir
miðjan mánuðinn.
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, segir þetta kjarajöfnunar-
samning, þar sem mest komi til hinna
lægst launuðu. Hann segist ánægður
með að þessi samningur skuli vera
í höfn, þvi annars hefði verið hætta
á að viðræður drægjust úr hömlu.
Ólafur Ragnar Grímsson, fjár-
málaráðherra, segir að samningurinn
samrýmist forsendum fjárlaga. Hann
segir ekki veijanlegt að semja við
aðildarfélög BHMR, sem nú eru í
verkfalli, um meiri hækkanir en við
BSRB.
Gunnar J. Friðriksson, formaður
VSÍ, segir að gengisfelling verði ekki
umflúin, gangi samningurinn yfir
allan vinnumarkaðinn. Ásmundur
Stefánsson, forseti ASÍ, segir að
samtökin hljóti að taka mið af kaup-
hækkunum í samningi BSRB. Páll
Halldórsson, formaður BHMR, segir
að samningurinn geti með engu
móti talist til fyrirmyndar.
Sjá kjarasamninginn, meðfylgj-
andi bókanir og viðbrögð á bls.
4, 7, 18, 25.
Sovéski kafbáturinn við Bjarnarey:
Stjómvöld leita skýringa
JÓN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra segir að íslensk
stjórnvöld hafi krafist. þess að fá milliliðalaust skýringar frá
Sovétmönnum á kafbátsslysinu við Bjarnarey í gærdag. Jón Bald-
vin hafði samband við sovéska sendiherrann í gærkvöldi. Sendi-
herrann sagði að hann myndi strax hafa samband við stjórnvöld
í Moskvu til að afla upplýsinga um málið. Er Morgunblaðið ræddi
við Jón Baldvin um miðnættið í gærkvöldi hafði hann enn ekki
heyrt frá sovéska sendiherranum.
Jón Baldvin segir að sér hafi
fyrst borist upplýsingar um málið
frá vamarliðinu um kl. 18 í gær-
dag. Þá var eldur um borð í kaf-
bátnum sem benti til þess að bilun
hefði komið upp í kjarnakljúf
fhans. Síðari fréttir hermdu að
kafbáturinn væri sokkinn og ekki
vitað um mannbjörg. Ekki var
heldur vitað hvort kjamorkuvopn
hefðu verið um borð.
„Ég hafði einnig samband við
Hafrannsóknastofnun og Al-
mannavarnir vegna þessa máls,“
segir Jón Baldvin. „Fyrsta mat
Hafrannsóknastofnunar er að ef
geislavirk efni leka úr kafbátnum
muni þau fýrst halda norður á
bóginn. Það fer síðan eftir þvi
hvort þau komast í golfstrauminn
hvort þau berist að ströndum ís-
lands síðar meir.“
Auk þess að krefjast upplýs-
inga frá Sovétmönnum um orsak-
ir og hugsanlegar afleiðingar
þessa slyss hefur Jón Baldvin
haft samband við norska sendi-
herrann hér á landi og óskað eft-
ir öllu hugsanlegum upplýsingum
um málið sem Norðmönnum verða
tiltækar. Einnig hefur verið óskað
eftir öllum upplýsingum sem
varnarliðið aflar sér um málið.