Morgunblaðið - 23.04.1989, Side 9
MOROINHLABH)
____ VI OMA lElODIKMM
SUNNUÐAGUR- 23 r -APRÍLU983-
íl a
€ 9
LÆKNISFRÆDI/Er ekki betra heilt en velgróib?
Beinbrot
2. Umbúðir eru iagðar á brotinn
lim þegar búið er að kippa
misgengi eða styttingu í lag
og eru gifsumbúðir nú á dög-
um vinsælastar. Aður voru
oftast notaðar tréspelkur og
síðan vafið utan um með lér-
eftsbindum. „Eins mætti og
brúka voðfellt vaðmál,“ segir
doktor Jónassen landlæknir í
Lækningabók handa alþýðu á
Islandi sem út kom 1884. A
og illa, eða jafnvel alls ekki.
Umbúðir geta spillst — brotn-
að, blotnað eða orðið hólksleg-
ar þegar vöðvar í stöðugri
hvíld rýrna, og síðast en ekki
síst taka beinendarnir stund-
um upp á því að færast til,
jafnvel þótt umbúðir hafi ekk-
ert látið á sjá. Þessa eftirlits
er þörf þangað til brotið er
orðið „fast“ sem kallað er.
Það var fyrr á árum prófað
NÚ ER sumar komið í almanak-
ið og við erum hætt að detta á.
hálkunni — í bili að minnsta
kosti. En bein brotna á öllum
árstíðum; manneskjurnar eru
sífellt að verða fyrir hnjaski í
starf! og leik og stundum er
eins og ekki þurfí mikið til.
Sum bein brotna sjaldan, önnur
oft. Fótbrot og handleggsbrot
eru algeng. Menn hrasa á göngu,
snúa sig um ökla og þá kann ann-
að fótleggsbeinið eða bæði að hafa
brotnað í nánd við
liðamótin. Og svo
getur það komið
fyrir hvern sem
er að detta kylli-
flatur, utanhúss
eða innan, og til
eftir Þórarin þess ag reyna að
Guðnason draga úr fallinu
ber hann fyrir sig
aðra höndina og þá vill stundum
svo illa til að önnur framhand-
leggspípan, venjulega geislabeinið,
hrekkur í sundur rétt fyrir ofan
úlnliðinn. Þessi tvö dæmi um al-
geng brot stafa af því sem er
kallað óbeinn áverki. Ef aftur á
móti steinn dettur eða barefli lend-
ir á hendi eða fæti er það beinn
áverki og brotnar þá beinið á þeim
stað sem fyrir hnjaskinu verður. —
• Brot flokkast líka eftir því hvort
þau eru lokuð eða opin, með öðrum
orðum hvort húðin á brotstaðnum
er heil eða sködduð. Opin brot eru
oftast þannig til komin að bein-
endi rífur gat á skinnið og er þá
leiðin greið fyrir sýkla að komast
í spilið. Þessi opnu brot eru alltaf
viðsjárverð en voru það þó enn
frekar áður fyrr meðan bæði skorti
vitneskju um sóttkveikjur og hjálp-
armeðul gegn þeim. — Fyrir utan
þetta er brotum svo skipt í flokka
eftir legu brotlínunnar, svo sem
þverbrot (sjá mynd), skábrot eða
mölbrot, og þarf e'inatt að haga
meðferðinni eftir því hvaða flokk
brotið fyllir.
Þegar bein brotnar slitna smá-
æðar í sundur og blóð vætlar út
í vefina í kring. Blæðingin er í
raun og veru fyrsta ráðstöfun
náttúrunnar til að bæta það sem
bilaði. Inn í blóðhlaupið nágrenni
brotsins leggja leið sína frumur 1
sem áður en langt um líður hafa |
byggt brú milli beinendanna. Að
vonum er þessi brú í fyrstu veiga-
lítil og þolir ekki álag en eftir því
sem stundir líða fram stækkar hún
og eflist. Brúarsmiðirnir unna sér
aldrei hvíldar; nótt sem nýtan dag
halda þeir áfram að styrkja smíðis-
gripinn, bæta sífellt þéttara og
haldbetra efni í brúna og þegar
tími er til kominn fer kalk að setj-
ast í kökkinn sem hefur hrúgast
upp kringum brotið. Um síðir eru
samskeytin orðin svo traust að
ekki er lengur þörf á því aðhaldi
Ingólfsstræti 12 til leigu
il III m j!'^ |;l||ií.ij!|i |||!|| ftWliliJ
ir ■ I "ri ~ rrj ———* - B M pr
nczífrij ^ n ! f q|q UUIUll r Ö Jl-L DQ
Hæð og kjallari, að hluta með stórum innkeyrsludyrum.
1. hæð með 3 metra lofthæð. Gæti hentað sem verslun, skrif-
stofur, teiknistofur, veitingastofa, jafnvel bjórkrá o.fl.
Sanngjörn leiga.
Upplýsingar í síma 26347.
NÁMSKEID
Nýjungar í
yfirborðsmeðhöndlun bíla
Á þessu námskeiði er fjallað um nýjungar í með-
höndlun á galvaniseruðu járni og plasti. Einnig um
nýjungar í málningarefnum. Námskeið er ætlað bíla-
málurum og bifreiðasmiðum.
Námskeiðið verður haldið 27.-29. apríl.
Dagskrá verður eftirfarandi:
Fimmtudaginn 27. apríl, mæting kl. 18.30
á Suðurlandsbraut 30.
Föstudaginn 28. apríl kl. 13.00-16.00. Mæting á Suð-
urlandsbraut 30, síðan farið í Zinkstöðina.
Laugardaginn 29. apríl kl. 09.00, Iðnskólinn í Reykjavík.
Kennarar: Jóhann Flalldórsson og
Þórarinn B. Gunnarsson.
Þátttaka tilkynnist til Félags bifvélavirkja, sími 83011.
Einnig verða haldin námskeið á Sauðárkróki og
Akureyri og víðar, ef næg þátttaka fæst.
Endurmenntunarnefnd í bílgreinum.
sem brotkökkurinn veitti, ekki
fremur en timburmótum sem
styðja að múrnum meðan steypan
er að harðna. Kökkurinn rýrnar
hægt og hægt og hverfur að lokum
en eftir situr gróið bein, og þegar
ákjósanlega hefur tekist til er lítil
sem engin vegsummerki að sjá.
Margs þarf að gæta í meðferð
beinbrota. Lítum aðeins á þrennt
sem hefur meginþýðingu:
1. Beininu þarf að koma í sem j
eðlilegast horf og helst þannig |
að brotendarnir mætist ná-
kvæmlega. Oftast er þetta
framkvæmanlegt í staðdeyf-
ingu eða svæfingu án skurð-
aðgerðar en fyrir kemur að
skera þarf inn á brotið til
þess að ná betri tökum á bein-
endunum og ef til vill tengja
þá um leið með skrúfu eða
spöng.
síðari árum er einatt gripið I
til ýmiskonar neglinga eða
innri festingar í stað ytri
umbúða og eru langir teinar
í mergholið eitt dæmi um
slíkt.
3. Fylgjast verður með umbún-
aði beinbrota öðru hvoru með-
an þau eru að gróa. Sé
minnsta hreyfing á brotstað
er viðbúið að beinið grói seint
með því að taka umbúðirnar
af og reyna hvort nokkurt los
væri að finna. En nú er röntg-
enmyndum treyst öllu öðru
betur, og það með réttu.
Oft mætti læknum okkar tíma
verða hugsað til þeirra sem urðu
bókstaflega talað að þreifa sig
áfram í staðinn fyrir að hengja
filmu upp á ljósaskáp: Spegill,
spegill, herm þú mér...
^=T0SHIBA^=
örbylgjuofnarnir eru meira en skrefi framar
c>urfef"7Öucfr - það allra nýjasta
»-*
O <3>
9 O
'
Þú getur valið úr meira en 14 gerðu
TOSHIBA örbylgjuofna fyrir stór eða lítil
heimili.
Þú getur valið úr einföldum ofnum með 9 mismunandi hitasti
ingum og ofnum, sem eru langt á undan sinni samtíð. Þeir
vega matinn sjálfir, reikna út matreiðslutímann og nota síðan
lyktarskynjara til að tryggja þér góða matreiðslu.
ER 8930 SURFA-TOUCH ER 9530 örbyigjuofn með grilli og hita-
með vigt og lyktarskynjara. blæstri. Sjálfhreinsibúnaður.
Verð kr. 46.900,- kr. 44.500,- stgr. Verð kr. 46.900,- kr. 44.500,- stgr.
TRYGGDU ÞÉR TRAUSTAN OG ÖRUGGAN TOSHIBA ÖRBYLGJUOFN,
sem þú getur matreitt í allan venjulegan mat meó góöum órangri.
14 GERDIR - VERÐ FRÁ KR. 17.950stcr.
Öllum Toshiba örbylgjuofnum fylgir fullkom-
in kennsla í eitt kvöld hjá Dröfn H. Farest-
veit, hússtjórnarkennara, stórmenntaðri í
matreiðslu í örbylgjuofnum. Aðeins 10 eig-
endur á hverju námskeiði.
Góð handbók og uppskriftir á íslensku fylgja
ofninum.
THOSIBA - meira en skrefí framar
Einar Farestveit&Co.hf.
BORGARTUN 28, SÍMAR: (91) 16995 OG 622900 - NÆG BÍLASTÆÐI