Morgunblaðið - 26.04.1989, Blaðsíða 1
48 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
93. tbl. 77. árg.
MIÐVIKUDAGUR 26. APRIL 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Skammdræg kjarnavopn í Y-Evrópu:
Eitt ríki fær ekki
mótað stefiiu NATO
- segir Margaret Thatcher
London. Reuter.
MARGARET Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, varaði stjórn-
völd í Vestur-Þýskalandi við því í gær að rjúfa samstöðu ríkja
Atlantshafsbandalagsins (NATO) með þeim orðum að eitt tiltekið
aðildarríki gæti ekki mótað varnarstefhu bandalagsins. Vestur-
Þjóðverjar hafa, þvert á vilja Bandaríkjamanna og Breta, hvatt til
þess að liafnar verði samningaviðræður við ríkin austan járnljalds-
ins um fækkun skammdrægra kjarnorkueldflauga í Evrópu og
hefur enn ekki tekist að leysa ágreining þennan.
Thatcher sagði á þingi í gær að
kjarnorkuherafli Atlantshafs-
bandalagsins og viðbúnaður hins
hefðbunda herafla hefði tryggt frið
í Evrópu í 40 ár. „Eitt tiltekið ríki
getur ekki mótað stefnu NATO.
Allt það sem grefur undan NATO
mun skaða viðleitni til að halda
Mexíkó
skelfur
Mexíkóborg. Reuíer.
MIKIL hræðsla greip um sig
er öflugur jarðskjálfti skók
stærstu borgir Mexíkó í
gær. Vitað var um einn
mann sem beið bana. Tals-
vert tjón varð á mannvirkj-
um.
í höfuðborginni hlupu þús-
undir manna skelfingu lostnir
út úr húsum er skjálftinn reið
yfir klukkan 8:29 að stað-
artíma, 14:29 að íslenzkum
tíma.
Mældist hann 6,8 stig á
richter-kvarða og átti upptök
neðansjávar, 65 km vestur af
baðstrandarborginni Acapulco
á Kyrrahafsströnd landins.
Starfsmaður Rauða krossins
sagði að margir hefðu fengið
taugaáfall í skjálftanum.
í september 1985 biðu um
10.000 manns bana í jarð-
skjálfta í Mexíkóborg.
uppi vörnum í þágu frelsisins,"
bætti hún við.
Á mánudag ræddu vestur-þýskir
og bandarískir embættismenn
deilu þá sem upp er kominn innan
bandalagsins vegna áforma um
endurnýjun skammdrægra kjarn-
orkueldflauga í Vestur-Evrópu og
þeirrar afstöðu ráðamanna í Vest-
ur-Þýskalandi að hefja beri viðræð-
ur um fækkun þessara vopna.
Fundurinn skilaði litlum sem eng-
um árangri en deilan verður rædd
frekar og lýstu menn yfir því að
mikilvægt væri að leysa hana fyrir
leiðtogafund aðildarríkja NATO í
næsta mánuði.
Thatcher mun eiga viðræður við
Kohl kanslara í Vestur-Þýskalandi
um næstu helgi en áður mun hún
hitta forsætisráðherra Ítalíu og
Belgíu að máli.
Sjá einnig „Árangurslaus
fundur. . . “ á bls. 21.
Takeshita segirafsér
Reuter
Noboru Takeshita sagði af sér starfi forsætisráðherra Japans í gærmorgun vegna Recruit-málsins, mesta
stjórnmálahneykslis, sem komið hefur upp í landinu í áratugi. Líklegastur eftirmaður hans var talinn
Masayoshi Ito, fyrrum utanríkisráðherra, en hann er eini leiðtogi Frjálslynda lýðræðisflokksins, sem ekki
er viðriðinn Recruit-hneyksiið. Ito gaf þó til kynna í fyrradag að hann hefði ekki áhuga á starfanum þar
sem hann væri orðinn 75 ára og þjáðist af sykursýki. Viðbrögð almennings benda til þess að Japönum hafi
létt við afsögn Takeshita.
Sjá „Fjórði forsætisráðherrann sem fellur vegna mútumáls" á bls. 21.
Gorbatsjov hreinsar
til í miðstjórninni
Moskvn. Rpntor.
ÞRIÐJUNGUR fulltrúa í mið-
stjórn sovézka kommúnistaflokks-
ins sagði af sér á fundi stjórnar-
innar í gær að kröfu Mikhails
Gorbatsjovs, Sovétleiðtoga. Þar á
Cicciolina kveður dátana
Reuter
Brottflutningur sovézkra hersveita frá Ungveijalandi hófst í gær
í samræmi við ákvörðun Míkhaíls Gorbatsjovs, Sovétleiðtoga, um
fækkun í sovézku sveitunum þar. ítalska þingkonan Uona Stall-
er, sem er betur þekkt sem nektardansmærin Cicciolina, er stödd
í Ungveijalandi. Lét hún taka meðfylgjandi mynd af sér með
sovézkum skriðdrekasljóra við brottfór hans frá landinu í gær.
meðal voru 11 menn sem fóru með
völd í stjórnartíð Leoníds Brez-
hnevs, fyrrum flokksleiðtoga.
Meðal þeirra var Andrej Gro-
mýko, utanríkisráðherra í tíð
Brezhnevs, og síðar forseti. Fund-
ur miðstjórnarinnar var haldinn
vegna áhyggna Gorbatsjovs af því
hve margir flokksleiðtogar fengu
slæma útreið í þingkosningunum
á dögunum. Tilgangur fiindarins
var að ræða úrslit kosninganna
og stöðu flokksins en að því loknu
var ákveðið að grípa til mestu
hreinsana í sovézka sljórnkerfinu
a.m.k. frá því Gorbatsjov komst
til valda. Vadím Medvedev, hug-
myndafræðingur flokksins, sagði
niðurstöðu fundarins marka mik-
ilvæg þáttaskil fyrir umbóta-
stefhu Sovétleiðtogans, perestroj-
ku.
„Lífið hefur sinn gang. Auk efna-
hagslegra, félagslegra og pólitískra
ákvarðana hefur perestrojka í för
með sér mannabreytingar. Mikilvæg
uppstokkun á liðsskipan á sér stað
innan flokksins sem og úti í þjóð-
félaginu öllu. Ný viðhorf krefjast
þess,“ sagði Gorbatsjov er hann
kvaddi mennina, sem hurfu úr mið-
stjórninni á fundinum í gær.
Andrej Gromýko
Reuter
Flestir þeirra sem sögðu 'af sér
höfðu staðið í vegi fyrir umbóta-
stefnu Goarbatsjovs. Að sögn
menntamanna, sem hafa góð tengsl
við háttsetta embættismenn, voru
það einkum gamlir áhrifamenn, sem
nú hurfu úr stjórninni. Bæri að líta
á brottför þeirra sem mikinn sigur
fyrir Gorbatsjov. Alls samþykktu 110
miðstjórnarmenn af 301 að segja af
sér. Undirrituðu þeir yfirlýsingu um
nauðsýn þess að allir miðstjórnar-
menn tækju virkan þátt i framgangi
perestrojku.
Meðal þeirra sem hurfu úr áhrifa-
stöðu voru 11 menn, sem voru lengi
við völd í stjórnartíð Brezhnevs. Auk
Gromýkos má nefna Mikhaíl Solo-
mentsev, yfireftirlitsmann flokksins,
Níkolaí Tíkhonov, síðasta forsætis-
ráðherrann í tíð Brezhnevs, Vasílyj
Kúznetsov, fyrsta varaforseta hans,
Borís Ponomarjov, hugmyndafræði-
legan ráðgjafa hans, Pjotr Demítsjev,
fyrrum menntamálaráðherra,
Míkhaíl Zimjanín, fyrrum ritstjóra
Prövdu, Níkolaj Ogarkov, fyrrum
yfirmann sovézka heraflans, Viktor
Kúlíkov, fyrrum yfirmann Varsjár-
bandalagsheijanr.a, og Sergej Sok-
olov, fyrrum varnarmálaráðherra.
Að sögn Medvedevs voru 24 stuðn-
ingsmenn perestrojku hækkaðir í
tign á fundinum og gerðir fullgildir
félagar með atkvæðisrétt í miðstjórn-
inni. Þar á meðal voru eðlisfræðing-
urinn Jevgení Velíkhovy, varaforseti
vísindaakademíunnar, Valentín
Falín, fyrrum sendiherra í Vestur-
Þýzkalandi, og Jevgení Prímakov,
sérfræðingur flokksins í utanríkis-
málum.