Morgunblaðið - 26.04.1989, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 26.04.1989, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1989 19 Sinfóníuhljómsveit íslands: Óperan Tannháuser efltir Wagn- er í Háskólabíói annað kvöld FJÓRTÁNDU áskriftartónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands verða haldnir í Háskólabíói fimmtudaginn 27. apríl og heQ- ast klukkan 20.30. Flutt verður óperan Tannhauser eftir Rich- ard Wagner. Hljómsveitarstjóri verður Petri Sakari, aðalstjóm- andi Sinfóníuhljómsveitarinnar. Meðal einsöngvara verða Krist- inn Sigmundsson, Norbert Orth, Elisabeth Balslev, Cornelius Hauptmann og fleiri, auk kórs Islensku óperunnar. Kórstjóri er Norbert Orth Cornelius Haupt- mann Peter Ford og hafa æfingar stað- ið yfir frá því skömmu eftir ára- mót. Norbert Orth, tenór, fæddist Kennarafélög: Áhyggjur af kjara- deilum og sparnaði Morgunblaðinu hafa borist ályktanir frá Kennarasambandi Austurlands og Kennarafélagi Reykjavíkur. Þar kemur ft-am stuðningur við þá kennara sem nú em í verkfalli og skorað er á ríkið að ganga til samninga við kennara. Kennarar á Austurlandi lýsa yfir áhyggjum sínum vegna þess ástands sem skapast hefur í skólum landsins vegna kjaradeilu kennara og ríkisvalds og lýsa fullri ábyrgð á hendur stjórnvalda vegna þess að ár eftir ár sé skólastarfi teflt í tvísýnu vegna kjaradeilna við kenn- ara. Lýst er yfir fullum stuðningi við kennara í verkfalli. Kennarafélag Reykjavíkur skor- ar á ríkisstjórn íslands að ganga til samninga við Kennarasamband Islands og önnur félög opinberra starfsmanna, sem eiga í kjaradeilu við ríkið. Þá mótmælir félagið harð- lega 4% sparnaði sem fyrirhugaður sé á kostnaði við grunnskóla árið 1989 og segir að allar sparnaðar- ráðstafanir komi til með að bitna á nemendum og hindra kennara í að starfa í samræmi við lög um grunn- skóla. 1939 í Dortmund í Þýskalandi. Tón- listarnám sótti hann í tónlistarskól- ann þar í borg, en 1966 hófst fer- ill hans sem óperusöngvari. Þó að Norbert Orth liafi fyrst komið fram sem óperusöngvari er hann einnig vel að sér í heimi ljóðasöngva. Sópransöngkonan Elisabeth Balslev fæddist 1945 í Danmörku. Hún starfaði sem hjúkrunarfræð- ingur þar til hún hóf tónlistarnám 24 ára gömul. Síðan hefur ferill hennar sem óperusöngkona verið nær óslitinn. Kristin Sigmundsson, baritón, hefur sungið í mörgum óperum. m.a. hlutverk Escamillo í Carmen eftir Bizet og Figaro í Rakaranum frá Sevilla eftir Rossini. Einnig hef- ur haldið fjölmarga Ijóðatónleika, oftast við undirleik Jónasar Ingi- mundarsonar. Cornelius Hauptmann syngur hlutverk bassans. Hann fæddist 1951 í Stuttgart í Þýskalandi, en rúmlega þrítugur lauk hann ein- söngvaraprófi. Hann hefur komið fram á tónleikum víða í Evrópu. Auk þess að syngja í útvarpi hefur hann sungið inn á fjölmargar hljóm- glötur. Óperan Tannháuser eftir Richard Wagner var frumflutt í Parísaróper- unni í mars 1860 að beiðni Napól- eons þriðja. Wagner var þá nýflutt- ur til Parísar og fékk Napóleon mikinn áhuga á verkum hans. Óp- eran fékk hins vegar afleita dóma og urðu sýningar á henni aðeins þijár að tölu. Var talið að ástæðan fyrir þessu væri sú, að Frakkar voru á þessum tíma ekki vanir seið- magnaðri og rómantískri tónlist að hætti Wagners. (Úr frcttatilkynning) Hótel ísland: Landslagið valið á föstudagskvöldið Hvað varð af verk- fallsrétti okkar? - spyrja lögfræðingar í ríkisþjónustu Stéttarfélag lögfræðinga í ríkisþjónustu hefur af því þung- ar áhyggjur hvað hafi orðið af verkfallsrétti þeim sem lögfræð- ingum sé tryggður lögum sam- kvæmt eftir að forstjóri Trygg- ingastofnunar ríkisins hefúr ákveðið að ganga inn í störf þeirra lögfræðinga, sem þar starfa en eru nú í verkfalli. Þetta kemur fram í fréttatil- kynningu félagsins. Með bréfi, dagsettu 4. apríl sl. fór Eggert G. Þorsteinsson, for- stjóri Tryggingastofnunar ríkisins, fram á undanþágur fyrir sjö lög- fræðinga á sex deildum stofnunar- innar til þess að vinna að greiðslu næstum allra bóta Trygginga- stofnunar svo og til að vinna önn- ur lögfræðistörf. í fréttatilkynningu frá Stéttar- félagi lögfræðinga í ríkisþjónustu segir: „Með undanþágubeiðni þess- ari hefur forstjórinn sjálfur viður- kennt að undanþága sé þörf og raunar ákveðið með hvaða hætti verkfallið komi við Trygginga- stofnunina. Þegar undanþága fæst ekki nógu fljótt vegna undandrátt- ar á því að fulltrúi í undanþágu- nefnd sé tilnefndur af hálfu ríkis- ins, þá ákveður forstjórinn sjálfur að greiða út atvinnuleysisbætur og kveðst í sjónvarpsviðtali ganga í öll störf lögfræðinganna, sem hann bað um undanþágu fyrir. Með þessu hefur forstjórinn í rauninni lýst því yfir, að óþarfi sé að gefa út lista með starfsheitum þeirra, sem ekki mega fara í verk- fall, þar sem yfirmenn geti ávallt gengið í öll störf undirmanna sinna, en lögfræðingar í verkfalli hjá Tryggingastofnun eru tíu tals- ins. Hvað er þá orðið um verk- fallsrétt þann sem lögfræðingum er tryggður í lögum,“ spyr stéttar- félag lögfræðinga í ríkisþjónustu. URSLITAKEPPNIN um Lands- lagið verður haldin á Hótel Is- landi næstkomandi föstudags- kvöld. Alls bárust á fjórða hundrað lög í keppnina en dóm- nefiid hefúr valið tíu lög sem keppa til úrslita. Það er Pressan og hljóðverið Stöðin sem standa að keppninni. Að sögn Steen Johanssonar sem sæti á í dómnefndinni voru margir óánægðir þegar ljóst var að aðeins örfáir lagasmiðir hefðu verið kall- aðir til að taka þátt í Söngva- keppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Tilgangur keppninnar um Lands- lagið hafi því verið sá að gefa öll- um tækifæri sem áhuga höfðu á að senda lag í slíka keppni. Við- brögðin hefðu sannað að þessi keppni ætti rétt á sér. Steen sagði að lögin tíu væri þverskurður af þeirn lögum sem bárust í keppnina. í úrslitakeppninni verða lögin tíu flutt og síðan velur dómnefnd Landslagið. Meðal vinninga eru 200.000 króna peningaverðlaun, 200.000 krónur til að gera mynd- band, 70.000 króna ferðavinning- ur auk verðlaunagripa sem ívar Björnsson hannaði. Samið við vamarliðið um frekari kaup á búvörum SAMNINGUR um áframhaldandi kaup varnarliðsins á íslenskum landbúnaðarvörum hefiir verið undirritaður og gildir hann til 31. mars á næsta ári. Er þetta í annað sinn sem samningurinn er end- urnýjaður, en upphaflegi samningurinn var gerður árið 1987. Að sögn Guðna Bragasonar hjá Varnarmálaskrifstofú utanríkisráðu- neytisins er stefút að því að á þessu samningstímabili kaupi varnar- liðið um 23 tonn af nautakjöti, 9 tonn af kjúklingum og 50 tonn af eggjum, og er það meira magn af nautakjöti en samið var um kaup á í fyrra, en mun minna magn af kjúklingum. Guðni Bragason sagði að stefnt fóru þeir því fram á verðhækkun. hafi verið að því á síðasta samnings- tímabili að varnarliðið keypti um 16 tonn af nautakjöti, en þegar upp var staðið keypti varnarliðið alls um 25 tonn á tímabilinu. Samkomu- lag tókst um verðhækkun á nauta- kjötinu, og hækkar það nú úr sem svarar 380 kr. kílóið í 405 kr. kíló- ið. Á síðasta samningstímabili var stefnt að því að varnarliðið keypti um 34 tonn af kjúklingum, en þeg- ar á reyndi tókst framleiðendum einungis að afhenda um 23 tonn, og á síðustu vikum samningstíma- bilsins gátu þeir ekkert afhent til varnarliðsins. Guðni sagði að í við- ræðum um endurnýjun samningsins nú hafi komið fram að framleiðend- ur teldu sig hafa tapað á viðskiptun- um á síðasta samningstímabili, og Að samkomulagi varð að varnarlið- ið stefni að því að kaupa um 9 tonn af niðurhlutuðum kjúklingum á þessu tímabili, en á síðasta söl- utímabili keypti varnarliðið einung- is heila kjúklinga. Þá tókst sam- komulag um að hækka verðið úr sem svarar um 190 kr. kílóið í 343 krónur. Um 50 tonn af eggjum voru seld til varnarliðsins á síðasta samningstímabili og var það í sam- ræmi við áætluð kaup þá. Er gert ráð fyrir svipaðri sölu á þessu tíma- biii, en verðið hækkar úr sem svar- ar 129 kr. kílóið í 173 krónur. Guðni sagði að bandaríski sjóherinn veiti ákveðinni upphæð til kaupa varnar- liðsins á íslenskum landbúnaðarvör- um, og því hafi orðið að minnka magnið af þeim kjúklingum sem Síðasta tala númersins segir til um skoðunarmánuðinn. Láttu skoða í tíma - öryggisins vegna! varnarliðið kaupir nú í samræmi við þá verðhækkun sem orðið hefur milli samningstímabila. í viðræðum um endurnýjun samningsins við varnarliðið tóku þátt fulltrúar frá Varnarmálaskrif- stofu utanríkisráðuneytisins, land- búnaðarráðuneytinu, framleiðend- um og varnarliðinu. Að sögn Guðna Bragasonar kom fram í viðræðun- um að framleiðendur væru í megin- atriðum ánægðir með endurnýjun samningsins og viðskiptin við varn- arliðið. Bandaríkjamenn hafi sömu- leiðis áhuga á viðskiptunum og þeir væru ánægðir með vöruna. Hann sagði að markaðsaðstæður innan- lands hefðu áhrif á viðskiptin hverju sinni og réðust þau mikið til af þeim og þeim skorðum sem varnar- liðinu væru settar með fjárveitingu til kaupa á íslenskum landbúnaðar- vörum. Þá hafi í viðræðunum nú verið rætt um möguleika á viðskipt- um með nýtt íslenskt grænmeti og ákveðið að koma á sérstökum við- ræðum með varnarliðunu og Sam- bandi garðyrkjubænda og myndu þær hefjast innan skamms tíma. BIFREIÐASKOÐUN ÍSLANDS HF. Hægt er að panta skoðunartíma, pöntunarsími í Reykjavík er 672811. YDDA Y8.13/SÍA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.