Morgunblaðið - 26.04.1989, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 26.04.1989, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1989 © 1986 Umversal Press Syndicate Ást er... <gj ... að festa hana á filmu. TM Reg. U.S. Pal Off. —all rights reserved e 1989 Los Angeles Times Syndicate Já, hún er snotur utanum sig. Það eru nú fleiri... HÖGNI HREKKVlSI UM BOÐUN MARIU Til Velvakanda. „Meyjar orðum skýli mangi trúa né, því er kveður kona á, hverfanda hveli váru þeim hjðrtu sköpuð brigð í bijóst of lagið“ (Hávamál) Á boðunardag Maríu á sl. vetri hófu, eins og venjulega hundrað prestar upp raust sína og fjölluðu um fyrirbærið, hver í sinni kirkju, eins og gert hefir verið í tæp þúsund ár. Séra Bemharð Guðmundsson var með leiðbeinandi viðtal í útvarpinu um morguninn við frú Ásthildi Thor- arensen um þetta guðspjall. Þar sem greint er frá því að Gabriel erkieng- ill hafi heimsótt Maríu mey og tjáð henni að hún yrði barnshafandi, þó hún hefði ekki karlmanns kennt. Minnir þetta á þegar Sölvi Helgason taldi sig hafa kveðið fóstur í konu, sem hann þó síðar kvað úr henni aftur. Eg heyrði þessa frásögn í æsku, því fóstri minn las á hveijum helgum degi húslestur úr Helga post- illu. Þótti mér þetta strax tortryggi- legt og nú á efri áram, er ég sann- Hér fer á eftir djúpt andvarp frá Færeyjum. Fimmtudaginn 18. apríl um kvöldið heyrði ég í norska útvarp- inu þátt um norræna kvikmynda- ráðstefnu sem haldin var í Færeyjum fyrir skömmu. I þættinum sem ekki var í beinni útsendingu voru meðal annars um- ræður norrænu þátttakendanna. Þær bárú yfirskriftina: „Hvernig spjara litlu norrænu málsvæðin sig í norr- ænni kvikmyndagerð?" Þarna mátti heyra í fulltrúum allra litlu málsvæðanna, Sömum, Græn- lendingum, Finnum, Álendingum, Faereyingum og íslendingum. íslendingarnir voru þeir einu sem ekki gátu- talað skandinavísku. Og það er víst best að geta þess strax að ég var mjög vonsvikinn þegar ég heyrði í fulltrúunum frá íslandi. Þeir urðu nefnilega að segja sína skoðun á ensku eða bandarísku. Norskur stjórnandi þáttarins af- sakaði íslenska kvikmyndagerðar- fólkið með því að það byggi í svo mikilli einangrun að það gæti ekki rætt við norrænu bræðraþjóðirnar nema á ensku. færður um, að þetta hefir verið til- búningur af Maríu hálfu. Á þessum tíma hefir María verið orðin vanfær, en þar sem gyðingar hafa alltaf verið heiðarlegir í ástar- málum og lauslæti illa séð og konur grýttar jafnvel til ólífis, sem áttu börn utan hjónabands, hefir Maríu því verið vandi á höndum. Hún hefur því hugsað ráð til að bjarga sér frá hneisu. Mann undrar hvað Gyðinga-þjóðin var fávís fyrir tvö þúsund áram. Hún hélt að jörðin væri flöt, sólin gengi kringum jörðina, himininn væri þak- inn vatnsheldu efni, sem Guð hleypti vatninu niður um, þegar hann vildi vökva jörðina. Meira að segja var heimsmynd djöfulsins, ekki burðugri en það, að hann taldi sig geta sýnt Jesú allan heiminn af ekki ýkja háu fjalli, í hinni frægu fjallgöngu þeirra. Þegar spekingar miðalda reyndu að leiðrétta þessar röngu hugmyndir kostaði það manndráp og meiðingar og sumir tóku það ráð, að draga kenningar sínar aftur til þess að halda lífi. Líffræði var á þessum tíma og lengi síðan óþekkt. Þetta veldur einkum vonbrigðum þegar maður hugleiðir að fulltrúar Islands vora Guðný Halldórsdóttir og eiginmaður hennar, en Guðný er dóttir Halldórs Laxness, sem sent hefur frá sér einhver hin bestu skrif á norrænni tungu. Þau hjónin ættu að hafa sterkari norrænar rætur en flestir íslendingar. Mikið er rætt um norrænt sam- starf. Það er bitur reynsla að kom- ast að því að íslendingar, sem hafa verið okkur Færeyingum fyrirmynd að svo mörgu leyti, skuli vera svo fjarlægir Norðurlöndum þegar allt kemur til alls. Eg er þeirrar skoðunar að það láti síst verr í eyram að heyra íslend- ing tala bjagaða skandinavísku en að hlýða á hann mæla á bjagaðri ensku. Að lokum: íslendingar, gleymið norrænu samvinnunni ef þið getið ekki treyst undirstöður hennar sem eru hinar norrænu tungur! Kærar kveðjur, Jústinus Eidesgaard, blaðamað- ur á Tingakrossur í Þórshöfn. Nú er þekking á barnsgetnaði al- menningseign. í hveiju geni líkamans era 46 litningar, nema í sæði karla og eggjum kvenna. Þar era litningar aðeins 23. Við fijóvgun sameinast þessir hálfu og verða einn. Ef heilag- ur andi hefir lagt til gen með 23 litn- ingum hefir hann verið mjög mann- legur og tæplega rétt að hafa í gömlu trúaijátningunni „getinn af heilögum anda“ því María var venjuleg ung stúlka. Mér bíður í gran að margir íslenskir prestar líti sömu augum og ég á þessa uppákomu Maríu meyjar, þó að þeir í stöðu sinni, verði að japla á því alla sína embættistíð, á þann hátt, að þeir telji getnað Maríu hafa orðið með þeim hætti, sem frá er sagt í Biblíunni. Sá merki klerkur Árni Þórarinsson var sóknarprestur í 48 ár. Á gamals aldri bjó hann í næsta húsi við Rik- harð Jónsson myndhöggvara og átti tíðgengið á verkstæði hans og ræddu þeir margt um lífið og tilverana. Haft er eftir Rikharði að Árni hafi sagt: „engir ljúga eins mikið og prestarnir og það versta er, þeir Ijúga í Jesú nafni“. Sigurjón Sigurbjömsson Kannast einhver við kisu? Þessi svarta kisa er í óskilum hjá Olíufélaginu h.f. að Suður- landsbraut 18 í Reykjavík. Upp- lýsingar hjá húsverði eða í síma 82375. Lágt risið á íslenska kvik- myndagerðarfólkinu Yíkverji skrifar Asunnudagskvöld var sýndur þáttur í sjónvarpi ríkisins þar sem rætt var um „umræðuna“ í þjóðfélaginu. Víkveiji er sammála þeim sem héldu þeirri skoðun á loft, að umræður um efnahags- og fjár- mál fari fyrir ofan garð og neðan hjá mörgum og skipi alltof stóran sess í innlendri fréttamiðlun. Á hinn bóginn vill Víkveiji harð- lega mótmæla því, hvernig umsjón- armaður þáttarins notaði myndefni. Staldrar Víkveiji sérstaklega við það þegar birtar voru myndir af Morgunblaðshúsinu eða innan dyra úr því, án þess að sérstaklega væri minnst á Morgunblaðið eða frétta- flutning þess. Fór ekki síst illa á því að í þætti, sem átti að fela í sér gagnrýni á meðferð fjölmiðla- manna á viðkvæmum málum, skyldi umsjónarmaður grípa til forkastan- legra vinnubragða, sem fólust í því að koma þeirri hugmynd að hjá áhorfendum að gagnrýni beindist að þeim, sem sýndur var á skjánum, án þess þó að hann væri þar sér- staklega til umræðu eða fengi tæki- færi til að láta skoðun sína í Ijós. Þá var furðulegt að sjá það í þættinum, að notaðar voru gamlar myndir úr þingsölum, þegar önnur ríkisstjórn var við völd en sú sem enn situr. XXX átturinn á sunnudagskvöld bar þess merki að kastað var til hans höndunum nema tilgangurinn með hinu einkennilega myndavali hafi verið sá að koma höggi á þá, sem á myndunum voru. Aðferðir af því tagi eru tíðkaðar í áróðurs- myndum en eiga ekki heima í hefð- bundnum sjónvarpsþáttum. Á laugardagskvöld fór sjónvarp ríkisins af stað með nýjan frétta- þátt, Hringsjá. Víkveija þótti hann harla þunglamalegur og ekki bar hann þess merki að miklu hug- myndaflugi hefði verið beitt við samsetningu hans. Stjórnandi um- ræðna í lok þáttarins leit greinilega ekki þannig á, að hann væri bund- inn af reglum þeim sem gilda um óhlutdrægni starfsmanna ríkisút- varpsins. Fór hann til að mynda mörgum orðum um „klókindi" for- sætisráðherra og pólitíska leikni. Virðingarvert er hjá fréttastofu sjónvarps ríkisins að ætla að draga saman helstu atburði vikunnar í lok hennar og ræða þá. Til þess að þáttur af þessu tagi standi undir nafni þarf að vera meira til hans vandað en gert var á laugardags- kvöld. XXX Af sumardagskrá ríkissjón- varpsins má ráða, að þar á bæ leggi menn æ meiri áherslu á að ná áhorfendum frá fréttum Stöðvar 2. Tvo daga vikunnar, laugardag og sunnudag, hefjast ríkisfréttirnar klukkan hálf átta á kvöldin á sama tíma og fréttir Stöðvar 2. Hina daga vikunnar eru sýndir þættir á þessum tíma hjá ríkinu, sem eiga að ná til sem flestra. Þessi sókn eftir áhorfendum er skiljanleg og ekki unnt að gagnrýna hana. Hitt er ámælisvert, ef kröfur til gæða eru á undanhaldi í frétta- miðluninni. Þátturinn á sunnudags- kvöld var í raun hörð árás á frétta- stofur ríkisins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.