Morgunblaðið - 26.04.1989, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.04.1989, Blaðsíða 20
20 MORGÚNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1989 Þrír Norður-Irar sakað- ir um ólöglega vopnasölu Bretar fordæma framferði s-afrísks sendiráðsmanns París, London, Jóhannesarborg. Reuter. GEFIN var út kæra á hendur þremur Norður-írum í París á laugardag fyrir ólöglega vopna- sölu, að sögn talsmanns breska sendiráðsins í París. Mennirnir þrír, sem tilheyra öfgasamtökum norður-írskra mótmælenda, UDA, eru sakaðir um að hafa reynt að selja suður-afrískum sljórnarer- indreka eldflaug af breskri gerð í skiptum fyrir vopn. Bretar kröfðu suður-afrísk sljórnvöld skýringa á atburðinum á mánudag og Douglas Hurd, utanríkisráð- herra Bretlands, kallaði Peter Rae Killen, sendiherra Suður-Afríku, á sinn fund. Talsmaður Margaret Thateher, forsætisráðherra Bret- lands, sagði að Thatcher hefði átt fund um málið við Barend du Plessis, Qármálaráðherra Suður- Afríku. Suður-afríska sendiráðsmannin- um Daniel Storm, var sleppt að lokn- • um yfirheyrslum, en fulltrúar frönsku gagnnjósnaþjónustunnar, Vestur-Berlín: Karajan lætur af störfum Vestur-Berlín. Reuter. AUSTURÍSKI hljómsveitarstjór- inn Herbert von Karajan lýsti því yfír á mánudag að hann ætlaði að láta af stjórn Fílharmóníu- sveitarinnar í Berlín af heilsu- farsástæðum. Hann hefur stjórn- VOÐ4IÍ- FÆfRJ Handfæraönglar Handfæragirni Handfærasökkur Sigurnaglar Handfærarúllur Sjóveiðistangir Sjóveiðist.hjól Silunganet Kolanet Hnífar Stálbrýni Vogir SENDUM UM ALLT LAND Crandagarði 2, sími 28855, 101 Rvík. að hljómsveitinni i 34 ár. Karajan er 81 árs gamall. Karajan er illa haldinn af mænusjúkdómi. „Rannsóknir sem ég hef geng- ist undir undan- farnar vikur benda til þess að ég hafi ekki heilsu til að gegna skyldum Herbert Karajan mínum, samkvæmt þeim skilningi sem ég legg í þær,“ sagði hann í uppsagnarbréfinu. Eftir síðari heimsstyijöld bönn- uðu Bandamenn Karajan að stjórna hljómsveit í tvö ár, en hann var félagi í nasistaflokknum og tónlist- arstjóri Þriðja ríkisins. Karajan hlaut æviráðningu við Fílharmóníu- hljómsyeitina í Berlín árið 1955 og tók þá við af Wilhelm Furtwángler. DST, handtóku hann ásamt Irunum þremur og bandarískum vopnasala á hótelherbergi í París á föstudag. Irarnir tilheyra öfgasamtökunum UDA, sem heldur uppi baráttu gegn írska lýðveldishernum, IRA. Tals- menn breska utanríkisráðuneytisins hafa sagt að breskri eidflaug af Blowpipe-gerð hafi verið stolið á Norður-írlandi fyrir um tveimur vik- um síðan. Umrædd eldflaug var þó aðeins sýningargripur og ekki unnt að skjóta henni á loft. Að sögn Ger- alds Kaufmans, formanns utanríks- málanefndar breska Verkamanna- flokksins, hafa öfgamenn úr röðum norður-írskra mótmælenda beitt suð- ur-afrískum handsprengjum við ár- ásir á lögreglumenn. Samkvæmt samþykkt Sameinuðu þjóðanna er bannað að selja vopn til Suður-Afríku og fréttaskýrendur telja að Suður-Afríkumenn vilji líkja eftir eldflaug af þessu tagi og fram- leiða til eigin nota eða jafnvel til útflutnings. Blowpipe-eldflaugar geta grandað flugvélum í lágdugi og þykja þær fullkomnari en banda- rísku Stinger-eldflaugarnar sem mujahideen-skæruliðar hafa beitt með miklum árangri í stríðinu í Afg- anistan. Suður-afrísk stjórnvöld neituðu því í gær að þau ættu viðskipti við hryðjuverkasamtök en sögðu hins. vegar að fulltrúar vopnaiðnaðarins i' landinu ættu fullan rétt á því að verða sér úti um tækniþekkingu. Að sögn Piks Botha, utanríkisráðherra landsins, hafa stjórnvöld byijað rann- sókn á þessu máli. N-írsk stjórnvöld hafa sent Suð- ur-Afríkustjórn harðorð mótmæli vegna þeirra staðhæfinga að suður- afrísk stjórnvöld hafi útvegað norð- ur-írskum öfgamönnum vopn. Reuter Frá blaðamannafúndinum þar sem skýrt var frá kaupum írsku fjár- mögnunarleigunnar GPA á 308 nýjum farþegaþotum. Lengst til hægri á myndinni er Maurice Foley, formaður stjórnar GPA, og á borðinu stendur líkan af Boeing 737-300 þotu í litum fyrirtækisins. Irsk fjármögnunarleiga: Panta nýjar þotur fyrir 890 milljarða París. Reuter. ÍRSKA Qármögnunarleigan GPA Group Ltd hefiir samið um smíði á 308 farþegaþotum fyrir 16,8 milljarða dollara, eða jafiivirði 890 milljarða íslenzkra króna. Er það stærsta flugvélapöntun, sem um getur. Af þotunum 308 eru 182 keyptar hjá Boeing, 54 hjá Airbus, og 72 hjá McDonnell Douglas. Stærsta pöntun eins fyrirtækis til þessa voru kaup bandaríska flugfélagsins Delta á Boeing- og McDonnel Dou- glas-þotum fyrir 10,5 milljarða doll- ara í september sl. Að þessu sinni samdi GPA við Boeing um smíði á 92 þotum af gerðinni 737, 50 af gerðinni 757 og 40 af gerðinni 767 fyrir 9,4 milljarða dollara, eða um 498 millj- arða króna. Hjá Airbus pantaði fyr- irtækið 30 A320-þotur og 24 af gerðunum A330 og A340 fyrir 4,3 Fyrir 38.350,- ffæréu gisiingu á siórkostlegu hóieli á Costa del Sol! Las Palomaser nýr og glæsilegur gististaður á frábæru verði og kjörum. - 5 mín. frá miðbæ - loftkældar íbúðir - íþróttadagskrá - leikjadagskrá alla daga - kvöldskemmtanir - tvær sundlaugar - tennisvöllur *Verö miðað við hjón með tvö börn ítværvikuríjúní. HJÁ VERÖLD FÆRDU MEIRA FYRIR PENINGANA - Ó-JÁ! muumBsmin AUSTURSTRÆTI17, II hwö. SÍMI622200 milljarða dollara, 228 milljarða króna. Loks samdi íjármögnunar- leigan við McDonnell Douglas um smíði á 64 þotum af gerðinni MD- 80 og 8 af gerðinni MD-11 fyrir 3,1 milljarð dollara eða 164 millj- arða króna. Með þessum nýju samningum, sem skýrt var frá samtímis í París, New York og London, á GPA-fyrir- tækið, sem áður hét Guinnes Peat Aviation, í pöntun 819 nýjar far- þegaþotur fyrir um 30 milljarða dollara, eða um 1.600 milljarða króna. Fyrirtækið ýmist leigir flug- félögum þotur sínar eða selur með kaupleigusamningum. Kvikmyndun Katyn-morðanna: Wajda synjað um gistingu í Smolensk Varsjá. Reuter. PÓLSKI kvikmyndaleiksljórinn Andrzej Wajda hefúr orðið að fresta íör sinni til Sovétríkjanna þar sem hann hyggst gera heim- ildarmynd um fjöldamorð á pólskum liðsforingjum sem framin voru í síðari heimsstyij- öldinni í Katyn skógi, nálægt borginni Smolensk í Sovétríkjun- um. Honum barst tilkynning á síðustu stundu frá sovéskri ferðaskrifstofú þess efnis að gistirými væri á þrotum i borg- inni, að sögn Marcelis Lozinskis, seni ásamt Wajda vinnur að gerð heimildarmyndarinnar. Ennfremur var þeim tilkynnt af stjórnendum sovésku ríkisjárn- brautanna að ekki yrði unnt að útvega járnbrautarvagn fyrir kvik- myndagerðarfólkið og 25 ættingja fómarlambanna, sem Wajda vonað- ist til að geta kvikmyndað í Katyn skógi, sagði Lozinski. Lozinski sagði að þeim hefði ver- ið tjáð að heimsókn þeirra gæti hafist eftir u.þ.b. sex vikur. Morð á 4.300 pólskum iiðsfor- ingjum í Katyn skógi er eitt af við- kvæmustu málunum í samskiptum Póllands og Sovétríkjanna. Pólveij- ar saka flestir Sovétmenn um morð- in og auk þess um morð á 11.000 pólskum liðsforingjum sem hand- teknir voru árið 1939, en grafir þeirra hafa aldrei fundist.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.