Morgunblaðið - 26.04.1989, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 26.04.1989, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. APRIL 1989 25 Deilt um gosbrumi- inn í Kringlunni Nokkurrar óánægju gætir meðal hóps verslunarfólks í næsta nágrenni við gorbrunn- inn í verslunarhúsi Kringlunn- ar. Þykir fólkinu niðurinn í brunninum vera bæði hár, trufl- andi og ekki síst lýjandi. Svo mjög að það losni varla við hann úr eyrum sér þótt heim sé hald- ið í lok vinnudags. Fyrir nokkru varð einn verslunareigandi í Kringlunni til þess að benda Gosbrunnurinn umdeildi í Kringlunni. Vinnueftirliti ríkisins á þennan vanda og var mælingarmaður þá gerður út af örkinni. Mældi hann desíbel gosbrunnarins inni í verslunni umræddu bæði við opnar og lokaðar dyr, einnig á ganginum fyrir íraman dyr hennar. Steinþór Einarsson hjá Vinnu- eftirlitinu framkvæmdi mæling- una. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að hann gæti vel ímyndað sér að niðurinn væri þreytandi þegar til lengdar léti, en mælitæki sín hefðu þó numið hávaðann langt undir hættumörk- um. En samt yfir þeim styrk sem mætti lögum samkvæmt berast á milli tveggja fyrirtækja. „Þá er það spurningin hvernig gosbrunn- urinn er túlkaður. Sem fyrirtæki? Eða hvað? Aðrir verða að skera úr um það og ef að þetta mál færi eitthvað lengra myndu mæl- ingar mínar ekki vera lagðar til grundvallar. Þá yrði að mæla á lengri tíma, við breytilegar að- stæður og með betri tækjum,“ sagði Steinþór. Einar Halldórsson fram- kvæmdastjóri Kringlunnar sagði í samtali við Morgunblaðið að það væri enginn úlfaþytur í húsinu vegna gosbrunnarins, en rétt væri að ákveðnir aðilar hefðu bent á að niðurinn væri að þeirra mati of hár. „Okkur þótti það sjálfum í byrjun og það var gerð breyting á brunninum, reyndar áður en Vinnueftirlitið kom og mældi. Við settum grind í brunninn sem dró töluvert úr hávaðanum er vatnið féll í brunninn. Það er verið að skoða málið nánar í samvinnu við framleiðendur gosbrunnsins,“ sagði Einar. Fiskverð á uppboðsmörkuðum 25. aprii. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð(kr.) Þorskur 49,50 39,00 44,61 43,949 1.960.872 Þorskurósl. 48,50 43,50 47,07 3,495 164.510 Ýsa 88,00 42,00 47,70 4,460 212.780 Karfi 26,50 25,00 25,91 58,806 1.523.664 Steinbítur 26,00 15,00 24,25 7,180 174.100 Grálúöa 40,00 38,50 39,17 36,919 1.446.117 Langa 17,00 15,00- 15,21 0,470 7.150 Koli 55,00 55,00 55,00 0,050 2.750 Lúða 350,00 190,00 254,60 0,425 108.205 Skötubörð 160,00 160,00 160,00 0,050 8.000 Skötuselur 135,00 70,00 111,00 0,090 9.990 Undirmál 17,00 17,00 17,00 0,480 8.160 Ufsi 29,00 29,00 29,00 4,740 137.450 Samtals 35,77 161,115 5.763.758 Selt var aðallega úr Otri HF, Stakkavík ÁR og Sigurborgu VE. i dag verður selt úr Núpi ÞH 30 t. þorskur, Giafari VE 25 t. ufsi og 5 t. blandaö þorskur og ýsa, Óskari Halldórssyni RE, 35 t. karfi og 500 kg lúða, ennfremur blandaður afli frá H.H., Rifs- nesi SH og Faxeyri, auk bátafisks. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 47,00 14,0Q 42,39 4,480 189.898 Ýsa 71,00 45,00 55,55 3,440 191.104 Karfi 26,00 20,00 24,99 75,934 1.897.788 Ufsi 26,00 15,00 25,47 5,192 132.220 Steinbíturósl. 15,00 5,00 15,00. 0,057 855 Grálúða 40,00 36,00 39,58 13,784 545.570 Langa 28,80 28,00 28,00 8,644 18.032 Lúða 195,00 195,00 195,00 0,011 2.145 Hnísa 6,00 6,00 6,00 0,31 186 Skarkoli 25,00 25,Ó0 25,00 0,026 650 Blandað 10,00 10,00 10,00 0,016 160 Samtals 28,75 103,615 2.978.607 Seltyar úr Ásgeiri RE og bátum. í dag verður selt úr Framnesi ÍS, Ásbirni RE og Má SH, 80 t grálúða, 50 t. karfi. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 43,00 37,50 40,36 23,068 930.926 Ýsa 71,00 35,00 52,95 20,567 1.088.990 Ufsl 26,00 10,00 25,06 18,655 467.512 Karfi 25,00 15,00 23,87 7,650 182.634 Steinbítur 13,00 13,00 13,00 0,560 7.280 Keila 14,00 12,00 12,03 2,135 25.690 Langa 18,00 18,00 18,00 0,520 9.360 Háfur 15,00 15,00 15,00 0,020 300 Skarkoll 55,00 25,00 43,35 0,206 8.930 Lúða 355,00 200,00 253,34 0,151 38.255 Grálúða 36,50 36,00 36,21 35,768 1.295.161 Skata 65,00 58,00 64,08 0,076 4.870 Blandað 10,00 10,00 10,00 0,120 1.200 Samtals 37,09 109,497 4.061.113 Selt var úr Eldeyjarboða , Geir Goða Ólafi Jónssyni og dagróðra- bátum. I dag verður selt úr dagróðrabátum og úr Þuríði Halldórs- dóttur, 15 t. ufsi. Haftiargörður: Dýrin í Hálsaskógi LEIKFÉLAG Hveragerðis ætl- ar að sýna bamaleikritið Dýrin í Hálsaskógi í Bæjarbíói í Hafii- arfirði á laugardag og sunnu- dag. Atján sýningar hafa verið á leikritinu í Hveragerði frá því í marsbyrjun. Leikstjóri er Signr- geir H. Friðþjófsson, hönnun bún- inga og gerð þeirra var í höndum Sigrúnar Bjarnadóttur og Eddu Guðmundsdóttur. Undirleikari og söngþjálfari er Anna Jórunn Stef- ánsdóttir. Alls taka 34 þátt í sýn- ingunni, þar af 18 leikarar ogg tvær leikbrúður. Með hlutverk Mikka refs fer Hjörtur Már Bene- diktsson og Lilla Klifurmús leikur Steindór Gestsson. Tvær sýningar verða í Bæjar- bíói á laugardag, klukkan 14 og 17 og ein á sunnudag, klukkan 14. Ljónynjuvor- blót á Hörpu Lionessuklúbbur Reykjavík- ur heldur vorhátíð 2. árið í röð föstudaginn 5. maí. Hátíðin ber nafiiið „Ljónynjuvorblót á Hörpu" og verður haldin á Hótel Islandi. Húsið verður opnað klukkan 19 og verður þá boðið upp á „Hörputón" sem fordrykk. Síðan verður borin fram tvíréttuð máltíð og kaffi á eftir. Á meðan ætla „ljónynjur“ að rifja upp tísku lið- inna ára og koma fram í samkvæ- miskjólum frá ýmsum tímum. Heiðar Jónsson snyrtir verður kynnir og veislustjóri. Skemmti- atriði verða af ýmsum toga, hljómlistarmenn syngja og leika, nemendur sýna samkvæmisdansa og sýndir verða stuttir grínþættir. Allur ágóði rennur til líknarmála. Hátíðin er ekki eingöngu fyrir konur innan hreyfingarinnar held- ur allar konur. Karlmenn fá fyrst aðgang eftir lok skemmtiatriða klukkan 23.30 og verður þá dans- að við undirleik hljómsveitar húss- ins. Hluti þess aðgangseyris renn- ur einnig til líknarmála. Heimshlaup: Leiðrétting- Morgunblaðinu hefúr borizt svohljóðandi tilkynning frá Frjálsíþróttasambandinu vegna fréttar í blaðinu í gær: Af gefnu tilefni telur Ftjáls- íþróttasamband íslands rétt að upplýsa að framkvæmd svokall- aðs Heimshlaups í þágu friðar, sem fyrirhugað er að fram fari hér á landi í sumar, er samband- inu algjörlega óviðkomandi. Samkoma til styrktar kristniboðs- starfí Kristniboðsflokkur KFUK hefúr sína árlegu samkomu til styrktar kristniboðsstarfinu þriðjudaginn 2. maí nk. í húsi KFUM og K á Amtmannsstíg 2b. Kjellrún Langdal segir frá ferð þeirra hjóna til Kenýu og Eþíópíu. Happdrætti og kökur verða til sölu. Laufey Geirlaugsdóttir syng- ur. Sr. Valgeir Ástráðsson hefur hugleiðingu. (Fréttatilkynning) Rauði kross íslands: Skyndihjálp- arnámskeið Reykjavíkur- deildar Reykjavíkurdeild RKÍ heldur námskeið í skyndihjálp. Nám- skeiðið verður haldið á Öldu- götu 4, hefst í dag, miðvikudag, kl. 20 og stendur i 5 kvöld. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á fyrirbyggjandi leiðbein- ingar og ráð til almennings við slys og önnur óhöpp. Á námskeið- inu verður kennt hjartahnoð, fyrstahjálp við bruna, kali og eitr- unum. Einnig verður kennd með- ferð helstu beinbrota og stöðvun blæðinga. Ennfremur verður fjall- að um ýmsar ráðstafanir til varn- ar slysum í heimahúsum'og margt fleira. Sýndar verða myndir um helstu slys. Athygli skal vakin á því að þetta er síðasta námskeiðið sem skólafólk kemst á í vor með það fyrir augum að fá það metið í skólum. (Fréttatilkynning) Nýja postulakirkjan: Gestaguðs- þjónusta GUÐSÞJÓNUSTA verður hald- in í Nýju Postulakirkjunni að Háaleitisbraut 58-60 (Miðbæ) klukkan 11 á sunnudag, 30. apríl. Gene Storer, umdæmisöldung- ur frá Kitchener, Ontario Canada, heldur guðsþjónustuna ásamt safnaðarpresti kirkjunnar hér, Hákoni Jóhannessyni. Allir þeir, sem vilja kynna sér vitnisburð kirkjunnar, eru velkomnir. Eftir guðsþjónustuna verður boðið upp á kaffi og meðlæti og gefst gest- um þá kostur á að spyija og fá frekari útskýringar á trúarvitnis- burði Nýju postulakirkjunnar. (Fréttatilkynning) Jazzvakning: Blús á Borginni Stuðningsmenn Jazzvakn- ingar eftia til blústónleika á Hótel Borg annað kvöld, fimmtudagskvöld, og hefjast þeir klukkan 21.30. Allur ágóði rennur til að greiða skuldir Jazzvakningar vegna tónleika St. Louis Kings of Rhythm hér á landi 1987. Hópur söngvara og hljóðfæra- leikara kemur fram á Borginni. Andrea Gylfadóttir, Björk Guð- mundsdóttir og Megas syngja, Helgi Guðmundsson blæs í munn- hörpu og Stefán S. Stefánsson í saxafón, Björn Thoroddsen leikur á gítar, Guðmundur Ingólfsson á pianó, Gunnar Hrafnsson á bassa og Guðmundur Steingrímsson á trommur. ÞAÐER goh AD LATTU RAFMAGNS- REIKNINGINN HAFA FORGANG! ^ i RAFMAGNSVEITA REYKJAVIKUR SUÐURLANDSBRAUT 34 SlMI 68 62 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.