Morgunblaðið - 26.04.1989, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 26.04.1989, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. APRIL 1989 VESTMANNAEYJAR Metvertíð í FES Barlómurinn borgar sig ekki hefði getað orðið meira, en bátarn- ir okkar náðu ekki alveg að klára kvóta sinnn, það vantaði 2.000 tonn upp á það,“ sagði Helga. Fyrir áramótin var tekið á móti 14.000 tonnum til vinnslu í FES og hafa því 56.000 tonn verið unn- in þar á loðnuvertíðinni. Bræðsla í F'ES eftir áramótin hófst í byijun febrúar og hefur ver- ið unnið á vöktum nær linnulaust síðan. í FES starfa 40 manns á tvískiptum vöktum og er mikill rígur á milli vaktanna um það hvor vaktin tekur á móti meiri afla á vertíðinni. Á þessari vertíð var það B-vaktin sem hafði vinninginn og fögnuðu þeir lokunum sérstaklega af því tilefni. Grímur Helga Tómasdóttir mælir vertíð- arlokin á vigtina í FES. Eg er bjartsýnn fyrir hönd franskrar kvikmyndagerðar því núna hljóta allar leiðir að liggja upp á við,“ segir franski leikstjórinn Yves Boisset, sem var viðstaddur sýningu myndar sinnar Gróu FM 8,8 á frönsku kvikmyndavikunni, sem nú stendur yfir í Regnboganum. „Á ör- fáumkárum hefur aðsókn að frönsk- um myndum hrapað vegna fjölgunar sjónvarpsstöðva og tilkomu mynd- banda. Einnig á frönsk kvikmynda- gerð í vök að verjast vegna þess að skyndilega, fyrir fimm árum eða svo, jukust vinsældir bandarískra mynda í Frakklandi. Mér sýnist að þið hér á íslandi eigið við sama vanda að stríða, engilsaxneska menningin tröllríður öllu og ekki er hægt að keppa við hana með gæðin ein að vopni. Fáránlegasta dæmið, sem ég man eftir, var þegar gerð var bandarísk útgáfa af Þrír menn og barn, sem reyndist miklu lélegri mynd, en dró sjálfsagt til sín tuttugu og fimm sinnum fleiri áhorfendur. Skýringin er einföld, bandarískar myndir eru miklu betur auglýstar og mun ódýrari í kaupum að auki. Ég vil hins vegar ekki vera með neinn barlóm, það er vísasti vegurinn til að fæla áhorfendur í burtu, en það má sjá merki þess að fólk vilji aftur fara í bíó — sé orðið þreytt á sjón- varpsglápi. Kvikmyndagerð fyrir lítinn markað blómstrar hins vegar aldrei án stuðnings frá ríkinu, en yfirvöld ættu engu að síður fyrst og fremst að hjálpa þeim sem hjálpa sér sjálfir." Boisset er með þekktari frönskum kvikmyndagerðarmönnum þótt fáar mynda hans hafi verið sýndar hér- lendis. Gróa FM 8,8 (Radio Corbeau) er nítjánda mynd Boissets og eins og flestar myndir hans er hún blanda af þjóðfélagsgagnrýni og lögreglu- sögu. „Hún Qallar um það þjóðarein- kenni Frakka," eins og Boisset kemst að orði, „að tala illa um náungann en finnast það allt í lagi því það sé í þágu sannleikans og jafnvel lof- svert því yfirvöld hafi brugðist skyldu sinni með því að láta hina og þessa ósvinnuna viðgangast." Boisset segir að svo rammt hafi kveðið að þessum ósið Frakka í seinni heimsstyrjöldinni til dæmis, að hemámsliðið, nas- istarnir, hafi ekki lengur náð áttum í þeim hafsjó af svívirðingum og ásökunum sem því barst frá Frökk- um sjálfum um nágrannann sem var ýmist hommi, gyðingur eða félagi í andspyrnuhreyfingunni. „Þema myndarinnar er ekki ósvip;(ð og hjá Ibsen í Villiöndinni," segir Boisset, „afleiðingar þess að ætla að ganga ,af hræsninni dauðri.“ Boisset bætir j/því við að hann heillist af Norður- f löndum og því til sannindamerkis segist hann búa með danskri konu, mjög ungri, enda hafi hann sýnt mikið hugrekki þegar hann tók sam- an við hana. „Af hvetju? Jú, hún er óútreiknanleg eins og þið íslending- ar!“ Boisset' segist leggja mikið upp úr því að myndir sínar séu raunsann- ar — enda hóf hann starfsferil sinn í blaðamennsku! Hann nefnir sem dæmi myndina „R.S.A.“ sem var fyrsta franska myndin sem fjallaði FRANSKI LEIKSTJÓRINN YVES BOISSET Morgunblaðið/Bjarni Franski leikstjórinn Yves Boisset, t.v., og Clovis Cornillac, sem leikur í kvikmyndinni Þroskaárunum, sem nú er verið að sýna á Frönsku kvikmyndavikunni. Þ að var létt yfir starfsfólkinu í FES þegar síðustu loðnumar höfðu runnið í gegnum tæki verk- smiðjunnar og starfsfólkið fagnaði góðri vertíð. Kræsingar voru á borðum og skeytasendingar á léttu nótunum flugu á milli starfsfólks- ins. Helga Tómasdóttir, vigtarkona, sagði að þessi vertíð væri met í verksmiðjunni. Frá áramótum var tekið á móti 42.000 tonnum til bræðslu en mest höfðu áður verið brædd tæp 40.000 tonn. „Þetta um veru Frakka í Alsír. „Eg valdi leikara á aldrinum 16 ára til tvítugs því frönsku hermennirnir voru í raun á þeim aldri. í bandarískum myndum, og mörgum frönskum ráunar líka, er raunveruleikinn lagaður um of að þörfum markaðarins. Fólk vill sjá þekkta leikara og þeir eru sjaldnast undir tvítugu og þar af leiðandi má sjá menn á fullorðinsaldri í fremstu víglínu í stríðsmyndum, eins og það er nú ijarri öllu sanni.“ — Yves Boisset stefnir sem sagt ekki á Hollywood? „Margur hefur farið flatt á því en það er aldrei að vita. Hins vegar hef ég átt gott samstarf við bandaríska leikara eins og Lee Marvin og Roy Scheider." Þetta er í fjórða skiptið sem Bois- set kemur til íslands. í fyrstu tvö skiptin var hann að taka auglýsinga- kvikmyndir. Önnur var fyrir Re- nault-verksmiðjurnar en hin sýndi kvenmannsskó renna Ijúflegá niður eftir Gullfossi í klakaböndum og enda för sína á fótnettri fegurðardís! En hvenær kemur að því að hann geri mynd á íslandi? „Hver veit? Nú þeg- ar er ég búinn að sjá fyrir mér tíu góðar myndir sem gerast hér á landi. Flestar snúast þær um hina dular- fullu herstöð í Keflavík,“ segir Bois- set og glottir. pp B - vaktin í FES. stækka fflugvélarnar i mai og júni! AUSTURSTRÆTI17, II hæö. SÍMI622200 Það seldist upp í flestar Veraldarferðir í maí og júní, þess vegna höfum við ákveðið að bæta við sætum. Auðvitað stækkum við ekki vélina. Við fáum einfaldlega stærri flugvél. Biðlistafarþegar í ferðir 23/5, 30/5 og 6/6 komast nú með, en eru beðnir að endurstaðfesta ferðir sínar. HJÁ VERÖLD FÆRÐU MEIRA FYRIR PENINGANA - Ó-JÁ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.