Morgunblaðið - 26.04.1989, Side 5
Bláfjallasvæðið
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1989
5
Opið fram í
maíbyrjun að
öllu óbreyttu
SKÍÐASVÆÐIÐ í Bláijöllum
verður opið fram að helginni 6.
og 7. mai að öliu óbreyttu eins og
verið hefiir undanfarin ár. Þor-
steinn Hjaltason fólkvangsvörður
segir að síðan sé spurning hvort
þeir hafi opið um hvítasunnuhelg-
ina þar á eftir. Slíkt fari eftir
færinu og vilja fólksins. Einnig
sé hugsanlegt, ef vilji er fyrir
hendi, að hafa svæðið opið eitt-
hvað lengur en þetta.
Þorsteinn segir að það sé ómögu-
legt að spá fyrir um nú hvort skíða-
menn muni hafa áhuga á því að
sækja á svæðið eitthvað eftir framan-
greindan tíma. Starfsmenn svæðisins
eru hinsvegar sveigjanlegir í því að
hafa það opið áfram ef það verður
uppi á teningnum.
„Þetta veltur allt á því hvernig
veðrið verður. Ef það heldur í horfinu
eins og er á ég von á að skíðamenn
vilji koma lengur en fyrstu vikuna í
maí. Ef veðrið snýst í sunnanátt hins-
vegar vill enginn fara á skíði hér,“
segir Þorsteinn.
Sundlaugarnar í
Laugardal:
Lokaðí dag
og á morgun
SUNDLAUGARNAR í Laugardal
verða lokaðar í dag og á morgun,
fimmtudag, en þá verður unnið
þar að ýmsum viðgerðum og lag-
færingum fyrir sumarið.
Karl prins
ekki í Kjarrá
NÚ þykir sýnt, að Karl Bretaprins
komi ekki til Islands á laxveiðar
á komandi sumri eins og til stóð,
en hann hafði ásamt vinahóp pant-
að þijá daga i Kjarrá í Borgar-
firði og áttu veiðarnar að standa
yfir um mánaðamót júlí og ágúst.
Að sögn leigutaka Kjarrár og
Þverár, barst afboðun frá tals-
mönnum prinsins í vikubyijun.
Karl kom í Kjarrá í fyrra sumar
og var það fyrsta laxveiðiferð hans
til íslands í nær áratug. Hópurinn
aflaði þokkalega, en skilyrði voru
ekki upp á það besta. Karl veiddi
þó manna best, landaði 8 löxum, öll-
um á flugu.
Færri her-
menn fá að
kynnast að-
stæðum hér
- segirupplýs-
ingafiilltrúi
Varnarliðsins
„ÞETTA hefur engin áhrif á
framkvæmd sjálfra æfinganna.
Aftur á móti fá færri hermenn
tækifæri til að nýta sér þessar
æfingar til að kynnast aðstæðum
hér, sem þeir þurfa hugsanlega
að búa við á hættutímum," sagði
Friðþór Kr. Eydal upplýsingafull-
trúi Varnarliðsins er hann var
spurður um áhrif þriðjungs fækk-
unar hermanna í heræfingum
Bandaríkjahers hér á landi í sum-
ar sem utanríkisráðherra setti að
skilyrði þegar hann heimilaði æf-
ingarnar.
Friðþór sagði að æfingar þessar
væru nauðsynlegar til að þeir her-
menn sem hingað þyrftu að koma á
hættutímum væru sæmilega að sér
um aðstæður hér á landi.
valdi hagkvæmustu tækin
Atvinnutæki
þurfa aö skila vel því hlutverki sem þeim er
ætlað til þess aö tjárfesting í þeim borgi sig.
Þess vegna skiptir megin máli að velja bestu
tækin, jafnvel þó að þau séu dýrust. Erfið-
leikar við Ijármögnun tækja leiðir hins vegar
oft til þess að ódýrari tæki verða fyrir valinu,
sem standa síðan ekki undir þeim kröfum
sem til þeirra eru gerðar. Slík fjárfesting mis-
heppnast því að meira eða minna leyti.
Fjármögnunarþjónusta
Glitnis gefur fyrirtækjum möguleika á að
velja þau tæki sem hagkvæmust eru. í boði
er allt að 100% Ijármögnun kaupverðs.
Kaup á ódýrum, vanbúnum tækjum eru því
ekki lengur nauðsynleg.
Full Ijármögnun
tækja og þar með staðgreiðsla hjá seljend-
um veitir venjulega rétt á staðgreiðslu-
afslætti sem kemur leigutakanum að fullu til
góða í lægri samningsupphæð og þess
vegna lægri leigu.
Glitnir býður
sveigjanlegar fjármögnunariausnir í formi
Ijármögnunarleigu, kaupleigu eða lána.
Leigu- eða lánstíminn getur verið allt frá 2
árum til 7 ára. Endurgreiðslur geta verið
breytilegar á samningstímanum.
Hagkvæmustu tækin
samfara sveigjanlegri Ijámnögnun, sem er
aðlöguð þörfum fýrirtækisins, er vel heppn-
uð fjárfesting. Láttu ekki tækifærin framhjá
þérfara.
Dkkar peningar vinna fyrir þig
Glítnlrhf
Ármúla 7,108 Reykjavík, sími: 91-6810 40